Þjóðviljinn - 20.04.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 20. apríl 1955
ic I dagr er miðvikudagurinn 20.
apríl. Sulpicius. — 110. dagur árs-
íns. — Síðasti vetrardagur. — Sól-
arupprás kl. 5:41. — Sólarlag kl.
21:14. — Tungl í hásuðri kl. 11:33.
Árdegisliáflæði kl. 4:34. Síðdegis-
liáflæði kl.; 16:54.
Fríkirkjan Messa
á morgun, sumar-
daginn fyrsta, kl.
5. Séra Þorsteinn
Björnsson .
Styrktarsjóður
munaðarlausra barna,
sími 7967.
Söfnin eru opin
Bæjarbókasafnið
Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis
Laugardaga kl. 2-7. Súnnudaga kl
5-7. Lesstofan er opin virka daga
kl. 10-1-2 fh. og 1-10 eh. Laugar-
daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga
kl. 2-7.
Nattúrugripasafnið
kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 ó
þriðjudögum og fimmtudögum.
Fjóðminiasafnið
kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15
& þriðjudöguní,' fimmtudögtim og
laugardögum. :j:: , .
Fjóðskjalasafnið
& vlrkum dögum kl. 10-12 og
14-19.
Landsbókasafnið
kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
daga nema laugardaga kl 10-12
og 13-19.
Flokkurlim
1. ársfjórðungur féll í gj'ald
daga 1. janúar. Greiðið flokks
gjöld ykkar skilvíslega í skrif
stofu flokksins.
Þar var uppsprettulind
í túnjaðrinum
Þegar Jón, faðir Hjalta konsúls,
bjó á Fossi, bjó faðir hans, Einar
Jóhannsson, í Þórisholti. Þar var
uppsprettulind í túnjaðrinum, sem
allt vatn var sótt í fyrir heimilið,
og voru aðeins mjóar traðir frá
bænum og niður að lindinni. Göm-
ul -ummæli voru um það, að ætið
skyldi hreinsa lindina fyrsta vetr-
ardag ár hvert. Á þessum 40
árum, sem Einar bjó i Þórisholti,
kom það tvisvar fyrir, að ein-
hverra hiuta vegna var iindin
ekki hreinsuð fyrir fyrsta vetrar-
dag. 1 annað skiptið vildi það
óhapp til, að vinnustúlka á bæn-
um hrasaði við lindina og fót-'
brotnaði, er hún var að sækja
vatn. 1 hitt skiptið lapparbrotn-
aði ein kýrin, sem verið var að
vatna þar. En ella vildi þar aldr-
ei slys til í búskapartíð Einars. —
(Úr íslénzkum þjóðsögum Einars
Guðmundssonar, eftir frásögn
Hjalta Jónssonar.)
Næturvarzla
er í Reykjavíkurapóteki, sími
1760.
Ú
l I F J A B
Ð I B
Holts Apótek | Kvöldvarzla til
CT | kl. 8 alla daga
Apótek Austur- | nema laugar-
bæjar daga til kl. 4.
A morgun er sumardagurinn fyrsti, sem við getum alveg eins kallað barnadaginn mikla. Kjör-
orð þessa barnadags er nú; Eina borg enn — en það þýðir: eití dagheimili og leikskóla í við-
* f-...... ^
bót. Hér ér mynd úr einni borginni: Barónsborg, og ætti þessi mynd að stuðla að góðum undir-
tekíum undir þetta ágæta kjörorð.
8.00-9.00 Morgun-
útvarp. 10.10 Veð-
urfregnir. 12.00—
13.15 Hádegisút-
varp. 15.30 Miðdeg-
isútvarp. — 16.30
Veðurfregnir. 18.00 Islenzkuk. II.
fl. 18.30 Þýzkukennsla; I. fl. 18.55
Iþróttir (Atli Steinarson blaða-
maður). 19.10 Þingfréttir. — 19 25
Veðurfregnir. 19.30 Óperulög. 19.40
Auglýsingar. — 20.00 Fréttir. 20 20
Dagskrá háskólastúdenta: a)
Ávarp (Skúli Benediktsson stud.
theol., formaður stúdenta-ráðs).
b) Erindi: Lögfræði og laganám
(Sigurður Líndal stud. jur.) c)
Frumsamdir þættir (Jón Bjarman
stud. theol.) d) Erindi: Codex
sinaiticus (Ásgeir Ingibergsson
stud. theol.) e) Frumsamin Ijóð
(Jón Böðvarsson stud. mag. og
Matthías Johannessen stud. mag.)
f) Svipmyndir úr skólalífi fyrr og
nú (Jökull Jakobsson stud. theol.
og fleiri). 22:00 Harmonikuþáttur
Karls Jónatanssonar. 22:40 Dans-
lög af plötum til kl. 23:45.
Esperantistaíélagið Auroro
heldur fund í Edduhúsinu Lind-
argötu 9A (uppi) kl. 8:30 i kvöld.
Apríl-tolað Hauks
er nýkomið út, og
hefst það að þessu
sinni á vísnabálk
eftir Davið Arn-
finnsson, í Hiíð.
Grein er um páskana, og nefnist
hún: Krossinn, tákn páskanna og
kristindómsins. Kvenlæknirinn
nefnist smásaga eftir Jane Caus-
enway. Þá er ennfremur grein um
kvikmyndaleikkonuna Grace Kelly
sem þykir sta-nda mjög framar-
lega í sinni grein. Listamannaþátt-
ur Hauks fjallar að þessu sinni
um Jóhannes Jóhannesson list-
málara.
Tímaritið Birtiugur
fæst hjá útgefendum, en þeir eru:
Einar Bragi, Smiðjustíg 5; Geir
Kristjánsson, Þingho’.tsstræti 8;
Hannes Sigfússon, Garðastræti 16;
Hörður Ágústsson, Laugavegi 135;
Jón Óskar, Blönduhlið 4; Thor
Vilhjálmsson, Klapparstíg 26. —
Leiðrétting
Á forsíðu blaðsins í gær varð tví-
vegis sú prentvilla að talað var
um BSB í stað BBS. BSB er
skammstöfun á Bifreiðastöð Borg-
E.rness, en hún átti þarna engan
hlut að máli, heldur Borgarbíl-
stöðin.
Morgunblaðið held-
ur áfraiu að þiggja
opinberar mútur. 1
gær er enn heil-
síðu auglýsing frá
„TJnited Alrcraft
Corporation, East Hartford, Conn-
ecticut, Bandaríkjunum, leiðandi
teiknarar og framlelðendur í
bandarískum flugvélaiðnaði“. —
Á mynd sem tekur yfir meira en
hálfa síðuna ev mynd af einhverj-
um herklæddum dólgum að horfa
á kopta merkta „U.S. Armý'.
Hvað kostar síðaii hjá þér, Moggi
minn?
Dívanar
■
■
■
j Ódýrir dívanar fyrirliggjand
Fyrst til okkar — það
borgar sig.
| Verzl ÁSBR0,
Grettisgötu 54,
I sími 82108
Gátan "aí“
Hver er sú hin fagra borg?
Hún er ekki raftamörg,
þeir eru ei utan þrír,
góður er í henni hlýr;
hún er þakin veggjalaus
og víst með engu torfi,
stendur vítt um ha-uðurs hring,
margur á hana horfir.
Ráðning síðustu sátu: SÓLEY
Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína
á Akureyri ungfrú
Gyða Bárðardóttir,
Eiðsvallagötu 23,
og Yngvi Böðvars-
son, til heimilis að Ægisgötu 4.
Krossgáta nr. 629
Lárétt: -1 sverta 3 hvíldi 6 tveir
eins 8 númer 9 afkvæma 10 lík-
amspartur 12 forsetning 13 fyrir
innan allt 14 ónefndur 15 átt 16
lærði 17 forðageymsla
Lóðrétt: 1 Bretinn 2 keyrði 4
kvenmannsnafn 5 treður 7 lamdi
11 kindanna 15 núna
Lausn á nr. 628
Lárétt: 1 lasna 6 karlana 8 EK
9 as 10 áta 11 bú 13 en 14 braut-
in 17 aurar
Lóðrétt: 1 lak 2 ar 3 slátur 4
NA 5 ana 6 krahb 7 asinn 12 úra
13 eir 15 au 16 ta
’Trá hóíninni
Eimskip
Brúarfoss, Dettifoss, Fjallfoss,
Goðáfoss, Reykjafoss, Tröllafoss
Goðafoss,' Reykjafoss, Tröllafoss,
Tung,ufoss og Katla eni í Réykja-
vík. Gu’.lfoss fer frá Kaupmanna-
höfn 23. þm til Leith og Reykja-
víkur. Lagarfoss fór frá Hamborg
17. þm til Reykjavíkur. Selfoss fór
frá Wismar; 18. þm til Islands.
Drangajökull fór frá New York
18. þm til Reykjavíltur.
Skipadeild SIS
Hvassafell er í Rotterdam. Arnar-
fe'.l er í Reykjavik. ^ökulfell fór
frá Keflavík 17. þm til Boulogne
og Hamborgar, Disarfell er á Ak-
ureyri. Helgafell er í Hafnarfirði.
Smeralda er í Hva.lfirði. Granita
fór frá Póllandi 7. þm til Islands.
Áheit til Strandakirkju
Frá gamalli konu kr- 30,; -r.
Tilltynning frá Vináttutengslum
lslands og Rúmemu
Félaga.r á 23. ágúst — stjórn fé-
lágsins vill vekja athygli ykkar á
því að í MÍR-salnum Þingholts-
stræti 27 getið þið fengið að
láni rúmenskar bókmenntir í ensk-
um, þýzkum og frönskum þýðing-
um; ennfremur bækur um málara-
og byggingarlist. Salurinn er op-
inn kl. 5-7 daglega.
SKÁKIN
Hvítt: Botvinnik
Svart: Smisloff
31. b2—bS Kg8—h8
32. Hal—gl II í(!—(16
33. Bd2—cl
Hér var Bxf4, exf4 e4-e5 freistandi
mögu'.eiki, en tæpast nógu góður.
Svartur leikur 34. — Hh6.
....’***
m M
i.m-m rn i
í W é''mw\v
m)
Wm..;
I
wm'
s mm
abcdefgh
litli Kláus og stóri Kláus
Ævintýri eftir H. C. ANDERSEN Teikningar eftir Helge Kuhn-Nielsen
12.
Steig nú litli Kláus enn á poka sinn, svo skrjálaði í hross-
hánni. — Hvað segir hann núna? spurði bóndi. — Hann
segir, svaraði litli Kláus, að hann hafi sömuleiðis galdrivð
til okkar þrjár flöskur af víni; þær standa líka inni í
ofninum. Og nú varð konan líka .að taka fram vínið,
sem hún hafði falið, og drakk' bóndinn og varð hinn
hreyfasti; svona galdrakarl eins og þann, sem litli Kláus
hafði á pokanum, sagði hann að sig stórlangaði tii að
eiga. — Getur hann líka galdrað fram djöfulinn? spurði
bóndi. Djöfsa þættiiilrtér? tgamajiáaðiusjá) því nú iiggur
vel á mér.
Miðvikudagur 20. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Náfitúnigripasafnið eignast geirfuglsbeinagrind og egg
r r
A Islandi var síðasta athvarf
fuglsms í heiminum
geir-
Náttúrugripasafnið hefur nú eignazt tvo merka nátt- j
úrugripi: geirfuglsegg og beinagrind af geirfugli. Geir-
fugli hefur verið gereytt fyrir löngu, — síðasti geirfugl-
inn við ísland var drepinn 1844 — og alls eru ekki til í
heiminum nema 80 geirfuglshamir, 75 egg, 10 heillegar
beinagrindur og 2 skrokkar með inmi líffærum.
Finnur Guðmundsson fugla-
fræðingur skýrði blaðamönnum
frá þessu í gær. Gripir þessir
eru keyptir af dýrafræðisafni
Harvardháskólans. Verð eggsins
er 8 þús kr. en beinagrindarinnar
2500.00 kr. oe er þetta verð
langt fyrir neðan það sem hægt
væri að selja þá á frjálsum
markaði.
Tiidrög að kaupum þessum
kvað Finnur Guðmundsson vera
þau að sumarið 1953 heimsótti
hann Harvardháskóla og vakti
það athygli hans hve dýrafræði-
safn háskólans var auðugt af
geirfuglaleifum. Hafði Finnur
orð á því við forstöðumann
safnsins að sér fyndist þessum
gripum ójafnt skipt, þar sem
engar geirfuglaleifar væru til á
íslandi, enda þótt ísland hefði
verið síðasta athvarf gpirfugls-
ins í heiminum og mikill hluti
þeirra geirfuglaleifa sem til
væru, væri frá íslandi kominn.
Orðum Finns var vel tekið —
og nú eru beinagrindin og geir-
fuglseggið komið í Náttúrugripa-
safnið hér.
Geirfuglsbein við Tjörnina
Náttúrugripasafnið á nú, auk
þess er að framan greinir, einnig
nokkuð af lausum geirfuglsbein-
um. Þau fundust árið 1944 í hin-
Snemma næsta morgun komu
þeir undir Eldey. Nokkur brim-
súgur var við eyna, en þrír
menn komust þó klakklaust upp
á klettaflösina, þar sem lending-
in er. Þessir menn voru Jón
Brandsson, Sigurður ísleifsson
og Ketill Ketilsson. Fjórði mað-
urinn, sem átti að fara í land,
þorði ekki að stökkva upp á
flösina, þegar á átti að herða.
Þegar þessir þrír menn héldu
upp bergfláann við rætur klett-
anna, komu þeir strax auga á
tvo geirfugla innan um svart-
fuglinn og iögðu þegar til at-
lögu við þá. Geirfuglarnir gerðu
enga tilraun til að veita þeim
viðnám, en lögðu strax á flótta
fram með klettunum ofan við flá-
ann. Þeir bárp höfuðin hátt og
héldu litlu vængjunum dálítið
frá sér, en bar furðanlega hratt
yfir, svo að gangandi maður
mátti hafa sig allan við til að
hafa við þeim. Jóni tókst brátt
að króa annan fuglinn af og ná
honum, en Sigurður og Ketill
eltu hinn, og sá fyrmefndi náði
honum, þegar hann var alveg
að komast út á blábrúnina á
klöppinni, þar sem nokkurra
faðma hátt þverhnípi var í sjó
niður. Ketill sneri þá við upp flá-
ann, þar sem fuglarnir höfðu
fyrst verið. Þar sá hann egg
Geirfuglsegg (til hægri) bor
um forna sorphaug sem komið
var niður á þegar verið var að
grafa fyrir grunni Steindórs-
prents í Tjarnargötu 4. Hafa
bein þau verið ákvörðuð af
beinasérfræðingi dýrafræðisafns-
ins í Kaupmannahöfn. Eru bein
þessi nú komin hingað til safns-
ins aftur, og eru meðal þeirra
76 einstök geirfuglsbein, þ, á m.
heill neðri skoltur. Sýnir þetta
að mikið hefur verið um geirfugl
um það bil er byggð hófst hér á
landi.
Síðasti geirfuglinn
Þá lét dr. Finnur Guðmundsson
blaðamönnum í té eftirfarandi
frásögn um afdrif síðasta geir-
fuglsins á fslandi.
Eins og kunnugt er voru tveir
síðustu geirfuglarnir drepnir í
Eldey árið 1844.
Það var að kvöldlagi í byrjun
júní 1844 (einhvern daganna frá
2.—5. júní), að Hafnamenn lögðu
af stað á áttæringi út í Eldey.
Formaður á bátnum var Vil-
hjálmur Hókonarson í Kirkju-
vogi, en skipverjar voru alls 14.
ið saman við álkuegg.
liggja á beru berginu, sem hann
þekkti, að var geirfuglsegg. Hann
tók eggið upp, en þegar hann sá,
að það var brotið, lagði hann það
aftur niður á sama stað. Óvíst
er, hvort annað egg hefur verið
þar. Allt þetta gekk fyrir sig á
svipstundu, og þeir félagamir
flýttu sér nú niður að bátnum,
því að brimið fór vaxandi. Þeir
sneru fuglana úr hálsliðnum og
köstuðu þeim út i bátinn, og Sig-
urður og Ketill stukku síðan út í
bátinn, Jón, sem var maður við
aldur, hikaði hins vegar við að
stökkva út í bátinn, og hótaði
formaðurinn þá að krækja í
hann með krókstjakanum. Að
lokum var kastað til hans bandi,
og var hann dreginn út í bátinn
í gegnum brimið. Veður fór nú
versnandi, en strax og þeir voru
lausir við brimsúginn við Eldey,
gekk þó allt að óskum, og náðu
þeir heim heilir á húfi. Næsta
dag lagði Vilhjálmur af stað til
Reykjavíkur með fuglana, og var
ætlun hans að fara með þá til
Carl F. Siemsen, en leiðangur
þeirra Hafnamanna hafði verið
farinn að undirlagi hans. En á
leiðinni hitti hann Christian
Hansen í Hafnarfirði, og keypti
hann fuglana af Vilhjálmi fyrir
80 ríkisbankadali. Hansen lét síð-
an Múller apótekara i Reykjavík
fá fuglana. Hann lét hamtaka
þá, en setti skrokkana í vínanda,
og eru þeir nú geymdir í dýra-
fræðisafninu í Kaupmannahöfn.
Hinsvegar er ekki vitað með
vissu, hvað af hömunum varð.
Við eigum það fyrst og fremst
Englendingum að þakka, að það
sem hér hefur verið sagt, og
raunar margt fleira í sambandi
við endalok geirfuglsins, hefur
verið varðveitt frá glötun. Þessir
menn voru prófessor Alfred
Newton í Cambridge og John
Wolley. Þeir komu til íslands
árið 1858 og dvöldust í Kirkju-
Framhald á 5. síðu.
SkriSuföll
á SiglufirSi
1 fyrrakvöld var óvenjumikil
rigning á Siglufirði og féllu
skriður úr Hvanneyrarskál og
ollu miklu tjóni á lóðum og
götum í bænum. Flutt var úr
15 íbúðum um kvöldið af ótta
við skriðuföllin, og í þær aftur
þegar hættan var liðin hjá.
Tvær götur, Hólavegur og
iHlíðavegur voru ófærar eftir
skriðumar. Tjón á lóðum er
mikið.
Stefna íhaldsmenn
borprstiéranum?
Sjálfstæðisflokkurnin hefur
nú látið hætta sorphreinsuninni
í bænum. Einn góður og skil-
vís íhaldsmaður, sem greitt
hafði sorphreinsunargjald sitt
á réttum gjalddaga fyrir nær
tveimur mánuðum hringdi til
blaðsins í gær og var í versta
skapi. Kvað hann þetta þjón-
ustu sem hann hefði þegar
greitt fyrir og væri eina svar-
ið við svona framkomu og slík-
um svikum að stefna borgar-
stjóranum og fara í mál við
bæjarstjómina fyrir svik!
í. íftv ííL'.éjy: Íijil .Maj juu»4 80 -uesta hf ijijntote'!} jutúVf;
Blöð og skenuntanir barna
Framhald af 12. síðu.
dansasýningar og sjá íþrótta-
kennarafélagið og Þjóðdansafé-
lagið um þau atriði.
Inniskemmtani r
Um 20 inniskemmtanir fyrir
börn verða síðdegis og nokkrar
fyrir fullorðna. Fyrsta skemmt-
unin er kl. 1.45 í Tjamarbíói,
þá kl. 2 í Góðtemplarahúsinu
og önnur þar kl. 4. Leiksýn-
ingar verða í Iðnó kl. 2, ísl.
brúðuleikhúsið sýnir Hans og
Grétu og Rauðhettu, og kl. 4
verður leikurinn Töfrahmnnur-
inn. Kl. 3 verður leiksýning í
Þjóðleikhúsihu, Pétur og úlfur-
inn og Dimmalimm. Skemmtan-
ir verða í Sjálfstæðishúsinu og
Austurbæjarbíói kl. 2.30. Þá
verða 10 sýningar í kvikmynda-
húsunum. Loks em 4 dans-
skemmtanir fyrir fullorðna um
kvöldið.
Aðgöngumiðar í Miðbæjar-
skólanum
Aðgöngumiðar að Þjóðleik-
húsinu verða seldir þar á venju-
legum tíma. Aðgöngumiðar að
hinum barnaskemmtununum, að
undanskildum kvikmyndasýn-
ingum, verða seldir í Miðbæj-
arskólanum (gengið inn um
portið) frá kl. 5—7 síðasta vetr-
ardag og 10-12 á sumardaginn
fyrsta. — Er fólk beðið að &t-
huga þetta þar sem misprent-
azt hefur um þetta atriði í
Bamadagsblaðinu.
Barnadagsblaðið
flBarnadagsblaðið verður af-
greitt til sölubarna frá kl. 9
f.h. í dag. Bláðið hefst á kvæði
eftir Freystein Gunnarsson
skólastjóra: Allir dagar eru
barnadagar. Arngrímur Krist-
jánsson skrifar um Áhrif tízk-
unnar og Jónas Jósteinsson
Nokkur orð um hlutverk leik-
skóla. Erlingur Pálsson yfir-
lögregluþjónn skrifar um böm-
in og umferðarmálin: Börnin óg
gatan. Sagt er frá starfsemi
Sumargjafar og birtar nokkrar
fleiri grehiar.
Sólskin
Sólskin er hið læsilegasta að-
vanda fyrir yngstu lesenduma.
Valdimar Össurarson kennari
hefur séð um útgáfu þessa ár-
gangs. Sólskin verður afgreítt
til sölubarna frá kl. 1 e.h. síð-
asta vetrardag og eftir kl. 9
f.h. á sumardaginn fyrsta.
Sölubörn athugið
Barnadagsblaðið, Sólskin,
merki og fánar fást á eftir-
töldum stöðum: Grænuborg,
Vesturborg, Drafnarhorg, Tjarn
arborg, Laufásborg, Baróns-
borg, Steinahlíð, Brákarborg,
Austurstræti 1 og í anddyri
Melaskólans,
Ein borgin enn
Kjörorð dagsins er: ein borg-
in enn. Sumargjöf ætlar nú að
selja Tjarnarborg, þar sem hún
hefur starfað í 11 ár, og byggja
nýtt hús við Fjallhaga. Verður
því raunverulega ekki um nýtt
heimili að ræða, er bætist í töl-
una, en nýja heimilið verður
það fyrsía í bænum sem bein-
líms er byggt fyrir starfsemi
Sumargjafar.
Formaður Hreyfils vaknar
Það hefur lítið heyrzt í for-
manni Hreyfils að undanförnu.
Hann hefur ekki enn sýnt sig
líklegan til að láta kjósa í félag-
inu, þó aðalfundur eigi að vera
í febrúar samkvæmt lögum fé-
lagsins. Enga tilraun gerði hann
í upphafi verkfallsins til að
tryggja samstöðu bílstjóra með
öðrum vinnandi stéttum og held-
ur ekki til þess að tryggja bíl-
stjórum möguleika á því að
halda áfram vinnu sinni í sam-
komulagi við verkalýðsfélögin,
með vinsamlegu samkomulagi.
Þegar nokkrir bílstjórar gerð-
ust foringjar í verkfallsbrotum
og smygla bensíni í bæinn, þá
sá Bergsteinn enga ástæðu til
að skipta sér af því, og þó bíl-
stjórar í stéttarfélaginu Hreyfli
skipulegðu herferð gegn verk-
fallsvörðum, félögum sínum í Al-
þýðusambandi íslands, til þess
að brjóta á bak aftur verkfall
sem þeir hafa staðið í meira
en mánuð, þá fann þessi „verka-
lýðsleiðtogi" enga ástæðu til af-
skipta.
En loksins kom að því að Berg-
steinn rumskaði og hver var þá
ástæðan?
Ekki sú að meðlimir Hreyfils
fremdu verkfallsbrot, og ekki
heldur sú að félagsmenn sem
hann á að stjórna brytu lög Al-
þýðusambandsins. Nei, ástæðan
var sú að nokkrir bílstjórar í
Hreyfli höfðu með vinsamleg-
um samningum og vinnu fyrir
verkfallsverði útvegað sér lítils-
háttar undanþágu til að fá ben-
zín á bíla sína. Slíka framkomu
gat formaðurinn ekki þolað og
lætur Moggann tilkynna að
stjórn félagsins sé tekin til
starfa ásamt nefnd sem kosii*»
hafi verið í málið (hver kaus)?,
og nú er safnað liði til að stöðva
þessa óhæfu. Hvað mikið verka-
lýðshreyfingin getur þolað bíl-
stjórum án þess að grípa til
refsiaðgerða, skal ég ekki um
segja, en hitt fullyrði ég að
bílstjórastéttin á aðeins eina leið
að velja til að halda einhverju
af virðingu sinni, og hún er sú
að hætia þegar í stað öllum verk-
fallsbrotum og öllum undanþág-
um og lýsa yfir samúðarverkfalli
með þeim sem nú standa í verk-
falli fyrir alla alþýðu þessa
lands. O. J.
Eru það f yrirmæli
Vinnuveitenda-
sambandsins?
Sumir matsölustaðir hafa
sýnt þá „hugulsemi" síðustu
dagana að hækka verð á laus-
um máltíðum. Eru menn að
velta því fyrir sér hvort þeir
geri þetta að fyrirlagi Vinnu-
veitendasambandsins, ríkis-
stjornarinnar eða hvort þeir
hafi tekið þetta upp hjá sjálf-
um sér, því ekki hefur orðið
nein slík hækkun á matvörum
þessa daga sem réttlæti slíka
ráðstöfun.
Ein matsala hefur þannig t.d.
hækkað „hálfan skammt“ af
kjöti um tvær krónur, úr 7 í 9«*