Þjóðviljinn - 17.09.1955, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 17. september 1955
Ásberg Jóhaxuiesson, kennari
Y-----------------------
þlÓSVIUINN
Útgefandi:
Sameiningarflokkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurnn —
Skemdarverk
í fræðslumálNm
Annað aðalblað menntamála-
ráðherrans skýrir frá því í áber-
andi frétt í fyrradag að útlit sé
fyrir mikinn skort á kennurum
og jafnvel skólastjórum við
foarnaskóla víðsvegar um land.
Svo hafi einnig verið undanfar-
in ár. Við frásögn unv erfið-
leika skólanna úti á landi bætir
málgagn menntamálaráðherrans
iþessu: „Við barnaskólana í
Rcykjavík hafa þó jafnan verið
iu gilega margir kennarar, en
aidrei hafa umsóknir um kenn-
arustöður hér verið jafnfáar og
á þéssu hausti. Virðast kenn-
arar leita í aðra vinnu en til
kennslunnar ef þeir eiga þess
kc ;t, enda ríkir mikil óánægja
m ðal þeirra um launamálin".
Málgagn menntamálaráðherr-
ars víkur hvað eftir annað að
óánægju kennara með launamál-
in og skal sízt úr því dregið að
fu ' þörf er að launa kennara
to-c' ur en nú er gert, svo mjög
n\ ur á fyrir þjóðina alla að til
þc ss starfa veljist hinir hæfustu
Dienn. Virðist eftir þessum
sk ilningi málgagns mennta-
rn 'laráðherrans mega vænta
þi s að ríkisstjórnin sýni launa-
rr.' lum kennara meiri sanngirni
foér eftir en hingað til, og er það
vc-l.
Hins vegar gæti þessi ó-
Vfr íjulega undirstrikun íhalds-
b! iðs á launamálum vakið þann
gi un, að ríkisstjórnin vissi um
aðra ástæðu til hins alvarlega
3ít "Lnaraskorts. Kunnugir vita,
ao þeir afturhaldspokar sem
Kfrtið hafa í embætti mennta-
m Maráðherra undanfarið hafa
verið mikilvirkir að fæla unga
m -nn frá kennaranámi og fæla
ktnnara frá kennarastarfi. Hef-
ur það verið gert með þeim
lúalegu og ósvífnu aðferðum
Bem þessir ráðherrar hafa beitt
itil að reyna að útiloka frjáls-
lynda menn og róttæka frá
kennarastöðum, en troða í þær
fii kksmönnum sínum, hvað sem
hr fileikum og verðleikum leið.
Ti' allrar hamingju er sá mann-
d< mur í flestum íslendingum, að
jx ir selja ekki sannfæringu sína
né knékrjúpa mönnum á borð
við tukthúsráðherrann Bjarna
Benediktsson eða menningar-
Krauðan heildsala eins og hús-
ibónda Visis, til að fá að gegna
'þ’.'í þjóðnytjastarfi sem hæfi-
leikar þeirra, menntun og skóla-
gcnga gera þá sjálfkjörna til.
Það er rétt að launakjör kenn-
ara valda miklu um kennara-
skortinn. En hin lúalega hlut-
drægni íhaldspokanna í sæti
menntamálaráðherra á ekki síð-
ur sök á því hve erfitt reynist
að fá hæfa kennara til starfa.
Og hitt er ekki síður alvarlegt
vandamál, hve þessi framkoma
valdhafanna fælir ungt fólk frá
fcennaranáminu, og verður þess
valdandi að kennarastéttin fer
á mis við dýrmæta starfskrafta.
Það getur reynzt þjóðinni dýrt
að láta íhaldspoka þjóna lund
í embætti menntamálaráð-
iherra landsin*5
Að kvöldi þess 13. þm. dó í
Landspítalanum Ásberg Jó-
hannesson kennari frá Stykk-
ishólmi. Hann var fæddur 15.
september 1902 að Undir-
túni í Helgafellssveit. For-
eldrar hans vor-u þau hjón
Guðbjörg Jónsdóttir og Jó-
hannes Einarsson.
Bernskudraumar Ásbergs
stefndu út á sjóinn en hann
reyndist ekki hata heii.su til
að stunda sjómennsku og varð
kennari að roe intim. En
ekki hafði hann stundað fyrir-
hugað ævistarf sitt nema
skamma hríð, þegar harin þrí-
tugur að aldri, varð fyrir því
mótlæti að veikjast af berkl-
um og f'ytjast til langdvalar
á Vífilsstaði. — Og livað svo
meir? Var þá ekki sagan öll,
eins og svo oft á þeim tima,
þegar ungur maður lenti á
hæli? Að vísu er það rétt, að
þessi ungi maður átti aldrei
framar aftiirkvæmt út í hið
„frjálsa glnða líf'" meðal
hraustra, að undanteknam 1-2
árum, sem lrlé varð á hælis-
vistinni. En þessi maður á þó
sögu engu ómerkavi en
margir góðir menn, er aldr-
ei kenndu sér meins, nutu að
því leyti sjálfs sín og fengu
opinbera viðurkenningu í einni
eða annarri mynd.
Ásberg Jóhannesson var frá
því fyrsta á hælisárum sínum
og meðan lít og orka entust
leiðandi kraftur í félagslífi
berklasjúklinganna. Og hann
er sá eini maður, er setið hef-
ur í miðstjórn Sambánds ís-
lenzkra berklasjúklinga sam-
fleytt frá stofnun þess þau
17 ár, sem það hefur starfað.
Ef honum hefði enzt ævi út
kjörtíma sinn nú, myndum við
hafa getað fagnað sjmeigin-
lega tvítugsafmæli SlBS og
tuttugu ára starfsafmæli
hans í miðstjórn sambands-
ins. Auk þess hafði hann
jafnan gegnt fjölda trúnaðar-
starfa fyrir vistmenn að
Reykjalundi sem ekki er rúm
að rekja nú, en þar var hann
vistmaður frá byrjun.
Þótt ekki væri metra sagt
má athugull lesandi ráða i, ao
hér mani ekki hifa verið
hversdagsmaður á ferð, því
það vita ahb nú. að SÍBS og
Reykjalundur eru með þjóð
vorri p:er stærðir, sem ekki
hafa >rr * til af sjalfu sér,
og sá er þar nýt:i sv> ótví-
ræðs trausts til forystu scm
Ásberg naut hlýtur að vera
maður góðum gáfum gæddur.
En þeir, sem vita hyað það
er að vera skyndilega Iirifinn
frá lífsstarfi, vera lagður inn
á berklahæli, eins og þá var
ástatt í þessum efnum í landi
voru, og þurfa að heyja stríð
við skæðan sjúkdóm um ára-
tugi, þeir vita, að meira þarf
til en góðar gáfur, að ganga
í spor svona manns, það þarf
sterkan persónuleika og sér-
stök jákvæð lífsviðhorf.
Ásberg Jóhannesson hafði
af meðfæddri greind og með
öflun þekkingar, eigi aðeins
komið auga á hinar félagslegu
rætur mannlegs ófarnaðar og
félagslega lausn þessara
vandamála, hann skildi manna
bezt, að maðurian er sjálfur
Nokkur minningarorð
sinnar gæfu smiður, ekki einn
út af fyrir sig, heldur í sam-
starfi við aðra menn. Haun
trúði á sigur mannvits og
réttlætis í krafti samstarfs og
samtaka. Hann var sósíalisti í
orðsins sönnustu merkingu.
Ýmsum þóttu ekki berkla-
sjúklingar líklegir til stór-
virkja fyrir 17-18 árum, þegar
fámennur hópur þeirra hóf
undirbúning að stofnun SlBS,
og margir í þeirra eigin röð-
um höfðu enn ekki öolazt
trúna á sjálfa sig og samtaka-
mátt sinn, því enn lá vanmátt-
arkenndin og bölsýnin eins og
mara á sálarlífi þeirra. Var
það tilviljun að maður eins
og Ásberg Jóhannesson skyldi
verða einn í hópi þeirra berkla-
sjúklinga, sem fyrstir sögðu
vanmáttarkenndinni og böl-
sýninni stríð á hendur og
blésu í brjóst félaga sinna á
hælunum félagslcgri sjálfsvit-
und? — Var það nokkur til-
viljun að hann skyldi verða
einn af aðalhvatamönnum
þess að berklasjúklingar
efndu til sinna eigin samtaka,
að einmitt hann skyldi stjórna
fyrsta fundinum sem haldinn
var með fulltrúum berklasjúk-
linga víðsvegar af landinu til
undirbúnings stofnun Sam-
bands ísl. berklasjúklinga og
að fyrir honum skyldi það
liggja að verða einn traustasti
og markvísasti forystumaður
í samtakabaráttu þeirra næstu
tvo áratugi? — Vissulega
ekki.
Ég hygg, að í fylgd með
öðnim fjölþættum mannkost-
um Ásbergs hafi hin mann-
elska félagslega lífstrú hans
og sigurvissa verið sá töfra-
sproti, sem mest lýsti af í fari
hans og meginskýring þeirr-
ar frábæru hugprýði og bar-
áttugleði, sem hann var gædd-
ur. Aldrei sá ég þess merki
að hin langa hælisvist og veik-
indi liefðu beygt eða lamað
siðferðislega reisn hans. Slíkt
er þeim einum gefið sem vita
sig tilheyra mikilli hugsjón á
sigurbraut, fyrir þá skiptir
þeð ekki meginmáli hvort sá
sigur vinnst að þeim sjálfum
lífs eða liðnum, ef rétt horf-
ir.
„Glaður og reifur skyli
gumna hVterr, unz sinn bíður
bana“. Það var andi breið-
firzkrar sjóhetju og bamings-
manns, borinn upp af sigur-
vissunni fyrir réttlætisins
hönd, sem gat hafið þennan
mann yfir eigið böl, gætt
hann frjórri starfsgleði og
gefið honum kraft til að
breyta hinu lifandi umhverfi
sínu til bóta fyrir sjúka fé-
laga sína og gaf honum giftu
til að verða einn þeirra ein-
staklinga, sem SlBS og öll
þjóðin stendur í þakkarskuld
við.
Verk þessa manns munu
ekki aðeins halda á lofti minn-
ingu hans á ókomnum tíma;
minning Ásbergs Jóhannes-
sonar mun gefa veikum trú
á lífið og styrk til að berj-
ast til sigurs.
Það er gott að liafa kynnzt
slíkum manni og átt hann að
vini. Jón Rafnsson.
Ásberg Jéhannesson
F. 15/9 1902. D. 13/9 1955.
í dag verður gjörð bálför Ásbergs Jóhannessonar,
gjaldkera að Reykjalundi.
Við félagar hans í stjórnum Sambands ísl. berkla-
sjúklinga og Vinnuheimilisins að Reykjalundi látimi í
ljós söknuð, er við horfum á bak samstarfsmanni, sem
staðið hefur í fylkingarbrjósti samtaka okkar frá fyrstu
tíð.
Einnig viljum við í nafni allra berklasjúklinga færa
lionum þakkir fyrir trúa og dygga varðstöðu, sem stað-
in var til dauðadags um heiður og sóma sambands okk-
ar. Við þökkum drengskap og ráð, sem hverju máli vís-
aði til betri vegar.
Við þökkum fölskvalausa vináttu í okkar garð.
Eiginkonu Ásbergs Jóhannessonar, móður hans, syni
og frændaliði vottum við samúð okkar.
Stjórn S. I. B. S.
Marhis Helgason Árni Einarsson
Oddur Ólafsson Gunnar Ármannsson
Guðmundur Jakobsson Júlíus Baldvinsson
Þórður Benediktsson
Stjórn Vinnuheimilisins að Reykjalundi
Ólafur Björnsson Höskiddur Ágústsson *
Kjartan Guðnason Guðmundur Jóhannesson
Jón Benjamínsson
Vatnsrör
Eftirtaldar slærðir af svörtum vatns-
rörum fyrirliggjandi
1" l1/^” l1/^” 1%” 2” 2 y2” 3” 4
Rörin eru afgreidd frá vörulager okk-
ar að Rauðará við Skulagötu
LANDSSMI9JAN
Slmi: 1680.
99