Þjóðviljinn - 23.09.1956, Side 3
Sunnudagur 23. september 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Störf Alþýðusambcmdsstjórnar
Framhald af 1. síðu
verklýðshreyfingarinnar töldu
einsætt að fara inn á nýjar leið-
ir í trausti þess að unnt yrði að
komast hjá því að verða að
heyja harða baráttu ár eftir ár
og eiga síðan á hættu að ár-
angrinum yrði rænt jafnóðum
af stjórnarvöldunum. Alþýðu-
sambandið tók því forustu fyrir
tilraununum til þess að mynda
vinstri stjórn á íslandi. Sam-
bandið samdi stefnuyfirlýsingu
þar sem rakin voru baráttumál
verkalýðssamtakanna, sendi hana
Alþýðuflokknum, Framsóknar-
flokknum, Sósíalistaflokknum og
Þjóðvarnarflokknum, og skoraði
á þessa flokka að hefja viðræð-
ur um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar sem starfaði í nánasta
samráði við verkalýðssamtökin.
En þær tilraunir mistókust, for-
ustumenn Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins voru þá
ekki reiðubúnir til þess að taka
upp samvinnu við verkalýðssam-
tökin. Þess í stað var horfið að
því ráði að Ijúka af kosningum
á íslandi, og það fór ekki leynt
að eftir kosningar átti að fram-
kvæma stórfelldar árásir á al-
þýðu manna, og var þá fyrst og
fremst höfð í huga gengislækk-
un.
Meirihluti kjósenda
vildi vinstri stjórn.
Alþýðusambandið ákvað þá að
verklýðssamtökin skyldu reyna
að hafa sem allra ríkust áhrif á
kosningarnar og úrslit þeirra,
þau skyldu hafa að kjörorði að
gera kosningamar að þætti í
kjarabaráttunni. Að frumkvæði
þeirra voru stofnuð samtök
vinstri manna, Alþýðubandalag-
ið, og stefnuskrá þess var sniðin
eftir málefnaskrá Alþýðusam-
baridsins. Þótt þessi samtök yrðu
ekki eins víðtæk og stjórn A. S.
f. hafði gert sér vonir um, urðu
þau samt þegar mjög áhrifa'
mikil. Að þeim stóðu Sósíalista-
flokkurinn, vinstri menn Alþýðu-
flokksins, vinstri menn úr Fram-
sókn og óháðir kjósendur víða
um land. Urðu kosningaúrslitin,
eins og allir muna, mjög ótví-
ræður sigur fyrir þessi nýju sam-
tök. Þjóðvarnarflokkurinn hvarf
af þingi, vegna þess að forustu-
menn hans höfðu hafnað vinstri
samstöðu í kosningunum, og
bandalag Alþýðuflokksins og
Framsóknar tapaði atkvæðum til
vinstri. Kosningaúrslitin sýndu
ótvírætt að meirihluti kjósenda
vildi vinstri stjórn á fslandi,
stjórn sem starfaði í samræmi
við hagsmuni og skoðanir verk-
lýðshreyfingarmnar.
^ Alger umskipti.
Þess sáust einnig merki þegar
Bókauppboð fyrir
mánaðamótin
,,Haustuppboðin“ eru í þann
veginn að hefjast hjá Sigurði
Benediktssyni; og verður að
þessu sinni byrjað á bókaupp-
boði, sem haldið verður í Sjálf-
stæðishúsinu fyrir næstu mán-
aðamót.
Þeir, sem kynnu að vilja
koma bókum á uppboðið, geta
talað við Sigurð í Austurstræti
12, en þar er hann til viðtals
daglega kl. 9—12 árdegis.
að kosningum loknum að við- lenzk verklýðssamtök hafa unn-
horfin voru gerbreytt. Framsókn-
arflokkurinn og Alþýðuflokkur-
inn sáu þann kost vænstan að
lýsa yfir því að samvinna við í-
haldið kæmi ekki til greina.
Varð þá ekki undan því komizt
að taka upp samninga við Al-
þýðubamdalagið. StjórtnarmjmdW
unin tókst, og hefur hin nýja
stjórn heitið því að leysa efna-
magsmálin í nánu samræmi við
hagsmuni og skoðanir verklýðs-
samtakanna, enda er stefnuyfir-
lýsing stjórnarinnar í veiga-
miklum atriðum sniðin eftir
málefnaskrá A. S. í. Þeir tveir
ráðherrar sem Alþýðubandalagið
hefur í stjórninni fjalla um flest
þau mál sem mikilvægust eru
fyrir alþýðu manna í bæjum.
Þetta eru alger umskipti í stjórn-
málum íslendinga’, verklýðssam-
tökin hafa aldrei fyrr haft jafn
eindregin áhrif á þjóðmálin og
hafa nú opnazt leiðir til þess að
heyja árangursríka kjarabaráttu
einnig á þessu sviði. Stjórnar-
völdin geta nú orðið samherjar
verklýðssamtakanna eh ekki and-
stæðingar. Þessi árangursríka
barátta er án efa einhver mesti
og mikilvægasti sigur sem ís-
ið.
'jAr Ræður úrslitum um
þróunina.
En því aðeins ber þessi mikli
sigur árangur að sókninni verði
haldið áfram, að samningar þeir
sem nú eru framundan í efna-
hagsmálum beri góðan árangur
og að ríkisstjórninni og verk-
lýðssamtökunum gefist tóm til
að framkvæma fyrirheit sín. Og
um það er barizt í kosningum
þeim til Alþýðusambandsþings
sem nú eru að hefjast. íhaldið
gerir að sjálfsögðu allt sem það
megnar til þess að snúa þróun-
inni við, og það nýtur sem fyrr
aðstoðar hægri klíkunnar í Al-
þýðuflokknum. En vinstri menn í
verklýðshreyfingunni, jafnt Al-
þýðuflokksmenn sem aðrir, vita
hversu mikilvægt það er að á-
fram verði sótt eftir þeim nýju
leiðum sem opnazt hafa. Það er
kosið um kjarabaráttu verklýðs-
hreyfingarinnar og stjórnmála-
áhrif, og sú barátta ræður úr-
slitum um þróunina næstu ár-
in.
Búnaðarbankiim kaupir
höggmynd eftir Ólöfu Pálsd.
í aígreiöslusal Búnaöarbankans í Reykjavík hefúj' ver-
iö komiö fyrir höggmyndinni Sitjandi maður eftir frú
Ólöfu Pálsdóttur. Hefur bankinn keypt myndina og lát-
ið koma henni þarna fyrir á fótstalli, sem er í stíl við
innréttingu afgreiðslusalarins.
Höggmyndin Sitjandi maður er
meðal beztu verka frú Ólafar.
Hún er gerð árið 1952 og kom
fyrst fram á sýningu í Char-
lottenborg 1953 og var fyrsta
höggmynd listakonunnar á þeim
Rannsókn á kósnæðismálum iðnaðar
Með bréfi dags. 24. maí s.l.
skipaði þáverandi iðnaðarmála-
ráðherra nefnd til þess að gera
athugun á þörf aukins iðnaðar-
húsnæðis, iðnaðinum til handa,
meðal annars með því að rann-
saka:
1. Hvað byggt hafi verið af iðn-
aðarhúsnæði síðastliðin átta
ár.
2. Hvort ætla megi, að húsnæð-
isskortur standi í vegi fyrir
eðlilegri þróun iðnfyrirtækja
og veiki samkeppnisaðstöðu
þeirra gagnvart erlendum
varningi.
3. Hve mikið þyrfti að byggja
nú og næstu 3—4 ár, til þess
að mæta brýnustu húsnæðis-
þörfum þess iðnaðar, sem nú
er fyrir í landinu. (Rúmmetr-
ar bygginga og áætlað kost-
aðarverð).
4. Að hve miklu leyti iðnfyrir-
tækin telja sig hafa eigið
fjármagn til þess að byggja
fyrir.
5. Iðnfyrirtækin geri grein fyr-
ir möguleikum fyrir lánsfé til
þeirra byggingaframkvæmda,
sem talið er nauðsynlegt að
hefja.
í nefndina voru skipaðir: Helgi
Eyjólfsson, fr.amkvæmdastjóri,
sem jafnframt var skipaður for-
maður nefndarinnar, Eggert
Jónssom framkvæmdastjóri og
Páll S. Pálsson hæstaréttarlög-
maður.
Hinn 17. sept. sJ. skipaði iðn-
aðarmálaráðherra til viðbótar í
nefndina þá Axel Kristjánsson,
framkvæmdastjóra og Harry
Frederiksen framkvæmdastjóra.
Nefndin hefur ákveðið, til þess
að auðvelda störfin og flýta
rannsókn sinni, iað afla upplýs-
inga um byggingarþörfina og
byggingarmöguleikana, með því
að auglýsa í dagbiöðunum eftir
skýrslum þar um frá þeim iðn-
aðarfyrirtækjum og iðnaðar-
mönnum, sem telja sig þurf,a á
auknu iðnaðarhúsnæði að halda.
Er mjög áríðandi að þessir aðil-
ar bregðist fljótt og vel við og
sendi svör sín í tæka tíð, svo niö-
urstöður rannsóknarinnar sýni
sem réttasta mynd iaf raunveru-
legri húsnæðisþörf iðnaðarins.
sýningum. Hlaut myndin frá-
bæra dóma listgagnrýnenda
dönsku blaðanna.
Búnaðarbankinn hefur áður
keypt listaverk til að fegra með
húsakynni bankans, og má nefna
Breytingar á skipulagi bæjar-
málanna ræddar í bæjarstjórn
Greinargerð um starishætti í erlendum
borgum og frumtillögur í undirhúnmgi
Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur sl. fimmtudag urðu
allmiklar umræöur um starfshætti bæjarstjórnar og bæj-
arráðs og' fyrirkomulag bæjarmálanna yfirleitt.
Upphaf umræðnanna var til-
laga, sem Magnús Ástmarsson
flutti, þess efnis að fræðilega at-
hugun verði látin fara fram
á „öllum þeim lagafyrirmælum
og reglugerðum sem mæla fyrir
um stjórn Reykjavíkurbæjar, að
hve miklu leyti slíkt hentar nú-
verandi aðstæðum“. Jafnframt
er gert ráð fyrir því í tillögunni
að fengnir yrðu hæfir menn til
að framkvæma athugunina, sem
hraða skyldi.
Þórður Björnssn benti í um-
ræðunum á, að núverandi skipu-
lag bæjarmálanna hefði verið
samið, er Reykjavík var enn
lítill bær og Knud Zimsen komst
yfir að stjórna öllum bæjar-
málefnum ásamt tveim skrif-
stofumönnum.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri kvaðst ekki hafa setið
auðum höndum í þessu máli,
hann hefði að undanfömu aflað
Það heiÉir
HAMRAFELL
Eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær tóku fulltrúar SÍS og
Olíufélagsins í gær við hinu
mikla olíuflutningaskipi sínu,
sem er langstærsta skip ís-
lenzka flotans. Við það tæki-
færi var skipinu gefið nafn, og
heitir það Hamrafell.
gagna um stjórnarhætti all-
margra erlendra borga. Væri nú
verið að semja greinargerð um
þessa athugun og undirbúa
frumtillögur um skipan bæjar-
málanna.
hið mikla málverk Jóns Engil-
berts í afgreiðslusalnum, auk
fleiri listaverk á öðrum stöðum
í húsinu. Hafa forráðamenn
bankans þar í senn í huga hag
stofnunarinnar og stuðning við
listir í landinu.
Frú Ólöf Pálsdóttir hefur þeg-
ar hlotið mikla viðurkenningu
sem listakona, og hafa opinberar
stofnanir erlendis fest kaup á
verkum eftir hana. Bæjarstjóm
Árósa í Danmörku keypti fyrir
nokkru telpumynd, sem vakti
mikla athygli á sýningu þar, og
nýlega hefur hún selt til Ítalíu
konumynd, sem verið er að
steypa í brons í Kaupmannahöfn.
Rússnesk list-
danssýning fyrir
börn
Mjög mikil aðsókn hefur ver-
ið að Rússneska ballettinum.
Upphaflega var gert ráð fyrir
að hafa fimm sýningar. Á svip-
stundu seldist upp á allar þær
sýningar. Var þá ákveðið að
hafa tvær sýningar til viðbótar.
Á þær sýningar seldist einnig
upp á skömmum tíma.
Vegna þessarar miklu að-
sóknar og ágætu undirtekta
hefur listdansfólkið fallizt á
að hafa eina danssýningu til
viðbótar sem sérstaklega er
ætluð börnum og er leikdans-
skráin miðuð við það Á þess-
ari barnasýningu verða því að-
allega léttir dansar í gaman-
sömum stíl. Barnasýningin
verður í dag kl. 3 í Þjóðleik-
húsinu. Verð aðgöngumiða að
þessari barnasýningu er um
helmingi lægra en að hinum
listdanssýningunum.
KONUR—
munið sérsundtima ykkar í Sund-
höllinni mánudaga, þriðjudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga kl. 9
síðdegis. Ókeypis kennsla.
Vandaðar þýzkar
rafmagnseldavélar
Niðurbyggðar með
rúmgóðu geymsluhólii
Seldar gegn afborgun.
RAFTÆKiADEILD
Skólavörðustíg 6 — Sími 6441.
(<ROj)