Þjóðviljinn - 19.04.1955, Blaðsíða 4
'4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 19. apríl 1955
Marteinn írá Vogatungu:
Um búskftp
Fyrri grein
l
Eg sting ekki niður penna
af því að mér finnist áramóta-
grein formanns Framsóknar-
flokksins þess virði að hún sé
rædd, til þess hafa hugleið-
ingar þessa manns verið um of
á reiki til ýmsra átta, hin síð-
ustu ár. Aftur á móti langar
mig til að ræða við bændur
stefnuleysi Framsóknarflokks-
ins í landbúnaðarmálum á
lfðnum árum, vegna þess hve
áðurnefnd áramótagrein hef-
ur vakið miklar vonir í brjóst-
um margra umbótasinnaðra
bænda sem fylgt hafa Fram-
sóknarflokknum að málum til
þessa. En hugarfari þessara
manna er þannig farið nú til
Uags að þeir telja þá stund
■þegar upp runna að mynduð
verðí umbótasinnuð vinstri-
stjórn.
Vafalaust má telja vona-
vakningu sem þessa mjög svo
eðlilegt fyrirbæri, því fáir
skilja betur en umbótasinnað-
ir bændur hve brýn nauðsyn
ber til þess að hafizt sé handa
um nýsköpun landbúnaðar, en
til þess hefur Framsóknar-
flokkurinn reynzt getulaus
vegna skilningsleysis á vanda-
málunum og treysta þeir því
flokki sósíalista bezt til þess
að knýja flokk þeirra til raun-
hæfrar umbótastefnu.
Nú standa bændur frammi
fyrir þeim vanda að verða í
mjög náinni framtíð að selja
nokkurn hluta framleiðslu
sinnar á erlendum markaði, og
! standast þar samkeppni um
verð og vörugæði, er því eðli-
legt að margur bóndi beri ugg
í brjósti vegna afkomu sinnar.
Islenzkir bændur hafa sýnt
það svo ekki verður um deilt,
að þeir eru mjög fljótir að til-
einka sér nýungar á sviði
landbúnaðar, en vegna óhæfrar
forustu hafa margar þessar
nýungar aðeins reynzt þeim
fjötur um fót í baráttu þeirra
fyrir bættum búnaðarháttum,
en sú barátta er afar eðlileg
því fáir sætta sig til lengdar
við það að hafa með höndum
þá framleiðslugrein sem ekki
getur staðizt samkeppni við
aðrar atvinnugreinar þjóðar-
innar, vegna þess að hún er
rekin með löngu úreltum fram-
leiðsluaðferðum, og eftir því
sem tækni eykst og viðhorf
breytast kemur þetta æ skýr-
ar í ljós.
Hinn mikli áróður og upp-
lýsingar frá hendi hins opin-
bera í sambandi við landbún-
að, hafa aldrei beinzt að skipu-
lagsmálum búvöruframleiðsl-
unnar, heldur einungis að fjöl-
breytni, og án þess þó að fyr-
ir henni væru aðstæður sem
skapað gætu nýrri búgreina-
framleiðslu arðbæran grund-
völl. En sem allir vita er betra
að reka aðeins eina búgrein
með ágóða, en margar ef þær
eru reknar með tapi.
I þessu efni er margt upp
að telja. Við minnumst þess
að sjálfsögðu þegar hið opin-
bera hófst handa um innflutn-
ing karakúlfjárins, sem yfir
íslenzkan landbúað leiddi þá
verstu plágu sem um getur í
sögu hans. Þó er það ekki plág-
an sem einkennir hið stefnu-
lausa fálm sem átt hefur sér
stað, heldur hitt að þarna áttu
bændur að hefja framleiðslu
nýrrar búvörutegundar, án at-
hugunar á því hvort fyrir
hendi væru skilyrði til þeirrar
framleiðslu, nema þá á kostn-
að annarrar. Og einnig munum
við það þegar hafinn var inn-
flutningur loðdýra, sem sömu
sögu má um segja. í sam-
bandi við þá búgrein lögðu
-bændur af litlum efnum í
mikla fjárfestingu, sem aðeins
varð þeim vel flestum auka
erfiði og útgjöld.
Eg veit ekki hvort þörf er
að rekja þessi afskipti hinna
ráðandi manna, þau eru alþjóð
kunn. Þó er nauðsynlegt að
benda á að þessi stefna er enn
við lýði, og jafnvel nú í mest-
um blóma. Eða höfum við ekki
heyrt áróðurinn. Við eigum að
taka upp framleiðslu á holda-
nautum, fóðurkorni, fóðurróf-
um og fóðurkáli, nýjum fram-
leiðslugreinum í viðbót við þær
sem fyrir eru.
Stöldrum nú við og athug-
um búnaðarhætti einyrkjans í
dag, og við getum gjarnan
tekið eitthvert það bú sem
rekið er sem fyrirmynd eftir
tilsögn hinna ábyrgu ráðandi
manna. Bútegundirnar eru þá
sem hér segir. Hross, sauðfé,
tvær tegundir nautpenings til
mjólkur og holda, svín, ali-
fuglar, loðdýr þrjár tegundir,
það er, refir, minkar, kanínur.
Siðan kemur svo ræktun mat
og fóðurjurta, sem munu vera
eitthvað þrjátíu tegundir. Og
þó eru hér aðeins nefndar hin-
ar helztu og venjulegustu
greinar landbúnaðarframleiðsl
unnar, sem taldar eru hverjum
bónda nauðsyn tii þess að geta-
rekið arð.vænlegan búskap.
Á því sem nú hefur verið
upptalið hljóta menn að sjá
hvert stefnir í íslenzkum
landbúnaði.
Næst ættum við svo að hug
leiða hvað svona búrekstur
leiðir af sér í fjárfestingar-
málunum. Húsbyggingar yfir
tíu tegundir búpenings á-
samt geymslum yfir hinar
ýmsu fóður- og matarfram-
leiðsluvörur, og svo síðast en
ekki sízt vélasamstæðurnar
sem tilheyra hverri fram-
leiðslugrein, ásamt húsum yf-
ir þær. Allt kostar þetta svo
gífurlega fjárfestingu að hver
skyniborinn maður hlýtur að
sjá að stefna sú sem nú ræð-
ur í landbúnaði okkar er full-
komlega vonlaus.
Eg veit ekki hvort ástæða
er til að nefna nokkrar tölur
í þessu sambandi, þetta er svo
augljós vitfirring. En geta má
þess að lán þau sem landbún-
aðurinn nýtur eru veitt til
þrjátíu eða fjörutíu ára, en
f járfesting meðalbús mun vera
nærri átta hundruð þúsund.
Kæmi þá í hlut hvers árs
greiðsla sem næmi röskum
tuttugu þúsundum auk vaxta
sem nema að sjálfsögðu hálfri
þeirri upphæð, þó miðað sé
eingöngu við hin hagstæðu
landbúnaðarlán.
Næst ber svo að ræða starf
einyrkjans við svona búnaðar-
hætti.
. Viðleitni bóndans til nýsköp-
unar í landbúnaði má í mörgu
líkja við fjörbrot manns sem
er að drukkna, hann grípur
hvert hálmstrá sem fyrir hendi
verður til þess að halda sér
uppi, svo er og með bóndann,
liann grípur fegins hugar við
öllum ráðleggingum hinna ráð-
andi manna um fjölbreytni í
búvöruframleiðslu, því hann
veit að eitthvað verður að gera
svo íslenzkur landbúnaður
leggist ekki að fullu niður,
ekki sízt þegar bjargráð hinna
vísu manna eru prýdd styrkj-
um úr ríkissjóði ásamt vaxta
lágum lánum, sem þó nema
aldrei hærri upphæð en til
greiðslu á efni til þeirra
framkvæmda, sem hin fálm-
kennda fjölbreytni krefst.
Nú vita allir að laun bónd-
ans voru lægri en annarra
stétta þjóðarinnar, þar til þeir
fengu samninga við neytendur
eða verkalýðssamtökin um
verðlag framleiðslu sinnar,
sem tryggði þeim sömu laun
og verkamönnum, og var það
bændum mikil bót. Síðan hef-
ur svo Framsóknarflokkurinn
rofið þetta samkomulag, svo
nú eru laun bænda miklu lægri
en annara vinnu-stétta. Af
þessu sést að bændur hafa
aldrei haft fjárhagslega getu
til greiðslu vinnulauna við hin-
ar fjárfreku framkvæmdir, og
réði því mestu þegar til fram-
kvæmda kom hve frænda og
vin margir þeir voru til þess
að geta fengið fólk til þegn-
skylduvinnu. Og cr ég þá kom-
inn að því atriði sem örlaga-
ríkast hefur orðið íslenzkum
landbúnaði. Nú er svo málum
komið að íslenzk æska neitar
að eyða sínum beztu árum í
þegnskylduþrælkun horfandi á
útslitna foreldra fyrir aldur,
útslitna af tilgangslausu
striti. Hún flýr burt, flýr þann
stað þar sem ekkert fékkst
annað en strit og aftur strit,
og lái henni þeir sem til þess
hafa skap, bændur gera það
áreiðanlega ekki, þeir þekkja
svo vel hvernig farið hefur um
mikið af því fé sem veitt hefur
verið til aðstoðar landbúnað-
inum. Bera ekki eyðibýlin um
allar sveitir þess ljósan vott,
eyðibýli þau sem bændur hafa
yfirgefið eftir að til þeirra
hafa verið veittar tugþúsundir
í styrkjum og lánum, ásamt
margra ára striti fólksins, sem
fórnað hefur þar starfsorku
sinni, en gefizt svo upp og yf-
irgefið allt sitt, svo víða ligg-
ur heilum sveitum við auðn. Á
stundum getur leynzt þar ær-
in harmsaga að baki.
Einnig hljóta allir að skilja
að bóndi sem hefur með hönd-
um margþætta búvörufram-
leiðslu, hefur ekki tíma til að
standa í bygginga- og ræktun-
arvinnu. Þó er raunin sú að
bændur stunda búreksturinn
sem íhlaupavinnu, og gefur því
engin framleiðslugreinin þann
arð, sem hún hefur hæfni til,
væri skynsamlega að unnið og
fyrir hendi -sú aðstaða að
bændur gætu ótruflaðir gefið
sig að einni búgrein.
Á þessu sést einnig hve gíf-
urlega gjaldeyrissóun slíkt
stefnuleysi í búvöruframleiðsl-
unni skapar, aulc þess starfs
sem þar er kastað á. glæ.
Þess utan er svo sá véla-
kostur sem svona búskapar-
hættir útheimta ekki nýttur
nema að örlitlum hluta, en
ryðgar gjarnan þess í stað nið-
ur og eyðileggst miklu fyrr en
ef rétt væri á málum haldið,
enda hefur því verið óspart
haldið fram af hinum vísu bú-
frömuðum okkar, að skortur á
umgengnismenningu geri mjög
vart við sig meðal bænda, og
er þá oft tilfært hve sóðalegt
sé kringum bústaði sveitanna,
að bændur kunni ekki meðferð
véla, láti þær liggja út um
engjar og tún og drafna þar
niður í hirðuleysi, smyrji þær
ekki, o.fl. o.fl. Þeir eigi gjarn-
an að taka sér viku til fegr-
unar eins og Reykvikingar,
þeir eigi að byggja hús yfir
vélar sínar, smyrja þær vel og
aka þeim uppá kubba svo
hjólbarðar fúni ekki, og annað
álíka, þetta borgi sig segja
þeir, og ýmislegt fleira ágæti
kvað fylgja hirðusemi. — Það
er sem þessir menn haldi að
bændur séu haldnir einhverri
óart, einhverri molbúanáttúru
sem verði að berja úr þeim með
illu eða góðu. En að ástæðn-
anna sé leitað í göllum hinna
aldagömlu búnaðarhátta sem
enn er við haldið af þeim sem
málum ráða' virðist órafjarri
skilningi þeirra.
Nú hin síðari ár virðist sem
bændur séu almennt farnir að
láta hinn geistlega áróður
Framhald á 11. síðu.
¥erkaniaður spyr Mor gunblaðið
„Kjarni þessa máls er sá
að almenningur í landinu
krefst talarlausra samninga og
vinnufriðar á þeim grundvelli
að reynt verði að koma til
móts við óskir laegst launaða
verkafólksins án þess að stefna
rekstri atvinnutækjanna í
hættu eða leiða nýja gengis-
lækkun yfir þjóðina.“
Hvar halda menn að þessi
ummæli hafi staðið? Þrautin
er eflaust fullþung, en þau
stóðu í forustugrein Morgun-
blaðsins í fyrradag, í málgagni
thorsaranna og Bjarna Bene-
diktssonar undir fyrirsögninni
„Kommúnistar spilla fyrir sátt-
um“. Ummælin sýna mætavel
hversu hrætt íhaldið er orðið
við afleiðingar verka sinna.
En lesendur spyrja að» von-
um:
Ef þetta er kjarni málsins
hvers vegna er þá ekki gengið
til tafarlausra samninga?
Hvernig stendur á því að enn
er ekki komið til móts við ósk-
ir verkafólksins?
Hvaða sættir eru það sem
atvinnurekendablöðin eru allt-
af að segja að „kommúnistar“
hafi spillt?
Verkamaður.
Fermingar og íjárútlát — Kyrtlarnir mikil bót
Hátíð barnsins en ekki aðstandenda — Ögn
um Skálholtskirkju
UM ÞETTA leyti árs fara fram
fermingar í stórum stíl og víða
er mikið tilstand. Undanfarin
ár hafa fermingar barna verið
svo mikið fyrirtæki að við
liggur að fátækt fólk setji sig
á höfuðið, því að það reynir
að gera sem bezt til barn-
anna og þessa heiðursdags
þeirra. Það er þó mikil bót að
með tilkomu fermingarkyrtl-
anna sem kirkjurnar leggja til
dregur talsvert úr f járútlátum
fólks. Það er ekki lengur neytt
til að eyða stórfé í flíkur sem
notaðar eru einu sinni eða
tvisvar, svo sem hvíta hæla-
síða kjólinn telpunnar og
svörtu eða dökkbláu fötin
drengsins. Samt sem áður er
þetta ekki útgjaldalaust fyrir-
tæki. Fermingargjafir og
fermingarveizlur eru víða lióf-
lausar og fólk reynir að halda
fast við þessa siði, þótt fjár-
hagur þess leyfi það alls ekki.
Auðvitað reyna kaupmenn allt
sem þeir geta til að viðhalda
fermingargjafasiðnum, því að
hann er mikið vatn á gróða-
myllu þeirra, og auglýsingar
um „hentugar fermingargjaf-
ir“ óma í eyrum okkar í út-
varpinu dag eftir dag. Eg
minnist þess að í Danmörk var
fyrir nokkrum árum farin her-
ferð gegn fermingarveizlum
og gjöfum og reynt að koma
því á að eitthvað viturlegra
væri gert fyrir börnin en eyða
stórfé í veizlur sem þau hafa
mjög takmarkaða skemmtun
af, heldur eru miðaðar við ætt-
ingja og vini. Barizt var fyrir
því með oddi og egg að því
fé sem annars væri sóað í
veizluhöld væri varið til ferða-
lags fyrir barnið, sem gæti
orðið því til skemmtunar og
þroska. Og þetta bar talsverð-
an árangur. Skipulagðar voru
ferðir fyrir fermingarbörn til
útlanda, mislangar og misdýr-
ar eftir efnum og ástæðum
hvers og eins, og þótti þetta
gefast mjög vel.
SVO KEMUR stutt bréf um
Skálholtskirkju og útlit henn-
ar. — Brandur skrifar: —-
„Ekki var ég sammála skrif-
um þínum, Bæjarpóstur góður,.
um Skálholtskirkju. Eg held:
yfirleitt að flestir hafi sagt
eitthvað sem svo þegar myndl
af líkaninu birtist í blöðunum:
Þetta er miklu betra- en við
bjuggumst við. Og svo mikið
er víst að kirkjan virðist lát-
laus og laus við allt flúr. Eg*
hef ekkert vit á byggingarstíl
og mín vegna getur þetta heit-
ið rómanskur, gotneskur eða
jafnvel funkisstíll, en hvað
svo sem þeir sem vit hafa á
kjósa að kalla þessa stílgerð
eða stílgerðir, þá fellur bygg-
ingin mér vel í geð og ég .veit
að svo er um fleiri. — Vinsam-
legast — Brandur".