Þjóðviljinn - 27.05.1955, Blaðsíða 6
8) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 27. maí 1955
IUÓOVIUINN
Otgofandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíallstaflokkurlim.
Ritstjórar Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
n'rí('tastjóri: J6n Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson.
A-Uglýsingantjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Rltstiórn, nfgreiðsla. auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustí*
i» Sím1 7500 (3 línur).
Áskrlftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
°rtir)tsmiðia t>jóðviljans h.f.
Sðltfiskhringurinn
Undanfarið hefur Þjóöviljinn i’ætt allýtarlega nýjasta
lineyksli saltfiskshringsins, sölumar á óverkuöum úrvals-
fiski til Noregs. Hefur blaöiö krafizt þess aö stjórn SÍF
gerði almenningi einhverja gi’ein fyrir hinum furðulegu
vinnubrögöum sínum, og í gær birtir Kristján Einarsson
loks grein í Morgunblaðinu xim málið. Kristján er sem
kunnugt er framkvæmdastjóri SÍF, og hann vakti all-
mikla athygli á sér fyrir nokknim árum, þegar birt voru
skeytaskipti milli hans og ítalsks fiskkaupmanns, en í
þeim skeytum féllst fiskkaupmaðurinn á ákveðnar pró-
sentur til Kristjáns. Ekki þótti þetta athæfi samt sak-
næmt, enda nýtur SÍF sérstakrar hylli og vemdar Bjarna
Benediktssonar dómsmálaraöherra, sem skipaöi sérstakan
„rannsóknardómara“ til þess að bjarga SÍF og forraöa-
mörmum þess.
Grein Kristjáns er aö því leyti athyglisverð aö hann
Staðfestir allt sem Þjóöviljinn hefur sagt um málið, og af-
sakanir hans eru furðulega haldlausar. Hann segir þrennt
í greininni:
1) íslendingar hafa ekki markaö fyrir fullverkaöan
saltfisk jafnvel þótt Norömenn og Færeyingar hafi hann
svo mikinn aö þeir veröi að kaupa sér hráefni í öörum
löndum.
2) Jafnvel þótt íslendingar yi’ðu sér úti um slíka mark-
aöi gætu þeir ekki notað þá, því þaö er sáralítið hægt að
kaupa í staðinn í þeim löndum sem vilja saltfisk okkar.
3) SÍF var búiö aö gera samning um fisksölu til Noregs
áður en ítalski samningurinn var gerður á síðasta ári, og
því var ekki hægt aö komast hjá því aö vanefna ítalska
samninginn og greiöa nærxá tvær milljónir í skaðabætur.
Um fyrsta atriðiö er það aö segja áö þaö er aöeins hrein-
skilin játning á því að foi’ráðamenn SÍF eru ekki menn
til að gegna störfum sínum. Sá markaður sem opinn er
Norðmönnum og Færeyingum hlýtur einnig áö vera okkur
opirm, ef eftir er sótt af einhverju viti.
AnnaÖ atriðið er gamalkunn „röksemd“ gegn öllum jafn-
virðiskaupum. Meö henni var ámm saman mótmælt viö-
skiptum viö Austurevrópuríkin og Sovétríkin, en reynslan
hefur boriö annað vitni. Enda er vitað að bak viö þennan
málflutning var aöeins ósk heildsalanna um aö fá aö
halda áfram viðskiptum sínum við lönd hins „frjálsa
gjaldeyris", Bandaríkin og Bi’etland, þar sem prósentu-
kerfiö hvíldi á gömlum merg. Ef til vill hefur reynzt erfitt
allt til þessa aö fá hæfilegar px’ósentur í Bi’asilíu bæöi fyrir
h.eildsala og saltfisksala?
Þriðja atriðið er skýlaus játning um fullkomiö hneyksli.
Skaðabæturnar til Ítalíu sýna glöggt að forráðamenn SÍF
eru ekki aöeins sérdrægir í viöskiptum, heldur virðast þeir
ekki hafa hugmynd um hvaö þeir eru aö gera; þeir selja
sama fiskinn tvisvar og eru sektaöir fyrir! Og þeir selja
millilið fyrst en láta hina eiginlegu viöskiptavini sitja á
hakanum! Kristján segir að SÍF hafi fengið gott verö
fyrir fiskinn í Noregi — en hversu mikiö er eftir af því
verði þegar búið er aö di’aga frá 1.700.000 kr. skaðabætur
til Ítalíu?
Vinnubrögð SÍF veröa ekki afsökuö meö neinum skyn-
samlegum rökum. Starfsemi hringsins hefur verið með
þvílíkum endemum að fyrir löngu hefði átt aö hefja op-
inbera og heiöarlega rannsókn á starfsaöferöum hans og
draga forráöamennina til ábyrgðar. Þaö er nú eitt brýn-
asta verkefni þjóðarinnar að brjóta þennan hring á bak
aftiH’ og tryggja að sala þessarar mikilvægu framleiöslu-
vöru sé í samræmi við hagsmuni sjómanna og útvegs-
manna og þjóöarinnar alLrar.
Eitt höfuðtorgið í Varsjá. Hér verður sungið og dansað
á heimsmótinu í sumar.
Fifflmtd
beimsmót
«sbunnftr
í Vnrsjn
Nú eru aðeins 55 dagar, þar
til íslenzki hópurinn leggur af
stað til Varsjár.
83 hafa nú tilkynnt þátt-
töku sína hér, og talan hækk-
ar ört. Þeir sem enn hafa ekki
tilkynnt þátttöku sína, eru
hvattir til að gera það sem
allra fyrst til að vera öruggir
um að komast með, því að að-
eins eru tryggð 125 farþega-
rúm fyrir hópinn með Dr.
Alexandrine.
FEBÐAÁÆTLUNIN
Ferðaáætlun íslenzka hóps-
ins er nú alveg ákveðin. Lagt
verður af stað með Dr. Al-
exandrine frá Reykjavík
föstudaginn 22. júlí. Skipið
kemur við í Þórshöfn í Fær-
eyjum og hefur nokkurra
tíma viðdvöl. Komið verður til
Kaupmannahafnar snemma
morguns miðvikudaginn 27.
júlí og höfð þar sólarhrings
viðdvöl. Lagt verður af stað
með járnbrautarlest frá Höfn
snemma morguns 28. júlí og
haldið suður Sjáland og yfir
lengstu brú Evrópu, Stór-
straumsbrúna (3,5 km) til
Falsturs og ferjubæjarins Ged-
ser. Þaðan er siglt með járn-
brautarferju til Wamemúnde
í Austur-Þýzkalandi. — Frá
Warnemúnde er svo lagt af
stað kl. 2 e.h. 28. júlí og far-
ið með jámbrautarlest yfir
Austur-Þýzkaland og Pólland
til Varsjár, en þangað kemur
hópurinn síðla kvölds 29. júlí.
Er þannig 1 dagur til hvíldar
fyrir hópinn í Varsjá, áður
en mótið hefst.
Frá Varsjá verður að mót-
inu loknu lagt af stað á mið-
nætti 14. ágúst, farið sömu
leið til baka og komið til
Kaupmannahafnar að morgni
16. ágúst. Seinna sama dag er
lagt af stað með Dr. Alex-
andrine og komið til Reykja-
víkur 21. ágúst.
Tekur allt ferðalagið þannig
mánuð.
UNDIRBtJNINGURINN
1 PÓLLANDI
Um allan heim undirbýr
æskan mótið af miklu kappi,
en miðstöð undirbúningsins er
auðvitað mótslandið, Pólland.
Síðast var í dálkum þessum
skýrt að nokkru frá undir-
búningnum í ýmsum löndum,
og verður nú lítillega greint
frá viðbúnaði pólsku æskunn-
ar.
Þeir sem sáu Varsjá sem
rústahaug, er ýmsir töldu jafn
vel ógerlegt að byggja á nýja
borg, munu undrast, hvernig
slíkt kraftaverk megi ske, að
þar sé nú auk milljónarinnar,
sem nú býr í borginni, einn-
ig hægt að hýsa tugþúsundir
erlendra gesta í einu og halda
svo fjölbreytt stórmót, sem
fimmta heimsmótið verður.
En undrun’ þeirra mun
verða meiri, er þeir koma til
mótsins. Hundruð nýrra hót-
ela, skóla og stúdentagarða
munu hýsa gestina.
Unga fólkið í Varsjá legg-
ur sem einn maður alla krafta
sína fram til að sem bezt geti
—
Tilkyitnið þátttöku ykk-
aor í heimsmótimi sem
alira fyrst Eiði Berg-
majin, Skólavörðustíg 19
(afgreiðslu Þjóðt'iljans)
eða íslenzku undirbún-
ingsnefndinni Eingholts-
stræti 27, sem gefur all-
ar nánari upplýsingar.
— Skrifstofan er opin.
mánudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 20:30
til 21:30 og laugardaga
kl. 14 til 15:30. — Þeir
sem vilja vera með í
kór eða danshóp til-
kynni það strax.
farið um þær 40 þúsundir
æskufólks, sem koma í hina
miklu heimsókn í ágúst.
Bygging stærsta íþrótta-
leikvangs Póllands er í full-
um gangi og verður lokið fyr-
ir heimsmótið. Hann mun taka
80.000 í sæti og hófst bygg-
ing hans síðastliðið haust.
Daglega koma hundruð og
jafnvel þúsundir íþróttafólks,
skólafólks og annarrar æsku
til að hjálpa til við bygging-
una í frítímum sínum. Stend-
ur leikvangurinn á hægri
bakka Vislufljótsins.
Yfir 1.200.000,- ungir lista-
menn, söngfólk, dansarar o.þ.
h., tilheyrandi m.a. 24.000 kór-
um, hljómsveitum, danshópum
og öðrum sýningarflokkum
frá öllum héruðum Póllands
taka nú þátt í keppni um.
þann heiður að fá að koma
fram á heimsmótinu. Hvorki
meira né minna en 6000 leik-
flokkar, 5590 danshópar, 4950
kórar, 3900 hljómsveitir og
200 brúðuleikhús áhugafólks
taka þátt í þessum stórkost-
legu keppnum.
Pólska æskan undirbýr af
miklu kappi gjafir, smáar og
stórar, handa erlendu þátttak-
endunum. í Oltzynhéraði býr
unga fólkið t.d. til skraut-
öskjur, körfur, albúm og aðra
smáhluti skreytta táknum
héraðs síns, í Byalistok-héraði
eru ungir íþróttamenn að út-
búa falleg veski handa finnsk-
um vinum sínum osfrv.
Pólska íþróttaæskan undir-
býr af miklu kappi þátttöku.
sína í íþróttaleikjunum. T.d.
má nefna undirbúning mikillar
leikfimissýningar, þar sem
2000 fimleikamenn og fim-
leikakonur munu koma fram.
Sýning þessi verður táknmynd
af viðleitni heimsæskunnar í
þágu friðar og vináttu allra
þjóða.
Pólsku frjálsíþróttamennirn-
ir æfa af kappi og binda mikl-
ar vonir við stjörnur eins og
spjótkastarann Janisz Sidlo,
sem kastað hefur 80.15 m, en
það er Evrópumet. Hann hef-
ur sérstaklega látið i ljós þá
ósk, að heimsmethafinn Bud
Held komi til leikanna og þeir
reyni með sér.
Það mundi taka fjölda
Framhald á 11. síðu.
*
Islendingar á leið til
Búkarest 1953. Mynd-
in er tekin á járn-
brautarstöðinni £
Ðresden og fékk 1.
verðlaun á ljós-
myndasýningunni er
efnt var til eftir
Búkarestmótið. —
Myndina tók Sveinn
Ólafsson.