Þjóðviljinn - 30.01.1957, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.01.1957, Blaðsíða 1
Frakkar beita verkfallsmenn í Alsír hervaldi til að neyða þá fil vinnu Allsher'iarverkfalliS jbar og I Frakklandi magnasf, verkfallsmenn dœmdir i fangelsisvist og sektir Verkfallið sem Þjóðfrelsishreyfing Serkja í Alsír hefur boðað til þar og í Frakklandi til að vekja at- hygli á baráttu þeirra fyrir sjálfstæði magnaðist enn í gær. í Algeirsborg voru verkamenn neyddir með hervaldi til að taka upp vinnu, en aðrir voru dæmdir í fangelsi. Margir serkneskir verkamenn sem búsettir eru í Frakklandi bættust í hóp verkfailsmanna í . g'ær. Um 3000 þeirra sem vinna í tveim bifreiðaverksmið.ium í París mættu ekki tii vinnu í gær og um 70% serkneskra verka- manna hjá Renaultverksmiðjun- um sátu heima. Braut ruður og brauzt gegnum mjölskemmuna Siglufirði. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. Aðfaranótt sl. mánud. gerði ltér afspyrnuveður af norð •orðaustri og olli það talsverð- um skemmdum liér á hósiun, reif plötur af þökum og næst- um því alít þakið af einu Jiúsi og braut níður víða. Nokkrar skemmdir urðu einnig á húsum vegna braks er fauk á þau. Veðrið sprengdi nokkrar járnplötur úr norður- og suðurhliðum mjölskemmu rikisverksmjðjanna, — fór þvert í gegnum húsið. Nokkr- ar bilanir urðtt einnig á raf- leiðslukerfi bæjarins. Sama og engin snjókoma fylgdi veðri þessu, en í fyrra- dag og nóttina eftir snjóaði nokkuð, en var þó aðeins föl í gærmorgun. I gærmorgun var suðvestan hvassviðri með lítils- háttar éljum. Átök og mannvíg í Frakklandi í ýmsum borgum Frakklands kom aftur til átaka í gær milli serkneskra verkamanna og lög- reglu og biðu nokkrir menn bana en aðrir særðust. í Bordeaux var serkneskur veitingahúseigandi skotinn til bana af tveim dulklæddum mönnum, en hann hafði ekki orðið við hvatningunni um að loka veitingahúsi sínu. Verkamenn beittir bervaldi Hert hefur verið á ritskoðun- inni á öllum fréttaskeytum frá Alsír og eru fréttir þaðan því af skornum skammti. Þó hefur frétzt að í gærmorg- un hafi fjölmennar sveitir her- manna haldið inn í serkueska hverfið í Algeirsborg. Hermenn- irnir brutnst inn í hús maiina sem Iagt höfðu niður vinnu og höfðu l»á á brott með sér í bif- reiðum. Voru þeir fluttir á vinnustaði og þeim skipað að vinna. Þeir sem ekki lilýddu voru íangelsaðir. Serkneskir starfsmenn við al- menningsfarartæki og í þjónustu hins opinbera sem lögðu niður vinnu í fyrradag voru í gær dæmdir í háar fjársektir og fimmtán daga fangelsisvist. Frönsku stjórnarvöldin segja að „ástandið hafi batnað“ við þess- ar aðgerðir. Yarsjárbandalagið verður eflt- öryggiskerfi í Evrópu lausnín Sameiginleg yfirlýsing Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu gefin út í Moskva í gær Ríki Austur-Evrópu munu gera allt til aö efla Varsjár- bandalagið, en þau telja aö friöur yröi bezt tryggöur í Evrópu ef komið yröi á fót öryggiskerfi allra ríkja álf- unnar. Þetta var meginefni sameig- inlegrar tilkynningar stjórnar Tékkósióvakíu og Sovétríkj- anna sem gefin var út í gær eftir þriggja da.ga viðræður tékkneskra og sovézkra leið- toga í Moskva. 1 tilkynningunni er sagt að á meðan vesturveldin haldi á- fram að efla Atlanzbandalagið og hafni öllum tillögum um að leysa upþ bæði hernaðarbanda- lögin og semja í staðinn um sameiginlegt öryggiskerfi ailra Evrópuríkja, sé aðildarríkjum Varsjárbandalagsins nauðsyn að efla landvarnir sínar. Tékkneska stjórnin lýsir sam- þykki sínu við íhlutun sovét- hersins i Ungverjalandi og báð- ar stjórnirnar heita nngversku stjórninni fullum stuðningi. Aðeins hermemi á götunum Nær öll umferð hefur stöðv- azt í Algeirsborg og fáir sem engir Serkir eru þar á ferli. Hót- un Frakka um að opna með her- valdi serkneskar verzlanir hefur engan árangur borið, eigendur þeirra neita með öllu að selja Framhald á 5. siðu Leitað að Ternen á 30.000 lerkm svæði Leit aö dönsku hersnekkjunni Ternen sem ekkert hef- ur spurzt til síöan á föstudag var haldið áfram í gær. Leitað er á stóru svæði. Leitað er að Ternen á 30.000 ferkílómetra svæði milli Stóru Hrafnseyjar og 60. breiddar- baugs. Tvö Grænlandsför, þ. á. m. Umanak, sem óttazt var um, en nú er komið fram, taka þátt í leitinni og auk þess tvær danskar hersnekkjur, dönsk Catalinaflugvél og tvær banda- rískar flug'vétar. Onnur Catalinaflugvél fór fró Kaupmannahöfn í gær til að taka þátt í leitinni. emroma kjonn Akureyri í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Aðalfundur Iðju félags verk- smiðjufólks var haldinn s.l. sumiudag í Alþýðuhúsinu. Stjórn félagsins var einróma kjörin. Stjórnin er skipuð þannig: Formaður Jón Ingimarsson, varaformaður Friðþjófur Guð- laugsson, gjaldkeri Itjörleifur Hafliðason, ritari Arnfinnur Arnfinnsson og meðstjórnandi Hallgrímur Jónsson. I trúnaðarráð voru kjörnir Eyþór Bollason, Ingiberg Jóhann- esson, Jónas Jónsson og Jóhann B. Hannesson. Félagatala er nú eflir aðalfund 509 og er Iðja þá arðin fjölmennasta stéttarfélag- ið í bænum. Eignir fé’agsins við áramót voru taldar kr. 111.505, Þjóðyegimir frá Rvík lokaðir i pær- morgun - lokuðust aftur síðdeg* Reynt verSur að halda KrýsuvikurleiS opinni Þjóðvegirnir frá Reykjavík voru enn lokaöir í gærmorg- un, en ruöningsmenn Vegageröarinnar opnuöu bæöi Keflavíkurleiöina og Hellisheiðarveginn, en í gærkvöld voru þessir vegir orðnir illfærir eða ófærir, — og mun hætt viö um sinn aö halda HellisheiÖarveginum opnum og í þess staö ruddur Krýsuvíkurvegurinn. Keflavíkurvegurinn var lok- aður í gærmorgun, en Vega- gerðin sendi 3 snjóplóga er opnuðu hann. Þegar þeir voru komnir suður fyrir Vatnsleysu fóru bílar að koma eftir veg- inum, því minna hafði snjóað nú sunnar á strondinni. Um- ferðin komst í eðlilegt lag upp- úr kl. 2, en um kl. 4 kom fjúk og skafrenningur og milli kl. 5 og 6 var bylur. Eitthvað af bílum mun þá hafa teppzt á leiðinni, en búizt við að þeir myndu þó komast leiðar sinnar síðar, en Keflavíkurleiðin var talin lokuð aftur í gærkvöldi. Hellisheiðin. Vegagerðin sendi í gærmorg- un 5 ýtur og 2 snjóplóga til að ryðja veginn héðan austur á Kambabrún. Sóttist það greiðar en vænta mátti og höfðu þeir lokið verki nokktu eftir kl. 11. Hin daglega umferð var þá ekki komin í fullan gang og notað- ist því ekki eins vel að opnun vegarins, þvi síðdegis var aft- ur komín snjókoma og bylur. Héðan frá Reykjavík fór mikil bílalest, 13 mjólkurbílar og all- margt annarra bíla austur, og var milli Kolviðarhóls og Skíða skálans kl. að ganga 8 í gær- kvöldi. Þá voru einnig nokkrir bílar að austan á leiðinni frá Kolviðarhóli. Nær 17 tíma írá Selfossi til Reykjavíkur. Mjólkurbílarnir sem Krýsurvíkurleiðina í fóru frá Selfossi kl fóru komust ekki til Reykjavíkur fyrr en kl. að ganga 7 í gær- morgun. Var snjóplógur send- ur á móti þeim, en mjög mikl- ir skaflar eru á veg'inum við Kleifarvatn. Þó er í ráði að reyna að halda Krýsuvíkurleiðinni op- inni nú, því aðaltorfærnn á þeirri leið er meðfram Kleifar- vatni. Hvalfjörður lokaður. Hvalfjarðarvegurinn var lok- aður í gær. Snjóplógur var fyrradag sendur héðan til að ryðja veg- 1.30, en Framhald á 11. síðu. Uppbygging atvinnulífsins Annað erindi Einars í kvöld klukkan 9 í kvöld flytur Einar Olgeirsson annað erindi sitt um helztu viðfangsefni Sósíalistaflokksins, og fjalla það um uppbyggingu atvinnulífsins. Erindið verður flutt að Tjarnargötu 20 og hefst kl. 9. Aðgangur er heimill öllutu félögum Sósíalistaféiags Reykjavíkur, Æskulýðsfylkingarinnar og Kvenfélags sósíalista. Reýkvískir sósíalistar ættu ekki að láta framhjá sér fara þessi gagnmerku erindi Einars uni starf og stefnu Sósíalistaflokksins. Þriðja og síðasta þeirra verður flutt n.k. miðvikudags- kvöld.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.