Þjóðviljinn - 09.10.1955, Blaðsíða 12
eirðir er franskir hermenn
neita að fara fil N-Afríku
BlóSugir bardagar i RúSuborg, Parls,
Lyon, Limoges og fleiri borgum i gœr
í mörgum borgum Fi’akklands kom til blóðugra bardaga
í gær og fyrradag, þega þúsundir varaliSsmanna sem hafa
verið kvaddir aftur til herþjónustu neituðu að láta senda
sig til Norður-Afríku.
í fvrrakvöld neituðu nokkur j Vopnaðir lögregluþjónar og
hundruð varaliðsmenn sem voru hermenn reyndu í alla fyrri-
í herbúðum í Rúðuborg að fara
um borð í skip, sem átti að
flytja þá til Norður-Afríku.
Lokuðu þeir sig inni í herbúð-
unum og var herlið og lög-
regla send á vettvang til að
smala þeim um borð í skip-
ið. Safnaðist brátt múgur ó-
breyttra borgara fyrir utan her-
búðirnar og kom varaliðsmönn-
unum til hjálpar. Urðu þarna
mikil átök og særðust um 50
lögreglumenn. 12 menn voru
handteknir.
nótt að brjótast inn í herbúð-
irnar, en tókst ekki fyrr en
undir morgun að brjóta mót-
spyrnu varaliðsmannanna á bak
aftur. Voru þeir þá reknir um
borð og lagði skipið þegar frá
bryggju.
Óeirðir í mörgum
borgum
í gærkvöld urðu aftur ó-
eirðir við þessar herbúðir í
Rúðuborg. Varpað var íkveikju-
sprengjum inn í þær og kveikt
Maður barinn til bana
Framhald af 1. síðu.
Ingva, en á meðan lagði Ingvi
af stað í áttina heim til sín
aftur. Svaraði hann aðeins eins
atkvæðis orðum þegar Pétur
yrti á hann.
Pétur, bílstjórinn og farþegi
hans, sem barið hafði Ingva,
fóru þá niður á lögreglustöð og
skýrðu lauslega frá atburðin-
um.
Árásin á Ingva mun hafa
gerzt um tvöleytið um nóttina,
—en þegar Pétur kom heim af
lögreglustöðinni til Ingva mun
klukkan hafa verið orðin þrjú.
Var Ingvi þá rænulaus og
kona hans búin að hringja á
sjúkrabíl. Var Ingvi fluttur i
spítala og komst aldrei til með-
vitundar. Hafði höfuðkúpa hans
brotnað og blæddi inn á heil-
ann. Lézt Ingvi um klukkan
hálftvö eftir hádegi í gær.
Hvorki Pétur né Ingvi munu
hafa þekkt árásarmanninn, en
hann mun vera ungur piltur;
var hann ölvaður. Ekki ér
Þjóðviljanum kunnugt um að
bílstjórinn sem fór út úr bíln-
um til að slást hafi verið ölv-
aður.
Ingvi Hraunfjörð var fertug-
ur að aldri og lætur eftir sig
7 börn. Er mikill harmur kveð-
inn að aðstandendum hans við
þennan hörmulega atburð.
var í trégirðingu. Samskonar
óeirðir urðu í öðrum borgum
Frakklands m. a. í Lyon og
Limoges. í París fóru ungir
menn og konur úr æskulýðs-
samtökum kommúnista, sósíal-
demókrata og kaþólskra í fylk-
ingum um götumar til að mót-
mæla því að hermenn séu send-
ir á vígvellina í Afríku. Öflugur
hervörður var um þinghúsið í
gær meðan umræður stóðu yfir
um Marokkó.
Er á meðan er
í FIMMTÁNDA skipti
Gamanleikurinn ER Á MEÐAN
ER verður sýndur í Þjóðleik-
húsinu í kvöld. Er það 15.
sýning leiksins, en sýningar á
honum hófust í vor eins og
kunnugt er. Gera má ráð fyrir
að sýningum fari að fækka, þar
sem önnur verkefni kalla að;
en þeir sem vildu sjá leikinn
áður verða ekki sviknir um
góða skemmtun.
0JÓÐV1LJINN
Sunnudagur 9. október 1955 — 20. árgangur — 228. tölubla®
Fækkað í her Breta
iim 100 þúsund menn
Fækkanin verður framkvæmd á næstu
þrem árum, herskyldualdur lækkaður
Brezka stjómin hefur ákveðiö að fækka í brezka hern-
um um 200.000 menn á næstu þrem árum.
Eden forsætisráðherra skýrði
frá þessu í ræðu sem hann
flutti á þingi brezka íhalds-
flokksins sem lauk í Bourne-
mouth í gær. Eden sagði, að
Bretar hefðu
nú 800.000
menn undir
vopnum. Á
næstu sex
mánuðum
myndi fækkað
um 20.000
menn í hem-
um og um
80.000 næstu
tvö fjárhags-
ár. iBrezka stjómin væri þess
fullviss að hún gæti staðið við
gerða hernaðarsamninga þrátt
fyrir þessa fækkun í hernum.
Sden
Færeyskir kratar víta fram-
ferði dönsku lögreglunnar
Rísa upp gegn dönskum flokksbræðrum,
heimta Hrólf kraka burt frá Klakksvík
Sósíaldemóki'ataflokkur Færeyja hefur vítt harðlega
framferði dönsku lögreglunnar í Klakksvík og krafizt þess
að herskipið Hrólfur kraki fari frá Færeyjum.
Stjórn Faures
Framhald af 1. síðu.
Einn af þingmönnum gaullista
kallaði hana bæði „glæpsam-
lega og heimskulega".
Þar sem ekki er um trausts-
yiirlýsingu að ræða getur at-
kvæðagreiðslan farið fram þeg-
ar að umræðunum loknum, en
búizt var við í gærkvöld að
þær myndu standa til morg-
uns.
Hinn nýi landvamaráðherra
Frakka, Billotte hershöfðingi,
fór í gær frá Rabat norður til
vígstöðvanna í Riff-f jöllum, þar
sem Frakkar eiga í höggi við
vel skipulagðar hersveitir Ar-
aba.
Franski herinn hefur heldur
sótt á síðasta sólarhring og :
tókst honum að senda liðsauka
til bæjarins Tizi-Ouzli, sem
skæruliðar höfðu umkringt.
Hermenn úr frönsku útlend-
ingahersveitinni að leggja til
atlögu í Arabahverfi í
Casablanca
Flokkurinn gaf út yfirlýsingu
í gær, þar sem hann harmar
þær óspektir sem urðu orsök
þess að danska lögreglan var
send til Færeyja, en vitir jafn-
framt harðlega framferði
dönsku lögreglunnar fj’rsta
daginn eftir komu hennar og
síðar og mótmælir því við öll
ábyrg stjórnarvöld, þ.á.m.
stjórn flokksbræðranna í Dan-
! mörku. Flokkurinn krefst þess
| að herskipið Hrólfur kraki fari
þegar í stað frá Færeyjum.
Dómari víkur úr sæti
Danski dómarinn Rindal í
Þórshöfn mun víkja úr dóm-
arasæti í máli þvi sem höfðað
verður gegn Klakksvíkingum.
Hann var einn þeirra valds-
manna sem Klakksvikingar
Verður aftur fyrirskipaður
niðurskurður í Dalahólfinu?
Á s.l. hausti fundust nokkrar mæöiveikar kindur
í Dalasýslu og var þá horfið að því ráði aö slátra
nokkru fé, en ekki framkvæmdur almennur niður-
skurður.
í haust hefur enn oröið vart mæðiveiki. í þetta
sinn á 6 bæjum í Laxárdal og Hvammssveit í Döl-
um. Alls munu hafa fundizt um 40 sýktar kindur
nú, og er það miklu fleira en á s.l. hausti.
í Dalahólfinu svonefnda eru 22—23 þús. fjár og
yrði almennur niðurskurður mikill hnekkir fyrir
bændur á þessu svæði, þar sem svo skammt er liöiö
frá almennum niðurskurði sauðfjár. Sauöfjársjúk-
dómanefnd fjallar nú um hvaö gera skuli.
í
gerðu afturreka í vor, þegar
setja átti Halvorsen lækni af
með fógetagerð. Þykir þessi á-
kvörðun Rindals benda. til, að
Klakksvíkingar verði einnig
sóttir til saka vegna atburð-
anna í vor.
Ritskoðun á loftskeyti
Danir hafa sett lögreglueftir
lit með loftskeytastöðinni í
Þórshöfn og skeytum sem húr
sendir fiskibátum. Segja þei)
ástæðuna þá að „villandi“l
skeyti um atburðina í Klakks-
vík hafi verið send frá stöð-
inni.
ikil vinna við
togaraaflann
Siglufirði. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans
í þessari viku hafa báðir tog-
arar bæjarins lagt upp afla sinn
hér. Elliði lagði á land 317 lest-
ir og Hafliði 328 lestir. Aflinn
er unninn í liraðfrystihúsunum.
Mikil atvinna er nú hér í bæn-
um. Hefur ekki nm Iangt skeið
verið svo mikil vinna hér um
þetta Ieyti árs. Eru það hin
góðu aflabrögð togaranna sem
vinnuna skapa.
Norkkrir menn vinna við
stækkun vatnsveitunnar og þrír
dekkbátar hafa byrjað róðra,
en afli þeirra hefur verið heldur
tregur til þessa.
Hann tók fram að ástand í
alþjóðamálum væri nú mun
betra en fyrir ári, einkurn í
Evrópu og Austur-Asíu, en á-
standið væri alvarlegt í lönd-
unum við botn Miðjarðarhafs.
Löve kastar
54.28 metra
Á innanfélagsmóti KR í
gær setti Þorsteinn Löve
nýtt íslandsmet í kringlu-
. kasti, kastaði 54.28 metra,
sem mun vera fimmti bezti
árangur í þessari íþrótta-
grein í Evrópu á árinu
og aðeins 16 sm frá Norð-
urlandameti Svians Roland
Nilson. Gamla metið átti
Hallgrimur Jónsson Á, var
það 52.18 m sett fyrr í
sumar. Friðrik Guðmunds-
son varð annar í kringlu-
kastskeppninni í gær,
kastaði 49.20 m.
Molotoff viður-
kennir skyssu
í síðasta hefti timarits
Kommúnistaflokks Sovétrikj-
anna, Kommúnist, sem kom út
í gær, birtist bréf frá Molotoff
utanríkisráðherra til ritstjóra
tímaritsins. 1
bréfi þessu
segir Molotoff
að hann hafi
gerzt sekur
um skyssu í
ræðu sem
hann flutti á
fundi Æðsta-
ráðsins í fe-
brúar sl.
Molotoff Hann hafði
m. a. komizt
svo að orði í ræðunni, að auk
Sovétríkjanna þar sem grund-
völlur að sósíalízku þjóðfélagi
hefði verið lagður væru nú
önnur ríki, sem tekið hefðu
fyrstu skrefin í þá átt. Molo-
toff segir í bréfinu, að sér hafi
orðið á í messunni þegar hann
gaf í skyn að í Sovétríkjunum
hefði aðeins verið lagður grund-
völlur að þjóðfélagi sósíalism-
ans. Sá grundvöllur hefði þegar
verið lagður árið 1932 og upp-
byggingu hins sósíalízka þjóð-
félags væri nú að fullu lokið.
Síðasti sýningar-
dagnr Iíarls
Fimm hundruð manns hafa
nú skoðað málverkasýníngu
hins unga málara Karls Kvar-
ans. í dag er síðasti sýningar-
dagurinn, og er sýning hans i
Listamannaskálanum opin til.kí.
10 í kvöld.