Þjóðviljinn - 09.10.1955, Blaðsíða 9
SunmuJagur 9. október 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (S
RITSTJÖRÍ FRlMANN HEUGASON
t»rjý heiœsmet í
Sí
Hæfmsmerki K.S.Í.
Eins og frá hefur verið sagt. keppni í atriðum sem fyrir
■er Knattspyrnusamband Is- j koma í knattspymuleik. Miðar
lands að fara af stað með þessi keppni að því að örfa
unga drengi til að ná valdi
yfir knettinum — verða leikn-
ir sem kallað er. ____
Leikni er ein aðal undirstaða
undir góða' knattspýrnua TJfigii-
og gamlir munu hafa veitt því
athygli að flest mistök sem
gerast á leikvelli Stafa af vönt-
un á leikni — að menn ráða
ekki við knöttinn, hvorki að
taka á móti honum né senda
hann frá sér. Hitt má líka
benda á að þá fyrst er orðið
gaman að leika knattspyrnu
þegar maður sjálfur hefur
náð þessari leikni, og svo allir
samherjarnir. Við það bætist
svo að það er alltaf miklu
meira gaman að leika við góð
og leikin lið en lið sem lítið
kunna í listum leiksins. —
Hér verður aðeins vikið
stuttlega að þessum 9 atriðum
sem æfa þarf sérstaklega
vegna prófs þessa.
1. Innanfótarspyrnur í mark
sem er 75 sm. breitt af 6
metra færi.
2. Ristarspyrnur á mark frá
vítateigslínu. Markinu skipt
í þrennt, IVo bil við stengur
gefa 3 st. hitt 1 st.
3. Knetti haldið á lofti (15-
30-50 sinnum) með tám,
hnjám og höfði.
4. Knattrekstur milli stanga
á hámarkstíma.
5. 25 m sprettur. Hámarkstími
fyrir brons 4.5 sek.
6. Nákvæm jarðarspyrna með
ristinni af 15 m færi og
hitta milli stanga sem standa
með 1,5 m millibili.
7. Skalla í körfu eftir að hafa
Ungverjar - Tékkar 3-1
náð knettinum upp af jörðu
með fæti.
8. Knattrekstur og sprett-
hlaup á hámarkstíma.
9. Knetti lyft frá jörðu og hald-
ið á lofti og gengið 4 m í
ákveðna átt.
Til að standast prófið fyrir
bronsmerki verður drengurinn
að framkvæma 1, 2, 3, 4, og
5 atriði samkvæmt gerðum
kröfum.
Fyrir silfunnerkið 1, 2, 3,
6, 7, og 8 atriði og fyrir gull-
merki 1, 2, 3, 6, 7, 8 og 9
atriði.
Síðar verður nánar vikið að
hverju einstöku atriði þessara
prófrauna.
Nefnd sú sem getið var að
KSÍ hefði skipað til að vinna
að þessu máli hefur þegar tek
ið til starfa og mun hún bráð-
lega leitast við að ná sam-
bandi við félögin og unglinga-
leiðtoga eða unglingaleiðbein-
endur.
Um s. 1. helgi háðu Ung-
verjar og Tékkar landsleik í
knattspyrnu í Prag og fóru
leikar svo að Ungverjar unnu
með 3 mörkum gegn einu Yfir-
leitt var við því búist að þeir
mundu sigra. Tékkar veittu
þeim mjög harða mótspyrnu, og
sérstaklega í fyrri hálfleik.
Áttu þeir mörg hættuleg áhlaup
og átti markmaður Ungverja
fulit í fangi með að halda mark-
inu hreinu, en óheppni og léleg
skot urðu því valdandi að
Tékkar skoruðu ekki. Ungverj-
ar urðu þvi að taka fram sitt
allra bezta til að ná yfirhönd-
inni í leiknum. Það var því ekki
laust við að lið Ungverja ylli
svolitlum vonbrigðum. Þrátt
fyrir sókn gestanna, í byrjun
fyrri hálfleiks, vöru það Ung-
verjar sem skoruðu þegar á 5.
mínútu leiksins. Var það Boszik
sem skallaði í mark eftir send-
ingu frá Czibor.
Tékkar gátu ekki haldið uppi
sama hraða í síðari hálfleik og
virtust þreyttir, hinsvegar voru
það nú Ungverjar sem gerðu
hvert áhlaupið á fætur öðru
með vel skipulögðum samleik.
Á 70. minútu leiksins er það
Boszik sem skorar aftur. Fáum
mínútum síðar skorar miðherji
Tékka með þrumuskoti sem
Fazekas gat ekki varið. Á 84.
mínútu skorar Tichy þriðja
mark Ungverjanna.
Osísýfiingisa
Framhald af 7. síðu.
víslegri tilraunir frá svo dug-
legum manni, stærri stökk.f.rá
einni mynd til annarrar.
Karl er einn sérkénnilegaáit
persónuleikinn í islenzkri
abstraktsjón og einn af þeitii
efnilegustu af yngri kynslóð-
inni. Hafi einhver áhuga þá:
vesgú það er opið, en .aðeins
til klukkan 10 í kvöld.
Kjartan Guðjónsson.
TILKYNMIMG
frá olíufélögunum
Vegna sívaxandi erfiðleika á innheimtu og út-
vegun rekstursfjár, hafa olíufélögin séð sig til-
neydd að ákveða, að frá og méð 15. október næst-
komandi, verði benzín og olíur einungis seldar
gegn staðgreiðslu.
Frá sama tíma hætta olíufélögin öllum reikn-
ingsviðskiptum.
Kið íslenzka steinolmhlutaiélag
Olíufélagið h.f.
Olíuveizlun Islands h.f.
H/F SIIELL á Islandi
Danir réðu ekki við Breta
Á áttunda meistaramóti Sov-
étrikjanna í fallhlífarstökki,
sem nýlega var háð á Tus-
jinoflugvellinum við Moskva,
voru m. a. sett þrjú ný
heimsmet og eru myndirnar
hér fyrir ofan af hinum nýju
methöfum. Efstur er V.
RADKOFF, sem setti nýtt
met í stökki úr 1000 metra
hœð; hann lenti 5.7 m frá
miðdepli markhringsins. Á
nœstu mynd er G. MIS-
KLIMA, sem stökk úr 1600
metra hæð án þess að opna
fallhlífina fyrr en skammt
frá jörðu. Hún lenti 7,08 m
frá miðdeplinum. Loks er A.
SULTANOVA, sem setti
heimsmet með því að stökkva
úr 600 m hœð og lenda 3,4
m frá miðdepli.
Eins og áður hefur verið frá
sagt háðu áhugamenn Dana
og atvinnumenn Breta nýlega
knattspyrnuleik, og reyndist
Bretum þetta auðveldur sigur
þar sem þeir gerðu 5 mörk
gegn 1.
Fyrsta markið kom úr víta-
spyrnu. Hafði danski bakvörð-
urinn Paul Petersen hindrað ó-
löglega. Donald Revie átti
ekki erfitt með að rugla svo
Per Henriksen að Henriksen
lá í öðru hominu, en knöttur-
inn í hinu. Tveim mínútum
síðar skorar Lofthouse tvö
mörk í röð með stuttu millibili.
Danir byrjuðu vel síðari
hálfleik og áttu nokkur hættu-
leg áhlaup, og þeir börðust á-
kaft. Áttu þeir nokkur tæki'
færi, þó þeim tækist ekki að
skora. Það var Knud Lundberg
sem spyrnti mjög vel í mark
Breta á 20. mínútu eftír góða
sendingu frá Paul Petersen
Nokkru fyrir leikslok skoraði
Bradford 5. mark Breta.
Leikurinn fór fram á íþrótta-
vellinum í Kaupmannahöfn.
Hefur hann verið stækkaður í
sumar, og rúmar nú 50.000 á-
horfendur.
Margir Bretar voru við-
staddir leikinn, en um þessar
mundir er brezk iðnaðarsýning
í Kaupmannahöfn, og Voru því
margir brezkir ferðamenn
staddir þar. Viðstödd leikinn
voru einnig Friðrik konungur
og drottning hans Ingrid.
Leikur þessi var sá áttundi
sem þessi lönd heyja sín
í milli.
Framkvæmda-
stjórn I.S.Í. skipt-
ir með sér verkum
Hin nýkjörna framkvæmda-
stjórn íþróttasambands íslands
hefur nú skipt með sér verkúm.
Benedikt G. Waage var kjörinn
forseti sambandsins af íþrótta-
þingi, en aðrir ‘stjórnarmeðlim-
ir eru: Guðjón Einarsson vara-
forseti, Stefán Runólfsson rit-
ari, Gisli Ólafsson gjaldkeri og
Hannes Þ. Sigurðsson frunda-
ritari.
4 4 ÚTBREIÐIÐ T4 Jf
4 4 ÞJÓDVILJANN T4 *
Allir þeir nemendur, er sótt hafa um landsprófs-
deildir gagnfræðaskólanna í Reykjavík í vetur,
mæti til viðtals og skrásetningar í Miöbæjarskól-
anum (gengiö inn um noröurdyr) n. k. mánudag
og' þriöjudag kl. 10—12 f. h. og hafi meö sér próf-
skírteini unglingaprófs.
Némssfjón.
P0BEDA, 5 manna, er einn af þremur vinn
ingum í bílahappdrætti Þjóðviljans.
Sleppið ekki tækifærinu
Þér eigið vinningsvon