Þjóðviljinn - 07.10.1956, Side 1
Sunnudagur 7. október 1956 —■ 21. árgangur — 229. tölublað
Borgarstjórí játar á bæjarstjórnarfundi
Skólamál Reykjaviknr í öngþveiti
Byggja þarf 128 almennar kennslustofur á næstu 5 árum — aðeins
til al ná því marki að tvísetja í stofuruarf
Sósíalistaiéiag
Reykjavíkur
Fyllfri
fca
ráðsfun
Fulltrúaráðs og trúnaðar-
mannafundur verður haldinn í
Sósíalistafélagi Reykjavikur
annað kvöld kl. 8.30 að Tjarn-
argötu 20.
Einar Olgeirsson alþm. mætir
á fundinum.
Rædd verða ýmis aðkahandi
verkefni. Svarað fyrirspurnum.
Fjölmennið og mætið stund-
víslega.
Borgarstjóri íhaldsins, Gunnar Thoroddsen, gerði
þá eftirminnilegu játningu um ófremdarástandið í
skólamálum Reykjavíkur undir stjórn íhaldsins að
byggja þyrfti á næstu 5 árum 128 almennar skóla-
stofur, — auk alls annars húsnæðis sem hverjum
skóla er nauðsynlegt.
Þetta er miðað við það að ná aðeins því marki
að tvísetja í allar skólastofur í stað þess að þrí-
setja! Menn sjá því nokkurn veginn hve mikið þyrfti
að byggja af skólahúsnæði ef ná ætti því marki að
einsetja í kennslustofurnar!
Þetta eru raunar ekki nýjar
upplýsingar, því langt er nú
liðið síðan Petrína Jakobs-
son ræddi skólamálin ýtar-
lega og sýndi fram á að óhjá-
kvæmilegt væri að byggja
mörg skólahús ef forða ætti
því að hundruð barna og ung-
linga ættu hvergi aðgang að
skólum. Þá hafði íhaldið ekki
áhyggjur af skólamálum, og
svæfði bví málið.
Slegið ótta
Hið nýja í málinu er það, að
síðan Petrína Jakobsson flutti
sínar tillögur í málinu hafa far-
ið fram kosningar í landinu, —
íhaldið beðið mikið afhroð. Bæj-
arstjórnaríhaldið hefur nú ver-
ið slegið þeim ótta vegna vænt-
anlegra bæjarstjórnarkosninga
að slíkur hefur ekki þekkzt í
allri sögu þess, — og því vill
íhaldið nú fara að þyggja skóla-
hús!!
i
Minnisstæðar játningar
Játningar íhaldsborgarstjórans
voru í aðalatriðum þessar: Nem-
endur í barna- og unglingaskól-
um bæjarins eru nú um 9000. Á
næstu fimm árum mun þeim
fjölga um 3500 upp í samtals
12500.
f öllum skólum bæjarins er nú
tvísett í skólastofumar. (Auk
bess hafa hús sem byggð voru
sem leikskólar smábama verið
tekin fyrir skóla!). f fjöldamarg-
ar skólastofurnar er þrísett, og
aðeins til þess að koma í veg fyr-
ir það þarf að byggja 63 nýjar
skólastofur á næstu 5 árum. Sem
stendur leigir bærinn 26 stofur
sem notaðar eru til kennslu.
Til þess að bærinn eigi sjálf-
ur allt sitt skólahúsnæði, til þess
að hafa til húsnæði fyrir barna-
fjölgunina og til þess að ná þó
því „mennjngarstigi" að tvísetja
í stofumar í stað þrísetningar
þarf að byggja samtals 128 al-
mennar kennslustofur fyrir
haustið 1961.
Og jafnhliða þessu þarf að
byggja stofur fyrir handavinnu,
söngkennslu, fimleika, heilsu-
vemd, kennara o.fl. sem nauð-
.synlegt er í skólum.
Það íhald sem á undanfömum
árum hefur svikizt um nauðsjm-
legar skólabyggingar og komið
skólahúsnæði í það öngþveiti
sem það nú er í þykist nú allt
í einu vilja fara að byggja skóla,
— af því að það er logandi
hrætt við næstu kosningar!
Barátta íbúanna á japönsku eynni Okinava gegn hersetu Banda-
ríkjamanna, sem lögðu eyna undir sig í lok síðustu heimsstyrj-
aldar fer vaxandi, og hafa stúdentar við háskóla þann á eynni,
sem reistur var fyrir bandarískt fé, verið þar í fylkingarbrjósti.
Myndin sýnir kröfugöngu stúdenta á eynni gegn hinu banda-
ríska hernámi.
Vid eigum ekki að sleppa íslandi
Dónalegar hótanir í bandaríska stórblaðinu Daily Mirror
Við ætlnm ekki að sleppa íslandi, vegna þess
að við þuríum á því að halda . . . Við viljum ekki
láta íleygja okkur burt eins og gömlum hanzka.
Á þessa leið komst bandaríska stórblaðið Daily Mirror að
orði í forustugrein um viðræður Emils Jónssonar utanríkis-
ráðherra við bandarísk stjómarvöld.
Mlélll
ast alvarlega
Fyrir nokkru slasaðist verka-
maður á Akranesi alvarlega
þegar leirbakki sem verka-
mennirnir voru að vinna undir
hrundi.
Þegar leirbakkinn hrundi
varð einn verkamannanna,
Kristinn Bjarnason undir hon
um með þeim afleiðingum að
hann fótbrotnaði á báðum fót-
um og fór úr liði. Annar verka-
maður brákaðist á handlegg.
Hinum tókst að forða sér og
sleppa við meiðsli.
Slys þetta minnir alvarlega
á að enn er víða áfátt hvað
öryggi snertir á vinnustöðum
og þurfa verkalýðsfélög og at-
vinnurekendur að gera ráðstaf-
anir til þess að úr því verði
bætt — og það fyrr en síðar.
Forustugreinin í Daily Mirror
birtist 3. okt. s.L, meðan Emil
Jónsson dvaldist í Washington
og ræddi við Foster Dulles Ut-
anríkisráðherra. X greininni var
komizt þannig að orði:
„fsland tekur hlutleysi fram
yfir þakklæti. Nú, þegar hættan
af Hitler er liðin hjá og Sovét-
rikin eru góður fiskkaupandi,
vill fsland fylgja hlutleysi, sem
getur ógnað vörnum okkar.
Ættum við ekki að svara því
til að við höfum fest 260 milljón-
ir dollara í flugstöðvum, flota-
stöðvum og radarstöðvum á ís-
landi og að við ætlum ekki að
sleppa þeim, vegna þess að við
þurfum á þeim að halda? Að ís-
lendingar voru fegnir að nota
okkur meðan þeir höfðu hag af
því, og að við viljum ekki láta
fleygja okkur þurt eins og göml-
um hanzka.
Ef okkur verður skipað að
fara, hví þá ekki að taka stöðv-
amar með okkur? Það er á-
stæðulaust að skilja þær eftir,
svo ,að kommúnistar geti not-
að þær gegn okkur“.
Ekki í fyrsta skipti
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem slíkur tónn heyrist í Daily
Mirror. Skömmu eftir að Alþingi
ákvað að segja upp hernáms-
samningnum lagði blaðið til að
Bandaríkjamenn breyttu fslandi
í Kýpur Atlanzhafsins, þ.e.
sætu hér sem fastast með her-
valdi og ofsæktu landsmenn fyr-
ir að berjast fyrir frelsi sínu.
Tal blaðsins um þakklæti er
næsta torskilið. Á styrjaldarár-
unum fengu Bandaríkin afnot
af íslandi og höfðu af því ó-
metanlegt gagn. í þeirri styrjöld
var mannfall fslendinga marg-
falt meira en Bandaríkjamanna
að tiltölu. En þakklæti sitt sýndu
bandarísk stjómarvöld með því
að svíkj.a hátíðleg loforð Roose-
velts forseta um að bandaríski
herinn hyrfi héðan þegar í stríðs-
lok.
Væntanlega eru hótanir Daiiy
Mirror ekki í neinu samræmi við
við afstöðu bandarískra stjóm-
arvalda til samninga þeirra sem
framundan eru. Hins vegar er
ástæða til að fagna þeirri tillögu
blaðsins að bandaríski herinn
taki allt sitt hafurtask með sér
um leið og hann fer; íslendingar
yrðu þeirri stund fegnastir þeg-
ar þeir losnuðu við þann óþrifn-
að af íslenzkri grund.
Dagsbrðnarfundur er
á fimEEitudayinn
Launaðir erindrekar íhaldsins læðast
nú um hæinn með „trúnaðarmár'!
Dagsbrúnarmenn hcdda fund á fimmtudaginn
kemur í lönó til pess að kjósa fulltrúa sína, sem
eru 33 a& tölu, á nœsta Alþýðusambandsping.
Sjálfstæðisflokkurinn hugsaði sér til hreyfings i
Dagsbrún og sendi út menn til pess að safna und-
irskriftum meðal Dagsbrúnarmanna um allsherj-
aratkvæðagreiðslu í félaginu. Dagsbrúnarmenn
hafa séð íhaldssendla fyrr og þekkja þá af gam-
alli reynslu. Fengu sendlagreyin pví svo káldar
kveðjur að Sjálfstæðisflokkurinn gafst upp á und-
irskriftabröltinu og hugðist reyna aðra aðferð.
Hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú tvo menn á
launum og lœðast peir um bæinn og hvísla íhalds-
áróður sem „trúnaðarmál“ að Dagsbrúnarmönn-
um. íhaldinu hefur sem sé dottið það snjallrœði
í hug að koma að Dagsbrúnarmönnum óvörum!
Dagsbrúnarmenn munu fram til fimmtudags-
ins vinna að pví að fundurinn á fimmtudaginn
verði fjölsóttur — og veita par íhaldinu verðugt
svar fyrir framkomu pess í garð verkamanna
fyrr og síðar.
Allir til starfa fyrir afmælishappdrættið — Eflum Þjóðviljann