Þjóðviljinn - 11.09.1958, Qupperneq 9
Fimmtudagur 11. september 1958 — ÞJÖÐVILJINN — (9
ÍNtÖTTlR
tnrsTJOKh nitiAnn niicjcsan
I— iiii. n. i. ii —i—
Dómarinn var sýkn-
aður af ákæru Vals
Keppni í frjálsum íþróttum
á Akureyri á sunnudag
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að störf knattspyrnu-
dómara eru vanþakklát og að
þeir verða oft fyrir aðkasti á-
horfenda og leikmanna, stund-
um að ástæðulausu og stundum
ekki. Stundum af því að á-
horfendur hafa ekki næga
þekkingu á knattspyrnuiögun-
um og túlkun þeirra. Stundum
er það vegna þess að dómarar
eru ekki í nógu góðrí æfingu
til að dæma, og hafa ekki tekið
nógu lengi þátt í leiknum sjálf-
um og þekkja hann því ekki
eins og æskilegt er. En hvað
um það, dómarinn verður að
hafa frið til að sinna stíirfi.
sínu meðan á leik stendur og
það er eitt af lalutverkum hans
að halda uppi aga i þeim leik
sem hann dæmir. Leikmenn
eiga líka að vita, að þeir hafa
ekki leyfi til að gagnrýna dóm-
arann og ávarpa hann 'ókur-
teislega á leikvelli, og er það
eðlileg og ágæt regla. Vegna
þessa lenda dómarar oft í hálf-
gerðum illdeilum og mála-
rekstri utan vallar.
Eitt slíkt mál hefur fyrir
nokkru hlotið afgreiðslu sér-
ráðsdómstóls KiRR, og hefur
Knattspyrnudómarafélag Rvik-
nr sent Iþróttasíðunni útdrátt
úr málasatvikum og óskað þess
að það væri birt, og fer það
hér á eftir:
Knattspyrnufélagið Valur
gegn Guðbirni Jónssyni.
Sunnudaginn 15. sept. 1957
fór fram'leikur milli Vals og
Fram sem var einn liður í
haustmóti m. fl. Mættur var
þar dómarinn Guðbjörn Jóns-
son, ásamt tveim línuvörðum.
1 fyrrgreindum leik varð dóm-
arinn fyrir miklum óþægindum
af hálfu leikmanna Vals en
það leiddi til þess að hann varð
að nota. vald sitt, sem leyfir
honum, ef hann telur með
þurfa, að vísa leikmönnum af
leikvelli. Var þrem leikmönn-
um frá Val vikið af leikvelli,
og aðrir tveir hlutu áminningu,
einnig hlutu tveir leikmenn frá
Fram áminningu.
Þetta hafði í för með sér
miður heppilegar blaðagreinar
í garð dómarans, þó sérstak-
lega í tveim dagblöðum borg-
arinnar, og einnig sýndu áhorf-
endur almennt mjög mikla ó-
kurteisi í garð dómarans með
miður heppilegu orðbragði, og
einnig með því að gera aðsúg
að herbergi þvi er K.D.R. hefur
afnot af á íþróttavellinum.
Dómur hefur nú fyrir
skömmu fjallað um mál þetta,
og allir þeir er ákærðir voru
af hálfu dómara játuðu sekt
sína með því að staðfesta
skýrslu. dómarans í málinu.
Mál þetta var tekið fyrir af
sérráðsdómi K.R.R. miðviku-
daginn 5. marz 1958. Málið er
nr. 9 1958.
Birting dómsskjala drógst
dálitið, en þau eru sjö vélrit-
aðar arkir.
Dómsorð eru sem hér segir:
Knattsþymuleikurinn Fram-
— Valur sem fram fór 15. sept.
1957 í haustmóti meistarafl.
skal gildur' og úrslit hans
standa óbreytt. Dómarinn Guð-
björn Jónsson skal sýkn vera
af ákæru Knattspyrnufélagsins
Vals. (Kn.fél. Valur kærði
leikinn og óskaði eftir að hann
dæmdist ólöglegur og dómar-
inn yrði víttur).
Gunnar Gunnarsson leikmað-
ur Vals skal vittur fyrir fram-
komu s!na í ofannefndum leik.
(Sbr. 8. gr. tl. 2 dóms- og
refsiákvæða Í.S.Í.). Halldór
Halldórsson (sbr. 12. gr. liður
L og 12. gr. liður O. Knattsp,-
lög K.S.Í.) og Magnús Snæ-
björnsson (sbr. 8. gr. tl. 1
dóms- og refsiákvæða Í.S.Í.)
— leikmenn Vals skulu sæta
áminningu fvrir framkomu
sina í ofangreindum leik.
Áminningar veittar Björgvin
Daníelssyni Val, Birni Júlíus-
syni Val, Guðmundi Guðmunds-
syni Fram og Dagbjarti Gríms-
syni Fram á leikvelli af dóm-
ara, skulu teljast þeim næg
refsing fyrir framkomu sína 5
ofannefndum kappleik."
Eins og fram kemur í dóms-
orðum gat Sérráðsdómurinn
ekki fallizt á kröfu Vals, þar
sem ekkert kom fram er bryti
í bága við Knattspymulög K.
S.í. og Reglugerð K.S.Í. um
knattspyrnumót, og að aðgerð-
ir dómarans til að halda aga í
leiknum hafa verið byggðar á
ákvæðum Knáttspyrnulaga K.
S.í.
Að lokum leyfum vér oss að
birta eftirfarandi úr niðurstöðu
Sérráðsdómsins:
Dómarinn var beðinn að
upplýsa, hvern hann skoðaði
sem fyrirliða á leikvelli og
hver væri aðalreglan.
Kvað hann fyrirliða vera
þann sem kysi mark í upphafi
leiks. Skv. leikreglum skal fyr-
irliðj koma með leikskýrslu til
dómarans fyrir leik, en sá hátt-
ur er ekki viðhafður.
Gunnar Guhnarsson kaus
mark í upphafi leiks.
Halldór Halldórsson upplýsti
að hann hefði ekki skrifað nafn
sitt undir leikskýrsluna lieldur
hafi einhver félagi úr Val fyllt
skýrsluna út og skrifað ,,Hall-
dór Halldórsson" fyrir sig.
Eftir niðurstöðum dóms var
Gunnar Gunnarsson fyrirliði
Vals á leikvelli í þessum leik.
í Sérráðsdómi K.R.R. eiga
sæti eftirtaldir menn. Hjörtur
Hjartarson, Ari Jónsson og
Sveinn Helgason.
Með uppkvaðningu dóms þessa
vill stjórn K.D.R. vekja athygli
á að allur sá orðrómur er barst
um borgina í sambandi við
störf dómarans og einnig línu-
varða í ofangreindum leik er
ómerkur, og þær niðrandi
blaðagreinar er birtar voru, al-
gerlega úr lausu lofti gripnar.
F.h. K.D.R. Virðingarfyllst.
Grétar Norðfjörð.
ÞINGEYSKUR bóndi skrifar:
„Þegar hlé virðist vera a
vitissprengjukasti Bandaríkj-
anna, auglýsa Bretar að þeir
ætli að taka til á ný, og til-
kynna siglingabann á svo og
svo stóru svæði. Það virðist
eins og þeir hafi allt í einu
gleymt frelsinu á úthafinu,
sem þeim er svo hjartfólgið í
sambandi við útfærslu fisk-
veiðilögsögu við ísland. Það
skyldi þó aldrei vera að þeim
sé hjartfólgnari aðstaða til
rána frá sér minni máttar,
en hið raunverulega frelsi?
Hin árlega keppni i frjálsum
íþróttum milli íþróttabanda-
lags Keflavíkur, íþróttabanda-
lags Akureyrar, Ungmenna-
sambands Kjalarnesþings, Ung-
mennasambands Eyjafjarðar,
fór fram á Akureyri sunnudag-
inn 7. sept. 3.1. í góðu veðri.
Keppt var í 10 greinum og
voru tveir keppendur frá hvor-
um aðila í hverri grein. Helztu
úrslit urðu þessi:
100 m hlaup:
1. Höskuldur Karlss. ÍBK 11,1
2. Þóroddur Jóhs. UMSE 11,3
3. Bjðrn Sveinsson ÍBA 55,6
4. Birgir Hermánnss. ÍBA 12,0
400 m hlaup:
1. Jón Gíslason UMSE 53,3
2. Guðm. Þorsteinss. ÍBA 53,3
3. Bragi Hjartarson ÍBA 55,6
4. Stefán Árnason UMSE 55,8
1500 m hlaup:
1. Jón Gíslason UMSE 4:21,3
2. Stefán Árnas. UMSE 4:21,9
3. Guðm. Þorst.s. ÍBA 4:21,9
4. Steinn Karlsson ÍBA 4:35,0
4x100 m boðhlaup;
1. Sveit ÍBA 46.2
2. Sveit UMSE 47,0
3. Sveit ÍBK 47,7
4. Sveit UMSK 48,4
Kúluvarp:
1. Gestur Guðm.s. UMSE 13,72
2. Þóroddur Jóh.s. UMSE 13,48
3. Halldór Halldórs. ÍBK 13,07
Og svo er verknaðurinn: vít-
sprengjukastið.
NÚ er það marg sannað og
viðurkennt að hver ný
sprengja sem sprengd er,
eykur og margfaldar þau
djöfullegu áhrif sem ógna
öllu lífi á þessari jörð. Það
er því með opnum augum og
fullri vissu að verið er að
eitra fyrir allt líf á jörðinni
og myrða hver veit hve mik-
ið af lífi, með sprengingunum
og ekki eingöngu það, sem
nú er lifandi, heldur allt líf
á komandi öldum, kynslóð eft-
4. Björn Jóhanness. ÍBK 12,69
Kringlukast:
1. Halldór Halldórs. ÍBK 39,11
2. Gestur Guðm.s. UMSE 37.66
3. Þóroddur Jóh.s. UMSE 37,09
4. Árm. J. Lárus. UMSK 36,54
i
Spjótkast: '
1. Halldór Halldórs. ÍBK 56,17
2. Ingim. Skjóldal UMSE 51,24
3. Björn Sveinsson ÍBK 49,00
4. Artúr Ólafsson UMSK 47,46
Langstökk;
1. Helgi Valdimars. UMSE 6,41
2. Björn Jóhannesson ÍBK 6,14
3. Skjöldur Jónsson ÍBA 6,12
4 Höskuldur Karlss. ÍBK 5,88
Þrístökk:
1. Helgi Valdim. UMSE 13,38
2. Ingólfur Herm. ÍBA 12,92
3. Páll Stefánsson ÍBA 12,90
4. Einar Erlendsson ÍBK 12,85
Hástökk:
1. Helgi Valdim. UMSE 1,70
2. Hörður Jóh. UMSE 1,65
3. -4. Páll Möller ÍBA 1.60
3.—4. Rúnar Sigm. ÍBA 1,60
Ungmennasambad Eyjafjarð-
ar vann mótið, hlaut 134 stig.
íþróttabandalag Akureyrar
varð nr. 2, hlaut 103 stig.
íþróttabandalag Keflaví'kur nr.
3, hlaut 96 stig og Ungmenn-
samband Kjalarnesþings varð
nr; 4 hlaut 48 stig.
Ungmennasamband Eyjafjarð-
ar sá um mótið. Mótstjóri var
Hreiðar Jónsson, Akureyri.
ir kynslóð verður gerð að lílc-
amlegum og andlegum aum-
ingjum.
HVAÐA nafn er hægt að gefa
þeim er ráða því að þessi svi-
virða er framkvæmd, annað
en morðingja. Morðingja, sem
af kaldri og útreiknaðri djöf-
ulmennsku stunda fjöldamorð.
Máski hafa þeir þá afsökun
að þeir séu brjálaðir, en hvort
sem heldur er eiga þeir ekki
heima annarsstaðar en innan
fangelsisveggja, eða geð-
veikrahælis. Og vísindamenn
þeir, sem leggja vit sitt og
þekkingu fram til að þetta eé
hægt, eru verri en lyfsali sem
afhenti eitur, sem liann vissi
að ætti að nota til að myrða
fleiri eða færri með. Þeir
hafa með þessu athæfi sínu
fyrirgert öllum vísindaheiðri
sínum. Það er ekki hægt að
líta á þá nema sem vesæla
Framhald á 11. síðu.
Vítissprengjukast — Morð að yfirlögðu ráði —
Hvenær opnast augu þjóðanna?
haukur morthens syngur amerssk rock- og calypsolög
WMR MY RING AROUND YOUR NECK (Lóa litla á Brú)
Lagið sem Elvis Presley gerði frægt, og allir hafa beðið eftir!
WHEN ROCK 'N ROLL CAME TO TRINIDAD. (Rock-Calypsó i réttunum)
áður dönsuðu menn ræl nú er það Rock-Calypsó.
BUZZ BUZZ BUZZ (Stefnumótið)
* LOLLIPOP (Lipurtá).
Kór og hljómsveit Jörn Grauengaards aðstoðar söngvarann af sinni alkunnu snilld.
kESSAR ÓVIÐIAFNANLEGU HLJOMPLÖTUR ERU NÚ LEIKNAR LANDSH0RNANNA A MILLI
FÁLKINN h.f. HLJÓMPLÖTUDEILD.