Þjóðviljinn - 21.07.1955, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 21.07.1955, Qupperneq 7
- Fimmtudagur 21. júlí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (T í [Niðurlag] Það hefur oft verið lágt ris- ið á íslenzkum stjómmálum. Islendingar eru fáir, hagir þeirra hafa oftast verið smáir: í sniðum: Lítilla sanda, lítílla sæva, lítil eru geð guma. Vér lifum í landi kunningsskaparins, hreppa- krítsins og landmerkjaþræt- anna. Okkur hættir jafnan við að gera almenn mál persónu- leg, breyta pólitískum deilu- málum í illindi milli ein- staklinga, enda hefur okkur ekki enn tekizt að skrifa þjóðarsöguna öðru vísi en sem Islendingaþætti. Fyrir hálfri öld skynjaði Hannes Hafstein höfuðnauðsyn þjóð- lífs vors, er hann orti þessar Ijóðlínur: Hér á landi þarf svo margt að brúa, jökulár í landi og í lundu . . . Pontifices — brúarsmiði — kölluðu Rómverjar æðstu presta sína, þá er varðveittu hin heilögu vé allrar þjóðar- innar. Aldrei hefur íslending- um verið svo brúarsmiða þörf sem nú, er spanna þarf það djúp, sem staðfest er þessa stundina með sundurleitum stjómmálaflokkum og sam- tökum fjöldans um land allt. Því nú eru vé okkar í veði. I borgaralegu þjóðfélagi vorra tíma er efasýkin tízku- búningur ríkjandi lífsskoð- unar, en vantrúin á mannsins mátt og megin tjáning guðs- óttans. Án efa munu þeir ekki vera fáir meðal Islendinga, sem telja hugmyndina um stjómmálasamvinnu alþýð- Unnar, svo sem hún hefur skipað sér í flokka og sam- tök, þokukennda og óraun- hæfa draumsýn. Einar 01- geirsson hefur í stjórnmála- ritgerð sinni gert sér ljósa grein fyrir þeim torfærum, er verða munu á vegi slíks stjómmálasamstarfs. Honum farast svo orð: „Það yrðu vafalaust margir erfiðleikar á veginum, bæði á leiðinni til slíks bandalags og á braut ríkisstjórnar þess, bæði inn á við í röðum þeirra, er taka upp samstarf, eftir að hafa háð harða baráttu hvor gegn öðram áður, og út á við. Það yrði að yfirvinna margskonar tortryggni, skilningsleysi, þröngsýni, afturhaldssemi, bráðlæti o.fl. o.fl., en litlir era þó allir þeir erfiðleikar hjá hinu, er bíða myndi vinnandi stétta Islands og allra frjáls- huga manna, ef eigi næðist samstarf milli þeirra og ein- ræði auðvalds hrósaði sigri yfir lýðræðisöflum alþýðunn- ar“. Þeir sem hafna slíku póli- tízku bandalagi vegna torleið- isins ættu að setja sér fyrir sjónir, hvað í vændum er, ef einum stjórnmálaflokki, Sjálf- stæðisflokknum, tækist að vinna algeran meirihluta á alþíngi í kosningum. Sá háski vofir nú yfir. Gagnvart þeirri hættu verður sú spurning, hvort kostur sé á að stofna til stjórnmálabandalags með öllum vinstri flokkum lands- ins, ekki fræðileg draumsýn, heldur pólitísk lífsnauðsyn allrar íslenzkrar alþýðu. Á áratugnum eftir hina fyrri heimstyrjöld tókst rís- andi samtökum bænda og verkamanna að brjóta Sjálf- stæðisflokkinn á bak aftur um atund. Fordæmi vinstri sam- vinnu er þvi til í pólitískri sögu þjóðarinnar. Það hefur verið sagt, að sagan endur- taki sig. Að \nsu, en hún end- urtekur sig aldrei að sama hætti. Vinstri samvinna á vor- um dögum myndi ekki aðeins varast \nti fortíðarinnar. Hún myndi rista dýpra, tengja i bandalag miklu meiri fjölda þjóðarinnar. Hún myndi styðj- ast við þroskaðri félagssam- tök, hlutur verkalýðsins yrði ist leiðin til valda leikur einn: verkal ýðshreyfingin þýzka var klofin í nálega jafnsterka stríðandi heri, sem bárust sjálfir á banaspjót, liið borg- aralega frjálslyndi Þýzka- lands vissi ekki sitt rjúkandi ráð, en allt afturhald, sem vopni gat valdið, svínfylkti sér um nazismann. I öllum lönd- um Vestur-Evrópu skriðu nazistaflokkar út úr skúma- skotunum og þóttust finna Hier können wir wundervoll bieiben, sagten sie, mindestens tausend Jahr! En þeir höl'ðu einu gleymt: Einingarhugsjón alþýðustétt- anna. Meðan sigurvegararnir dönsuðu og svölluðu áhyggju- lausir um alla álfuna og bjuggu sig undir þúsund ára dýrlegt ölteiti, runnu margir smáir lækir í einn farveg, verkamenn og bændur, menntajnenn og borgarar, ólíkt meiri en í hinni fyrri vinstri samvinnu, hlutverk hans stórbrotnara, markmiðið skýrara. Barátta slíks banda- lags mundi auk þess verða harðsnúnari vegna þess, að andstæðmgurinn, Sjálfstæðis- flokkurinn, hefur vaxið um allan helming að afli auðs og lýðskrams. í krafti þess hvorutveggja stendur hann nú nær því marki en nokkra sinni fyr að pólitískur æskudraum- ur hans rætist: að ná meiri- hlutafylgi á alþingi. Aðeins eitt afl getur afstýrt þessu: pólitískt bandalag vinstri flokkanna í landinu. Samein- aðir hafa þeir meiri hluta þjóðarinnar að baki sér. Sundraðir verða þeir og þjóð- arviljinn eins og sterkur arm- leggur með skoma afltaug. Vinstri flokkar Islands — Sósíalistaflokkurinn, Alþýðu- flokkurinn, Framsóknarflokk- urinn og Þjóðvarnarflokkur- inn — njóta stuðnings fjöl- mennustu lýðsamtaka þjóðar- innar, þar sem era verkalýðs- BIi fremfor alt ikke trette Sverrir Kristjánsson: Straumhvörf eða stöðupoll- ur í stjórnmálum íslands? félögin og samvinnufélögin. Mikill hluti hinnar menntuðu millistéttar fylglir öllum þess- um flokkum að málum. Þeir eiga bæði máttinn og kunn- áttuna til að stjóma íslandi svo, að hver vinnandi þegn þjóðarinnar fái réttan skerf sinn og skammt. En ef þá skortir viljann til að starfa saman að lífsvandamálum Is- lands, ef þeir kjósa þann kost- inn að ganga til bardaga gegn hver öðram eins og grimmir rakkar og rífa hvem annan á hol til þess að hnupla einu atkvæðinu hér og öðru þar, og liggja síðan eins og ónýtir geldingar undir homunum á ólmum úruxa hins íslenzka auðvalds, þá munu þeir fá þá ráðningu, sem jafnan verður hlutskipti þeirra pólitísku ó- happamanna, er aldrei læra neitt fyrr en um seinan. Hugmyndin um bandalag’ vinstri flokka, með þátttöku óflokksbundinna almennra al- þýðusamtaka, varð til á ár- unum milli heimsstyrjaldanna, þegar fasismi og nazismi ógn- uðu öllum heimi Valdataka nazista í Þýzkalandi 1933 var líkust því sem öllum illum öndum myrkranna hefði ver- ið sleppt lausum. Þá máttu menn sjá þær feiknir, sem leynast í djúpum auðvalds- skipulagsins. Nazistum reynd- vor í lofti. En þá var alþýðu- stéttunum loks nóg boðið. Á Frakklandi felldu verkalýðs- flokkamir niður deilur sinar, sneru bökum saman og af- stýrðu því, að fránskir fas- istar lékju sama leikinn og hinir þýzku frændur þeirra. Á Spáni myndaði alþýðufylking- in ríkisstjóm og lagði grund- völl að fyrstu lýðræðisskipan í sögu landsins. Bandalag al- þýðustéttanna beið að vísu ó- sigur í báðum þessum lönd- um hins rómanska heims. En söguleg afrek þess munu aldr- ei fyrnast. Alþýðufylkingin stöðvaði flóðöldu nazismans um margra ára skeið. Það var ekki fyrr en eftir ósigur henn- ar fyrir svik og samsæri hins engilsaxneska lýðræðis, að nazisminn gat lagt út í þá styrjöld, er skyldi gefa hon- um allan heuninn að herfangi. Bandalag alþýðustéttanna var hið pólitíska og siðferði- lega afl, er eitt hafði boðið sókn nazismans byrginn. Þeg- ar þetta afl hafði verið lamað óðu nazistaherirair mót- spyrnulaust yfir Evrópu unz veldi þeirra náði norðan frá Lófót suður á Krítarey. Og nazistar veltu sér í völdunum í syng’jandi vímu auðkeyptra sigra: Hier können wir es toll treib- en, sagten sie. réttu hver öcirum bróðurhönd, 1 fyrstu fáir, síðar fleiri, hóp- arnir urðu að flokkum, flokk- arnir að fyikingum, alþýðu- bandalag að alþjóðarbanda- lagi. Skæruliðahreyfing Ev- rópu á stríðsárunum —• það var bandalag alþýðustéttanna, vopnum búið, sniðið við þau skilyrði, er styrjöldin skapaði. Nazisminn hefði aldrei verið lagður að velli, ef aþýðan hefði ekki bundizt þessum samtökum, er rufu hin fornu mörk flokka og stétta. Svo vom ' einingarsamtök þessi mikils háttar, að þau tóku stjórnartauma ríkjanna í sín- ar hendur þegar friður komst á. 1 styrjöldinni gegn nazism- anum hafði bandalag alþýðu- stéttanna unnið eindæma af- rek. Hvort mundu kjörviðir þess þola friðinn er tilveran hyrfi aftur í fornan farveg? Norðmaðurinn Nordahl Grieg barðist allra manna djarfast fyrir hinni pólitísku einingar- húgsjón alþýðustéttanna. Ár- ið 1942 var hann staddur hér á Þingvöllum, hermaður í út- lagaliði Norðmanna. Sjálfan grunaði hann feigð sín, en hann sendi okkur, sem lifðum af, þessi orð til vamaðar: Bli fremfor alt ikke trette — sem mennesker blir etter kriger — nár grumsei: og griskheten kommer i fölge med motlösheten .... Þessi hjartahreini norski víkingur óttaðist það mest, aö andvaraleysið, þreytan myndi tæla mennina til þess hóg- lífis í hugsun, sem hafði reynzt svo háskasamlegt í stormahléinu milli styrjald- anna. Ótti hans reyndist því miður réttur. Lýðræðis- og friðarhugsjón skæruliða Ev- rópu, hins vopnaða bandalags alþýðustéttanna, var um öli Vesturlönd troðin undir járn- hæl kalda stríðsins. Kalda stríðið er pólitísk ný- sköpun Bandarikjanna, trú- boð hins lítilsiglda mannhat- urs og flatfættra hleypidóma. En þessi tegund stríðs var í dásamlegu samræmi við hug- myndir íslenzks stríðsgróða- valds um hetjuskap. Þegar fyrri heimsstyrjöldinni lauk lýsti hið unga íslenzka ríkí yfir ævarandi hlutleysi. Eftir lok hinnar síðari gerðust valdhafar íslands aðilar að kalda stríðinu og horfðu ekkí í kostnaðinn, enda greiddu þeir hann ekki úr eigin sjóði. Þeir seldu bara mömmu. I tíu ár hefur án afláts gengið á með gerningaveður kalda stríðsins. En nú hiær sól á liimni eftir langa nótt. I dag sitja ieiðtogar stórveld- anna við sama borð suður í Sviss og hafa orðið ásáttir um, að þeir fái ekki skorið úr deilum sínum með sverði. Þeir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að þeir verði, hvað sem tautar, að haga sambúð sinni svo, að þjóðum, er búa við ólika samfélagshætti, verði líft á sama hnetti. Hvað hefur valdið þessa upprofi ? Taflstaðan á skákborði heimsins er orðin með þeim hætti, að þriðjungur mann- kynsins býr við sósíaliska samfélagshætti. Veldi hins sósialíska heimshluta er slíkt, að raunverulega er jafnræði orðið með sósíalisma og kapí- talisma á hnettinum. Báðir hafa þessir aðilar þau vopn í fórum sínum, að vandséð erf hvor hafi um sár að binda, ef þeim yrði brugðið. And- spænis þessum staðreyndum féllust Vesturveldin á endur- tekið tilboð Ráðstjómanikj- anna um að setjast að samn- ingaborði. En hitt átti ekki siður þátt i umskiptunum, að tekizt hafði að vekja samvizku almennings um heim allan. Heimsfriðar- hreyfingin á að vísu ekki full- trúa í Genf, en hún situr nú samt við samningaborðið.. Heimsfriðarhreyfingin er ekkt pólitískt bandalag í þess Orðs venjulegum skilningi, en húm er af sama ættboga. og þær hugmyndir, sem staðið hafa við vöggu bandalags alþýðu- stéttanna í öllum löndum.Húa er víðfeðmari en nokkurt pólitískt bandalag alþýðu- stétta getur orðið og hefur á heimsmælikvarða unnið að lausn þeirra. viðfangsefna. sem bandalag alþýðusté’ta glímir við í hverju éinstöku landi. Á úrslitastundum í söga síðustu áratuga, á friðará r- um og stríðsárum, hefur hug- myndin um bandalag alþýðu- stéttanna jafnan guðað á Framhald á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.