Þjóðviljinn - 13.04.1955, Síða 9
Miðvikudagur 13. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
4" ÍÞRÓTTIR
RlTSTJÖRl FRÍMANN HELGASON
_________________
Hafa húsbyggingamál íþróttafélaganna
í Reykjavík þróazt í rétta átt?
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að draumur og von
allra íþrótíafélaga er að geta
skapað eða aflað sér aðstöðu
til iðkana þeirra íþrótta sem
þau hafa á stefnuskrá sinni.
Þetta er óskin í byggð og bæ
hvað snertir íþróttamannvirki.
Með íþróttalögunum hefur mik-
ið miðað í þá átt að uppfylla
þessar óskir með styrkveiting-
um til íþróttavalla, íþróttahúsa,
sundlauga, skíðaskála og fleiri
mannvirkja. Þessar óskir hafa
ekki verið bornar fram í fjár-
liagslegu hagnaðarskyni. Til
þess að maiinvirki geti gengið
verður í flestöllum tilfellum að
leggja frám mikla áhugavinnu.
Hagnaðurinn er því óbeinn,
og liggur í starfsöryggi félags-
ins, og eins því að annast betur
það lilutverk, sem því er ætlað,
að ná til fjöldans og gefa lion-
um aðstöðu og tækifæri til að
iðka íþróttir sér til skemmtun-
ar og hressingar, aðstöðu til
að eyða frístundum sínum á
stöðum sem hafa bætandi á-
hrif á hugarfar æskufólksins.'
Samkeponin er vissulega hörð
við ,,sjoppurnar“ og aðra slíka
svonefnda „gleði'‘-staði t.d. í
Reykjavík.
Ef óskirnar rætast?
Við skulum nú gera ráð fvr-
ir að allar þessar óskir rætist
og höfum þá í huga íþrótta-
félögin í Reykjavík, sem hafa
á margan hátt sérstöðu, þegar
rætt er um húsbyggingarmál.
Hér munu vera ekki færri en
10 félög sem ýmist hafa byggt
sér hús, eru að byggja eða
eru búin að fá teikningar, ætla
að fara að láta teikna eða eru
með einlæga drauma um eigið
iþróttahús og það bó þau eygi
ekki möguleikann til að koma
því uop á næstu 10—15—20
árnm. Þessi möauleiki getur
alltaf opnazt, ef samhentir.
dugleeir menn legaiast með
kraft.i á eitt að koma bessu uno.
Þett.a, hefur komið fvrir og því
ge+ur bað komið fvrir aftur og
aftur of- er ekkert líklegra Við
þessa tölu geta svo bætzt fleiri
Dreng]ahlaup
Armanns
Drengjahlaup Ármanns verður
háð fyrsta sunnudag í sumri
24. apríl kl. 10.15 árd. Keppt
verður í 5 manna sveitum um
bikar, sem Eggert Kristjánsson
stórkaupmaður hefur gefið, og
í 3ja manna sveitum um bikar
gefinn af Jens Guðbjörnssyni.
Handhafi beggja bikaranna er
Glímufélagið Ármann. Öllum í-
þróttafélögum innan F.R.I. er
heimil þátttaka, og skal til-
kynna hana formanni frjáls-
íþróttadeildar Ármanns, Jó-
hanni Jóhannessyni, viku fyrir
hlaupið.
félög sem kynnu að verða stofn-
uð í framtíðinni.
Það er því ekki útilokað að
hér í Reykjavík rísi upp á næstu
10—15—20 árum allt að 10 í-
þróttahús ef allt gengur eins og
vonir standa til. Við þessi allt
að 10 hús bætist svo sýningar-
og keppnishöll sem verður
byggð af Reykjavíkurbæ.
Hver ber hallann?
Óskirnar hafa. rætzt, hvert
félag sitt eigjð æfingahús óháð
og útaf fyrir sig, ‘getur valið
úr góðum tíma, til æfinganna,
svo unglingar þurfa ekki að
vera e.t.v. þar til kl. að ganga
12 við æfingar eins og þegar
aðeins eitt eða tvö hús voru
til afnota. Rætist þessi draum-
ur þá mæta flokkarnir til sýn-
inga eða keppni i sýningar-
höljinni svona tvö til þrjú kvöld
í viku. Hina 4 til 5 dagana fær
höllin sennilega að standa auð,
því að félögin sem íþróttir iðka
hafa húsnæði fyrir sig og vel|
það. Það er með þetta mál sem
flest önnur að það hefur fleiri
en eina hlið. Þegar byggt hef-
ur verið íþróttahús c.a. 32x16
m með böðum og búningsklef-
um, verður ekki hjá því komizt
að halda þessu ,,leikfangi“ við,
hita það unp og hafa í því um-
sjónarmann. Allt þetta kostar
peninga og mun varla of reikn-
að þó nefndar væru 60—80 þús-
und kr. á ári. Nú hefur það
sýnt sig að félögin hafa átt
fullt í fangi með að afla tekna
til starfrækslu þeirra svo full-
víst er að fyrir flest þeirra
verður útilokað að greiða svo
háa húsaleigu og það þó þátt-
taka í æfingum aukizt um
100%.
Hér hefur alveg verið sleppt
að gera ráð fyrir skuldum sem
boi'ga þarf, bæði afborganir og
vexti, og mun það þó óráðlegt,
en það gerir dæmið enn alvar-
legra fyrir afkomu húsanna eða
félaganna. Afskriftum er held-
ur ekki gert ráð fyrir, en við
getum látið aukna æfingasókn
mæta því.
Þá verður spurningin: Hvert
verður farið til að jafna þenn-
an halla, í hvaða sjóði verður
leitað ?
Vafalítið í bæjarsjóð Reykja-
víkur. Sú stefna hefur líka ver-
ið tekin af íþróttanefnd og
stjórn Í.B.R. að ekki megi reisa
svo stór íþróttahús að koma
megi þar fyrir áhorfendasvæð-
um sem opnuðu félögunum
möguleika til tekjuöflunar til
starfrækslu húsanna. Þetta fer
því að verða allerfitt viðfangs,
og ekki auðvelt að botna þessa
vísu: Félögin mega eftir vild
byggja sér hús, og fá til þess
styrki bæði úr bæjarsjóði og
íþróttasjóði, og hann eftir á-
stæðum furðu ríflegan, en
reksturinn sem e.t.v. skiptir
mestu máli er látinn í léttu
rúmi liggja að því er virðist.
Það er því ekki laust við að
maður verði dálítið undrandi
þegar maður heyrir ábyrga
menn í íþróttahreyfingunni
halda því fram að þessar bygg-
ingar eigi að vera einkaleikfang
þeirra félaga sem þær byggja.
Það eru fleiri sem hafa sömu
skoðun. Stjórn I.B.R. hefur
rætt þetta mál og komizt að
sömu niðurstöðu —• „enda séu
hús þessi byggð fyrst og fremst
til.að leysa æfingaþörf viðkom-
andi félaga" — er álit stjórn-
arinnar.
Meðan svo stendur að marga
af skólum bæjarins vantar hús-
næði til íþróttaæfinga er ekki
ólíklegt að nota mætti þessi
nýju hús að deginum til þegar
félögin geta ekki notað þau. Á
því verða samt alltaf töluverðir
annmarkar. Sennilegt er líka
að skólamenn framtíðarinnar
vilji hafa fimleikahýsin hið
næsta skólunum. Þetta gæti
samt verið mikil hjálp fyrir fé-
lögin meðan skólarnir hafa ekki
eigin húsnæði. (Framh.)
Zatopek ekki af
baki dottinn
Franska blaðið L’Humanité
gengst árlega fyrir 10 km víða-
vangshlaupi og býður hlaupur-
um víða að til hlaupsins. Að
þessu sinni vann Emil Zatopek
á 35.15 mín. Næstur varð Pól-
verjinn Charomik á 35.20, þriðji
varð Tékkinn Ulsberger á 35.27
mín, Kovacs frá Ungverjalandi
varð fjórði á 35.32.
Zatopek vann þetta hlaup
líka í fyrra.
Gunnar M. Magnúss: 1
Börnm frá Víðigerði
,.Ætli þér veiti af að hugsa um sjálfan þig, svo
að þú verðir þér ekki til skammar. En ég ætla
ekki að fara að skammast við þig núna.“
Stjáni svaraði fullum hálsi:
„Hvað ætli þú getir dæmt um það, sem ég
segi. Þú sem hefur hangið aftan í kýrhölunum í
sveitinni þinni og ekki séð svo mikið sem kálf
eða kettling úr annarri sveit. En ég er búinn að
heita því, að ég skal ekki tala útlenzku fyrsta
kastið, nema fyrir sjálfan mig“.
Ferðafólkið fór smátt og smát’t að tala meira'
og hressast í bragði. Ferðalagið og hið óvænta
tók hugann tökum.
Loksins var komið að áfangastaðnum, í kaup-
túnið, þar sem útflytjendur söfnuðust saman. Það
voru svo sem fleiri en Víðigerðisfólkið, sem ætl-
uðu að höggva tré í Ameríku, rækta þar korn og
alifugla og koma sér upp búgarði. Og það voru
fleiri en Stjáni, sem ætluðu að fá sér haka og
skóflu og moka moldinni ofan af gullinu í Ame-
ríku.
Þarna var saman kominn fjöldi manns, því
margir höfðu komið ofan úr sveitunum, til þess
að fylgja vinum sínum og vandamönnum ’tii
strandar. En frammi á höfninni lá útflytjenda-
skipið, stór skrokkur, svartur ög skrámóttur,
Tilboð óskast
í neðangreinðar bifieiðai:
1. Chevrolet fólksbifreið smíSaár 1954
2. Oldsmobile fólksbifreiö smföaár 1952
3. Pontiac fólksbifreiö smíðaár 1952
4. Studebaker fólksbifreiö smíöaár 1951
5. Mercury fólksbifreiö smíöaár 1950
6. Ford fólksbifreið smíöaár 1950
Bifreiöarnar veröa til sýnis hjá Arastöðinni viö
Háteigsveg fimmtudaginn 14. þ.m. kl. 1-3 eftir há-
degi.
Tilboöin veröa opnuö í skrifstofu vorri sama dag
kl. 4.
Sala setnliðseigna líhisins.
Byggingafélag alþýðu,
Rgykjavík.
AÐALFUNDUR
félagsins veröur haldinn í Alþýðuhúsinu, Hverfis-
götu, mánudaginn 18. apríl n.k. kl. 8.30 síödegis.
Dagskrá sámkvæmt félagslögum.
Stjórn Byggingafélags alpýðu.
Bif reiðar
Höfum ávallt til sölu flestar tegundir bifreiða. Tökum
bifreiðar í umboðssölu. — Gjörið svo vel að líta til okk-
ar, ef þér þurfið að kaupa eða selja bifreið.
BÍLASALAN
Klapparstíg 37 — Sími 82032