Þjóðviljinn - 06.12.1955, Qupperneq 5
Þriðjudagur 5. desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Ihaldíð vill hækka útsvörin m 40%
Framhald af 1. síðu.
gjaldaliði áæthmarinnar er það
að segja að Ihaldið hefur nú
tekið laun verkfræðinganna af
liðnum „Stjóm kaupstaðarins"
og fært hann undir gatnagerð.
í samanburði við áætiunina i
fyrra verður þetta villandi, þvi
þá voru laun verkfræðinganna
undir liðnum „stjórn kaupstað-
arins“. Séu laun verkfræðing-
anna látin fylgja sama iið og í
fyrra hækkar stjórn bæjarins
úr 8 millj. í 9 milij., eða um
26%.
Löggæzlan á að hækka úr
6,3 millj. kr. í 8 eða um 38%.
Fræðslumá.l eiga að hækka
úr 10,6 millj. í 14,6 millj. kr.
eða um 40%.
AFL og €IO
sameinnð
f gær hófst fyrsta þing hins
nýja verkalýðssambands í Banda-
rikjunum, sem myndaðist við
sameiningu AFL og CIO. Meany,
forseti nýja sambandsins, sagði
í setningarræðunni að verka-
lýðsfélögin myndu leggja sig enn
meira fram en hingað til að
hafa áhrif á stjórnmálaþróunina,
en stofnun verkalýðsflokks kæmi
ekki til mála.
Heilbrigðismál eiga að
hækka úr 11,5 millj. kr. í 15,7
millj. eða um 29%.
Féiagsmál eiga að hækka. úr
35,9 millj. i 47,3 miilj. eða um
30%.
Raunverulega 19% lækkuní
Þegar kemur til verklegra
framkvæmda er svo viðhorfið
annað. Til gatnagerðarfram-
kvæmda. voru áætlaðar í fyrra
18,4 millj. af 120,6 millj. kr.
heildarupphæð, eða 15%. Nú
eru hinsvegar ekki áætlaðar
nema 22,6 millj. kr. af 164,5
millj. kr. heildarupphæð, eða
13,7%. Það er því um nær 9%
lækkun að ræða til verklegra
framkvæmda, miðað við heiidar
u n ph æð f j árha gsáætl u narinnar.
Bærínn hefúr þó alls ekki
ráð á að draga úr gatnagefðar-
framkvæmdum. Bæxinn 'á eftir
að nndirbúa byggirigarsvæði, og
þúsundir manna bíða eftir já-
kvæðu svari við því að fá bvgg-
ingarlóð.
Fyrir skömmu flutti bæjar-
stjórnarmehihlutinn tillögur í
bygginga*nálunum. Okkur í
minnihlutaflokkunum fannst
þær tillögur ganga of skammt
En samt, eigi þessar tillögur
að vei'ða annað en pappírs-
gagn, þarf bærínn að verja
Sósíalistar í Képavogi
FUNDUB
verður haldinn í Sósíalistaíélagi Kópa-
vogs, miö'vikudaginn 7. des. kl. 8.30 í
barnaskólanum.
Á fundinum mœta peir Brynjólfur
Bjarnason og Björn Svanbergsson —
Ennfremur veröa rœdd félagsviál.
FfiL.~i.GAR! FJÖLMENNIÐ STENDVlSLEGA.
STJÓRNIN.
verulegu fé til íbúðabygginga.
í fyrra voru áætlaðar til íbúða-
bygginga 4,5 miilj. kr. af 120,6
millj. kr. heildarupphæð, eða
3,7%. Nú eru hinsvegar áætiað-
ar 5 inilij. kr. ai 164,5 niillj. kr.
heildarupphæð, eða aðeins 3%!
Það er hlutfallsiega 19% læklv-
un á framlagi til íbúðabygginga.
Alvaran í byggingamálunum
virðist því ekki hafa verið mikil
þegar íhaldið flutti íbúðabygg-
ingatillögur sínar í haust. —
(Meðan Guðmundur ræddi um
verklégar framkvæmdir og
byggingamálin fól borgarstjóri
andlitið í höndum sér).
íhaMtð felldi tfllöguna um end-
urskoðun frumýárpsins.
Að endingu vék Guðmundur
að því að það væri bæjarráðs-
manna fyi-st ög frémst að f jalla
um undirbúning fjárlragsáætl-
nnárinnar, en ekki einhverra
starfsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins, sem borgarstjóri kallaði
svo „sparnaðarnefnd". Eins og
nú er fá bæjai’i’áðsmenn rétt að
líta á frumv. á einum eða tveim
fundum áður en það er lagt
fram. Þess vegna legðu allir
minnihlutaflokkarnir til að
frumv. væri Vísað til bæjarráðs
til gagngerðrar endurskoðunar,
því á því væri énginit vafi að
margt mætti spara í rekstri
bæjarins, og á margan Irátt
lcoma hoirum í ódýrara og hag-
kvæmara horf.
íhaldið felldi till. með hjá-
setu. Fjárhagsáætluninni var
síðan vísað til 2. umræðu með
samhljóða atkvæðum.
Verkfall flutningaverkamanna
í Noregi stendur enn og hafa
ýms fyrirtæki orðið að hætta
störfum. Aðilar hafa fallizt á
miðlunartillögu en úrslit í alls-
herjaratkvæðagreiðslu um hana
verða ekki kunn fyrr en á mið-
vikudag. Atvinnurekendur höfn-
uðu í gær beiðni ríkisstjórnar-
innar um undanþágu til olíu-
flutninga til heimila og fyrir-
tækja.
T œpra þrigg'ia
marka barn
Englendingurinn David
Taylor er ekid nerna viku
gamall, en liann hefur
þegar vakið inikla athygli
lækna. Hann fæddist þrem
mánuðum fyrir tíniann og
vóg eldki nema 670 grömm
þegar hann kom í heimittn.
Menn vita ekki til að svo
lítið barn hafi áður lifað
lengur en nokkra klukku-
tíma.
Eden fer veslur
Framhald af 1. síðu.
segja, að þar sé talið áð Eden
og Eisenhower hyggist ræða
hvað Vesturveldin eigi að taka
til brágðs: til að stemma stigu
yið vaxandi áhrifum Sovétríkj-
anna í Evrópu, löndunum við
botn Miðjarðarhafs og Suður-
Asíu.
Helmsmét æsknsistar
í Mosk'wa árið 1957
Alþjóöasamband lýöræöissinnaörar æsku befur boöaö til
sjötta heimsmóts æskunnar í Moskva sumariö 1957.
Frá þessu er skýrt í boðskap,
sem stjórn sambandsins hefur
sent alþjóðasamtökum og lands-
samtökum æskulýðsfélaga í til-
efni af tíu ára afmæli þess.
Samtökunum er boðið að taka
þátt í undirbúningi heimsmóts-
ins og skipulagningu þess. Sömu-
leiðis er þeim boðið að taka
þátt í skipulagningu Vináttusum-
arleyfa æskunnar sumarið 1956.
Þau verða fólgin í ferðamanna-
skiptum milli landa og forstöðu
fyrir sumardvalarbúðum fyrir
útlendinga.
Heimsmótin hafa áður verið
haldin í Prag, Búdapest, Berlín,
Búkarest og Varsjá. Tugir þús-
unda ungs fólks frá öllum heims-
álfum og flestum löndum ber-
ur sótt þau. Mótin eru opiii
hverjum sem vera skal, án tiL-
lits til stjórnmálaskoðana.
íslenzkt æskufólk hefur sótt
síðari heimsmótin hundruðum
saman. Ekki er að efa að marga
mun fýsa að taka þátt í mótimi
í Moskva.
Sú ráðstöfun Sovétrikjanna að
viðurkenna Austur-Berlín höf-
uðborg Austur-Þýzkalands og 6-
háða samningum Vesturveldanna
um hernám Berlínar mun neyða
Bonnstjórnina til þess að taka
upp samninga við stjórn Austur-
Þýzkalands segja fréttaritarar.
Orðsendixtg
frá Styrktarfélagi lamaðra
og fatlaðra
: SVO SEM kunnugt er af blaðafregnum hefur
I Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra fest kaup á hús-
eigninni Sjafnargata 14 til pess að reka par lcekn-
I ingastofur til eftirmeðferðar fyrir lömunarsjúk-
\ linga. Nú er unnið að nauðsynlegxim breytingum
j og lagfœringum á eigninni. Mun ölluvi Ijóst, hve
I brýn pörf er á að pessi starfsemi geti nú liafizt
j sem fyr.st til pess að peir, sem lamazt hafa í yfir-
j .standandi mœnusóttarfaraldri geti fengið góða
\ eftirmeðjerð eins fljótt og unnt er.
I FÉLAGIÐ HEFUR fest lcaup á öllum nauðsyn-
: legum lœknmgatœkjum og húsbúnaði, en nú skort-'
j ir pað fé til pess að greiða ýmsar vörur og vinnu
: vegna breytinga og lagfœringa á húseigninni.
I STJÓRN FÉLAGSINS beinir pví eindregnum til-
j mœlum til allra Reykvíkinga um að peir styrki nú
\ pessa starfsemi með beinum fjárframlögum. Félag-
j inu barst nýlega 1000 kr. áheit frá ónafngreindum
: foreldrum, sem létu pess getið að gjöfin vœri
j pakklœtisvottur fyrir pað, hve skjótan og góðan
j bata sonvr peirra fékk eftir að hafa veikzt lítils-
\ háttar af lömunarveiki. Þannig mættu fleiri hugsa
j og gera.
: EFTIRTALINNA VARA parfnast félagiö nú, en pó
\ aðeins örlítils mugns af hveiri tegund: Sement,
j steypustyrktarjárn, timbur, einangrunarkork,
■ múrhúðunarnet, baðflísar, rör og fittings, kranar,
\ handlaugar, málning, raflagnaefni, rafmagns-
j vatnsdæla, handklæði, handsápa, pvottalögur,
brennsluolía, raforka, heitt vatn, uppsetn. síma,
j símaafnot o. fl. Flest af pessu er œtlað til bygging-
: ingar sundlaugar í kjaXlara hússins en annað til
\ rekstvrs. Félagið beinir peim tilmælum til stjórn-
\ enda og eigenda peirra fyrirtækja, sem verzla með
\ ofangreindar vörur, að gefa félaginu, pó ekki vœri
j meira en sem svaraði 1000 lcr. virði af hverri teg-
j und.
j SÍMI FÉLAGSINS á Sjafnargötu 14 er 82904.
\ Starfsmaður félagsins, Gunnar Jóhannsson frá
j Varmalœk, mun veita viðtöku tilkynningum um
framlög og láta senda eftir peim, ef óskaö er, en
\ annars má senda pau á Sjafnargötu 14.
j ÞÁ MUN HANN hringja í fyrirtœki og spyrjast
\ fyrir um vörugjafir með tilvísun til pessarar orð-
: sendingar.
HJÁLPIÐ í BARÁTTUNNI GEGN
LÖMUN ARVEIKINNI!
Með fyrirfram pakklæti til allra gefenda.
STJÓRN STYRKTARFÉLAGS LAMAÐRA |
OG FATLAÐRA.