Þjóðviljinn - 26.02.1958, Page 3
Miðviikudagur 26. febrúar 1958
/lUn.JJVG.öM. —
ÞJtoVIUlNN — (3
Trésmiðir mótmæla Gróusögum h\-
ýðublaðsins og Morgunblaðslns
Krefiast fiindar í Íilasiim um málið
Á sunnudaginn var lét íhaldi'ð Alþýðublaðið flytja svo
lubbalega Gróusögu um fyrrverandi stjórnir Trésmiða-
félags Reykjavíkur að Mogginn treysti sér ekki til þess
að birta hana fyrstur, heldur „endurprentaði“ hana í
gær úr Alþýðublaöinu!
Trésmiðir hafa nú mótmælt þessum einstæöa sögu-
burði Alþýöublaðsins. Jafnframt hafa allmargir félags-
menn Trésmiðafélagsins krafizt fundar í félaginu eigi
síðar en á föstudaginn til að ræða þetta mál.
Þjóðviijanum barst í gær
svohljóðandi mótmælayfirlýsing
frá fyrrverandi stjórnum Tré-
smiðafélags Reykjavíkur, sem
starfað hafa frá 1954:
„Vegna greinar sem birtist
í Alþýðublaðinu 23. þ.m. undir
fyrirsögninni „Stjórn kommún-
ista í Trésmiðafélaginu lánaði
sjálfri sér 150 þús. úr félags-
sjóði“, viljum við undirritaðir
taka fram:
Það er rangt að fyrrverandi
stjórnir hafi lánað fé úr fé-
lagssjóði. Þau lán sem veitt
hafa verið, voru veitt úr
Sjúkrástyrktarsjóði félagsins,
samkvæmt reglugerð 'hans, en
þar segir svo í 7. gr.: „Sjóður-
inn skal ávaxtast í veðdeildar-
bréfum, ríkis- og bæjarskulda-
bréfum, svo og skuldabréfum,
ef stjómin hefur samþykkt það
og skulu félagsmenn ganga
fyrir um sölu bréfanna að löðru
jöfnu“. Samkvæmt þessu hefur
verið lánað úr sjóðnum allt
frá því hann tók til starfa og
einnig af núverandi stjórn.
Varðandi þau lán sem í áður-
nefndri grein eru gerð að á-
rásarefni á fyrrverandi stjórn-
ir, og talin eru vera að upp-
hæð 150 þúsund kr. viljum við
upplýsa að einungis er um tvö
lán að ræða að upphæð 54.000.
00 sem veitt em stjómarmeð-
limum á umræddu tímabili.
Bæði þessi lán voru veitt
starfsmönnum félagsins vegna
bifreiðakaupa, en það var ein-
róma álit stjórnanna að störf
þeirra yrðu ekki leyst af hendi
á viðeigandi hátt án þess að
viðkomandi starfsmenn hefðu
yfir farartæki að ráða.
Fyrra Iánið var veitt árið
1954 vegna eftirlitsstarfa fyrir
félagið og er að upphæð kr.
23.000.00 með 7% vöxtum til
5 ára tryggt með fyrsta veð-
rétti í nýiu tveggja íbúða húsi,
af því láni standa nú eftir
kr. 9.200.00.
Síðara lánið var veitt árið
1957 vegna uppmælingarstarfa,
sem félaginu er skylt að halda
uppi samkvæmt málefnasamn-
ingi við Meistarafélag húsa-
smiða, og er það lán að upp-
hæð kr. 31.000.00 með 7% vöxt-
um til 10 ára, tryggt með löðr-
um veðrétti í nýrri tveggja
herbergja íbúð, næst .á eftir
fyrsta veðréttarláni að upphæð
kr. 6.750.00.
Þá segir Alþýðublaðið: „Yfir
þessum lánveitingum þagði
Benedikt og félagar hans“. En
hið. sanna er, að allar lánveit-
ingar voru greinilega útskýrðar
með hverjum reikningum fé-
lagsins og í skýrslum stjórna
og ennfremur á síðasta. félags-
fundi af þeim sem hlut eiga
að máli.
Að lokum viljum við harð-
lega mótmæla þeim rangfærsl-
um og þeirri málsmeðferð sem
viðhöfð er í áðurnefndri blaða-
grein, sem virðist vera rituð
í áróðursskyni og til framdrátt-
ar öðrum aðilanum við í hönd
farandi stjórnarkosningu í fé-
laginu.
Enda þótt innan okkar fé-
lags séu uppi andstæðar skoð-
úr og meiningamunur um
ýmislegt er varðar framkvæmd
félagsmála, þá teljum við eng-
um málstað stéttarinnar betur
borgið þótt slíkum máttarstoð-
um rangfærslna og blekkinga
sé undir hann skotið.
Reykjavík, 24. febrúar 1958.
Benedikt Davíðsson (sign), for-
maður 1954—1957, Magnús
Ingimundarson (sign), varafor-
maður, 1954—1956, Hákon
Kristjánsson (sign), varaform.,
1956—1957 og vararitari 1955-
1956, Bergsteinn Sigurðsson
(sign), ritari 1954—1955, Jón
Sn. Þorleifsson (sign), ritari
1955—1957, Sigurður Péturs-
son (sign), vararitari 1954—
1955, Sturla H. Sæmundsson
(sign), vararitari 1956—1957,
Ólafur Ásmundsson (sign),
gjaldkeri 1954—1956, Hallgeir
Elíasson (sign), gjaldkeri 1956-
1957. “
Runólfur Þórðarson verksmiðju-
stjóri Aburðarverksmiðjunnar
lóhannes Bjamason verkfræðingur !
fveggja verksntiðja. j
Runólfur Þórðarson hefur veriö ráðinn verksmiðju-
stjóri Áburðarverksmiðjunnar.
Jóhannes Bjarnason verkfræðingur hefur verið ráðinn
vélaverkfræðingur hjá bæði Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi og Sementsverksmiðjunnar á Akranesi.
Tvö fyrstu starfsár Áburðar- S. prófi í efnaverkfræði árið
verksmiðjunnar h.f. skipuðu er- 1952. Hann hefur verið efna-
verkfræðingur Áburðarverk-
smiðjunnar frá upphafi.
6—7 lestir á bát
frá Hafnarfirði
bátar reru frá
í fyrradag og var
Fimmtán
Sandgerði
heildaraflinn 83 lestir. Muninn
var aflahæstur, með 10,5 lestir,
þá kom Magnús Marteinsson
með 10 og þriðji var Munhm
II. með 7 lestir. Aðrir höfðu
yfirleitt 4-6 lestir. Allir Sand-
gerðisbátar voru á sjó í gær.
Áskorun um fund í Trésmiða-
félagi Reykjavíkur
Við undirritaðir félagar í
Trésmiðafélagi Reykjavíkur
krefjumst þess 'hér með að
stjórn félagsins boði til al-
menns félagsfundar í síð-
asta lagi föstudaginn 28.
þ.m. þar sem rætt verði um
„hið alvarlega fjármála-
ihneyksli“, sem Alþýðublað-
ið segir frá 23. þ. m. og
verði þess málefnis getið í
fundarboði.
Reykjavík 24. febrúar 1958.
Benedikt Davíðsson
(sign)
Hallgeir Elíasson
(sign)
Sturla H. Sæmundsson
(sign)
Sigurður Pétursson
(sign)
Magnús Guðlaugsson
(sign)
Hafsteinn Sigurðsson
(sign)
Jón G. Kristjánsson
(sign)
Jón Sn. Þorleifsson
(sign)
Bergsteinn Sigurðsson
(sign)
Hákon Kristjánsson
(sign)
Gunnar Össurarson
(sign)
Hallvarður Guðlaugsson
(sign)
Gissur Guðmundsson
(sign)
Áskorun þessi var afhent
stjórn Trésmiðafélags Rvík-
ur á stjórnarfundi félagsins
þann 24. þ.m., og var stjórn
félagsins um leið bent á
fundarhúsnæði, sem félagið
gæti fengið til fundarhalds
föstudaginn 28. þ.m.
lendir verkfræðingar sess verk-
smiðjustjóra hjá fyrirtækinu.
Um næsta tveggja ára skeið
var Jóhannesi Bjamasyni vél-
fræðingi og Runólfi Þórðarsyni
efnaverkfræðingi falið að ann-
ast rekstur verksmiðjunnar,
hvorum á sínu sviði.
Runólfur Þórðarson hefur nú
verið ráðinn verksmiðjustjóri
Áburðarverksmiðjunnar. Jafn-
framt hefur Jóhannes Bjarna-
son verið ráðinn ráðgefandi
vélaverkfræðingur Áburðar-
verksmiðjunnar. Samtímis hef-
ur stjórn Sementsverksmiðju
rikisins ráðið Jóhannes sem
ráðgefandi vélaverkfræðing við
Sementsverksmiðjuna.
Jóhannes Bjarriason er 37
ára að aldri. Hann lauk prófi
í véla- og iðnaðarverkfræði frá
MeGill háskólanum í Montreal
Canada 1943 og stundaði fram-
haldsnám við New York há-
skólann 1950—1'51 og lauk prófi
í verksmiðjurekstri.
Hann hefur verið vélaverk-
fræðingur Áburðarverksmiðj-
unnar frá upphafi.
Runólfur Þórðarson er 30 ára
að aldri. Hann lauk prófi í
efnaverkfræði frá Tækniháskóla
Illinois ríkis í Bandaríkjunum
árið 1951. Hann stundaði síð-
an framhaldsnám við háskól-
ann í Wisconsin og Iauk þar M.
Mjólkurbáin í'
Framhald af 12. síðu
um gjaldeyris- og innflutnings-
leyfi fyrir þeim.
Fyrirhugað er að hafa fram-
leiðsluna sem fjölbreyttasta, svo
sem: Rjómaís, desertís, rjómaís-
tertur, íspinna, mjólkurís og
mjólkurísblöndu. Ætlunin er að
senda ísinn út um allt land og
verður hann til sölu í mat-
vörubúðunj, mjölkurbúðum, á '
veit'ngastöðum og víðar.
Varðandi starfsemi Mjólkur-
samsölunnar í Reykjavík ságði
Stefán Björnsson, að húsnæði
hennar vseri orðið of lítið, þótt
upphaflega hefði verið áætlað,
að 'það my.ndi nægja til næstu;
aldamóta. í athugun er að taka
I mdtkufn pappaumbúðir uitan
um mjólkina (síænska gerð).
Taka vélarnar, er til framleiðslu
þeirra þurfa, mun minna rúm
en þær vélar, sem nú eru notað-
ar. H'ns vegar eru þær umbúð-
ir nokkru dýrari en glerið. Einn-
ig sagði hann að athugað hefði
verið um heimsendingu mjólkur
hér í Reykjavík, en taldi, að
það mundi reynast nærri óger-
iegt að svo stöddu a. m. k.
Vinstri menn, standið sam>
an í Hreyfilskosningunum
Það hefur oft verið um það
rætt meðal bílstjóra hvort þeir
ættu samleið með launþegasam-
tökunum í þeirra hagsmunabar-
áttu, og er vissulega eðlilegt að
um það sé rætt þar sem bíl-
stjóri sem á sinn bíl er ekki
launþegi í venjulegri merkingu
þess orðs. En um það verður ekki
deilt að í þeirri jákvæðu hags-
munabaráttu, sem verkalýðs-
hreyfingin stendur nú í eiga bíl-
stjórar fulla samleið með öðr-
um vinnandi mönnum. Þegar
öldur vaxandi dýrtíðar flæða yf-
ir landið, þá koma verðhækkan-
ir ekki aðeins á allar lífsnauð-
synjar bílstjóra, eins og alls al-
mennings, heldur einnig á þeirra
atvinnutæki og allar rekstrar-
vörur. Nákvæmlega það sama
gjldir um uppáhaldsúrræði í-
haldsins, gengislækkunina, hún
Jeggst mun þyngra á bílstjóra-
stéttina en almenna launþega.
Þess ' végna er það augljóst að
stefna núverandi ríkisstjórnar
að stöðva verðbólguna, og hin
ötúla barátta verklýðshreyfingar
innar gegn gengislækkun, er al-
veg sérstaklega í samræmi við
hagsmuni atvinnubílstjóra. Þess
vegna ber þeim frekar en nokkr-
um öðrum að styðja núverandi
rikisstjórn og gera henni fært
að starfa með því að skipa sínu
stéttarfélagj við hlið þeirra fé-
laga sem styðja hana af alhug.
Það geta þeir nú gert með því
að fylkja sér um B-listann j
stjórnarkosningunum í Hreyfli
sem fram fara í dag og á morg-
un.
Ihaldið býður enn fram sinn
þarfa þjón Bergstein Guðjóns-
son, sem dfjnsað hefur eftir
hverri bend.'ngu frá flokknum
síðustu ár, og það svo dyggilega
að á meðan íhaldið var i stjórn
og taldi það glæp að liækka
laun verkamanna þá lá Berg-
steinn á hagsmunamálum bæði
launþega og sjálfseignarbílstjóra
svo að þeir voru langt á eftir
öðrum stéttum með lagfær.ngu
á kjörum sínum.
Vorið 1956 sveikst hann um í
marga mánuði að auglýsa hækk-
aðan taxta þrátt fyrir ótvíræða
samþykkt félagsfundar, en rauk
svo til og auglýsti hækkun dag-
inn eftir að verkalýðsfélögin
samþykktu að fresta öllum kaup-
hækkunum. En síðan vjnstri
stjórnin var mynduð hefur hann
beitt sér fyrir uppsögnum samn-
inga og kauphækkunum einu
sinni til tvisvar á ári, og þann-
ig reynst þarfur þjónn og góð-
ur liðsmaður í valdabaráttu í-
haldsins, þó hann sé á fram-
færi hjá bílstjórgstéttinni.
Það verður að teljast eðlilegt
þó að sanntrúaðir ihaldsmenri
styðji slíkan fugl til valda í
verkalýðsfélagi, en það er með
öllu óskiljanlegt og óafsakanlegi
þegar menn sem vilja láta telja
sig vinstri menn láta nota sig
til þess að taka sæti á sama
lista, og gera þannig tilraun til
að vilia um fyrir heiðarlegum
vinstri mönnum, og hjálpa þann-
ig valdasjúkum gengislækkunai’-
bröskurum íhaldsins til valda í
verkalýðshreyfingunni og síðan í
rikisstjórn.
Þessir hjálparkokkar íhaldsins
bera ekki pólitíska ábyrgð gerða
sinna, enda litlir mepn til þess.
Ábyrgðina bera þeir skamm-
sýnu og lítilsigldu stjórnmála-
menn sem allan síðasta ái'atug
hafa af glói'ulausu ofstæki rægt
og svívirt alla foi-ustumenn
þeirrar róttæku verkalýðshreyf-
ingar sem nú er uppistaðan í
núverandi stjórnarsamstarfi,
Allir stéttvísir félagar í Hreyfli
þurfa nú að taka höndum sam-
an og fylkja liði með öðrum
viimandi stéttum þessa lands, í
þeirri baráttu sem nú stendur
yfir gegn íhaldinu, og fyrir
bjartari framtið og leggja höfuð-
áherzlu á að verja helgustu
vígi alþýðunnar, verkalýðsfélög-
in, fyrir þeii'ri smán sem íhalds-
stjói'nin er. — Bílst.jóri,
UXái. -