Þjóðviljinn - 26.02.1958, Qupperneq 12
Mjólkurbúm ráðgera að hefja
i fjöibreytta mjólkurísgerð
Vilja með auknum iðnaði nýta betur
mjólkuríramleiðsluna í landinu.
Nýlega hafa mjólkurbúin á SuÖvestur- og Norðurlandi
, komið sér saman um að hefja framleiðslu og sölu á
rjóma- og mjólkurís.
í tilefni af þessu áttu Stefán
Björ.nsson forstjóri Mjólkursam-
sölunnar, Baldur Tryggvason
fulltrú: mjólkurbúanna á Norð-
urlandi og Oddur Magnússon
forstöðumaður mjólkurísfram-
leiðslunnar viðtal við frétta-
,me,nn og létu þeir í té eftirfar-
' andi upplýsingar.
mjólkurafurða í landinu. Hefur
Mjólkursamsalan á undanförn-
um árum framleitt alla mjólk-
urísblölndu í þann mjólkurís,
sem hér hefur verið seldur.
Hi.ns vegar hefur ófullkominn
vélakostur mjög háð bæði fjöl- j
breytni framleiðslunnar og gæð-
um.
Mjólkurbúin, sem að þessu
standa c/ru: Mjólkurbú Flóa-
manna, Mjó’kursamlag K.aupfé-
lags Borgf.'rðinga, Mjólkurstöð-
in í Reykjavík, Mjólkursamlag
Húnvetninga, Mjólkursamlag K.
E. A. og Mjólkursamlag Þijngíiy,-
inga.
Forráðamönnum mjólkuriðn-
aðarins hefur lengi verið ljóst,
lað framleiðsla og sala á rjóma-
og mjólkurís felur í sér mikla
möguleika á aukinni neyzlu
Undanfarin ár hefur Mjólkur-1
samsalan unnið að undirbúningi
ísgerðar sem væri búin íull-
komnustu tækjum til þess að
geta framleitt sambærilegan ís
að gæðum við það, sem gerist
bezt erlendis. Eru uppdrættir að
ísgerðinni þegar tilbúnir og
verður hún til húsa í Mjólkur-
stöðinni í Reykjavík. Vélar á
að kaupa frá Englandi og Dan-
mörku og liggur fyrir tilboð í
þær. Einnig hefur verið sólt
Framhald á 3. síðu
Þýzkir lagastúdentar dveljast hér í
boði Orators, félags laganema
í fyrradag komu þrír þýzkir laganemar hingað í boöi
Orators, félags laganema við Háskóla íslands; munu
þeir dveljast hér í þrjár vikur.
Þýzku laganemarnir eru Man- j
fred Illner frá Marburg, Jörn
Lamprecht frá Hamborg og Det-
lef Böckmann frá Múnchen.
Gagnkvæm
stúdentaskipti
Koma Þjóðverjanna hingað er
þáttur í stúdentaskjptum, sem
fara fram milli landssambands
háskólastúdenta í Þýzka sam-
bandslýðveldinu og Orators.
Munu fulltrúar félags laganema
fara í maí eða júní n.k. til
Þýzkalands og heimsækja m.
a. Bonn og Hamborg.
Þetta er í þriðja sinn sem
Orator gengst fyrir stúdenta-
skiptum. Ár'ð 1948 kom hingað
inorskur laganemi frá Oslóarhá-
skóla, en einn stúdent úr laga-
deildinni fór til Oslóar og dvald-
ist þar í sex vikur. Eft.r það
Caledonian Clnb
Skotlandsvinaíélag
heldur hér hljómleika á
vegum Tónlistarfélagsins
Skotlandsvinafélag var stofn-
að hér í bænuin 21. þ.m. og
heitir það Caledonian Club, en
|>að forna nafn Skotlands hafa
Skotar á slíkuni félögum livar-
vetna um lieim.
Stofnendur eru Skotar, flest-
ir búsettir hér í Reykjavík.
Tilgangur félagsins er að vinna
að hverjum þeim málum sem
geta orðið til aukinna kynna
og samskipta Skota og íslend-
inga. Islendingar sem á ein-
hvern hátt eru tengdir Skot-
landi eða hafa dvalið þar, geta
jgerzt félagsmenn.
Forseti félagsins var kosinn
er. Robert Jack. Formaður
Samuel Stuart Ritchie, ritari
frú Mabel Guðmundsson og
gjaldkeri frú Margaret Steina-
son.
varð langt hlé á stúdentaskipt-
um. Það várð ekki fyrr en vorið
1956, sem þriggja manna hóp-
ur lagastúdenta frá New York
háskóla kom til Reykjavíkur til
hálfsmánaðar dvalar. Skömmu
síðar fóru jafnmargir laganem-
ar héðan t.l Bandaríkjanna og
dvöldust þeir í New York og
Washington.
Stúdentaskipti þau, sem nú
standa yfir komust á fyrir milli-
göngu þýzka sendiráðs'ns hér.
Tilgangur þeirra er fyrst og
fremst að stuðla að gagnkvæm-
um kynnum háskólastúdenta af
ýmsum þjóðum og veita þeim
fræðslu um kennsiuháttu og
nám í háskólum annarra landa.
Þýzku lag'anemarnir munu
kynna sér margt er snertir ís-
ienzk lög, lagakennslu og félags-
líf lagastúdenta, en einnig mun
þe'm gefinn kostur á að ferðast
um landið eftir því sem veður
og fjárhagur leyfir.
Enn ein eldflaug
springur í USA
Bandarískt flugskeyti af:
gerðinni Navaho var reynt í til- '
raunastöðinni við Canaveral- j
höfða á Flórida í gær. Tilraun-
in mistókst. Skeytið lyftist að
vísu frá jörðu og komst all-
hátt, en lét ekki að stjórn og
var sprengt með fjarstýrðum
útbúnaði.
Soyétríkin og
Ceylon semja
I gær var undirritaður samn-
ingur milli Sovétríkjanna og
Ceylons. Sovétríkin veita Ceylon
142 milljón rublna lán (um 500
millj. kr.) til vörukaupa. Lán-
ið er með 2,5% vöxtum og end-
urgreiðist á 12 árum.
ðovuimii
Miðvikudagur 26. febrúar 1958 — 23. árgangur •—• 48. tölublað
Infii R. Jóliannsson varð
skákmeislari Reykjavíkur
Úrsiit í efsta flokki á Skákþingi Reykjavíkur urðu
þau, að Ingi R. Jöhannsson sigraöi og hélt titli sínum
Skákmeistari Reykjavíkur.
mm
Robert Mc Ferriu
Kunnur baritón-
söngvari frá
Metropolitan-
óperunni
Hingað til lands er kominn
einn af söngvurum hinnar
heimskunnu Metrópólitanóperu
í New York, baritónsöngvarinn
Robert McFerrin, og mun 'hann
halda þrjá tónleika hér í bæn-
um á vegum Tónlistarfélagsins.
Fyrstu tveir tónleikarnir verða
haldnir fyrir styrktarmeðlimi
félagsins í kvöld og annað
kvöld, en þriðju tónleikarnir
eru opinberir tónleikar og
munu fara fram á haugardaginn
kemur. Allir verða tónleikam-
ir i Austurbæjarbíói. — Nánar
verður sagt frá Robert Mc-
Fen-in á morgun.
Hlaut Ingi 9Vo vinning af
11 niögulegum. Hann vann 9
skákir, tapaði einni fyrir Stef-
áni Biiem og gerðí eitt jafn-
tefli, við Hauk Sveinsson.
í öðru sæti varð Stefán
Briem með 8*4 vinning. Hann
tapaði fyrir Ölafi Magnússyni
og Eggert Gilfer, en gerði jafn-
tefli við Jónas Þorvaldsson.
Stefán er aðeins 19 ára að
aldri og er nemandi í 6. bekk
Menntaskólans í Reykjavík.
Hann tefldi fyrst opinbei-lega
á Skákþingi Reykjavíkur 1957
og vann sig þá upp í 1. flokk.
Á síðasta Haustmóti T.R. vann
hann sig upp i meistaraflokk
og tefldi því nú í fyrsta sinn
i þeim flokki og með þessum
glæsilega árangri.
I þriðja sæti varð Ólafur
Magnússon með 8 vinninga.
Hann tapaði fyrir Inga og
Eggerti Gilfer og gerði jafn-
tefli við Kára og Gunnar Ól-
afsson. Ólafur er einnig aðeins
19 ára. Hatin vann sig upp í
meistaraflokk á Skákþingi
Reykjavikur 1957. Stóð sig vel
á síðasta Haustmóti T.R. og
náði nú 3. sæti á móti, sem
margir sterkir og reyndir skák-
menn tóku þátt í.
I fjórða sæti varð Jón Þor-
steinsson einnig með 8 vinn-
inga; en aðeins lægti að stigum
en Ólafur. Jón tapaði fyrir
Inga, Stefáni og Ólafi.
Keppendur úr 1. flokki voru
13 og af þeim flytjast tveir
efstu upp í meistaraflokk. Það
eru þeir Jón M. Guðmundsson
er hlaut 6*/■> vinning og var í
10. sæti og Jónas Þorvaldsson
er hlaut 6 viiminga og var í 12.
sæti. Þriðji í 1. flokki Varð
Bj"ra Þorsteinssön.
Stefán Briem og Ólafur
Magnússon öðlast nú rétt til
þátttöku i næstu landsliðs-
keppni, sem væntanlega verður
, háð um páskána.
1 2. flokki urðu úrslit þau,
að efstur varð Bragi Björns-
son með 9V2 vinning. 2. Árni
Framliald á 9. síðu
Manna Egilsdóttir syngur á
tónleikum í Berlin í marz
Nanna Egilsdóttir söngkona hefur dvalizt hér. á landi
um nokkurra vikna skeiö í orlofi sínu, en í dag heldur
hún utan til Þýzkalands, þar sem hún hefur starfaö
viö söngleikhús síöustu árin.
Meðan söngkonan dvaldist
hér að þessu sinni söng hún í
útvarpið með útvarpshljóm-
sveitinni undir stjórn Hans
Joachims Wunderlich; einnig
Nanna Egilsdóttir
söng 'hún íslenzk lög inn á
hljómplötur.
Eins og fyrr segir hefur
Nanna Egilsdóttir starfað í
Þýzkalandi „ um þriggja ára
skeið og einkum sungíð hjá út-
varpinu í Hamborg og óper-
ettuhúsinu þar. Síðan hún var
hér síðast, fyrir hálfu öðru ári,
hefur hún sungið víða í Þýzka-
landi utan' Hambbrgar og einn-
ig í Hollandi. Hefur frúin
einkum lagt stund á óþerettu-
söng og einnig sungið í óperam.
Af helztu óperettuhlutverkum,
sem Nanna Egilsdóttir hefur
farið með, má nefna hlutverk
í Vínarblóði, Sígaunabarónin-
inum og Nótt í Feneyjum eftir
Jóhann Strauss og Kátu ekkj-
uirni eftir Lehár. Af einstökum
óperum, sem frúin hefur sung-
ið x, rná nefna Margarethe eft-
ir Gounod og Brúðkaup Fígar-
ós eftir Mozart.
Naima Egilsdóttir mun í
næsta mánuði koma fram á
tónieikum í Berlín, bæði út-
varps- og hljómsveitartónleik-
um. Hljómsveitin, sem þá leik-
ur, er Das Berliner Orkester og
stjóraandi hennar góðkunningi
útvarpshlustenda hér, Wunder-
lich.
Blindbylur lakar
vegum í Englaiidi
Blíndbylur var í Englandi og
Waies i gær og fyrradag og
olli miklum vandræðum. Allt
að 5 metra djúpir skaflar lok-
uðu vegum og jámbrautum og
mörg héruð eru einangruð með
öllu frá umheiminum. Mikil
snjókoma hefur verið víða á
meginlandinu, en ahnars stað-
ar hláka og hætta á flóðum.
Ó s a n 9i a r
i vegnir
•Eftirfarandi tilkynning
barst blaðinu frá utanríkis-
ráðuneytinú:
Að gefnu tilefni lýsir ut-
anríkisráðuneytið því hér
með yfir að hvorki ráðu-
neytið né sendiráð Islands
í London hafa óskað þéss,
að afturkölluð yrði grein í
brezka tímaritinu „Fishing
News“ eftir fréttaritai'a þess
á Islandi.
Ummæli þess efnis, að
sendiráðið í London eða ut-
anríkisráðuneytið hafi beitt
þvingunum til að hindra
birtingu umræddrar greinar,
eru því með iöllu ósönn.
U tanrí kisráðuneytið,
Reykjavík, 25. febr. 1958.
Flugferðir milli
Loiidon og Moskva
I dag verður undirritaður í
London samningur milli brezka
flugfélagsins BEA og sovézka
félagsins Aeroflot um reglulegt
áætlunarflug milli London og
Moskva. Flugfélögin munu bæði
hafa flugvélar á þessari leið,
það brezka Viseountvélar, en
það sovézka TU-104.
Hollendingarná
aftur kanpfari
Hollenzkt herskip tók í gær
hollenzkt kaupfar sem indónes-
ís'ka stjórnin hafði lagt hald á
og fór með það til hollenzku
Nýju Guineu. Indónesískir her-
menn voru um borð í kaupfar-
inu og vörðust, en voru fljót-
lega afvopnaðir.
Argentínski ökukappinn Ju-
an Fangio sem uppreisnarmenn
á Kúbu rændu í Havana á
fimmtudaginn var látinn laus í
gær. Hann lét hið bezta af vist-
inni hjá þeim.