Þjóðviljinn - 08.09.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 08.09.1955, Blaðsíða 9
'k RITSTJÓRI FRlMANN HELGASON Sovézkir íþróttamenn hafa náð góð- um árangri í frjálsum íþróttum Sem kunnugt er, var það lengi sem hinn vestræni heim- ur vissi lítið um afrek Sovét- íþróttamanna enda var það ekki fyrr en 1946—47 sem þeir gengu formlega í IAAF, Al- þjóðasamband frjálsíþrótta- manna. En síðan hefur engin hula hvílt yfir afrekum þeirra. Framfarir þeirra hafa orðið gífurlegar síðustu árin og eru met þeirra langflest frá árun- um 1954 og ’55. Fer hér á eftir skrá yfir sovézk met, miðað við miðjan ágúst s. 1.: 100 m V. Sukarjoff, Moskva, 10,3 (1951). 200 m B. Tokarjoff, Moskva, 20,9 (1955). 400 m A. Ignatéff, Leningrad, 46.0 (1955). 800 m O. Ageéff, Leningrad, 1.49,4 (1954). 1000 m N. Maritséff, Moskva, 2.21,6 (1955) 1500 m S. Slugin, Moskva, 3,47,0 (1955). 10.000 m A. Anufréff, Kiev, 29.10,6 (1954). (Þess má geta að Kúts hef- ur bætt þetta met). 30.000 m J. Moskotsjenkoff, Moskva, 1.38,4,0 (1951). 1,10 grind J. Bulantsjik, Kiev, 14,1 (1952). 200 m grind J. Lituéff, Len.gr. 23,5 (1952). 400 m grind J. Lituéff, Len.gr. 50,4 (1953). 3000 m hindr. V. Kasantseff, Moskva, 8.48,6 (1952). 4x100 m Landssveit Sovét. 40,3 (1952). GulMlaun Hástökk J. Stepanoff, Moskva, 2,02 (1955). Moens Fimmtudagur 8. september 1955 — ÞJÓÐVILJINN (9 íu ganna Úrslit í landsmóti 2. ilokks eftir Islandsmót II. fl. hefur stað- ið yfir að undanfömu og var keppt í tveim riðlum, A og B og er keppni lokið í riðlunum og vann lið Suðurnesja A rið- il en Fram B riðil. Kæra kom fram frá Val á mann í liði Suðurnesja sem leikið hafði í vor með MA á Akureyri og mun það mál í rannsókn. Leikar í A riðli fóm þann- ig: IBS—Haukar, 4:1. íþrótta- bandalag Akraness dró sig úr keppni og kom Haukar, Hafn- arfirði í þess stað. Valur—KR, 1:1, IBS— Val- ur, 3:2, ÍBS—KR, 1:0, Valur —Haukar, 5:0. Hætta varð leik KR—Hauka vegna myrkurs, stóðu þá leikar 4:0 fyrir KR en liðin verða að leika aftur. Leikir B riðils fóru þannig: Þróttur—Víkingur, 4:0, Fram —Víkingur . ..., Fram—Þrótt- ur, 3:0. Úrslitaleikur mótsins mun fara fram strax og úr- skurður er fallinn vegna kæru Vals. Haustmótin: I fyrsta fl. hefur aðeins einn leikur farið fram eða KR— Þróttur, 3:1. Leik Vals og Fram var frestað vegna Ak- ureyrarfarar Vals með sam- bland af meistara- og 1. fl. Haustmót HI. fl. A átti að hefjast 28. ágúst en hvorki Þróttur né Víkingur mættu til leiks við KR og Fram. S. 1. sunnudag kepptu Valur—Þrótt- ur, og vann Valur 1:0 og KR vann Víking 2:1. HI. fl. B: Valur—Fram 2:1 og KR—Fram, 9:1. Haustmót IV. fl. A er einn- ig byrjað og. hafa leikir farið þannig: KR—Þróttur mætti ekki, Fram—Víkingur mætti ekki, Valur KR, 3:2, Þróttur —Víkingur mætti ekki. IV. fl. B: Fram Valur, 2:0. Christa Stubnik-Seeliger Litúéff 3000 m V. Kuts, Moskva, 8.05,8 (1954). 5000 m V. Kuts, Moskva, 13.51,2 (1954). För Paasikivis vekur eftirvænt- ingu í Finnlandi Fregnin um för Paasikivi for- seta og Kekkonens forsætisráð- herra til Moskvu hefur vakið mikla eftirvæntingu í Finnlandi. Telja sum finnsku blöðin lík- legt að endurskoðun ýmissa á- íkvæða finnsk rússneska friöar- Samningsins verði meðal þeirra mála sem rædd verði í Moskvu. Eitt blaðanna telur, að för Finnanna sé einn liður í heim- sóknum Norðulandastjórnmála- manna til Moskva og kunni Gerhardsen og Erlander, for- sætirsáðherrar Noregs og Sví- þjóðar að fara þangað á næst- unni. * * ÚTBREIÐIÐ ^ * > ÞJÓDVILJANN V 4, Eins og frá hefur verið sagt, setti Belgíumaðurinn Roger Moens heimsmet í 800 m hlaupi á Bislet vellinum um mánaðamótin júlí——ágúst og hnekkti þar með hinu 15 ára gamla meti Harbigs hins þýzka. Eftir hlaupið fékk hann ekk- ert heillaskeyti í tilefni af þess- um sigri og heimsmeti. Lét hann þá þau orð falla við franskan blaðamann, að hann hefði elcki búizt við slíku, þvi heima væri aðeins áhugi fyrir knattspymu og hjólreiðum. Það kom Moens því á óvart þegar hann kom heim að vera boðinn af hinum unga konungi Belgíu, Baudloin, til hallar hans, ásamt forseta belgíska frjálsíþróttasambandsins. Þar 1 afhenti konungur honum fagr- an gullpening með mynd af sér. Konungur hrósaði Moens, mjög fyrir afrek hans og þakk-; aði honum fyrir frammistöð-; una. Vladimir Kúts Langstökk L. Gregoréff, Len ingrad, 7,62 (1954). Þrístökk L. Tsérbakoff, Moskva 16,23 (1953). Stangarstökk P. Denisenko, Kiev, 4,46 (1954), Kringlukast Grigalka, Moskva, 54.96 (1955). Spjótkast V. Kusnetsoff, Len- ingrad, 78,19 (1954). Sleggjukast Krivonosoff 64.33 (1955). Nilsson tapaði íyrii Kovar Evrópumeistarinn í hástökki, Svíinn Bengt Nilsson, beið ó- sigur fyrir Tékkanum Kovar í keppni í Kaupmannahöfn um s. 1. helgi. Stukku þeir báðir 2 m, Kovar í fyrstu tiiraun en Nilsson í annarri. Christa Stubnik-Seeliger heit- ir 22 ára gömul austur-þýzk stúlka, sem í dag er tvímæla- laust sprettharðasta kona Ev- rópu. Hún fór fyrst að keppa op- inberlega árið 1950 og hljóp þá 100 metrana á 13 sek. rétt- um, árið eftir var tími hennar 12,8, 1952 12,2 og 1953 11,7, Á þessu ári hefur Christa hlaupið 100 m á 11,6 sek sem er hennar bezti tími. Einnig hefur hún hlaupið 200 m á þessu sumri á bezta tíma sem náðst hefur í heiminum, 23,7 sek., og bætt heimsmet áströlsku stúlkunnar Majorie Jackson í 220 jarda hlaupi um 2/10 sek, í 23,8 sek. Þess má geta að á olympíu- mótinu í Amsterdam 19. júni í sumar sigraði hún tvo fræga keppinauta í 100 m hlaupinu hollenzku stúlkuna von Duyne Brouwer og Scibens frá Eng- landi. Tími Christu var 11,7 en hinna 12,2 og 12,3. Christa þykir hafa mjög fal- legt hlaupalag og minna all- mikið á Jackson hina áströlsku. Hinsvegar er viðbragðið henn- ar veikasta hlið. Þjálfari Christu heitir Max Schlommer. Fiitterer setur nýtt Evrópumet í 200 m hlaupi Þjóðverjinn Heinz Fiitterer, Evrópumeistari í 100 og 200 m hlaupum, setti nýtt Evrópu- met í 200 m hlaupi á aiþjóð- legu íþróttamóti í Köln s. 1. sunnudag. Tími hans var 20.6 sek. Fiitterer átti sjálfur gamla metið 20.8. Hið opinbera heimsmet á Bandaríkjamaðurinn Mel Pat- ton, 20.2 sek., sett 1949. Dynamo vann Milan 4:1 Knattspyrnuliðið Dynamo frás Moskva keppti s. 1. sunnudagl; við ítalska liðið Milan. Fórj leikurinn fram í Milano á Xt-I; alíu og lauk með sigri sovézkajl liðsins 4:1. ítalimir (Gunnar Nordahl) skomðu markið íj fyrri hálfleik án þess að Rúss- um tækist að jafna, en í þeim! síðari juku hinir síðamefndu; hraðann og höfðu algerlega yf- irburði. Kúts hljóp 5000 metra á 13.57.8 Sovézki hlauparinn Kúts hljóp 5000 m á 13.57.8 mín íj keppni um síðustu helgi. Tím-j inn er sá fjórði bezti í heim-! inum í ár, Pólverjinn Chromikj á bezta tímann 13.55,2. Frá einni af hinum fjölmörgu hópsýningum tékkneskra ípróttamanna á pjóðhátU Tékkóslóvakíu í sumar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.