Þjóðviljinn - 07.10.1956, Qupperneq 3
Sunnudagur 7. október 1956 — ÞJÓÐYILJINN — (3
Fjölþæft starfsemi MIR
Halldór Kiljan Laxness endurkjörinn
ferseti samtakanna
í kynningarmánuði MÍR — Menningartengsla íslands
og Ráðstj órnarríkj anna — kom hingað allmargt lista-
manna frá Sovétríkjunum. Hin árlega ráðstefna MÍR
hófst að Hlégarði 21. fm.
Föstudaginn 7. sept. kom til
Reykjavíkur frá Sovétríkjunum
nefnd þriggja vísindamanna í
boði MÍR. Nefndarmenn voru:
prófessor Valentin Nesterov,
forseti skógræktardeildar Vís-
indaakademíu Sovétríkjanna,
Kuzma Ivanov, vararektor
Moskvuháskóla og Georgy
Shumilov, forseti Norðurlanda-
deildar V.O.K.S., og var hann
formaður nefndarinnar. Stjórn
Reykjavíkurdeildar MÍR tók á
móti nefndarmönnum á flug-
vellinum, en á sunnudag 9.
sept. héldu nefndarmenn aust-
ur á Hallormsstað í boði land-
búnaðarráðuneytisins og Skóg-
ræktarfélagsins í fylgd með
Hákoni Bjamasyni skógræktar-
stjóra.
Kynningarfundur í Gainla bíói
Ferðuðust nefndarmenn víða
um, komu meðal annars í Mý-
vatnssveit og skógræktarstöð-
ina á Akureyri, og í næstu viku
á eftir fóru þeir að Sámsstöð-
um, og víðar um fyrir austan
fjall. Sunnudaginn 16. sept.
hélt MfR kynningarfund í
Gamla Bíói í Reykjavík ásamt
nefndarmönnum. Þar flutti Há-
kon Bjamason skógræktar-
stjóri erindi um ferð til Sovét-
ríkjanna, og sýndi kvikmynd
máli sínu til skýringar. Þá á-
varpaði G. Shumilov fundar-
menn og síðan flutti Hallgrím-
ur Jónasson kennari erindi um
ferð nefndar sem fór í sumar
'til Sovétrikjanna í boði friðar-
samtakanna þar. Daginn eftir,
(mánud. 17. sept.) flutti V.
Nesterov erindi á fundi Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur í
Tjarnarkaffi, og sýndi kvik-
mynd um skógrækt í Sovétríkj-
unum.
Há skólaf yrirlestur
Á miðvikud. 19. sept. flutti
vararektor Moskvuháskóla Iv-
anov erindi í fyrstu kennslu-
stofu Háskóla íslands, og tal-
aði um æðri menntun í Sovét-
ríkjunum. Meðal fundarmanna
var menntamálaráðherra Gylfi
Þ. Gíslason, en Háskólarektor,
dr. Þorkell Jóhannesson kynnti
Ivanov og þakkaði honum er-
indið. K. Ivanov flutti síðan
Háskóla Islands kveðjur og
gjafir frá Moskvuháskóla,
minjagrip sem smíðaður hafði
verið í tilefni 200 ára afmælis
skólans og tvær bækur sem
fræðimenn við skólann liöfðu
samið um sögu hans af sama
tilefni. Fundinum lauk á því að
sýnd .var kvikmynd af hinum
nýja Moskvaháskóla. Daginn
eftir, fimmtud. 20. sept. höfðu
VÍsindamennirnir fund með
fréttamönnum í Sovétsendiráð-
inu, Túngötu, og sama dag
hafði menntamálaráðherra
Gylfi Þ. Gíslason boð inni fyrir
vísindamenn og listamenn frá
Sovétríkjunum í ráðherrabú-
staðnum við Tjarnargötu.
Ráðstefna MÍR
Á föstudag, 21. sept. sátu vís-
indamennirnir ráðstefnu MÍR
sem haldin -var að Hlégarði í
Mosfellssveit, og fluttu þar á-
vörp þeir Nesterov, Shumilov
og María Mazun sem komin
var hingað til lands með ball-
ettflokknum. Á laugardag sátu
svo vísindamennirnir fund ís-
lendinga sem heimsótt hafa
Sovétríkin og haldinn var í
Þjóðleikhúskjallaranum, og þá
um kvöldið hafði ambassador
Sovétríkjanna boð inni í sendi-
ráðinu, Túngötu. Áður en því
hófi var slitið voru vísinda-
mennirnir þrír kvaddir með
virktum og þeim færðar gjafir.
Afhenti Þórbergur Þórðarson
rithöfundur gjafirnar fyrir
hönd stjórnar MÍR. Vísinda-
mennirnir héldu síðan heimleið-
is daginn eftir.
Listamannasendinefnd
Sunnudaginn 9. sept. kom
hingað 6 manna listamanna
sendinefnd frá Sovétríkjunum,
þau Khalida Aktjamova fiðlu-
leikari, Dmitri Baskíroff píanó-
leikari, Tatjana Lavrova óperu-
söngkona, Viktor Morozov ó-
perusöngvari, Frieda Bauer
undirleikari og fararstjórinn
Nicolai Petrov. Daginn eftir
hafði listafólkið fund með
fréttamönnum í Sovétsendiráð-
inu, Túngötu, en fyrstu hljóm-
leikarnir voru í Austurbæjar-
bíói, fimmtudaginn 13. sept.
Kom allt listafólkið þar fram,
en hvert sæti í húsinu var
skipað og viðtökur áheyrenda
frábærlega góðar. Á laugardag
og sunnudag, 15. og 16. sept.
voru enn tónleikar í Austur-
bæjarbíói, hina fyrri héldu
Baskíroff og Lavrova, hina síð-
ari Aktjamova og Morozov, og
voru viðtökur áheýrenda sem
fyrr. Baskíroff og Lavrova
skemmtu ennnig á kynningar-
fundi MlR í Gamla bíói sunnud.
16. sept.
Á mánudag fór svo listafólkið
til Akureyrar og hélt þar
hljómleika á þriðjudagskvöld
18. sept. fyrir fullu húsi við
mikinn fögnuð áheyrenda.
Listafólkið kom síðan aftur
suður og sat hóf menntamála-
ráðherra, ráðstefnu Mír að
Hlégarði og fund Sovétfara í
Þjóðleikhúskjallaranum. Á
sunnudag 23. sept. fór lista-
fólkið í skemmtiferð austur fyr-
ir fjall og til Þingvalla í boði
Mír, en síðustu þljómleikarnir
voru í Þjóðleikhúsinu á mánu-
dag 24. sept. og voru undir-
tektir áheyrenda sem fyrr.
Kvöldið eftir hélt stjórn Mír
listafólkinu skilnaðarhóf í Þjóð-
leikhúskjallaranum. Var þar
fögnuður góður og snillingarnir
kvaddir með gjöfum og árn-
aðaróskum. Þeir héldu heim
daginn eftir miðvikudag 26.
sept.
Málverkasýiiing barna
Föstudaginn 14. sept. var
opnuð í Austurbæjarskólanum í
Reykjavík sýning á 83 mál-
verkum eftir skólaböm í Sov-
étrikjunum á aldrinum 6 til
16 ára. Fræðslumálastj., Helgi
Elíasson, opnaði sýninguna með
ræðu, en ambassador Sovét-
ríkjanna, Ermoshin flutti á-
varp. Var þarna margt boðs-
gesta, skólastjórar, kennarar,
málarar og fleiri. Sýningin var
síðan opin daglega frá kl. 14
til 19, nema síðasta daginn
sunnudaginn 23. sept. til kl.
22. Alls komu tæplega 2000
gestir á sýninguna.
Um sömu mundir var hér
Framhald á 5. síðu.
Vélstjórar heiðra skóla-
stióra sinii og kennara
Brjóstmynd aí M. R. Jessen skélastjóra
afhjúpuð í Vélskólanum í gær
í gær var afhjúpuð viö hátíðlega athöfn í anddyri Sjó-
mannaskólans brjóstmynd af M. E. Jessen fyrrverandi
skólastjóra Vélskólans í Reykjavík. Mynd þessa hefur
Ríkaröur Jónsson myndhöggvari gert, en nemendur Jes-
sens gefið skólanum.
ð(
Kristján Jónsson
Aðalfundur Sjó-
mannafélags
Hafnarfjarðar
Sjóinannafélag Hafnarfjarð-
ar hélt aðalfund sinn í fyrra-
dag.
■Formaður var kosinn Krist-
ján Jónsson, varaformaður
Halldór Helgason, ritari Jens
Eyjólfsson, Einar Jónsson
gjaldkeri og Brynjólfur Guð
mundsson varagjaldkeri.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
hefur kosið þá Kristján JónS'
son, Kristján Eyfjörð og Jens
Eyjólfsson fulltrúa sína á Al-
þýðusambandsþing. Varamenn
voru kosnir Guðjón Tryggva-
son og Hannes Guðmundsson.
Einn af gömlum nemendum
Vélskólans, Þórður Runólfsson:
öryggism. iastjóri ríkisins, gaf
í upphaf athafnarinnar í gær
stutt yfiriit um sögu skólans,
en M. E. Jessen var sem kunn-
ugt er f; rsti skólastjóri hans
og gegnd: því starfi um 40 ára
skeið af alkunnum dugnaði.
Þórður slcýrði frá því, að fjöl-
mennur fundur eldri nemenda
Vélskólans hefði á sínum tíma
einróma ákveðið að heiðra
Jessen skólastjóra með því að
láta gera brjóstmynd af hon-
um og gefa skólanum. Vildu
hinir eldri nemendur á þann
hátt flytja kennara sínum og
læriföður þakkir og virðingu. j
Síðan bað hann Gunnar Bjarna- j
son núverandi skólastjóra að;
veita myndinni viðtöku fyrir
hönd skóians. Skólastjóri þakk-
áði gjöfina.
Hinn 3. maí 1916 brautskráði
Vélskólinn fyrstu nemendur
sína, þrjá að tölu. Einn þessara
manna, Bjarni Þorsteinsson, er
látinn fyrir allmörgum árum,
en hinir tveir voru viðstaddir
athöfnina í gær. Annar þeirra,'
Hallgrímur Jónsson vélstjóri,
afhjúpaði myndina, en hinn,
Gísli Jónsson fyrrv. alþingis-
maður, flutti ræðu þar sem
hann minntist hlýlega braut-
ryðjendastarfs Jessens skóla-
stjóra á sviði tæknifræðslunnar
hér á landi. Að lokinni ræðu
Gísla talaði Jessen og lýsti á
skemmtilegan hátt fyrstu
starfsárum sínum hér og upp-
hafi vélskólahaldsins. Kvað
hann ánægjulegt að fá enn á
ný tækifæri til að sjá marga
af sínum gömlu nemendum,
þakkaði hann þann vinarhug,
sem þeir hefðu sýnt sér og
óskaði loks Vélskólanum og nú-
verandi starfsmönnum hans
gæfu og gengis. Einnig flutti
kona Jessens nokkur þakkarorð
frá þeim hjónum.
Athöfnin í Vélskólanum í
gær var hin virðulegasta og
bar glöggan vott um þá virð-
ingu og miklu vinsældir, sem
Jessen skólastjóri nýtur meðal
nemenda sinna, eldri og yngri,
en þeir voru margir viðstadd-
ir.
Eins og áður er sagt hefur
brjóstmyndinni verið komið
fyrir í anddyri Sjómannaskól-
ans, á annarri hæð þar sem
Vélskólinn er nú til húsa. Ætl-
unin mun vera að setja mynd-
ina síðar upp á lóð skólans.
Ullargammósmr
á börn kr. 65,00.
T0LED0
Fischersund.
Sjálfkjörið í Nes-
kaupstað
Verkalýðsfélag Norðfirðinga,
Neskaupstað kaus fulltrúa sína
á,25. þing Alþýðusambands ís-
lands á fundi í fyrrakvöld. Að-
alfulltr. voru kjömir: Sigfinnur
Karlsson, Einar Guðmundsson,
Hjálmar Björnsson og Fann-
ey uGnnarsdóttir. Varafulltrú-
ar voru kosnir Geir G. Jónsson,
Halldór Haraldsson, Karl Mar-
teinsson og Jón Kr. Magnús-
son. Fulltrúar félagsins urðu
sjálfkjörnir.
MlR, Akranesi
Leshringurinn tekur til
starfa um miðjan október.
Þeir félagar, sem taka vilja
þátt í énskunámi, tilkynni
þátttöku sína fyrir 10. þ.m.
Unni Leifsdóttur, sími 462.
NÝSENDING
Jt'rsey-kjólar
mjög fjölbreytt litaúrval
Qullf oss
Aðalstræti.
Laugftveg 3fc — Síml 8220Si
Fjölbreytt úrval at
vteinhrlngum — Póstsendom
KDfORUN
,Þeir, sem senda vörur er skemmzt geta eða eyði-
lagzt af völdum frosts með skipum vorum, eru hér
með aðvaraðir um að láta ekki slíkar vörur Iiggja í
vöruafgreiðslu vorri, þar sem ekM er hægt að taka
ábyrgð á þeiin þar.
Skipaútgerð ríkisins.