Þjóðviljinn - 23.09.1956, Page 5
Sunnudagur 23. september 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (5
875 uppdrættir en
eiginit hæfur
Sovétstjómin hefur tilkynnt,
að enginn þeirra mörgu upp-
drátta sem borizt liafa af fyrir-
Dhuguðu grafhýsi yfir Lenín og
Stalín hafi átt skilið fyrstu
verðlaun í verðlaunasamkeppni
sem hún efndi til. Nokkrir upp-
dráttanna voru þó verðlaunaðir
með 10.000 rúblum hver.
Samkeppnin um uppdrátt af
grafhýsi í stað þess sem nú
stendur á Rauða- torgi var aug-
lýst fyrir tveim árum. 875 upp-
drættir bárust frá sovézkum
arkitektum. Dómnefndin segir
að enginn uppdráttanna sé með
þeim hætti „að hann geti tal-
izt samboðinn minningu hinna
ágætu leiðtoga".
Tuttugu franskir hermenn
féllu í viðureign í Alsír í gær.
9 ára stjómarfeiii Muhammeðstruar
MynduS samsfeypusfjérn Awami-banda-
lagsins og LýSveldisflokksins
Lokið er níu ára stjórnarskeiði Múhameðstrúarmanna-
bandalagsins í Pakistan. Suhrawardi, leiðtogi höfuðand-
stöðuflokks þess Awami-bandalagsins, hefur myndað
stjórn með Lýðveldisflokknum.
Sl. miðvikudag var mynduð
ný ríkisstjórn í Pakistan. For-
sætisráðherra er 'Hussein Sha-
heed Suhrawardy, forystumað-
ur Awami-bandalagsins, en að
því standa menn með ólíkar
skoðanir, sem hafa það sameig-
inlegt að vera eindregnir and-
stæðingar Múhammeðstrúar-
manna-bandalagsins. Að ríkis-
Ringmessehaus í Leipzig, eitt stærsta sýningarhús i
Evrópu. Hluti af Leipzig-vörusýningunni er par til húsa.
Allir ráðsmenn rétttrúnaðar-
Idrkjunnar á Kýpur handteknir
Síðasti forystumaðurinn 1 ráði Grísku rétttrúnaðar-
kirkjunnar á Kýpur, Nicos Kranidiotis, framkvæmda-
stjóri kirkjunnar, var handtekinn 5. september að skipan
Hardings hershöfðinE'ja, landsstjóra Breta á eynni.
stjórninni stendur, auk Aswa-
mi-bandalagsins, Lýðveldis-
flokkurinn, sem talinn er
standa í nánum tengslum við
Mirza, forseta landsins.
Vitað er að margir stuðn-
ingsmenn Aswami-bandalagsins
eru fylgjandi því, að Pakistan
hverfi úr hernaðarbandalögum
þeim, sem það er aðili að ásamt
vesturveldunum. Hins vegar
hefur Suhrawardy látið svo um-
mælt, að hann óski eftir að
hafa hér eftir sem fyrr náið
bandalag við „hin frjálsu lýð-
ræðisríki‘f. En búizt er við að
Pakistan taki þó upp nánara
samstarf við Kína en það hef-
ur haft hingað til.
Þáttaskil hafa orðið í stjórn-
málasögu Pakistans með mynd-
un samsteypustjórnar þessarar,
þar eð með henni lýkur 9 ára
stjórnarforystu Múhammeðs-
trúarmanna-bandalagsins. Síð-
asti forsætisráðherra þess, sá
fjórði, Múliammeð Ali, lieydd-
ist til að segja af sér vegna
flokkadrátta og sundurlyndis
innan þess.
Hinn nýi forsætisráðherra
Suhrawardi er enginn nýgræð-
ingur í stjórnmálum. Þvert á
móti á hann lengri stjórnmála-
feril að baki en nokkur annar
stjórnmálaleiðtogi landsins.
gráEBEILAN
Framhald af 12. síðu.
trúanna á ráðstefnunni hefði
viljað leggja megináherzlu á
friðsamlega lausn deilunnar.
Frönsku hægriblöðin fara
ekki leynt með vonbrigði sín af
ráðstefnunni, telja að hún hefði
betur aldrei verið.jialdhn
Brezka íhaldsblaðið Daily
Telegraph sagði í fyrradag, áð-
ur en ráðstefnunni lauk, að
ekki væri hægt að komast hjá
að viðurkenna, að „notenda-
samtök Súezskurðarins hafi
smám saman verið svipt flest-
um þeim verkefnum og mestu
af því valdi, sem ætlazt var til
að þau hefðu, þegar Eden til-
kynnti neðri málstofunni um
fyrirhugaða stofnun þeirra“.
Enn kofanámu-
bruni í
lasjP!
Áður en gamla Indlandi var
skipt, var hann forsætisráð-
herra Bengal-fylkis. Eftir
skiptinguna virtist hann hverfa
í skugga annarra leiðtoga Mú-
hammeðstrúarmanna-bandalags
ins og vitað var, að hann var
þeim ósammála í mörgum mál-
um. Árið 1949 klauf hann Mú-
hammeðstrúarmanna-bandalag-
ið og stofnaði Awami-banda-
lagið. 1 síðustu kosningum í
Austur-Pakistan vann það
mikið á. Það hefur nýlega
myndað stjórn • í þeim lands-
hluta. Sjálfur er Suhrawardi
ættaður frá Austur-Pakistan.
Virðast þessir atburðir benda
til þess, að hlutur austurhlut-
ans í stjórn landsins verði nú
mun meiri en áður, en fram til
þessa hefur landsforræði að
mestu leyti verið í 'höhdum
manna úr vestur-hlutanum'.
Helztu ráðherrar í ráðuneyti
Suhrawardi eru: Utanríkismál:
Firoz Khan Noon. Fjármál:
Amjad Ali. Innanríkismál: Mir
Ghulam Ali Talpur. Atvinnu-
mál: Abdul Khaleque.
***&
I síðustu viku kviknaði aftur
í kolanámu í Belgíu, St. Charl-
es-kolanámunni, sem er skammt
frá námunni í Marchinelle, þar
sem hið mikla námuslys varð í
byrjun ágústmánaðar.
48 námumenn voru niðri í
göngunum þegar eldurinn
kviknaði. Þeim varð öllum
bjargað og eldurinn var fljót-
lega slökktur.
„Kasis frelsið",
en snerisf hngnr
Ungyerski knattspyrnumað-
urinn, Arpad Fazekas, sem ver-
ið hefur markvörður í ung-
verska landsliðinu, bað fyrir
nokkru um griðland í Austur-
ríki sem „pólitískur flóttamað-
ur“. Nú hefur honum snúizt
hugur og hann er aftur kom-
inn heim.
Fazekas hafði keppt í all-
mörgum knattspyrnuleikjum í
Vínarborg meðan hann dvaldist
þar. Þegar hann hélt heim-
leiðis með járnbrautarlest- til
Búdapest sagði hann, að sér
væri orðið Ijóst að hann hefði
haft ranga hugmynd um lífs-
skilyrðin í Austurríki. Hann
hefði fljótlega komizt að því,
að heima væri miklu betra að
vera.
Bretar láta undan kröfu Gull-
strandarbúa um sjálfstæði
Brezka stjórnin hefur taliö ráðlegast að láta undan
kröfu íbúa Gullstrandarinnar, hinnar brezku nýlendu á
vesturströnd Afriku, um sjálfstæði imian brezka sam-
veldisins.
Handtaka Kranidiotis hefur
leitt í, Ijós, að brezka stjórnin er
staðráðin að ryðja úr vegi for-
ystu Grísku rétttrúnaðarkirkj-
unnar og forystu hægri arms
jþeirrar hreyfmgar eyjarskeggja,
sem berst íyrir sameiningu við
Grikkland, Enosis. En allir leið-
togar vinstri arms hreyfingarinn-
ar, Flokks vinnandi fólks,
A.K.E.L. voru handteknir í des-
fember í fyrra.
Það vildi svo til, að um þær
jnundir, sem Bretar voru að
liandtaka Kranidiotis, var yfir-
rnaður Grísku kirkjunnar, Doro-
theos erkibiskup, að senda frá
sér yfirlýsingu, þar sem hann á-
sakaði brezku stjórnina um ger-
ræði gagnvart Grísku rétttrúnað-
arkirkjunni á Kýpur. Stefnu
Breta á eynni kvað hann einkenn-
ast af „ofsóknum og ógnunum" í
garð leiðtoga kirkjunnar.
Erkibiskupinn birti vfirlýsing-
una í nafni ráðs Grísku kirkj-
unnar og var hún send Alþjóða-
kirkjuráðinu og erkibiskupnum
af Kantaraborg.
Erkibiskupinn heitir á Alþjóða-
kirkjuráðið að beita áhrifum sín-
um til að hemill verði lagður á
aðgerðir Hardings landstjóra
gegn Grísku rétttrúnaðarkirkj-
unni á eynni, áður en samtök
hennar hafa verið með öllu Ieyst
upp.
sigur
r
i
5000 skipasmiðir við Clyde í
í Bretlandi sneru aftur til vinnu
í gær eftir þriggja vikna verk-
lágmarkskaup. Talsmaður þeirra
fall til að knýja fram kröfu um
sagði, að vinnuveitendur hefðu
gert betur en að fallast á helm-
ing þess sem krafizt var. 5000
aðrir verkamenn sem misst
höfðu vinnu vegna verkfalls
skipasmiða eru flestir aftur tekn-
ir til starfia.
Nasser forseti, Saud konungur
og Kuwatly forseti Sýrlands
koma saman á fund í Saudi-
Arabíu í dag.
arFnw'.
I fyrradag var tilkynnt sam-
tímis í Aecra, höfuðborg Gull-
strandarinnar, og London, að
brezka stjórnin hefði ákveðið
að láta undan kröfu Gull-
strandarbúa um fullt sjálfstæði
innan brezka samveldisins og
verður hið sjálfstæða lýðveldi
þeirra stofnað 6. marz næsta
ár. Jafnframt mun landið að
ósk löggjafarsámkundu nýlend-
unnar skipta um nafn og verða
kallað Gana.
I kosningum til þings ný-
lendunnar í sumar vann flokk-
ur dr. Nkrumah forsætisráð-
herra mikinn meirihluta þing-
Blaðamaðar beitt-
ur lögregluofbeldi
Yfirlögregluþjóni Vestur-Ber-
línar, Erich Dvinsing, var í gær
stefnt vegna líkamsárásar.
f ákærunni er hann sakaður
um að hafa slegið Josef Pilar,
fréttamann Austur-þýzku frétta-
þjónustunnar í andlitið í lög-
reglustöð Vestur-Berlínar, en
þangað hafði hann verið flutt-
ur, eftir að hafa tekið þátt í
kröfugöngu kommúnista, sem
efnt var til án leyfis lögreglunn-
ar.
sæta. Sjálfstæði nýlendunnar
er helzta stefnuskrármál flokks
hans. Fyrir kosningarnar lýsti
brezki nýlendumáiaráðherrann,
A. Lennox-Boyd, því yfir fyrir
hönd stjórnar sinnar, að brezka
stjórnin mundi verða við kröf-
um flokksins, ef hann reyndist
hafa greinilegan meirihluta
landsmanna bak við sig.
Stjómarandstaðan er hins
vegar mótfallin því, að nýlend-
unni verði veitt sjálfstæði, áður'
en gengið hefur verið frá vænt-
anlegri stjórnarskrá! Hefur
hún sent nefnd til London tiL
að ganga á fund nýlendumála-
ráðherrans til að tala máli sínu..
Fyrir sendinefndinni er K. A..
Busia prófessor. Stjórnarand-
staðan er sterkust í Ashanti-
landshlutanum og nyrzt í ný-
lendunni. Standa að henni
margir gömlu ætthöfðingjanna-
Stjórn Marokkó, sem þangað
til í fyrra var franskt verndar-
ríki, hefur ákveðið að franskir
ríkisborgarar, sem óski eftir að
ferðast til Marokkó verði að fá
vegabréf sín árituð, áður en þeir
komi til landsins.
Lanábásiai
fær nær Mlijarð
dollara i sfyrk
Á síðasta ári greiddi banda-
ríska stjórnin 974.767.365 dali
til styrktar landbúnaðinum og
er það 175.7 milljónum dala
meira en árið áður. Styrkir
þessir eru einkum greiddir í
þeirri mynd, að ríkið kaupir
allar landbúnaðarvörur, sem
fram em boðnar á tilteknu
verði, ef aðrir fást ekki til
þess. I