Þjóðviljinn - 04.03.1958, Síða 7
Þriðjudagur 4. marz 1958
ÞJÓÐVILJINN
(7
Tillaga Pólverja um svæði
án kjarnorku- og vetnisvopna
í Mið-Evrópu hefur vakið hina
mestu athygli og umræður, og
er talið að hún muni verða eitt
helzta umræðuefnið á fundi
æðstu manna. Tékkar og Aust-
urþjóðverjar hafa þegar fyrir
sitt leyti lýst stuðningi við hug-
myndina, og 19. febrúar s.l.
birti stjóm Sovétríkjanna yfir-
lýsingu sína um málið. Gerðist
það á fundi sem L. F. Iljitséff
forstjóri blaðadeildar utanríkis-
ráðuneytisins, átti með innlend-
um og erlendum fréttamönnum.
Fer yfirlýsingin hér á eftir:
„Ekkert myndi nú á dögum
vera líklegra til að glæða vonir
mannkynsins um friðsamlega
framtíð en það, ef takast mætti
að koma á banni við kjamorku-
og vetnisvopnum og tryggja, að
kjarnorkan yrði notuð einungis
í friðsamlegum tilgangi, einung-
is þjóðum til nytsemdar. Af
þessum sökum hafa Ráðstjórn-
arríkin barizt statt og stöðugt
í meira en áratug fyrir því, að
þessum óskum og vonum mann-
kynsins mætti verða fullnægt.
Því miður hafa Bandaríkin og
Bretland, tvö stórveldi, sem
hafa kjarnorkuvopn í vígbúnaði
sípum, ekki viljað fallast á slík-
ar róttækar ráðstafanir um
bann á kjarnorku- og vetnis-
vopnum og útrýmingu þeirra úr
vopnabúnaði þjóðanna. Þau
vilja getað notað sér þessi múg-
morðstæki sem nokkurs konar
„grýlu“ í því skyni að koma
fram pólitískum tilgangi sínum.
í þessari háskalegu sjálfsblekk-
ingu sinni hafna vesturveldin
meira að segja tillögum til sam-
komulags um að hætta tilraun-
um með kjarnorkuvopn.
Það er þó engum vafa bundið,
að þjóðir heimsins eru fjarri
því að vilja gjalda jákvæði við
kj arnorkuvígbúnaðarkeppninni,
sem grundvallast á þeirri stjóm-
málastefnu að hóta ofbeldi, sem
sé að ógna gagnaðilanum með
kjarnorku- og vetnissprengjum.
Þær gerast einmitt æ ein-
Yfirlýsiztg RáðstJ ónttirÍMar
um sérstakt svæði í Mið-Evrópu,
þar sem bönnuð yrði framleiðsla og staðsetning
kjarnorkusprengna og vetnisvopna
strengnari í kröfum sínum um
það, að endir sé bundinn á víg-
búnaðarkeppnina, ekki sízt
keppnina um framleiðslu kjarn-
orkuvopna, og að af sé létt
hættunni á kjamorkustyrjöld,
sem yfir heiminum vofir. Þessi
þróun kemur greinilega fram í
almennum stuðningi manna við
hugmyndina um svæði án
kjarnorku- og vetnisvopna í
Mið-Evrópu, en tillaga um þetta
var borin fram af stjóm pólska
alþýðulýðveldisins á 12. alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna. Tillagan er þess efnis, að
vilji báðar þýzku ríkisstjórnirn-
ar fallast á að banna fram-
leiðslu og staðsetningu kjam-
orku- og vetnisvopna á yfirráða-
svæði sínu, þá sé pólska stjómin
fús til að fallast á sams konar
fyrirkomulag, að því er Pólland
varðar.
Stjóm Tékkóslóvakíu lýsti nú
yfir því, að hún væri reiðubúin
að leggja sitt af mörkum til að
draga úr viðsjám á alþjóða-
vettvangi með því að fallast á
tillögu pólsku stjórnarinnar og
skuldbinda sig til að leyfa
hvorki framleiðslu né staðsetn-’?
ingu kjamorku- og vetnisvopna
á yfirráðasvæði sínu, að því til-
skyldu að rískisstjómir beggja
hluta Þýzkalands skuldbyndu
sig til hins sama, að því er
þeirra yfirráðasvæði varðar. j
Stjórn austurþýzka lýðveldis-
ins lýsti yfir því, að henni væru
þessar tiUögur Póllands og |
Tékkóslóvakíu hið mesta fagn-
aðarefni. Hún Tét það álit sitt
í Ijósi við forseta 12. allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna, að
þéssar tillögur pólska lýðveldis-
ins og hins tékkneska væru
tvímælalaust fram bornar í
þeim tilgangi að firra Evrópu-
þjóðir hættunni af kjarnorku-
styrjöld, með því að þær gerðu
ráð fyrir samkomulagi um
breitt belti lands í álfunni, þar
sem engin kjarnorku- eða vetn-
isvopn yrðu leyfð.
Ráðstjórnin hefur hvað eftir
annað lýst yfir fullum stuðningi
sínum við þessa tillögu um belti
í Mið-Evrópu, þar sem bönnuð
yrði framleiðsla og staðsetning
kjarnorku- og vetnisvopna.
Framkvæmd þessarar hug-
myndar myndi auðvelda frekari
ráðstafanir í þá átt að afstýra
kjarnorkustríðshættunni, og
bæri að skoða þetta sem mikils-
vert framlag til þess að tryggja
frið í miðhluta Norðurálfu, sem
eitt þeirra landsvæða, þar sem
hættan er einna mest, þar sem
hersveitir Atlantshafsblakkar-
innar og Varsjársáttmálans
standa öndverðar og þar sem
er meiri samdráttur liðssveita
og hvers kyns hergagna en
venjulegt er á friðartímum.
Samkomulag um slíkt svæði
án kjarnorkuvopna í Evrópu
kæmi heim við grundvallar-
hagsmuni allra Evrópuþjóða.
Það er vitað, að þjóðir þessar
hafa miklar áhyggjur af hætt-
unni á styrjöld, þar sem beitt
yrði kjarnorku- og vetnisvopn-
um, og gera sér ljósar afleiðing-
ar þess, að slíkum vopnum yrði
beitt, ekki sízt fyrir hinar þétt-
þýlu byggðir Evrópu.
Frarpkvæmd þessarar. tillögw
myndi stuðla að bættu sam-
komulagi á alþjóðavettvangi og
auðvelda aðrar róttækari ráð-
stafanir bæði í afvopnunarmál-
um ög að því er varðar lausn
annarra alþjóðavandamála.
Ráðstjórnin fagnar og veitir
fyllsta stuðning þessum tillög-
um um bann við framleiðslu og
staðsetningu kjarnorku- og
vetnisvopna í fyrrgreindum
löndum, er ganga myndi í gildi,
ef stjórn þýzka sambandslýð-
veldisins vildi: fallast á slíka
skuldbindingii fyrir sitt leyti
og gera þar mgð £ært að stofna
Athyglisverð sýning — Vísubotnar.
SVIPALL skrifar: —
„Ég skoðaði sýningu Sigurðar
Guðmundssonar málara í gær-
kvöldi. — Mér þótti hún svo
athyglisverð að mér datt í
huga að skrifa um hana
nokkur orð, sérstaklega í þeim
tilgangi að hvotja fólk til þess
að sjá sýninguna. Margt má
sjá þarna vel gert eftir Sig-
urð málara, þótt teikningar
hans af ýmsum þjóðkunnum
mönnum beri þar af, ásamt
nokkrum olíumálverkum, sem
skara fram úr að snilld. Eink-
anlega myndirnar af séra
Arnljóti ölafssyni, Jóni Aðal-
steini og Steingrími Thor-
steinssyni. Það er sama hvort
heldur maður lítur á hárið,
vangann eða hendurnar. Það
er eins og maður sjái þar lif-
andi menn, en ekki myndir.
Ég minnist þess ekki að hafa
séð svo vel málaðar manns-
hendur, æðamar sjást greini-
lega á handarbakinu og fing-
urnir eru eins og á lifandi
mannshendi —. Litaspil og
líf í myndum Sigurðar minnir
á málverk eftir hollenzka
málarann Rembrandt, og
Spánverjann Goya, sem var.
frægur málari f. 1746 — d.
1828. Sigurður málari var
einn af þeim listamönnum,
sem varð að berjast við
skilningsleysi samtíðar sinnar
og hafði því aldrei skilyrði
til þess að sýna það sem í
honum bjó, en verk hans sýna
þrátt fyrir það hver snilling-
ur hann var og hvílíkan á-
huga hann hafði á öllum
þjóðlegum menningarverð-
mætum þjóðar sinnar.
Svipall".
★
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON,
málari, var tvímælalaust hinn
merkasti maður og brautryðj-
andi á ýmsum sviðum. Þótt
mig bresti þekkingu til að
dæma málverk hans og teikn-
ingar, þá virðist mér sýning-
in, sem Svipall segir frá, vera
falleg ræktarsemi við minn-
ingu hans. Þótt Sigurður væri
misskilinn af samtíð sinni, þá
hefúr þó sumum samferða-
mönnum hans fundizt ærinn
mannskaði, er hann féll frá.
Fyrsta erindið í eftirmæl-
um Steingrims Thorsteinsson-
Framhald á 10. síðu.
Núverandi stjórn Málarafélags Reykjavíkur. Aftari röð talið
frá vinstri: Halldór Gíslason ritari stjórnar, Grímur Guðmunds-
son gjaldkeri, Matthías Ólafsson ritari félagsins. Fremri röð:
Hjálmar Jónsson varaform., og Lárus Bjarnfreðsson form
til samkomulags «um,, ákvcðið
svæði í miðbiki álfunnar, þar
sem ekki yrði leyfð staðsetning
kjarnorkuvopna og tundur-
flauga. Þetta væri ekki sízt
hagsmunamál þýzku þjóðarinn-
ar sjálfrar, því að ekki getur
hjá því farið, að henni sé á-
hugamál að stuðla að þvi að nf-
stýra hættunni á þeirri tortím-
ingu, er kjarnorkustyrjöld
myndi hafa í för með sér.
Ráðstjórnin telur, að um leið
og komið yrði á slíku svæði í
Mið-Evrópu, þar sem bannað
yrði að framleiða og staðsetja
kjarnorku- og vetnisvopn svo og
tundurflaugar, og jafnframt
þ°im ráðstöfum’m, er þjóðirnar
á þessu svæði hiytu að gera í
því eini, yrffu ríki þau, er hafa
kjarncrku- og tundurflauga-
vopn. í herbúnaði sínum, að
gangast undir hátíðlega skuhl-
bindingu þess eifnis, að þau
myndu virða þessa skipan fyrr-
nefnds landsvæðis og líta á það
sem friðheilagt svæði að því er
varðar kjamorku- og vetnis-
vopn svo og tundurflaugavopn.
Samkvæmt því yrði ríkjum
þessum óheimilt að búa her-
sveitir sínar eða annarra á land-
svæðum þessum kjarnorku- eða
tundurflaugavopnum eða af-
henda slík vopn stjórnum land-
anna á þessu svæði eða liðs-
sveitum undir stjórn hernaðar-
hópa, er þar kynnu að hafa að
setur, og eins yrði ó.heimilt að
koma upp hverskyns stöðvum
eða birgðum, er kjarnorkuvopn-
um þjóna, svo og útbúnaði til
að skjóta á loft tundurflaugum.
Ráðstjómin Iýsir hér með
yfir því, að þangað til náðst
hefði samkomulag um fullkom-
ið bann við kjarnorku- og vetn-
isvopnum og brottnám þeirra
úr vopnabúnaði allra þjóða,
myndu Ráðsljómarríkin vera
fús til að gangast undir fyrr-
nefndar skuldbindingar, að því
tilskildu, að stjórnir Bandarikj-
anna, Bretlands og Frakklands
gerðu slíkt hið sama.
Ríkisstjórn Ráðstjórnarríkj-
anna lætur í ljós þá von sína,
að stjórnir allra þeirra ríkja, er
eiga kjarnorku og tundurflauga-
vopn, svo og stjórn þýzka
sambandslýðveldisins, muni
meta þetta mannúðarmál að
verðleikum, taka þátt i að
framkvæma það og stuðla þar
með að því, að endir megi verða
bundinn á það vitfirrta athæfi,
sem stefnir að því að steypa
heiminum út í gereyðingu
kjarnorkustyrjaldar."
Málarcziélag Reykjavíkur
30 ára
Málarafélag Reykjavíkur var
stofnað 4. marz 1928 í Iðn-
skólahúsinu í Reykjavík. Stofn-
endur félagsins voru 16 að
tölu.
Fyrsta stjóm félagsins var
skipuð eftirtöldum mönnum:
Albert Erlingsson formaður,
Ágúst Hákonsen féhirðir, Hörð-
ur Jóhannesson ritari. Vara-
menn: Óskar Jóhannsson, Ge-
org Vilhjálmsson og Þorbjörn
Þórðarson.
Bráðlega tókust samningar
við Málarameistarafélagið, sem
stofnað var um líkt leyti og
var kaup málarasve'na þá á-
kveðið kr. 1.60 á klukkustund.
1935 fékk félagið i fyrsta
sinn mann í prófnefnd og er
Kristján Guðlaugsson fulltrúi
félagsins í nefndinni.
Félagið á e.'nn mann í Iðn-
ráði, það sæti skipar Þorsteinn
B. Jónsson.
1937 stóð félagið að stofnun
Sveinasambands bygginga-
manna ásamt öðrum iðnsve.na-
félögum í byggingaiðnaði. Til-
gangurinn með þeirri sam-
bandsstofnun var að treysta
samtökin og vernda vjnnurétt-
indi félaganna,
1947 gekk félagið í Alþýðu-
samband íslands og stóð við
hlið annarra verkalýðsfélaga í
verkfallsátökunum' miklu 1952
og 1955. Félagið hefur háð
þrjú önnur verkföll.
Félagið hefur komið sér upp
nokkrum sjóðum. Eru það
Vinnudeilusjóður, Ekkna- og
minningasjóður, Fræðslu- og
menningarsjóður og Sjúkra-
styrktarsjóður.
1954 samdi Málarafélagið við
, málarameistara um að tekin
skyldi uþp ákvséðisvjnna fyrir
málarastéttjna. í verðskrár-
nefnd Málarafélagsins eiga
sæti: Kristján Guðlaugsson,
sem hefur unnið þar geysimik-
ið starf fyrir félag ð og stétt-
ina í heild, í nefndinni eru
einnig Halldór Gísláson og
Karl Filbert Jóhannsson.
Eftirtaldir menn hafa verið
formenn félagsins á síðastliðn-
um 30 árum: Albert Erlingsson,
Kjartan Stefánsson, Jón Ág-
ústsson, Björn Björnsson, Jón
B. Jónsson, Ásbjörn Ó. Jóns-
son, Sæmundur Sigurðsson,
Magnús B. Hannesson, Gunnar
Leó Þorsteinsson, Guðjón
Kristinsson, Hannes Kr. Hann-
esson, Þorsteinn B. Jónsson,
Kristján Guðlaugsson og Lárus
Bjamfreðsson.
Félagið minnist afmælisins
með hófi í Silfurtunglinu föstu-
daginn 7. þ. m.