Þjóðviljinn - 17.02.1957, Blaðsíða 11
Sunnudagur 17. febrúar 1957 — ÞJÓÐVILJINNi — (ll
FYRIRHEITNA
LANDIÐ
r' .> * ■ ■1
10. dagur
ars fólks, tíu þúsund mílur frá þeirra eigin landi. Þeir
rata á lyktina af peningum eins og rottuhópur á úldinn
fisk“.
Allt í einu blossaði reiöin upp í honum. „Farðu inn og
skrifaðu bréf, dómari. Ég vil ekki sjá Ameríkana hingaö
á Laragh. Jafnvel þótt sjálfur Heiiagur faðir í Róm
skrifaði mér bréf um það“.
Gamli maðurinn sem ka-lláður var dómaii, saug upp
i nefið og strauk nefbroddinn með handarbakínu. Það
var hann vanur að gera þegar hann var rínglaður.
„Ég er ekki viss um að viö höfum rétt til að meina
þeim aö koma hingaö, herra Regan". sagöi hanu með
varúð. „Við höfum landið hérna á leigu til landbúnaöar.
Það eru ákvæði um það í samningunum aö ríkið Vestur-
Ástralía eigi réttinn á auðlindum jarðar og við höfum
skuldbundið okkur til að leyfa starfsmönnum ríkisins
aðgang að hvaöa landsvæöi sem er. þegar þeir leita að
auölindum".
„Og finnst yður það þá sanngjarnt að þeir sendi?
okkur Ameríkana hér á Laragh? Er "það alvara. yöar.
dómari?“
Dómarinn hellti aftur 1 glas handa sér og tæmdi þaö
og dreypti á vatni á éftir. „Sunur ameríkanar eru við-
felldnustu menn“, sagði hann. „Ég hitti einu sinni
biskup, sem var mjög aölaöandi. En veraldlegur, já,
vissulega mjög veraldlegur". Hann saug síöasta romm-
dropann úr þunnu, stríöu yfirskegginu“.
Daviö Cope hellti hálfum þumlungi af rommi í glas
handa sér og fyllti það síöan með vatni. Hann vildi
ekki baka sér reiöi gamla mannsins með því að drekka
ekki, en hann var ekki enn búinn að læra að drekka
vommið óblandað. Hann sagöi: „Þeir eiga víst að vinna
í námundá við mörkin, Pat. Það verður víst nær húsinu
mínu en ykkar. Og mér finnst jafnve! bara skemmtilegt
að eiga von á ameríkönum hingað“.
„Skemmtilegt?“ hreytti herra Regan út úrsér. „Finnst
þér skemmtilegt hvernig þeir höguöu sér í Alice Springs
meðan stríöiö stóð yfir? Eins og guð er yfir mér þá var
ekki til kvenmaður í bænum sem ekki var nauðgað.
Enginn kvenmaöur í bænum var öruggur nema hún
væri búin að læsa öllum hurðum, setia hlera fyrir
glúggana og biðja á hnjánum með Föður O’Connor,
m'eðan öskrandi amerískir hermenn æddu umhverfis
húsið eins og óðir tarfar. Finnst þér þetta skemmtilegt".
„Þaö var nú ekki svona slæmt, Pat“, sagði frú Regan.
„Og ef það verða framdar nauðganir á Laradh. þá eiga
Ameríkanar enga sök á því“. ^
David Cope lét sem hann væri sárhneykslaður, en
það var glettnisblik í augum hans þegar hann sagði:
„Ég vona að þér séuö ekki að sræjða að mér, frú Regan?‘
„Nei“, sagði hún rólega.
aö sneiða að
yður. Það verða engar nauðganir l&gr 4’ Laragh. Guð
má vita að dómarinn hefur nógu mörg börn í skóla
sínum eins og er“.
Gamli maðurinn saug upp í nefiö og neri það. „Já,
það má nú segja. Ég á von á sex börnum í viðbót eftir
mánaðamótin. og viö höfum engin borö handa þeim.
Það eru Vogue tvíburarnir, Elsie hennar frú Stockton,
Johnnv litli Six, Palmolive stelpan og Yardlev strákur-
inn. Viö ættum eiginlega að panta átta skólaborö í
viðbót, herra Re'gan. Eg get ekki láð bömunum að þau
skrifi illa, þegar þau þurfa að sitja með töfluna á hnján-
um“.
Gamli maöurinn urraði. Konan hans sagði: „Já, við
veröum aö fá þessi skólaborð, Pat. Láttu dómarann
skrifa pöntun á þeim núna, og Spinifez getur tekið hana
með póstinum“.
Dóttir hans sagöi: „Þarna kemur Tom fi*ændi“.
Tom Regan kom út á veröndina. Hann var mjög
magur, og þaö var auðséð á honum.að hann var ný-
vaknaður. Hann hafði ekki rakað sig í marga daga.
Hami var ekki gæddur hinni feikilegu starfsorku PatS
bróður síns, því að hann var með magasár, og eflaust
iiafði hann ekki bætt um heilsu sína með öílu því
rommi serii hann slokraði í sig óblönduðu. Hann vann
ekki mikið á búgarðinum, en samt sem áður var það
^w^imilf sþátt ii r C/ j
V j
hann sem stjórnaöi. Hann dró inniskóna eftir verönd-
inni. Fiú Regan hellti rommi í glas handa honum og
fékk honum vatnsglas. Hann tók við báðum glösun-
um án þess að segja orö.
„Það kom bréf frá herra Bruce, Tom“, sagði frú
Regan. „Hann er að koma hingað með nokkra ameríska
verkfræöinga til aö leita að olíu aftur“.
„Hvaö koma margir?“
„Sjö og þeir eru meö þrjá vörubíla." Hún þagnaði
andartak. „Við getum ekki hýst þá alla“.
„Þetta er refsing af himnum“, sagði Tom hrelldur.
Pat bróðir hans sagði: „Er skúr rúningamannanna
ekki tómur? Geta þeir ekki sofiö þar? Þeir geta notað
fjaðradýnumar og eldaö mat á vélinni“.
„Jahá“, sagöi frú Regan íhugandi. „Ef til vill gætu
þeir veriö þar“.
Stúlkan sagði með ákefð: „Það er ekki hægt að láta
Ameríkana búa 1 rúningamannaskúrnum".
„f guðs nafni“, sagöi Pat. „Hvers vegna ekki?“
„Þeir eru vanir allt ööru lífi“, svaraöi dóttirin þrá-
kelknislega. ,.,Ég hef séð í kvikmyndum hvernig allt er
hjá þeim. Ég sá það í Perth, pabbi. Þeir hafa nokkurs
konar íbúðir uppi á skýjakljúfunum, eða þaö eru hálf-
gerð hús meö garöi 1 kring. Sumir búa líka í stórum,
hvítum húsum sem eru þrjátíu metra há og meö súlum
fyrir framan. Þaö er ómögulegt að láta þá búa í skúr
rúningamannana“.
„Nei, nú hef ég aldrei heyrt annað eins“, sagöi faöir
hennar. „Það er undarlegt ef skúi’inn er nógu góður
handa heiðarlegum, áströlskum rúningamanni, að hann
skuli ekki vera boðlegur handa ameríkana með hjartað
fullt af girnd og illmennsku“.
I þpótt ir
Framhald af 9. síðu. :
og sé ekki orðið við þeim kröf-
um, þá er ekkert annað fvrir
Knattspyrnusamband Islands
að gera en að draga. sig út‘ úr
samvinnu við aðrar þjóðir 'um.
landsleiki, og beina kr'áftium
sínum í þá átt að ala upp nýja
knattspyrnukynslóð sem hægt
er að treysta og sem gerir því
fært að vinna með öðrum þjóð-
um um gagnkvæma landsleiki.
Það liggur í augum uppi að
knattspyrnumenn á íslandi
verða að vinna í einu og öllu á
svipuðum grundvelli og þær
þjóðir sem við hugsum okk-
ur að hafa samband við. Á
þetta hefur ekki verið nógsam-
lega bent af ábyrgum knatt-
spyrnumönnum hér. Það er eins
og það beri of mikinn keim af
festulevti og . að tilviljun ráði
um of, enda er það mála sann-
ast að okkur er margt betur
gefið en að vinna eftir föstum
áætlunum með markmið langt
framundan. Það er rikará í
flestum að gera áhlaup á sið-
ustu stundu. I sumum tilfellum
getur það verið gott, en hvað
þjálfun snertir þá gildir iþar
öðru máli. — (Meira).
og róm að sameina rammana
eins og sýnt er á myndinni. Á
skammhliðarnar eru auk þess
boruð göt fyrir skrúfur undir
snúrurnar. Rammarnir eru nú
skrúfaðir saman, en ekki fastar
en það að auðvelt sé að hreyfa
þá til. Lengd snúranna ákveðúr
að sjálfsögðu hversu langt! er
liægt að færa þá sundur. Takið
eftir því að styttri endarnir á
römmunum eru látnir snúa nið-
ur. Gætið þess líka að lengd
og breidd grindarinnar sé rétt
reiknað út, þannig að griridin.
velti ekki.
Ef grindin á að vem sérlega
vönduð má mála hana.
Og svo er það
regnkápan
Þið trúið því kannski ekki,
en þessi silkigljáandi kápa, sem
minnir mest á dýra kvöldkápu,
Hvernig er bezt að þurrka
smáþvottinn?
Bezt er að sjálfsögðu að geta
þurrkað smáþvottinn úti. Bæði
þomar þvotturinn fyrr og fær
auk þess ferskan blæ og lykt.
En fjöldi fólks hefur engar að-
stæður til að þurrka þvott-
inn úti. Að vetrarlagi þornar
þvotturinn líka fyrr innanhúss.
Margir hafa en.gar svalir og
margir hafa ekkert baðlier-
bergi, þar sem hugsanlegt er,
að koma. sér upp snúrum fyrir
smáþvottinri. Það fólk er til-
ne>dt að festa upp snúrur í
eldhúsinu eða stofunni, en þaö
er sannkallað neyðariirræði.
Þurrkunargrind er mjög
hentug. Auðvitað má nota hana
á svölum eða í baðliebergi, en
einnig má koma henni fyrir
framan við opinn glugga, t.d. í
eldhúsinu, og það er auðvelt
að leggja hana saman, jafn-
vel þótt þvottur sé á henni.
Þurrkunargrindin saman-
stendur af tveim römmum, sem
eru þannig gerðir að annar er
eilitið minni en hinn, eða mátu-
legur innaní stærri rammann.
Rammana má gera úr lxl
þumlungs þykkum. listum.
Göt eru boruð á langhlið-
aniar fyrir skúffurnar, þannig
að inn það bil þriðjungur
rammans sé fyrir neðan þau.
Þessi göt eiga með skrúfum
er regnkápa. Hún er gerð í úr
gljáandi röhdóttu efni og; er
með áfastri hettu. Það er| ó-
venjulegt að regnkápur jséu
röndóttar, en þvi í ósköpunum
skyldu þær ekki vera það?
, a —Útscíandt: S&mrtniivBa.rn<Akur alþýSu — SAslallstatiokkurtrm. — RltstiÓTar: MnBnús Kiartausson
S5@BWI&lIillt SlBurður Orrt'murxieson. - r,r<*ttarttstjórl: Mu Biaxrvason,, ™ UlaOamcrm: Asmunriur Slgur-
w~ ' __ iftnsson, OuSmundur ViBfilSían. ivur H. Júnssou, Mftsnús Torfi ÓlaJsstur, Sleurjón Jóhamisson. —
AuKÍfslneastj<5rf: OuBgtJr MaBmiflfion. - Rltstfórn. aferciBsla, auslýsingai> prcntsmlBja; Stdiavöríustig 19. — Stml 7500 (3
línur). ÁskrtftarverB kr. 25 ft mán. i ReykJavik og nigrcnni; kr. 22 annarsstaSár. - Pausasöluv. kr. i- Prentsœ. Þióftviljan*.