Þjóðviljinn - 13.07.1955, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 13.07.1955, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 13. júlí 1955 — ÞJÖÐVILJINN — (11 Hcns Kirk: 42. dagur reiðíötum að venju, hún í glæsilegum morgunkjó.l. — Nei, góðan daginn, mágur, kvakaði Evelyn. Þú ert sjaldséður gestur. Nú kem ég með drykk, það er svo heilsusamlegt í morgunsárið. Hún sveif út og kom inn aftur með flösku og glös. Tómas Klitgaard sagði þeim frá samkvæminu sem hann væri neyddur til að halda gegn vilja sínum og eftir miklar málalengingar bar hann fram ósk um það aö Evelyn heiöraði samkvæmið með návist sinni. Margrét var erfið viðm’eignar þótt hún væri á sinn hátt fyrir- taks kona. Hvaö segðu Jóhannes og Evelyn mn þetta? — Hvernig gengur fyrirtækið? spurði Jóhannes. — Prýðilega, afbragðs vel, viö megum búast við stór- kostlegum hagnaði í ár, sagði Tómas Klitgaard. En það verður ekki sagt um þig að þú eyðir kröftum þínum í þágu fyrirtækisins, Jóhannes. Þú hefur ekki sést mánuð- um saman. — Nei, fyrst karlinn er þar ekki lengur á ég ekkert erindi þangaö, sagði Jóhannes Klitgaard. Ég er dugandi athafnamaður á minn hátt. í fyrirtækinu geri ég ekki meira gagn en hver önnur skrifstofublók. — En gætirðu ekki sem hluthafi látið Evelyn taka að sér þetta hlutverk? sagði Tómas Klitgaard. Aðeins í þetta eina sinn. Sjálfur ertu auðvitað velkominn líka ef þú hefur áhuga á því. — Ég hef sannarlega annað að gera. En mín vegna getur Evelyn fariö þetta með þér. Allt var klappað og klárt og Tómas pantaöi kvöldverö- inn á Ritz Safgri. Þessi veizla skyldi verðá meira en nafnið tómt. Ilann setti sjálfur saroan matseðilinn, verö- iö skipti engu máli ef eitthvað kæmi í aðra hönd. Og nú þegár gat hann sýnt mikinn árangur, Grejs gamli ræki áreiðanlega upp stór augu þegar hann sæi, reikninga fyrirtækisips. Á nokkrmn mánuðum hafði hann grætt meira en Grejs á mörgum áruin. Grejs gamlí! Umhugsunin um föðurinn var honum dálítið óþægileg. Til allrar hamigju var karlinn nú bú- inn að selja stóra hjallinn í Hellerup og var búinn aö kaupa lítið vistlegt hús einhversstaðar norður í rassi, og hann sást því sjaldan. En fyrr eöa síðar yrði hann að skýra honum frá því hvað fyrirtækiö hefði grætt á því að uppfylla skyldur sínar við föðurlandið. Hvað skyldi karlinn segja? Tómas Klitgaard skaut hugsuninni frá sér, þaö færi allt einhvern veginn. Karlmn hafði að minnsta kosti alltaf haft vit á aö meta peninga. Þau voru mörg símtölin viö skrifstofu fyrirtækisins á flugvellinum, því aö þaö varð aö bjóða réttu fólki, það mátti ekki móöga neinn Þjóðverja sem einhvers mátti sín. Og í öllum þessum önnum kom Jóhannes Klitgaard í heimsókn og spurði fýlulega eftir bróður sínum. — Þú ert sjaldséður gestur, kæri Jóhannes, sagði Tómas. Vonandi er ekkert því til fyrirstöðu að Evelyn geti tekið þátt í gleðskap okkar? — Evelyn verður aldrei veik þegar hún á von á ein- hverri skemmtun, hvæsti Jóhannes Klitgaard. En mér var aö detta í hug, hvoi’t ég ætti ekki að fara með líka. — Þú ert hjartanlega velkominn, Jóhannes. En mér fannst þú taka svo illa í þaö þegar ég bauð þér. En það er mjög viöeigandi að þú sem meðeigandi í fyrirtækinu sért fulltrúi........ — Ég verð andskotans enginn fulltrúi, sagði Jóhannes Klitgaard. En mér hefur dottið í hug aö það væri ef til vill skynsamlegt að ég kynntist einhverjum af þessum þýzku vinum þínum. Lögfræðingur minn — Seidelin — sem er annars bannsettur rindill, getur einstöku sinn- um fengið góðar hugmyndir. Og hann hefur heyrt aö þið sópuðuö að ykkur peningoim þarna yfir frá, og hann hefur stungiö upp á að ég tæki þátt í leiknum. — Ef þú gerir þáð, kæri Jóhannes, þaö færðu að sjá á bankainnstæðunni þinni um áramót, þegar við erum búnir aö gera upp reikninga, sagði Tómas Klitgaard alúölega. Við í fyrirtækinu tökum öll þátt í leiknum. — Já, auövitaö, ég veit hvað þú ert séður, sagði Jó- hannes. En það er í stómm stíl; ég nýt mín ef til vill betur í smærri stíl. Og Seidelin hefur stungið upp á því að ég stofni hlutafélag og skreppi yfimm til að reyna að snuðra eitthvað uppi. Mann klæjar í lófana þegar maður heyrir um allt þetta peningaflóð. — Ágætt, Jóhannes, en þú ættir helzt ekki að nota Klitgaardsnafnið á hlutafélag þitt. Af skiljanlegum á- stæðum. ■— Nei, Seidelin hefur stungið upp á að það héti Pro Pátria eða eitthvaö í þá átt. Þaö er víst einhver vindlategund sem heitir þaö líka, en það kemur varla að sök. —Ekki vitund, þaö er ágætt nafn. Ég býst viö þér í samkvæmiö okkar, Jóhannes, og vertu blessaður. Nú komu miklir annadagar, því aö miklir athafna- menn eru vissulega störfum hlaönir. Að vísu burfti ekki framar aö byggja brimbrjóta, skipuleggja járnbrautar- brýr, hafnarmannvirki sem útheimtu strit og erfiði, nei, þessu. smádútli sem Grejs Klitgaard hafði eytt ævinni í, var sonur hans vaxinn uppúr. Nú var um að ræða stórframkvæmdir og stærri yrðu þær. Það átti að klæöa heilt land járni og steinst'eypu, breyta því í stórkostlega herstöö, og þaö var Tómas Klitgaard sem átti aö leysa þetta tilkomumikla verkefni. Tómas Klitgaard og Jóhannes og Evelyn komu til Ála- borgar ásamt nokkrum æðri starfsmönnum fyrirtækis- ins og síðdegis óku þau út á flugvöllinrF tilí áð taka þátt í hátíðlegri athöfn. Þjóöverjamir og dönsku verkfræo- ingarnir höfðu tekiö sér stööu í syðsta horninu á flug- elmiMsþáltMF Ryk «g matarguía óholl hárinu Hárið á liúsmæðrum verður oft fyrir óhollum áhrifum, einkum af ryki og matargufu. Gufa gerir hárið feitt og þungt, rykið gerir það gljáalaust og líflaust'. Heitá raka loftið í þvottahúsinu er ekki gott held- ur fyrir hárið, permanetliðað hár verður eins og lamhskinn og topparnir þurrir. Eftir er gott að vefja hárið upp og bera fitu í toppana. Höíuðklútur gagnslítill Maður getur litið mjög vel út með skrautlegan klút um hárið — meðan hann er ný- strokinn og tollir á sínum stað. En hann kemur að litlu gagni. Matargufan fer gegnum tauið og það er ekki gott fyrir hárgreiðsluna að vera þvinguð undir klút. Það er betra að vera berhöfðaður meðan gert er hreint og bursta hárið að hreingerningunni lok- inni. Beygið höfuðið niður að hnjám meðan þið burstið hár- ið, svo að blóðið streymi til höfuðsins. Það er gott fyrir hárvöxtinn og útlit hársins. Þegar maður býr til mat sem mikil fita er í er næstum nauð- synlegt að hlífa hárinu, meðal annars vegna þess að það tek- ur í sig alla lykt, og það er dálítið leiðinlegt að lykta af máltíðum marga daga. Það er auðvelt að sauma plasthúfu í líkingu við sundhettu —- þær eru að vísu ekki sérlega falleg- ar, en maður þarf ekki a.ð nota hana nema örstuttan tíma í einu og bezt er að hafa. hana vel rúma, svo að hárið klessist ekki niður að höfðinu. Hárið hefur gott af lofti Einnig er hættulegt að þreyta hárið um of með of tíðum permanentliðunum, það getpr orðið til þess að hárið verði þurrt og strítt og liætti að taka við liðun. En góðar hárgreiðslu konur ættu að geta gefið góð og holl réð i þessum efnum. Á sumrin ættu konur hárs- ins vegna að venja sig á að fara öðru hverju út hattlaus- ar. Hárið hefur gott af vindi og sól og þarf að fá að leika j lausum hala öðru hvei’ju. Þær sem þvo sér sjálfar um; hárið þurfa öðru hverju að skipta um þvottaefni, ekki sízt ef hártopparnir fara að klofna. Sumir halda því fram að bezt sé að þvo hárið úr grænsápu sem soðin er í vatni fyrir þvottinn og nota edik í næst- síðasta skolvatnið. Aðrir haida því fram að bezt sé að þvo hárið upp úr eggi, sem hafi fjölgandi áhrif á líflaust hár. Franskir hárgreiðslumenn nota| nautamerg við hárþvott. Bezta hárgreiðslan Frjálsa stuttklippta hárið er að sjálfsögðu bezta hárgreiðsl- an fyrir þær konur sem liugsa sjálfar um hárið á sér. Það þarf að klippa hárið oft — helzt einu sinni í mánxiði. Klippingin hefur góð áhrif á hárvöxtinn. það vex hraðar og verður þykkar. Hárið þarf að þvo ekki sjaldnar en viku- til hálfsmánaðarlega. En það geta ekki allar konur gengið með hárið slétt og stutt- klippt. Þær sem nota perma- nentliðun þurfa að vara sig á ódýru permanentolíunum, sem oft eru mikið auglýstar. Þær eru oft lélegar og árangurinn af liðuninni verður eftir því. Rjéma-j r g$ SÖLUTURNINN við Amachól Téklmeskai Golf mandiert- skyrtur Verð kr. 98.00 Toledo Fischersundi dlrú 1 Símanúmer mitt er nú 1 ■ ' i i 8-28 19 1 IÓN P. EMILS HDL. Ingólfsstræti 4. ítalskur skyrtukjóll Skyrtukjólarnir verða meira. og meira áberandi í franskri og bandarískri tízku, og á. myndinni er sýndur italskur kjóll af þessai'i gerð. Skyrtu- kjólarnir eru í sniðinu eins og síðar skvrtur og eru að sjálf- sögðu með skyrtuermum og flibbakraga. Þeir eru ekki með mittissaum, heldur eru þeir að- eins teknir. saman mcð belti í- mittið og á þessum ítalska kjól er skyrtusniðið undirstrikað enn frekar með því að skyrtu- raufar eru hafðar neðan á pils- inu. Það er snoturt og skemmti- ’legt. Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb) — Fréttastjóri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guðmundur Yigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnúa Torfi ólafsson. — Augiýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavorðu- '+Ss 19. — Sími: 7500 C3 línur). — Askriftarverð kr. 20 * mán. í Rvik og nágrenni: kr. 17 annars staðar. — Lausasöluvwrð kr. 1. — PreaLstniðja Þjóðviljans h.f. þléWIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.