Þjóðviljinn - 26.02.1958, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 26. fébrúar 1958
Þetta er Waheeda Rahman, indversk leikkona. Hún
leikur aðalhlutverkið í nýlégri indverskri kvikmynd,
sem nefnist „iiilífur þorsti“ og vakið hefur athygli
þar sem hún hefur vprJÍð sýnd.
Sagan af dr. Schweitzer heitir nýleg frönsk kvik-
mynd og fjallar hún eins
og nafnið bendir til Um
hinn mikla mannvin og tónlist-
armanh. f myndinni er lýst ævi
Schweitzers og þó einkum lækn-
isstörfum hans í Aíriku fyrir
íyrri heimsstyriöldina. Pierre
Fresnay heitir sá sem leikur
titilhlutverkið, cinn af_ kunn-
ustu kvikmyndaleikurum
Frakka. Mynd þessi þykir mjög
misheppnuð og á engan hátt
samboðin því mikilmenni sem hún fjallar um.
★
★ ★
Á s.l. ári var fullgerð í Hollywood kvikmyndin
Pal Joey, en aðalhlutverkið í henni le^kur Frank
Sinatra. Þessi kunn.i dægurlagasöngvari og leikari
hefur fyrir löngu sannað að hann býr yfir miklum
hæfileikum; nægir í þessu sambandi aðe ns að
nefna leik hans í myndunum Héðan íil eilífðar og
Maðurinn með gullarminn, sem báðar hafa ver ð
sýndar hér á landi eigi alls fyrir löngu. Sagt er að
Frank Sinatra hafi þó aldrei tekizt eins vel upp
' Albert
Schvoeitzer
Ginger Rogers og Gene Tierney,
en einna mesta atliygli vekur
þó ágætur leikur Peggy Ann
Garner, sem myndin er af.
Altid Baliade - Frank
Sinatra og Schweitzer
og í Pal Joey, þar sem hann leikur mikinn kvenna-
bósa. (Ef þú værir stúlkan mín, þyrftirðu ekki að
hafa h tapoka með þér í rúmið, segir Pal þessi
einhverstaðar í royndinni.)
Pal Joey er í flokki svonefndra söngvamynda
og leika þær aðalkvenhlutverkin Rita Hayworth og
Kim Novak. Sú síðamefnda sýnir nektardans (str'p-
tease) í myndinni, Þegar það atriði var tekið, fékk
Frank Sinatra ströng fyrirmæli um að láta bera
lítið á sér á baksviðinu, svo að athygli áhorfenda
beindist ekki að honum. — Vertu bara rólegur,
á S'natra þá að hafa svarað leikstjóranum, Ge-
orge Sidney. Það myndi ekki vekja minnstu at-
hygli þó að ég dansaði tangó við Ijónynju, ef Kim
væri þá samtímis að dansa og fækka fötum.
Þess má geta hér að lokum að Frank Sinatra
hefur lagt fram ríflegt fé til töku myndarinnar
Pal Joey. Hann er líka sagður einn auðugasti
leikarinn í Hollywood, á fjölmörg fyrirtæki og
fasteignir og græðir drjúgan skilding á þeim.
......... - - ' ■'-'-***
í október sl. var vikið hér í þættinum lítillega
að dönsku kvikmyndinni UngaiJ ástir, sem sýnd
hefur verið við geysimikla aðsókn víða um heim.
Mynd þessi ei; sem kunnugt er gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu Johannes Áll.ens, sem kom út
í Danmörku á árinu 1956 og vakti þá mikla at-
hygli og umtal. Á sl. hausti kom sagan út á for-
lagi Iieimskringlu í íslenzkri þýðingu Geirs Kristj-
Grænlcnzk stuika í myntuiuii Qivitoq.
En Ungar ástir er ekki eina danska kvikmyndin,
sem athygli hefur vakið og h'olið vinsælair utan
D.anmerkur á síðustu árum. IJér skal aðeins drep-
ið á mynd.na Altid Ballade, sem franskir kvik-
myndagagnrýnendur hafa iátið sér tíðrætt um
°g borið lofsyrði á. Þeir sem áttu mestan hlut
að gerð þessarar kvikmyndar voru Lech Fischer og
Gabriel Axel.
Lech F scher er rithöfundur,. sem. meðal annars
hefur gert tökur.t allmargra kvikmynda. Af ein-
ánssonar og nú bráðlega mun Tripólíbió hefj a» ^t.ökum myndum, sem hann hefur unnið að má
sýningar á kvikmyndinni.
Svarta köngulóin nefnist bandarísk sakamálamynd,
sem iNyja bió hefur sýnt að undanförnu. Aðal-
hlutverkin leika Van Heflin,
r- - —
nefna þessar: Swedenhielm-fjölskyldan (1947), Við
viljum eignast barn (49), Við sem vinnum eldhús-
störfin (53), Altid Bailade (55) og Q vitoq (56).
Sumar þessara kvikmynda hafa ver-
ið sýndar hér, en þeirrar síðastnefndu
var getið stuttlega hér í þættinum á
síðastiiðnu ár-i.
Samstarfsmaður Fischers, Gabriel
Axel, er leikari og leikstjóri sem getið
hefur sér góðan orðstír víða um lönd.
Hann hefur dvalizt langdvölum í
Frakklandi og starfaði þar um nokk-
urra ára ske.'ð eftir stríðið sem leikari.
Af einstökum kvikmyndum, sem
Gabriel Axel hefur unnið að í Dan-
mörku, má nefna þessar: Við sem
vinnum eldhússtörfin (53), Altid Bali-
ade (55) og tvær myndir frá síðast-
liðnu ári, Konu ofaukið og Gull og
grænir skógar.
Lestur Passíusálma — Margir óánægoir með lest-
urinn — Vatnsskortur — Vatn borið í pottum og
hæðanna á þönum niður í
kjallara með ýms ílát undir
vatn. Ég man ekki, hvort
nokkuð var minnzt á þetta
vandræðaástand í vatnsmálum
'höfuðstaðarins í bláu bókinni
í vetur.
HÉR ER SVO einn botn við
vísuhelminginn um Þórólf
Mostraskegg:
k.önnum milli kjallara og eíri hæða.
ÞAÐ HAFA margir, einkum
eldra fólkið, kvartað yfir
lestri Passíusálmanna í út-
varpinu. Fólki finnst þeir ekki
nógu vel lesnir, sumir kvarta
um langar þagnir milli er-
inda, aðrir um óskýran fram-
burð og hæpnar áherzlur, og
enn aðrir kvarta um þetta
allt saman. Eg man aðeins
eftir einum Passíusálmalesara,
sem ég held, að öllum sem
á hlýddu hafi líkað vel við;
það var Magnús frá Skörðum.
Eg held, að það hljóti að vera
mikill vandi að lesa Passíu-
sálmana vel, og ekki öðrum
til þess trúandi en þeim, sem
þauikunnugur er sálmunum,
orðfari þeirra og bragarhátt-
um. Og úr því sá siður var
tekinn upp að lesa þessi trúar-
ljóð í útvarpið, þá má varla
minna vera en þau séu þann
veg lesin, að það fólk, sem
á annað borð vill hluta á þau,
hafi sæmileg not af lestrinum.
Og óþarft finnst mér að
trufla þá andakt, sem lestur-
inn kann að vekja hjá sumum
hlustendum með því að láta
glymjandi jass taka við óðar-
og lesarinn sleppir ameninu.
VATN SSKORTURINN sum-é
staðar í bænum er ærið til-
finnanlegur, eins og t.d. þar
sem ekki fæst vatn úr krana
frá því um fótaferðartíma á
morgnana, þar til urú háttu-
mál á kvöldin. Einkum eru
mikil brögð að þessu á þeim
stöðum, sem ber hátt, t.d. í
Skólavörðuholtinu, í Rauðar-
árholtunum og víðar. Efstu
húsin við Háteigsvegirm
standa skammt frá vatns-
geymunum, en þó búa íbúar
þeirra við tilfinnanlegan
vatnsskort. Einkum verður
fólkið á efri hæðunum hart
úti í þessu efni; frekar er að
vatnsleka sé að hafa í kjöll-
urunum, og eni þá íbúar efri
Fyrripartur:
„Það var nosturþrifinn karl
Þórólfur Mostraskeggur.
Botn:
Gráðaost né annað snarl
át sá lostaseggur.
Eru ekki fleiri botnar senn
tilkomnir?
Til
liggur leið;D
AuglýsiS i
ÞjóSviljanum
ETVEGUM
Skrúfuöxla
úr ryðfríu stáli — beint frá verksmiðju í Þýzlíalandi.
Verðið mjög hagstætt. — Afgreiðslutími 3—4 vikur.
Vélaveíkstæði Björns & HalMérs
Ingólfsstræti 11 — Sjmi 22220.
Tilboð
ÓSKAST I PAPPÍRSPOKA
til umbúða á sementi. Upplýsingar um gerð pokanna, gæði
þeirra og afgreiðslu má fá í skrifstofu sementsverk-
smiðju ríkisins Hafnarhvoli. Reykjavík.
NauðimgarHppboð
verður haldið að Melavöllum við Rauðagerði, hér í bæn-
um, fimmtudaginn 27. þessa mán. kl. 1,30 e.h.
Seldar verða eignir þrotabúsins Bær h.f., þar á meðal
alls konar trésmíðavélar og smíðatól, byggingavörur,
logsuðu- og rafsuðutæki, beltisdráttarvél, dieselldft-
pressa, víbratorar og bifreiðin R-8738.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.