Þjóðviljinn - 21.07.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 21.07.1955, Blaðsíða 2
2), — ÞJÓÐVIUINN — Fimmtudagur 21. júli 1955 A FYRIR FIMMTÍU ÁRUM var hafinn undirbúningur a'ö smíði fyrsta AUSTIN bílsins. Bíll þessi vakti öfundsvert álit allra vegna traustleika og vandaðs frágangs. Síðan hafa AUSTIN verksmiðjumar framleitt á þrv'ju milljón bif- reiða og framleiðslan fer stöðugt vaxandi. Ávallt hafa verksmiðjurnar kapp- kostað að vi&halda því áliti. sem fyrsti bíllinn vakti, með þvi aö senda frá sér aðeins bifreiðar framleiddar eftir ströngustu og nýjustu kröfum. AUSTíN A90 Westminster Nýjasta gerðin af fólksflutningabílum /UJSTIN-verksmiðjurnar framleiða: i : /»í£Ite>V >1 ÁjÁ&já&l: Fólksbifreiðar, sendiferðabifreið'ar og' vörubifreiðar af ýmsum gerðúm og stærðum. Leitið upplýsinga um AUSTIN hjá umhoðsmanni Garðar Gíslason hi. Reykjavík LOLLOBRiGfDA FEGIIRSTA KONA HEIMS? Þetla er að sögii éin þeirra myn.da, séjn hneyksluðu Ginii Lollobrieida og iiiann hennar svo, að þau höfðuðu mál gegn bUiðuiiif'séi'n þœr hirtu. — Að fiéðan' (t. v.) sést hún einntg i hlulþerki I.inu Cavalieri.—:———— Við höfum heyrt mikið talað um Ginu Lollobrigida, en því miður höfum við ekki átt mörg tækifæri til að njóta ýndisþokka hennar á léreft- inu, en það kemur sjálfsagt að því. Hún leikur sennilega í fleiri myndum en nokkur önnur ítölsk leikkona; i einni síðustu' mynd sinni lék. hún á móti Vittorio de Sica, kvik- mynd'ástjóranum fræga, sem í það skiþtið éins og reyridár oftar háfði brugðið 'sér fram fyrir kvikmyndavélina. Það var í myndinni Brauð, ást og ímyndunarafl og þeim sem séð hafa þá mynd ber saman um að hún hafi aldrei verið fegri. Nýjasta mynd hennar hefur hins vegar ekki fengið góða dóma, enda þótt efni myndarinnar virðist hafa átt að.gefa tilefni til að sýna alla. fegurð hennar, en sú mynd var gerð eftir skáldsögu Mora- via Dóttir Rómar. Nú er verið að taka mynd á ítalíu með Ginu í aðaihlut- verkinu og heitir hún Feg- ursta kona lieims. Mynd þessi er sögð byggð á ævi koriu einnar, sem hét Lina Caval- ieri. Lina þessi varð fræg um síðustu aldamót fyrir fegurð sína, sem hún notaði sér ó- spgrt. Fjórtán ára gömul tók hún að sýna sig fyrir peninga, indverskur maharajah tók hana að sér, aðalsmaður á Sikiley gefðist bílstjóri til að geta verið í nálægð hennar, rússneskur fursti kvæntist henni og dó af harmi, þegar hún yfirgaf hann, bandarísk- ur milljónari kvæntist henni síðar, en hún yfirgaf hann eftir sex daga hjónaband, hún háði eitt sinn einvígi í Eou- logneskógi við París við franska konu af sömu tegund, ,,hina fögru Otero‘! .... Hún beið bana þegar sprengja féll á hús hennar í síðari heims- styrjöldinni. Myndin virðist eftir efninu Fyrir rúmri viku birtum við mynd af leikstjóranum Vittorio- de Sica og rithöfundinum Cesare Zavattini. Myndin var tekin á ráðstefnu, sem ítalskir kvikmynda- .menn héldu fyrir skömmu til að ræða um ráðstafanir til að vernda list sína gegn þeim hættum, sem að henni steðja. Hér er útdráttur úr yfirlýsingu sem ráðstefnan samþykkti: „Við ákærum ríldsstjórnina fyrir að hafa beitt áhrif- uin sjnum, blöðum sínum og bönkum til að koma í veg fyrir að ítalskar kvikmyndir fjölluðu um þau viðfangs- " efni, sem ástandið I þjóðmálunum kref jast, að tekin séu til meðferðar. Við höfum ólíkar stjórnmálaskoðanir, en ágreiningur okkar hefur aldrei sundrað okkur, þrátt fyrir klofnirigs- tilraunir. Þannig hlýtur það að vera, því að sú kvik- myndalist, sem við stöndum vörð um, byggist á trausti á lífinu og von um betri heim, heim sem hlýtur að batna ... Kvikmyndalist án frelsis getur ekki orðið annað en tæki til gróðabralls og forheimskunar. Við bcrjumst hlið við hlið fyrir frjálsri og óháðri kvikmyndalist.“ Meðal þeirra sem undirrituðu þessa yfirlýsingu eru flestir þeirra manna sem gert hafa ítalskar kvikmynd- ir frægar síðasta áratuginn, þ.á.m. leikstjórarnir de Sica, de Santis, Blasetti, Castellani, Visconti, Luciano Emmer, Lattuada, Luigi Zampa, Rosellini. að dæma munu eiga lítið sameiginlegt þeim snilldar- verkum, sem mestum ljóma hafa brugðið yfir ítalska kvikmyndagerð . siðari ára. Auglýsirigabrellum í Holly- woodstíl hefur einnig verið beitt til að vekja athygli á myndinni: Nokkrar mynöir úr kvikmyndinni sem birtust í dagblöðunum urðu tií þess að eiginmaður Ginu höfðaði mál gegn ^riunum. Sagði hann myndirnar ósiðlegar og birt- ingu þeii’ra móðgun við sig og konu sína.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.