Þjóðviljinn - 25.11.1955, Side 4

Þjóðviljinn - 25.11.1955, Side 4
%) — í>JÓÐVILJINN —. Föstudagur 25. nóvember 1955 Ragnar V. Siurluson: Síðan fyrir aldamót hafa fiskveiðarnar verið sá liorn- steinn undir þróun þeirrar 1,ækni- og menningarlegu fram- íara sem einkennt hafa þjóð- líf vort þennan mannsaldur, erið sú lyftistöng, sem öllu '-'ðru fremur hefur gert fært að útrýma hallærum og hung- •..rdauða sem því miður of oft e.afði landlægur verið á því iandi íslandi, sökum hamskipti- ilegrar veðráttu og ills stjórn- srfars af annarlegum toga. Það mætti því vænta þess ;ð sú kynslóð, sem grettis- lökum hefur lyft á þessu sviði i ppbyggingar íslenzks þjóðlífs, iéti sig miklu skipta allar for- iendifr fyrir því að árangurs- rikt áframhald geti orðið á athafnasemi hennar. Eins og fslendingum ætti að rera kunnugt, þá er aðal- iorsendan fyrir því, að gildi fiskveiðanna haldist fyrir þjóð- iíf íslendinga, sú, að auðgi iiskigrunnanna kring um land- 3ð minnki ekki og aflasæld þeirra gangi ekki íslenzkum jiskimönnum úr greipum. Af þessu leiðir svo nauðsyn á bví að íslenzkum fiskimönnum té tryggð aðstaða, sem bezt :ná, til þess að nýta þessi auð- æfi hafsins og hagsmunir beirra að þessu leyti séu einnig ‘íryggðir fyrir ofnýtingu fiski- miðanna. Og þá er komið að Umræðuefninu sem þessi grein átti að fjalla um; sem sé 'íryggingu þess að íslenzkir sjó- xaenn geti öðrum fremur hag- xýtt þessi náttúrugæði í kring tsm landið; „Landhelgi ís- iands“. J>ó undarlegt sé þá hefur íurðu lítið verið ritað um þetta efni, sem þó er ekki þýð- i«garminna fyrir sjálft at- hafnalíf í landi voru en ákvörð- un landamæra milli ríkja ann- ars staðar á Imettinnm er fyr- ír þær þjóðir sem þau byggja. Helzta rit sem út hefur kom- íp til þessa um landhelgi ís- Jands, er rit dr. jur. Gunn- jaugs Þórðarsonar um þetta sfni með tilliti til * fiskveiða, fem út kom érið 1952 og hann iblaut doktorstitil fyrir. — CJrípur það töluvert — þó í jausum dráttum sé — inn á jögu þjóðréttarlegra yfirráða íslands yfir hafinu umhverf- ýs landið, sem og þróun fram- x.væmda og viðhalds þess rétt- ar. Bókin er því ágætt forsögu- efni handa þeim er vilja kynna sér þetta málefni til hlítar. — Má það kallast táknrænt fyrir áhuga íslenzkrar sjómanna- stéttar um grundvöll þess að peir geti haldið áfram að afla sér lífsbjargar, að þetta for- sögulega rit um þetta stærsta elferðarmál þeirra skuli enn- pá fást í bókabúðum. Eins og þetta rit dr. Gunn- jaugs ber með sér, þá er við- íangsefnið „Landhelgi íslands“ ekki einþætt mál eða jafn ein- íalt og í fljótu bragði mætti virðast. — „Landhelgi" í víð- ,'iistu merkingu þess orðs felur ^,4 sér yfirráðarétt viðkomandi jþjóðar yfir hafsvæði yið strandléndi hennár að ýztu tak- mörkum lög'sögulegs umráða- svæðis hennar. í elztu lögbók íslendinga er þegar getið um þessi takmörk austur af landinu, sem sé mið- hafslínu milli fslands og þjóð- félaganna sem skattskyld voru undir uursku konungana. Þessi „lögsögu.ega" markalína hefur því legið vestan við Færeyjar, Orkneyjar og Suðureyjar allt fyrir norðvestan írland. í vest- urátt þekktu íslendingar þá ekkert þjóðfélag með aðra „lög- sögu“ en íslenzka, — Þetta er fyrsta vitneskjan se'in við höf- um um viðurkennda „land- helgi“ eða „lögsögulegan rétt“ íslendinga yfir hafinu í kring um land þeirra. Á vitundinni um þennan rétt hafa síðan allar aðgerðir handhafa „drott- invaldsins" yfir íslandi byggzt. Út til yztu takmarka þessa „lögsögulega" íslenzka yfirráða- svæðis bera hinar gömlu lög- bækur ekki með sér hverjar reglur giltu um fiskveiðar, sem ekki var von, því þá voru hin stórvirku fiskveiðitæki nútím- ans ekki komin til sögunnar, og veiðar landsm.anna stundaðar með tækni sem aðeins gat náð til þröngra svæða uppi undir strandlendinu. Aðsókn manna frá öðrum þjóðfélögum á ís- lenzk fiskimið var þá ekki fyr- ir hendi. En um allar fisk- veiðiaðferðir sem þá þekktust í ám og vötnum og uppi við landsteina voru gerðar ákveðn- ar reglur. Að um þessi mál skuli ekki hafa verið skrifað meira af fræðimönnum með tilliti til að- stöðu okkar á alþjóðavettvangi, má vekja furðu. En hitt má^" vekja meiri undrun, er áhuga- samir einstaklingar fórna fé og tíma til að kryfja þessi mál til mergjar, að þá skuli at- hygli íslenzkrar sjómannastétt- ar ekki beinast 'meir að varn- aðarorðum þessa framherja í þessu máli en svo, að hillur bókabúðanna fái í næði að fella ryk sitt á fræðirit þessara manna. Ég á þarna við rit eins og fyrrnefnda „Landhelgi ís- lands“ eftir Gunnlaug Þórðar- son og svo nýútkomið rit um „Sögu landhelgismáls fslands", eftir Þorkel Sigurðsson vél- stjóra. Eftir að hafa lesið það, vekur það furðu mína hvernig maður, sem ekki hefur til þess fræðilega aðstöðu, hefur get- að sett rök fram og flétt sam- an í svo stóra drætti sögu land- helgismáls íslands svo góða yfirsýn getur um eðii þessara mála; sýnir það eitt hversu fórnfús áhugi um eitthvert á- hugamál getur gripið fram- herja sinn algerlega á vald sitt. Það er íslenzkri sjómanna- stétt til mikils vanza, ef þetta rit Þorkels vélstjóra gistir lengi hillur bókabúðanna í fyrstu útgáfu. £>að hæfir því að ég geri nokkru nánari grein fyrir riti þessu eftir því sem það kem- ur mér fyrir sjónir. Bók Þorkels er 64 bls. að stærð í stóru Droti og skiptir hann henni í tvo hluta. Hinn fyrri er átta kaflar, sem segir úr sögu „landhelgismálsins" ásamt endurútgefnum nokkr- um blaðagreinum sem hann hefur skrifað um þetta mál. Þessum atriðum lætur hann fylgja 6 heilsíðuuppdrætti af íslandi ásamt takmarkalínum um fiskveiðar, fyrirskipaðar af konungum Islands á ýmsum tímum ásamt skýringum. Er þetta allt samanþjappaður fróðleikur í hinu þrönga formi, sem stærð bókarinnar er mið- uð við. Birtir hann þarna bráða- birgðalögin, sem ríkisstjómin gaf út 19. marz 1952, um bann við togveiðum og Alþingi sam- þykkti síðar og mestur þym- ir hefur verið í augum Eng- lendinga. I þessum hluta ræðir hann og efnahagsafkomu togaranna og bendir á að athuga verði hina raunverulegu tekjuþörf togaraútgerðarinnar og hvort ekki sé greitt óeðlilega lágt verð fyrir fiskinn af eigendum hraðfrystihúsanna, hvort ekki sé of hátt verð á veiðarfærum og brennsluolíum og fleira sem hann minnist á í því sambandi. Einmitt .málefni sem sjómenn hafa ofarlega í huga. Seinni hluti bókar Þorkels fjallar um „Jarðfræði og haf- fræðisögu íslands og land- grunnshjallans". Kemur höfundur þar inn á efni sem dr. Gunnlaugur Þórð- arson minnist og á í sinni bók; nefnilega að íslendingar eigi þjóðréjtarlega kröfu eða því sem iíæst á „landhelgi“ út á yztu brún landgrunnsins. Er og á þessari skoðun, sem hef- u'r verið að mótast síðustu áratugina, byggt frumvarp alþm. Hannibals Valdimarsson- ar um 50 milna landhelgi. Er um þetta ræðir, virðast stuðn- ingsmenn þessara skoðanna eingöngu hafa ,,fiskveiða“land- lielgi í huga og rugla saman í eitt hugtak ,,lögsögulegum“ rétti yfir hafi og ákvæðum um fisk- veiðar. Til enn frekari rökstuðnings fyrir gagnsemi þessara kenn- inga um tilkallsrétt íslands til umráða yfir strandhöfum sín- um, er í bók þorkels að fá veigamiklar upplýsingar um landgrunn og fiskimið íslands og nágrennis, ásamt sjávar- dýpi og strauma, fylgja þessu fáeinir uppdrættir og síðast en ekki sízt hið ýtarlega gerða kort hans.um þetta efni, sem hann gaf út síðastliðið sumar og er það bókarauki. Það eru því orðin mörg upplýsingar- atriði sem bók Þorkels hefur að flytja íslenzkum sjómönn- um, sem hljóta að knýja þá til umhugsunar um þetta mál og nánari rannsóknar á því, enda hefur hann tileinkað bók- ina íslenzkri sjómannastétt og æskulýðnum, sem á að erfa landið. Gagnvart kenningunni um þjóðréttarlegt gildi landgrunns- hjallans undir lögsögu vora, til sóknar á alþjóðavettvangi. vil ég beita v.arasemi, þótt ég telji hana ekki forkastanlega með öllu. Elzta kenningin um miðhafslínu hefur meiri stuðn- ing sögu vorrar, sem ennþá eru sterkustu rökin fyrir rétti vorum, sem vér getum borið fram á alþjóðavettvangi, því það er eingöngu saga vor og menning, sem oss hefur tekizt að bregða lifandi upp á þing- um þjóðanna, sem gert hef- ur oss fært að láta virða oss viðlits. — Þessvegna er við- sjárvert að hrökkva til hlið- ar fyrir nýjum kenningum sem þar að auki eru vart full- mótaðar orðnar í vitund þjóð- anna. Eitt er það sem öll alþýða og ekki sízt sjómenn þessa lands verða að hafa í huga: að halda sífellt vakandi athygli sinni á aðgerðum stjórnarvalda landsins í þessum málum, því það er ekkert efunarmál að allt það sem þau hafa gert jákvætt í þessum málum er eingöngu framið af hinni þungu knýjun almenningsálitsins í landinu. Hefði slíkt ekki til- komið mundu viðbrögð stjórn- arvaldanna öll önnur og verri hafa orðið svo sem háttur er þeirra er „lítilla landa og lít- illa sæva“ eru. Hér mega því vökumenn alþýðunnar ekki slaka á verðinum. Þorkell Sig- urðson vélstjóri hefur hrópað sitt aðvörunarkall út til lýðs- ins. Vel sé honum fvrir það. Austfirðingafélagið heldur aöalfund sinn sunnudaginn 27. nóvember kl. 3 í Naustinu. Venfuleg aðalfundarstörf. Stjórnin .ómRnn Sjoppurnar og skólamir — Tillögur „bamavinar” „Börnin í dag — Þjóðin á morgun" „BARNAVINUR“ skrifar: „Bæj- arpóstur góður! Þú varst að tala um það í pistli þínum um daginn, hversu ömurlegt það væri að sjá skólabörn þyrp- ast í nærliggjandi búðir og sjoppur í frímínútunum, til þess að kaupa (sér) gosdrykki og sælgæti fyrir aurana sína. Ég er þér hjartanlega sammála í þesu efni; það er blátt áfram viðurstyggilegt að horfa upp á bömin hópast í búðir og sjopp- ur til þess að kaupa sér kóka og sjá þau svo teyga úr flösk- unum ýmist inni í búðunum eða úti undir húsvegg, ef gott er veður. Mér er sagt, að börn fái ekki að drekka kóka eða aðra gosdrykki innan veggja skólahúsanna, og er það vel farið svo langt sem það nær. En það nær bara allt of skammt. Umhverfis skólana finnst mér að eigi að vera stór afgirt lóð, með leikvöllum bæði fyrir eldri og yngri böm, og út af þeirri lóð ætti ekki að leyfa börnunum að fara, fyrr en skólinn er úti þann daginn. í frímínútunum gætu þau leikið sér á leikvöllnnum, a. m. k. þegar gott væri veð- ur, og get ég ekki séð að það hafi minni þýðingu fyrir upp- eldi þeirra heldur en þessar „verzlunarferðir" þeirra í næstu búðir. Sömuleiðis finnst mér, að það ætti alls ekki að leyfa að setja upp verzlanir í neinni mynd í næstu hús- um við skólana, a.m.k. verður þá að krefjast þess, að böm- um sé stranglega bannað að fara í búðirnar í frímínútum, og í öðru lagi, að afgreiðslu- fólkið neiti að selja þeim gos- drykki og sælgæti og aðra ó- þurftarvöru, ef þau brjóta bannið og laumast út í búð. í sambandi við það, sem þú sagðir um nesti skólabarnanna, hefur mér dottið í hug hvort ekki væri heppilegast, að börn- unum væri seld mjólk og brauð á sanngjörnu verði í skólunum sjálfum. Mér virðist að vel mætti koma því í kring án mik- illgr fyrirhafnar, og með því væri tryggt, að hið sama gengi yfir alla hvað nestið snerti, svo að þá þyrfti ekki að rísa nein úlfúð eða öfund milli barnanna út af því. — Ég slæ svo botn- inn í þessar bollaleggingar mín- ar og vona, að ráðamenn í skólamálum taki þær til vin- samlegrar athugunar“. — ÞANNIG farast „barnavini11 orð, og vissulega hefur hann mikið til síns máls, eða hvað finnst ykkur? Persónulega ef- ast Bæjarpósturinn ekki um að „ráðamenn í skólamálum“ taki til athugunar allar tillögur, sem fram eru bornar í þvú skyni að bæta og auðvelda uppeldis- starf skólanna. Langflestum skólastjórum og kennurum er áreiðanlega fátt kærara en að „barnavinir“ (og erum við ekki öll bamavinir? veiti þeim með orðum eða athöfnum drengilega aðstoð við að inna af hendi þann hluta uppeldis- starfsins, sem skólunum til- heyrir. Einn af ágætustu skóla- mönnum þessa lands, nú lát- inn, sagði eitt sinn, að „börnin í dag væru þjóðin á morgun“. Og þann einfalda sannleik held ég að við ættum að hafa að leiðarljósi í uppeldis- og skóla- málum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.