Þjóðviljinn - 16.10.1957, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 16. október 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3
S*ing- og héraðsmálafundur Vesfur-fsafiarðarsýslu
im flnstri stjórn
og skorar á menn að spilla ekki griindvelli þess
með aimarlegri baráíiii iiman stéttarsamtakanna
Fimmtugasti og sjöundi þing- og héraösmálafundur
Vestur-ísafjarðarsýslu var haldinn á Suöureyri viö Súg-
andafj. 14.—15. sept. s.l. Fundurinn fagnaöi samstarfinu
urn vinstri stjórn og skoraöi á fylgismexm þess samstarfs
aö spilla ekki grundvelli stjórnarsamstarfsins, og þar með
raunverulegum völdum alþýöunnar, meö skammsýnni
vandastx-eitu eöa annarlegri bai-áttu imran stéttarsam-
takaxma.
Samþykkt fundarins um þetta
er svohljóðandi:
„Fundurmn lýsir ánægju
sinni yfir því samstarfi, seni
liafið var með myndun núver-
andi ríkisstjóraar og telur á-
siíeðu íii að þakka margt í
idggjdf síðasta þings, svo sem
aukið sjáifstæði og vald
seðlabankans, vísi að skyldu-
sparnaði og húsnæðismála-
löggjöfina yfirleitt. Telur
fundurinn stefnu stjórnar-
innar miðast við hagsmuni
vinnandi alþýðu og það að
efla jafnvægj f landinu.
Enda þótt rikisstjórnin hafi
ekM ennþá haft full tök á
ýmsuni þeim vandaniálum
Lasdssambands isL
rðfvirkjameistaEa
Aðalfundur Eandssamfcands
íslenakra rafviricjameistara var
lialdinn í Reykjavík 28. sept. sl.
Rædd voru ýmis hagsmuna-
mál meistara, eins og innflutn-
ingur á efni til rafvirkjunar.
Fundarmenn voru einhuga um
að opna skrifstofu í Reykjavík
í félagi við Félag lögglltra raf-
virkjameistara. Samþykkt var
að skora á Rafmagnseftirlit rík-
isins að hraða sem verða má
endurskoðun og útgáfu nýrrar
reglugerðar um raforkuvirki.
í sambandinu eru nú starfandi
53 rafvirkjameistarar, þ.a. 34
búsettir utan Re.vkjavíkur. 15
nýir gengu í sambandið á starfs-
árinu.
Stjórn L.Í.R. er nú þannig
skipuð:
Formaður: Gísli Jóhann Sig-
urðsson, varaformaður Aðal-
steinn Gíslason, ritari Örnólfur
Örnóifsson, gjaidkeri Gissur
Pálsson, aiiir í Reykjavík, og
meðstjórnandi Viktor Krist-
jánsson á Akureyri.
Íeíkhússins tekur
til starfa
Ballettskóli Þjóðleikhússins
er nú að taká til starfa og er
búizt við að nemendur verði
álíka margir og í fvrra, eða á
fjórða hundrað talsins. I vet-
ur verða aðeins téknir sem nýii
nemendur börn og imglingar,
sem áður hafa notið einhverr-
ar tilsagnar í listdansi.
Forstöðumaður skólans og
aðalkennari, Erik Bidsted ball-
ettmeistari, kora s.l. laugardag
til iandsins og er þegar tek-
inn til starfa. Kona hans, Lise
Kæregaard, mun sem fyrr einn-
ig kenna við skólann í vetur.
sem fyrir liggja, og hafi ekki
komið á neinni framtiðar-
skipun í efíialiagsmálum, tel-
ur funduriim samráð við
stóttarsamtökin í landinu um
tilhögun þeirra mála svo
mikiís virði, að aliar vonir
um að sæmilega rætist úr,
séu við slikt samstarf bundn-
ar. Fyrir því skorar fundur-
inn á alla þá sem þeíta
skilja, að varast að spilla
grundvelli stjórnarsamstarfs-
ins, og' þar með raunveruleg-
u’it völdum aíþýðunnar, nteð
sktmmsýnm valdastreitu eða
annarlegri baráítu innan
stéttasainíakanna“,
Útfærsla landhelginnar
,.Þíng- og héraðsmálfundur
Vestur-ísafjarðarsýslu itrekar
fyrri samþykkíir i:m útfærslu
landhelginnar .og friðun fiski-
miðanna umhverfis landið, og
skorar a Alþingi og ríkisstjóm
að hraða aðgerðum eins og hægt
er“.
Stuðningnr við
félagsbúskap
„Fundurinn fagnar þeirri
breytingu á nýbýlalöggjöfinni,
er gerð var á síðasta Alþingi.
Sérstaklega telur fundurinn
þann stuðning við félagsbúskap
eðlilegan og 'sjálfsagðan, sem
tek'nn var upp i nýbýlalöggjöf-
ina nú“.
Flug-samgöngur
„Fundurinn fagnar þeim und-
Norrænt lögfræðingaþing
háð í Reykjavík 1960
Mót norrænna lögfræöinga var haldiö
í Helsinki í
irbúningsathugunum á flugvall-
arstæði við Þingeyri, er flug-
málastjórnin og Björn Pálsson
flugmaður hafa látið fara fram,
og þakkar þessum aðilum störf
þeirra að málinu.
Jafnframt skorar fundurinn á
flugmálastjómina að láta hér
ekki staðar numið, heldur rann-
saka hið fyrsta flugvallarskil-
yrði annars staðar í sýslunni
með það fyrir augum að gera
sem fyrst í hverjum íirði, ef að-
stæður leyfa, nothæfan flugvöll
þeim farþegaflugvélum, er ætla
má að i náinni framtíð verði
almennt notaðar á innanlands-
leiðum.
Verði bið á þessum fram-
kvæmdum sé þegar í stað unnið
að því að koma upp lendingar-
brautum fyrir sjóflugvélar og
aðrar smáflugvélar“.
Vestf jarðavegi verði
hraðað
„Fundurinn leggur áherzlu á
það, að lagt verði kapp á end-
urbyggingu vega í sýslunni, og
þá einkum þeirra vega sem
liggja í byggðum, notaðir eru
sumar og vetur og atvinnulífið
á mest undir.
Fundurinn telur miklu máli
skipta að vegagerðin hafi við-
unandi tæki undir höndum og
nefnir einkum í því sambandi,
að nógu stór veghefill þarf að
vera tiltækur í Vestur-ísafjarð-
arsýslu haust og vor.
Fundurinn telur áriðandi að
gætt sé fullrar hagsýni í vega-
vinnu um viðhaldstíma og veg-
arstæði, og murú nokkuð hafa
brostið á sumstaðar, að samband
heimamanna og þeirra sem
vegagerðinni stjórna haíi verið
sem skyldi.
Fundurinn leggur áherzlu á
að framkvæmdum við Vest-
fjarðaveg verði hraðað sem
Framhald á 3. síðu.
sumar.
Á þingi þessu haía verið rædd
margs konar lögfræðileg vanda-
mál, er efst hafa verið á baugi
á hverjum tima.
Þingið i Helsinki sóttu 665
lögfræðingar frá öllum Norður-
löndum, þar af 11 íslenzkir. Að-
alumræðuefni þingsins voru tvö.
Hið fyrra fjallaði um, hvort
breyta beri laeaákvæðum um
hjónaskilnað. Framsögu höfðu
finnski kvenlögfræðingurinn
Helvi Sipila og próf. Ármann
Snævarr. Hitt aðalumræðuefnið
var um mat dómstóla á ákvörð-
unum stjórnsýsluyfirvalda.
Framsögumenn voru norski
hæstaréttardómarinn Terje Wold
og sænski prófessoi-inn Nils
Herliíz. Á deildarfundum voru
ýms mál rædd, m.a. um máls-
kostnað og var Hákon Guð-
mundsson hæstaréttarritari þar
ann.ar’ af frummælendum.
Ákveðið var að næsta mót
norrænna lögfræðinga skyldi
haldið í Reykjavík sumarið 1966Í
í stjórn íslandsdeildar nor-
ræna lögfræðingasambandsins
eru Árni Tryggvason hæstarétt-
ardómari formaður, Ármann
Snævarr prófessor, Bjarni Bene-
diktsson ritstjóri, Einar Arnalds
borgardómari, Guðmundur í.
Guðmundsson utanríkisráðherra,
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra, Lárus Jóhannesson hrl.,
Ólafur Jóhannesson pþófessor,
Rannveig Þorsteinsdóttir hdl. og
Theódór B. Lindal prófessor.
og notkun
þeirra
. lauk 8.18ii
18. þing F.F.S.Í. var sett í
samkomusal Slysavamafélags-
ins fbnmtudaginn 10. þ.m. kl. 2
e.h. Minntist forseti saxnbands-
ins, Ásgeir Sigurðsson, þess að
um síðustu áramót varð F.F.S.l.
20 ára., en Ásgeir hefur verið
forseti sambandsins frá upphafi.
Þingfulltrúar voru 34 frá 15
sambandsfélögrim og voru flest-
ir þeirra, mættir til þings. Þiixg-
forseti var kosian Þorsteinn
Ámason vélstjóri og varaþing-
forsetar Sigurjón Einarsson
skipstjóri cg Guðbjartur Ó’afs
son hafnsögumaður. Þingritar-
ar: Guðm. Jensson Halldór
Jónsson og Jónas Guðmuncls-
son.
Fyrir þinginu lágu mörg mál,
svo sem breyting á iögum sam-
bandsins; endumýjun fiskiflót-
ans; dýrtíðarmál; öryggismál;
útbúnaður skipa; hafnar- og
vitamál; landhelgismál; mennta-
mál sjómanna; húsbyggingar-
mál; Græniandsmál o. f!. mál
og verður síðar getið ályktana
þingsins um þau.
Sl. laugardagskvöld hélt stjórn
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins þingfulltrúunum veizlu
í Hrafnistu, Dvalarheimili aldr-
aðra sjómanna, í tilefni af 20
ára afmæli sambandsins. Þar
voru margar ræður fluttar og
var forsetanum, Ásgeiri Sig-
urðssyni, þakkað 20 ára for-
setastarf.
18. þinginu lauk seint á
sunnu d agsk v öld. S tj órnarkosn-
ing fór þannig að forseti fyrir
næstu 2 ár var kosinn Ásgeir
Sigurðsson skipstjóri með al-
mennu lófataki. Meðstjórnend-
ur: Grímur Þorkelsson skipstj.,
Sigurjón Einarsson skipstjóri,
Guðm. Oddsson skipstj., Bjarni
Bjarnason mótorvélstjóri, EgiU
Hjörvar vélstjóri og Henry
Hálfdánsson loftskeytamaðui’.
Varamenn í stjórn voru kosn-
ir: Theodór Gíslason hafnsm.,
Einar Thoroddsen skipstjóri,
Sveinn Þorsteinsson skipstjóri,
Guðm. Pétursson mótorvélstj.,
Þorkell Sigurðsson vélstjóri og
Geir Ólafsson Ioftskejdamaður.
Kvikmyndaklúbb-
ur fyrir börn
mr~
Æskulýðsráð Reykjayíkur
hefur samþykkt að stofna til
tveggja klúbba fyrir börn og
unglinga, er gefi þeim kost á
að sjá hollar og fræðandi kvik-
myndir. Er hér um tilraun að
ræða, sem væntanlega mun
verða gerð í víðtækari mæli, ef
vel gefst nú.
Klúbbiar þessir munu hafa
fastar sýningar, laug'ardaga og
sunnudaga, í samkomusal Háa-
gerðisskóla og í kvikmyndasal
Austurbæjarskólans. Kvik-
mj’ndaklúbburinn í Smáíbúða-
hverfi mun taka til starfa um
næstu mámaðamót og verður til-
kynnt um stofnun hans í blöð-
um síðar. Að stofnun hans mun
Æskulýðsráð Reykjavíkur
standa í samvjnnu við sóknar-
iiefnd Bústaðarsóknar.
Kvikmyndaklúbburinn, sem
mun starfa í kvikmyndasal
Austurbæjarskólans tekur til
starfa nú um helgina, eða sem
hér segir:
Sunnudaginn 20. okt. kl. 3.30
e.h„ börn 11 ára og yngri. 20.
okt. kl. 5.30 e.h., börn og' ung-
lingar 12 ára og eldri.
Klúbburinn mun starfa í tíma-
bilum, þannig að félögum verð-
ur gefinn kostur á 10 sýningum
í hvorum flokki fram til jóla.
Verður samin sérstök sýningar-
skrá, sem félagar fá og þar
greint frá myndúnum. Sýndar
verða 2 til þrjár mjmdir hverju
sinni, fræðsUimyndir, skemmti-
myndir og verða myndirnar
skýrðar á íslenzku. Félagsgjald
er ákveðjð kr. 15.00 fyrir yngri
hópinn og kr. 20,00 fyrir eldri
hópinn fyrir allan tímann, en
það verður kr. 1.50 og kr. 2.00
fyrir hverja sýningu. Hver félagi
kaupir skírteini, sem gildir sem
aðgöngumiði að sýningunum
hverju sinni. Væntanlegir félag-
ar að klúbbnum í kvikmyndasal
Austurbæjarskólans komi til
skrásetningar í æskulýðsheimil-
ið að Lindargötu 50 á föstudag
18. okt. kl. 4—6 e.h. og 8—9
e.h. og laugardag kl. 4—6 e.h.
Alls munu 150 félagar geta. orð-
ið i hvorurn aldursflokki.
Samvinnuncfnd banka og
sparisjóða hefur gefið ót bæk-
ilng, er nefnist TÉKKAR OG
NOTKIJN ÞEIRRA. Tilgangur-
inn með houum er að leiðbeina
almenningi um rétta notkun
tékka, en jafnframt skýra fyrir
mönnum, hverja hagkvæmni
írekari notkun tékka nnmdi
liafa í för með sér. ♦
Bæklirigur þé3si verður af*
hentur þeim, sem opna nýja
tékkareikninga, en jafnframt
munu bankar og sparisjóðir
hafa hann lil dreifir.gar meðal
þeirra viðskiptamanna sinna, er
þess óska. Neytendasamtökin
hafa sýnt mikinn áhuga á þessu
máli, og hefur samvinnunefndin
látið þeim í té upplag af bæk-
lingnum til að senda meðlimum
sínum.
Öil peningaviðskipti hér á
landi eru þyngri í vöfum en
þyrfti að vera vegna þess, hve
tékkanotkun er hér lítil í sam-
anburði við þaö, sem er meðal
nágrannaþjóða. Með ,útgáfu
þessa bæklings og strangari
reglum um meðferð tékka er
vonazt til, að úr þessu megi
bæta. 1 strjáibýlu landi, þar sem
peningasendingar eru erfiðar og
áhættusamar, er sérstök ástæða
til að auðvelda hvers konar
greiðslur með þvi að nota tékka,
sem óhætt er að senda í venju-
legu bréfi.
Nýlega eru komin út á nótum
tvö danslög, vals og polki, eftir
Ásbjörn Ó. Jónsson. Valsinn
heitir „Eg sá þig fyrst“ og er
þekktur af flutningi í útvarp og
á dansskemmtunum undanfarin
ár. Textinn er eftir Vilhjálm frá
Skáholti. Polkinn vakti mikla at
hygli og * varð umræddur í
blaðadeilum, sem spunnust út
af síðustu danslagakeppni S. K.
T. Textinn er eftir Reinhardt
Reinhardtsson. — í fyrra kom
út á nótum eftir sama höfund,
Ásbjörn Ó. Jónsson, vals sem
heitir ,,Þú gafst mér allt,“ text-
inn er eftir Vilhjálm frá Ská-
holti.
Þjóðviijanum