Þjóðviljinn - 13.04.1955, Síða 3
Miðvikudagur 13. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Verkalýðssamtökin munu telja að töluvert mikið þurfi að kenna Þróttarbílstjóranum
sem þarna var að verki.
• Dýrið sem bítur
í hælinn
Það er sagt að þrír fjórðu
hlutar Reykvíkinga séu ann-
aðhvort aldir upp í sveit eða
hafi verið ungir í sveit. Þeir
munu því flestir þekkja dýrið
sem hleypur til og bítur í hæl
þegar húsbóndinn sigar. En
þótt veslings dýrið hafi gert
þetta samkvæmt skipun vill
það ærið oft við bera að hús-
bóndinn sparki í dýrið fyrir
þjónustuna. Þá leggst dýrið
flatt, skríður, ýlfrar aumkun-
arlega, mænir upp á húsbónd-
ann, sleikir hönd hans. Og
húsbóndinn lítur hluttekning-
arlaust niður á dýrið sitt og
segir: Svei þér!
• Án glingnrs
við páskaegg
En fyrirgefið þið. Það var
alls ekki ætlunin að fara að
ræða sveitalífið, hvorki erf-
iðleika þess né sælu, nú, að
nýafstöðnum verkfallspáskum.
Það var einmitt annan páska-
dag sem ég fékk að fljóta með
út á þjóðvegina, — til mann-
anna sem hafa metið meira
að berjast fyrir bættum kjör-
um. alþýðunnar, að standa
verkfallsvörð, en glingra við
páskaegg, og hafa orðið að
neita sér um að hlýða á
messur. Við lítum fyrst við
hjá vörðunum neðan Smá-
landa. Það sem einkenndi um-
ferðina þar, eins og yfirleitt
frá upphafi verkfallsins, var
fullkomin vinsemd og skiln-
ingur hins almenna vegfar-
anda á starfi verkfallsvarð-
anna. Það sama var að sjá
uppi við Geitháls. Jafnvel
skíðabílarnir, sem frægastir
urðu á dögunum, voru nú hin-
ir ljúfustu, — enda Einar
Magnússon hvergi sjáanlegur.
Aðeins einn bílstjóri að aust-
an lét henda sig smákjána-
skap.
• 1952 — BSR — 1955
Á meðan við horfðum á um-
ferðina við Geitháls fóru
nokkrir B.S.R.-bílar austur —
tómir, og var það raunar tæp-
ast nýtt. Bílstj. á B.S.R. og
Borgarbílstöðinni eru verka-
lýðssamtökunum allkunnir.
Framkoma þeirra er með al-
veg sérstökum hætti. Það
voru þeir sem söfnuðu slags-
málaliði gegn verkfallsmönn-
um 1952. Og það stóð heldur
ekki á því að bilstjórar sömu
stöðva tækju sig nú fram um
fjandskap og benzinsmygl i
þessu verkfalli. Eitt kvöldið
um daginn fórnuðu þeir kvöld
tekjunum. Hættu að aka og
fóru í nokkrum bílum upp
undir bækistöð verkfallsvarða
neðan við Geitháls. Hentu
léttúðugir menn því á milli sín
að líklega ætluðu þeir nú að
gerast heilagir menn og gefa
gróðann af „partíaakstrinum"
til fátækra.
• Bar ekki saman
um töluna
Þeir sátu lengst af í bílum
sínum í nokkurri fjarlægð frá
verkfallsvörðunum og störðu.
Á milli skúra skutust þeir út
úr bílunum, gengu að baki
verkfallsvörðunum, kíktu
laumulega og töldu hljóð-
lega. Virtist þeim ekki bera
saman um töluna, er þeir
hurfu til baka. Stundum náðu
skúrimar þeim áður en þeir
slyppu aftur undir þak bíla
sinna svo manngreyin blotn-
uðu. Þessi seta gat verið skað-
leg heilsunni, enda laumuðust
þessir ,,meðlimir“ í Alþýðu-
sambandi Islands loks burtu.
En næstu nætur bárust fréttir
langa hríð og beindu vélum
sínum hvor að öðrum, unz bíl-
stjórinn sleppti höndum af
vél sinni og slíðraði þær í
B.S.R.
fl BAK
VIÐ HÓL
buxnavösunum. Skömmu síð-
ar voru komnir til hans nokkr-
ir félagar hans af B.S.R. Var
þá myndavél beint að þeim.
Maður einn, er þarna hafði
staðnæmzt til að horfa á verk-
stundina og því falið sig bet-
ur.
• Þegar ljósi er
brugðið á rottuhóp
Við skruppum því ábragga-
hverfisstæðið skammt fyrir
neðan Sandskeiðið. Þar blöstu
smyglarabílamir við. Og það
væri synd að segja að það
hafi verið hetjulegir menn er
höfðu falið sig þarna bak við
gíghólinn á söndunum. Þeir
stóðu þar með slöngur fastar
við tunnur og tanka. Svipur-
inn gersneiddur hreykni garps-
ins. Viðbrögðin minntu helzt
á það þegar skyndilega. er
brugðið ljósi yfir nagandi
rottuhóp í myrkri. Titringur
virtist á höndum er um slöng-
ur héldu. Ekki laust við að
örlitið benzín skvettist utan-
hjá. Þarna voru þeir komnir
mennirnir sem vilja endilega
fá sig löggilta sem einu menn-
ina er fela megi þann „trún-
að" að aka leigubíl í Reykja-
vík.
• Snar maður, Eggert
Einn var sá maður er yfir-
gaf tunnur, slöngur og tanka,
hljóp í bílinn 6828 og flýði —
í átt til fjalla! Kvað slíkt hafa
verið alltítt ráð sauðaþjófa í
gamla daga og hafa myndazt
um það margar þjóðsögur og
þykja rómantískar í bezta lagi
í dag. Maður þessi var Eggert
Thorarensen, forstjóri B.S.R.
Telja margir að hann hafi bet-
ur kUnnað sér starfa að velja
en Þorsteinn bróðir hans, að
hann skyldi taka að sér stjóm
B.S.R. í stað þess að skrifa um
utanríkismál fyrir Moggann.
En um þetta er deilt. Fer svo
löngum að sitt sýnist hverj-'
um. (Útilega Thorarensens á
f jöllum stóð þó ekki lengi, því
hann sló sér að seinna um dag-
inn og virtist ljúfur í löngum
viðræðum við Guðmund J. Fer
engum sögum af viðræðum
þeirra).
BSR-bílunum lagt að smyglbílunum eins og „móðurskipi“.
af liðssafnaði niðri á B.S.R.
Inni í portinu var geymdur
stór vörubíll, R 3555, hlaðinn
benzíntunnum — tómum.
• Nei! Ég er ekki
á B. S. R.!
Svo bar við síðar á björtum
degi uppi hjá Smálöndum að
bílsendill frá BSR var kominn
þar að baki verkfallsvörðun-
um. Kíkti hann í gegnum
myndarvélarauga. Var veður
gott og vel fallið til slíkrar
skemmtunar. Hugðist einn er
var með hóui verkfallsvarð-
anna einnig hafa af slíku
skemmtun nokkra, brá mynda-
vél á loft og beindi henni að
BSR-bílstjóranum. Ókyrrðist
hann þá mjög og beindi sinni
myndavél' að keppinaut sínum
í myndatökum. Stóðu þeir
fallsvörzluna skaut sér snar-
lega til hliðar og sagði:
Nei, nei! Eg er ekki á BSR!
Mun maðurinn hafa í þessum
fáu orðum túlkað furðuvel við-
horf almennings til stöðvar
þessarar nú.
• Þar fengu þeir inni
Svo var það síðdegis í fyrra
dag að verkfallsverðir hjá
Geithálsi brugðu sér austur á
veginn til að líta á benzin-
smyglarana. Fékk ég að fljóta
með. Við ókum upp á Sand-
skeið. Hafði manntegund þessi
fengið inni í flugskýli Svif-
flugfélags íslands. Þar var
inni geymd smyglferjan, vöru-
bíllinn R 3555, er sendur hafði
verið austur fyrir nokkru.
Ekki höfðu þeir þó talið þetta
tryggan afgreiðslustað þessa
• Númer — ekki nafn
Verkfallsmenn og aðrir
Reykvíkingar er fengið hafa
fregnir af smyglurum þessum
hafa óskað eftir vitneskju um
hverjir þar voru á ferð. Að
simii verða menn að sætta sig
við þótt nöfnum sé sleppt, en
bílamir voru þessir:
R-1803, R-683, R-5130, R-
2640, R-1520, R-5270, R-726
og’ R-4264, G-1418, R-3567, —
auk forstjórabílsins, R-6828,
er áður getur. Voru þrír hinir
síðasttöldu með benzíntunnur.
• í samúðarverkfalli
Tveir bílanna, R-4264 og G-
1418, eru vörubílar. Vömbíl-
stjórafélagið Þróttur er sem
kunnugt er í samúðarverkfalli
með • öðmm verkfallsfélögum.
Guðm. J. gekk til annars þess-
ara vörubílstj., Þróttarmanns,
Þetta var fremur renglulegur
maður, og sýndist enn minni
er hann koðnaði niður undan
tilliti Guðmundar J. Má þó
Guðmundur J. með sanni eiga
það, að hann fór ekki að>
manninum með fólsku þótt
ekki fælust í raddhreim hans
gælur einar. Þessi Þróttar-
maður er einn þeirra er hafa
notið uppeldis Friðleifs Frið-
rikssonar og Sjálfstæðisflokks
ins. Þetta er sá skilningur á
samúðarverkfallsaðgerðum
sem „allrastéttaflokkurinn",
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
kennt honum. Það er þó mjög
hætt við því að verkalýðs-
samtökin telji mann þenna og
aðra slíka margt eiga eftir ó-
lært — sem sjálfsagt sé að
kenna þeim. Um kennsluað-
ferðirnar skal engu spáð hér.
En margur veltir fyrir sér
spurningunni um það hvernig
maður þessi hyggst líta fram-
an í vinnufélaga sína — fyrr-
verandi — í Dagsbrún. Maðusr
inn sem laumast aftan að fé-
lögum sinum af því húsbóndi
hans, Sjálfstæðisflokkurinn,
segir honum það.
Guðmundur J. átti ýmislegt-
vantalað við suma þessara
manna sem höfðu falið sig
þama bak við gíghólinn. Hana
varð þvi eftir við annan mami.
Við hinir ókum brott. — Þið
fyrirgefið, en ég fór aftur að
hugsa um dýrið sem bítur í
hælimi þegar húsbóndinn sig-
ar, en skríður, mænir og sleik-
ir þegar hann sparkar og seg-
ir: Svei þér!
J.B.
Liggja í vari í Þor-
lákshöfn
Selfossi.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Grenjandi útsynningur nieð
regnhryðjum var liér í gær og
lágu 14 skip í landvari við Þot-
lákshöfn.
Einn bátur komst út frá
Stokkseyri í fyrradag, og er hanm
einn þeirr.a sem liggur hjá Þor-
lákshöfn, því ólendandi er á
Stokkseyri. Á skírdag var mok-
afli, en á laugardaginn var mjög
vont í sjóinn, gátu bátarhir
yfirleitt ekki dregið nema 2—%
trossur og var afli lítill. Netin
munu yfirleitt hafa farið í hnút
í stormunum undanfarið. Afli
hefur annars verið góður í Þor-
lákshöfn í vetur.
Nýr 49 manna
áætlunarbíll K.A.
Selfossi
Selfossi.
Rrá fréttaritara Þjóðviljanj.
Kaupfélag Ásnesinga tök í
notkun nýjan 49 sæta langferða-
vagn um páskana.
Vagn þessi er frá þýzku Hen;-
chelverksmiðjunum og var byggt
yfir hann í Þýzkalandi. Er í hou-
um hráolíumiðstöð. Er miðstöðv-
arketill er brennir hráolíu undir
vagninum og hitar hann upg
meðfram báðum hliðum.