Þjóðviljinn - 09.04.1958, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 09.04.1958, Qupperneq 7
Miðvikudagur 9. úpríl 1958 —. ÞJÓÐVILJINN — (7 I sjónleiknum nýja beinir Agnar Þórðarson athj-gli sinni að vandkvæðum hins reyk- víska smáborgara á okkar dögum — litla mannsins sem unir ekki hlutskipti sínu, en þráir eitthvað fullkomnara og hærra: listsköpun og algert frelsi. Stefán heitir hann og tekst að verða fulltrúi í banka, en segir upp stöðunni, hleypur á brott frá konu og kjörsyni, og hverfur niður í Hafnarstræti í leit að sann- ara, auðugra og frjálsara lífi. En hann er engin hetja, held- ur kvalinn af efasemdum og samvizkubiti; honum þýðir ekki að reyna að komast und- an, situr rígfastur í snörunni og getur enga björg sér veitt. Sá er mestur ókostur leiks- ins að söguhetja þessi er næsta torkennileg og undar- leg af hendi skáldsins, búin svo andhverfum og gagn- stæðum eiginleikum að á hana er torvelt að tnia. Stefán virðist gæflyndur og gegn maður, starfshæfur og mjög reglusamur, en er engu að síður svo einkennilega barna- legur og starblindur á allt sitt umhverfi að gengur sturlun næst. Hann er haldinn þeirri óskiljanlegu firru að inn lýst lítilmótiegu fólki, en persónur „Gauksklukkunnar" eru þó öllum öðrum auðvirði- legri, sumar illa innrættar, aðrar furðulega iítið gefnar. Það er að sjálfsögðu lofsvert og heilsusamlegt er skáld sýna samtíðarmönnum galla Þjóðleikhúsið: Gauksklukkan efthr AGNAR ÞÓRÐARSON Leikstjóri: Lárus Pálsson æskuvinur hans, auðnuleysing- inn Ármann, sé frábært tón- skáld og sannur snillingur, en náungi þessi er alger kjáni, ræfill og gortari og til einskis nýtur. Stefán þráir það eitt að þjóna undir hann og fóma honum öllu, f jármunum, tíma, stöðu og heimilisfriði, um það snúast öll átök í leiknum. En fyrir bragðið er hann í fáu fulltrúi stéttar sinnar eða neinnar þeirrar manngerðar Sem við þekkjum, vandkvæði hans snerta okkur ekki, við fáum alls ekki þá samúð með honum sem höfundurinn ætl- ast til. ,,Gauksklukkan“ er í meg- inatriðum alvarlegt leikrit sem kallað er, en skáldið gleymir þé alvöruhni þegar svo ber undir, og áreiðanlega vitandi vits. Margt af því fólki sem fyrir augun ber á hvergi betur heima en í ósviknum grínleikjum, hnittilegar og ýktar en lifandi persónur, og um sumt svipaðar þeim sem við höfum kynnzt í alkunnum og vinsælum verkum Agnars, bæði í útvarpi og á sviði. Um sum atvikin gegnir líku máli, og á stöku stað vitnar skáld- ið í nýlega atburði úr bæjar- lífinu að fornum hætti. Leik- stjórinn fer rétta leið að mínu viti, og lætur skopið njóta sín sem bezt má verða, og því var ekki ósjaldan hiegið á frum- sýningunni á miðvikudags- kvöldið var, þrátt fyrir sorg- arsögu bankafulltrúans og sálarkvalir; háð eða græsku- laust gaman lætur Agnari bezt, grínleikurinn er sérgrein hans. — Oft hefur höfundur- þeirra í spegli, en hóf samt bezt í hverjum hlutj hér er ekki einu sinni hlíft tengda- föður söguhetjunnar sem þó er látinn fyrir löngu. Sjálft snið sjónleiksins er athyglisvert og nýstárlegt á íslenzkan mælikvarða, en hann gerist á tvískiptu sviði. Fram- sviðið er sóðaleg kaffistofa niður við höfn, þar situr Stef- í annan stað veldur fólkið á knæpunni, róninn Natan og ástandsstúlkan Finna, engu um örlög og líf Stefáns, þau skapa á sinn hátt hugblæinn í leikritinu, en eru ekki dramatísk í neinu. Og fyrir kemur að tengslin milli svið- anna tveggja séu í hæpnasta lagi, þrátt fyrir mikla hug- kvæmni leikstjórans; á einum samskeytunum kallar kona Stefáns nafn hans ekki sjaldn- ar en fimmtán sinnum, svo dæmi sé nefnt. Ýmislegt er vel um „Gauks- lsíukkuna“ þrátt fyrir allt, hnittileg tilsvör, einstaka kát- leg atvik og skarpskyggni á bresti samtímans, og þeir kostir munu engum á óvart koma. Agnar Þórðarson er sem fyr maður sins tíma, það dylst hvergi. Leikhúsið hefur gert „Gauks- klukkuna“ vel úr garði. Leik- stjórinn Lárus Pálsson hefur sýnilega lagt mikla alúð við starf sitt, heflað af sjónleikn- um ýmsa agnúa, búið honum af smekkvísi það reykvíska andrúmsloft sem honum sæm- ir. Sviðsmyndimar eru gerðar af ærnum hagleik og Lothari Herdís Þorvaldsdóttir, Kryndís Pétursdóttir, Ævar Kvaran. án bankamaður, bíður vinar- ins eina og þylur raunir sínar. Á aftursviði er heimili þeirra hjóna, og þar birtast ýmsar myndir frá síðustu árum sögu- hetjunnar, og em höfuðatriði leiksins. Tvískipting þessi - skapar tilbreytingu og hreyf- . ingu, en virðist alls eigi knýjandi listræn eða leikræn nauðsyn. Allir gerast atburð- irnir á sk"mmum tíma, og hefði auðveldlega mátt skipa þeim með venjulegum hætti; *s«r«**- • *' Grund til sóma, ltaffistofan eins ömurleg og á verður kosið, og vistarverur fulltrúa- hjónanna skemmtilega ólíkar: gamaldags leiguhúsnæði og eigin ibúð í nýju bæjarhverfi. Um ieikendurna get ég verið fáorður — þeir leika allir trú- lega og samvizkusamlega, samtaka og jafnvígir í flestu; sýningin ber góðan heildar- svip. Við miklum leikafrekum er ekki að búast, en .leikend- urnir gerþekkja hlutyerk sín i og umhverfi, veitist auðvelt að lýsa hinu reykvíska hvers- dagsfólki, Undantekning er aðalpersónan sjálf, Stefán bankamaður,' eins og áður er sagt, það er ógerningur að skapa heilsteypta mannlýs- ingu úr slíku efni. Hélgi Skúlason berst sánnarlega hinni góðu'! baráttu, léikur jafnan skýrt ög skilmérkilega, reynir að hylja ■ þverbreatina eftir föngum, gerir Stefán eins geðfeldan og mannlegan og efni standa framast til. Hann er inni á sviðinu leikinn á enda að heita rpá; túlkun Helga er nýtt vitni um fjöl- hæfni og þrótt hins unga leik- ara. Hlutur Herdísar Þorvalds- dóttur er auðveldari, þótt kona Stefáns sé að vísu ekki heilbrigð í öllu. Hún er fram- ar öllu smáborgaraleg, ráðrík og eigingjörn, og þeim eigin- leikum lýsir Herdís á eðli- legan og lifandi hátt, og á- gæta vel tekst hehni að túlka yfirborðsauðmýlct hennar í lokin. Ævar Kvaran dregur upp hnittilega og skemmti- lega mynd lakkrísframleiðand- ans bróður hennar, við könn- umst mætavel við þennan glaðklakkalega, þriflega og grunnfærna náunga; og vel tekst Bryndísi Pétursdóttur að gera konuna hans í senn mjög laglega, hégómlega og næstum ótrúlega hemska. Hjú þessi eru kátbroslégustu persónur leiksins ás'ámt bankastjórahjónunum, Val Gíslasyni og Önnu Guðmirids- dóttur. Fornfálegt- útlit Vals, látbragð og málfar hæfa prýðilega þossum steini gerða sérvitringi; frúin er ef til vill of glannalega rauðliærð, en Anna lýsir hinni hvimieiðu manngerð af mikilli nákvæmni og hlífir henni ekki i neinu. Benedikt Árnason leikur gervitónskáldið Ármann lát- laust og skapfellilega og ýkir favu r:, þ?5 cr écvihinn auðnu- leysisbragur á honum, ekki sízt í lokin. Og laglegur er hann — ef til vill getur það í emhverju skýrt fárániega oftrú Stefáns á þessum manni. Jón Aðils er róninn og ómenn- ið Natan, og sannari fulltrúa Hafnarstrætis mun torveit að skapa. Hann þarf ekki annað en birtast á knæpunni, þá er loftið mettað; og af ásjónu hans, klæðaburði, svipbrigðum og orðum leggur óþef út í salinn. Lagskona Natans er líka eðlileg og skýr í meðför- um Helgu Bachmann, það érj Finna, hin hálfsturlaða á- standsstúlka sem dregizt hef- ur niður í svaðið, en býr þó yfir fomum þokka. Helga leik- ur af tilfinningu og þrótti, en óska vil ég hinni ungu og gáfuðu leikkonu geðfeldari hlutverka. Gömlu konuna tengdamóður Stefáns leikur Amdís Bjömsdóttir látlaust og fallega; loks er Eiríkur Öm Amarson barnið á heim- ilinu og gerir ótvírætt skyldu sína. Frá hlýjum viðt"kum leik- gesta er áður skýrt í blöðum og verður að nægja. — Sagt er að stundum dotti hinn góði Hómer, og vart mun „Gauks- klukkan“ verða til þiess að auka hróður Agnars Þórðar- sonar, en ekki mun hún held- ur í neinu skerða rótgrónar vinsældir hans. „Agnar hefur bæði til að bera dirfsku og aga, hugkvæmni og kunnáttu til að skapa leikrit“, segir dr. Steingrímur J. Þorsteinsson í ágætri grein í leikskrá, við bíðum með eftirvæntingu nýrra leikrænna verka af hendi hans. A. Hj. Iþróftir Framhald af 9. síðu glæsileg íþrótt og að þessu sinni dró stökkið íil sín ekki færri en 2500—3000 áhorf- endur. Úrslit í stökkinn urðu: Skarphéðinn Guðnmndsson, Siglufirði 39,5—41,0 233,0 st Jón Þorsteinsson Siglufirði .35',0 -.35.5 206,2 st Jónas Ásgeirsson Siglufirði 35.(1 36.0 205.2 st Sveinn Sveinssoh Siglufirði 33.5 -34.5 202.9 st Guðmunaur Árnason Siglufirði 34.0 -3 ',0 200.9 st Einar Valur Kristjánsson Ólafsfirði 34.5—36.0 183.7 st Norræn tvíkeppni Eftir gönguna í kepþni þess- ari höfðu þeir Matihías Gests- son og Haraldur Bálsson jafn- an stigafjölda j þeirra er til stökkkepþninnar koinu,: Sveinn Sveinsson hafði 7.5 stigum rninna, en hér voru það stökk- in sem komu Sveini að góðu haldi, og þar hafði hann yfir- burði. Úrslit urðu þessi: Sveinn Sveinsson SSS Ganga stökk stig 231,5 226.5 458.0 Haraldur Pálsson Rvk. Ganga stökk stig 239.9 205.1 445.0 Matthías Gesísson SRA Ganga st.ökk stig 239.9 194,0 433.9 Sveinn Jakobsson IBK Ganga stökk stig 180,7 189,8 370,5 í aldursflokki 17—19 ára voru aðeins 2 í tvíkeppninni annar úr Rpykjavík og hinn frá Siglu- firði. Úrslit í þessurn flokki urðu: Bogi Nilsson Rvk. Ganga stökk stig 229.9 211,4 441,3 Örn Herbertsson SSS .Ganga stökk stig 239,0 184.6 423.6

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.