Þjóðviljinn - 19.10.1958, Blaðsíða 3
Sunnudagur 19. október 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
íðgjaldatekjur Sjóvá á 40
árum um 355 millj. kr.
Útborgaðar tjónabætur félagsins hafa numið
tæplega 205 millj. kr. frá stofnun
Á morgun, 20. október, eru liöin 40 ár frá stofnun Sjó-
vátryggingafélags íslands, elzta og stærsta tryggingar-
hlutafélags landsins. IÖgjaldatekjur félagsins á þessum
40 árum nema um 355 millj. króna, en útborgáöar tjóna-
bætur tæplega 205 millj.
Að stofnun Sjóvátrygginga-
félags Islands stóðu 24 atvinnu-
Tekendur, en aðalframkvæmda-
störf við undirbúning félags-
stofnunarinnar hvíldu á Sveini
Björnssyni yfirdómslögmanni,
síðar forseta Islands, og Lud-
vig Kaaber stórkaupmanni, síð-
ar bankastjóra.
Stærsta tryggingalilutafélag
landsins
Fyrsti form'aður félagsstjórn-
ar var Ludvig Kaaber, en aðr-
Jr í stjórn: Sveinn Björnsson
(formaður 1924—26), Jes Zim-
sen konsúll (formaður 1926—
38), Hallgrímur Kristjánsson
forstjóri og Halldór Kr. Þor-
steinsson skipstjóri. Halldór
hefur setið i stjórn Sjóvá frá
stofnun, þ)ar af síðustu 20'arin
sem formaður félagsstjórnar.
Malbikunar- og
muiningsstöð
ríkis og bæjar
Til athugunar er nú hjá rík-
inu og Reykjjivíkurbæ að koma
sér upp sameiginlegri malbik-
unar- og mulningsstöð, með
vélakosti og útbúnaði er nægi
til þeirrar malbikunarfram-
kvæmda sem báðir þessir að-
ilar hafji með höndum.
Bæjarráð tilnefndi á fundi
sínum í fyrradag þá Rögnvald
Þorkelsson verkfræðing og
Gunnlaug Pétursson borgarrit-
ara sem fulltrúa af sinni hálfu
í viðræðum um þetta mál.
Aðrir í núverandi stjórn eru
þeir Lárus Fjeldsted hrl., Geir
Hallgrímsson hrl., Sveinn (Bene-
diktsson framkvæmdastjóri og
Ingvar Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri.
Axel V. Tulinius vlar fyrsti
framkvæmdastjóri Sjóvá, en
Brynjólfur Stefánsson tók við
framkvæmdastjórastarfinu 1933
og gegndi því til 1. des. sl.
Núverandi framkvæmdastjóri j
er Stefán G. Björnsson.
Sjóvátryggingafélag Islands
tók í fyrstu eingöngu að sér
sjóvátryggingar, en smám éam-
an voru kvíarnar færðar út og
nú rekur það flestar greinar
tryggingastarfsemi, enda er
það nú stæsta tryggingahluta-
félag landsins og meðal stærstu
fyrirtækja.
Mesta tjón, er Fylkir fórst
Samanlögð iðgjöld sjódeildar
Sjóvá (þar með taldar jjarð-
skjálfta-, ferða- og slysatrygg-
ingar og ýmsar sértryggingar,
svo og ábyrgðartryggingar)
hafa í þau 39 ár sem reikning-
,ar ná yfir numið rúmlega 160
milljónum króna, iðgjöld bruna-
deildar frá stofnun hennar 1925
hafa numið 58 millj., iðgjöld
bifreiðadeildar í 21 ár 65 millj.
og iðgjaldatekjur lífdeildar í
tæplega 23 ár 40 millj. Sam-
tals nemifi iðgjöld þessi um 323
millj. króna og ef iðgjalda-'
tekjur þessa 40. starfsárs fé-
lagsins eru áætlaðar svipaðar
og s.l. ár, um 32 millj. kr.
verða iðgjaldatekjur féllagsins
Framhald á 10. síðu.
Vetraráætlun Loftleiða
Vetraráætlun Loftleiöa gekk í gildi 1. okt. s.l. og fækk-
ar þá^feröum félagsins úr sex í viku niður í fjórar þar
til sumaráætlun gengur í gildi aftur 1. maí n.k., og
veröa flugvélar Loftleiöa því átta sinnum í viku á
Reykjavíkurflugvelli á leiö milli Evrópu og Ameríku.
Fjölbreytt
listsýning
Sýning Sigurjóns Ólafssonar,
í Listamannaskálanum var
opnuð í gærkvöld kl. 8 að við-
stöddum mörgum gestum. Með-
al gestanna var forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson.
Sýningin er mjög fjölbreytt
og gefur gott yfirlit yfir störf
Sigurjóns.
Ljúfa Maren
Leikfélagið Mímir á Selfossi
frumsýndi norska leikinn Ljúfa
MJaren á föstudagskvöldið var.
Leikstjóri er Gunnar R. Han-
sen. i
Húsið var fullskipað og leikn- Myndin er af Jóni Guðlan.gssyni, sem vann það afrek að
um ágætlega tekið. I hlaupa frá Iíambabrún til Reykjavíkur s.l. sunnudag.
Þóroddur Th. Signrðsson varkfræ
ingur ráðinn vatnsveitusfjéri
Á fundi bæjarráös í fyrradag var samþykkt að ráöa
Þórodd Th. Sigurösson verkfræöing í starf vatnsveitu-
stjóra.
Auk Þórodds sóttu um starf-
ið Einar Sigurðsson, deildar-
verkfræðingur hjá Vatnsveitu
Reykjavikur, Hilmar Lúthers-
son, pípulagningameistari á
).J'
Þóroddur Th. Sigurðsson
Selfossi og Ólafur Jónsson,
Keflavík.
Þóroddur Th. Sigurðsson,
hinn nýi vatnsveitustjóri, er
Þýzkur náms-
syrkur
fæddur á Geirseyri við Pat-
reksfjörð 11. okt. 1922. Hann
varð stúdent á Akureyri 1943.
Tók fyrrihlutapróf í verk-
fræði frá Háskó’ia Islands 1946.
Lauk prófi í véiaverkfræði við
tekniska háskólann í Kaup-
mannahöfn 1950. Starfaði við
verkfræðistörf hjá Atlas A/S í
Kaupmannahöfn 1950—1951 en
hefur síðan unnið hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur.
Undanfarin ár liefur Jón
Sigurðsson slökkviliðsstjóri
gegnt starfi vatnsveitustjóra
rneð sínu aðalstarfi, en áður
hafði Helgi Sigurðsson hita-
veitustjóri starfið á hendi á-
sjamt stjórn Hitaveitunnar.
Fyrir löngu var þó ljóst að
þessi skipan var óhugsandi til
frambúðar vegna ástandsins í
vatnsveitumálum bæjarins og
þeirra mörgu óunnu verkefna
sem þar eru fyrir hendi, Höfðu
sósjalistar og s!ðar fulltrúar
Alþýðubandalagsins í bæjar-
stjórn tvisvar flutt tillögu um
ráðningu sérstaks vatnsveitu-
stjóra en íhaldið í bæði skiptin
vísað henni frá. Borgarstjóri
tók svo þessa tillögu upp i s.l.
mánuði og var hún einrórría
samþykkt í bæjarráði og bæjar-
Tvær Ijóðabæk-
ur frá IsafoH .
Tvær nýjar ljóðabækur eru
fyr'.r nokkm komnar út hjá
forlagi Isafoldar; frumsamin
ljóð eftir Árna G. Eylands og
Ijóðaþýð'.ngar eftir Guðmund
Frímann.
Ljóðabók Árna nefnist Gróð-
ur, um 140 blaðs:ður að stærð
og skiptist i tvo kafla: Mold
og gróður, Mál og menn. Kvæð-
in í bókinni eru rúmlega 80
talsins, stcr og smá.
Undir bergmálsfjrilum nefn-
ir Guðmundur Frímann ljóða-
þýðingar sínar I bókinni, sem.
er um 110 blaðsíður i allstóru
broti, eru 58 býdd kvæði eftir
erlerd ljóðskáld, einkum 'sænsk
en e;nnig norsk. dönsk, finnsk,
brezk, irsk. austurrísk og
bandarísk. Er gerð grein fvrir
höfundum Ijóðanna í höfunda-
tali, aftast í bókinni.
Guðmundur Frimann hefur
áður gefið út fimm bækur:
Náttsólir. æskuljóð 1922, Ú’fa-
blóð 1933. Störin syngur 1937,
Svört verða sólskin 1951 og
Söugvar frá sumarengjum
1957.
stjórn, og nú befur nýr vatns-
veitustjóri verið ráðinn. Bíða
I hans mörg og mikilvæg verk-
í efni í vatnsveHumálum Reykja-
víkur sem vægast sagt eru í
miklum ólestri.
Bandaríkjaferðir Loftleiða
hefjast í vetur klukkan 8 að
kvöldi sunnudaga, miðvikudaga,
fýnmtudaga og laugardaga, en
þá koma flugvélarnar frá Ev-
rópu, en ferðimar til Bret-
lands og meginlands Evrópu
liefjast kl. hálfniu að morgni
þriðjudaga, miðvikudaga, laug-
andaga og sunnudaga og verða
þær í beinu framhaldi af flug-
ferðunum frá New York.
Það sem af er þessu ári
hefur verið Loftleiðum mjög
hagstætt. Þegar fyrstu 9 mán-
uðir þessa áns em bornir sam-
an við sama tímabil í fyrra
kemur í ljós, að- farþegatalan
ein, sem er nú tæpar 18 þús-
undir, er ekki miklu hærri en
á s.l. ári, en sé það haft í
huga, að í sumar er leið vom
ferðimar færri en í fyrra, eða
sex í viku í stað sjö, þá gef-
ur það visbending um miklu
betri árangur, enda gefa nið-
urstöðutölur til kynna, að
sætanýtingin er 10 hundraðs-
hlutum hærri en í fyrra. Nýt-
ing flugvélanna varð einnig á-
gæt, svo sem augljóst er af
þvi, að í sumar er leið voru
ekki nema þrjár flugvélar not-
aðar til sex vikulegra ferða í
stað fjögurra til ejö ferða í
viku s.l. ár. Þessi árjangur hef-
ur víða vakið talsverða athygli,
því að’’ um hann hefur m.a.
verið ritað í erlend flugmála-
tímarit og þess jafnframt get-
ið þar, að félagið stæði á ör-
uggum f járhagsgrundvelli, enda
þó það nyti ekkí neinna beinna
fjárframlaga frá hinu opinbera
eins og gerist um mörg önnur
félög, er halda uppi áætlunar-
ferðum yfir Norður-Atlanzhaf-
ið.
Fyrstu 9 mánuði þessa árs
voru póstflutningar svipaðir ,og
Framhald á 7. síðu.
Sendiráð Sambandslýðveldis-
ins Þýzkalands hér á landi hef-
ur tjáð íslenzkum stjómarvöld-
um, að Alexander von Hum-
boltstofnunin muni á ný veita
styrki til rannsóknárstarfa eða
til háskólanáms í Þýzkalandi
skólaárið 1959—1960. Styrk-
imir eru ætlaðir háskólakandi-
dötum, sem eru innan við þrí-
tugt að aldri og nema þeir 450
þýzkum mörkum á mánuði.
Styrkimir eru miðlaðir við 10
mánaða námsdvöl í Sambands-
lýðveldinu. Hefst hún 1. októ-
ber og lýkur 31. júlí. Nægileg
þýzkukunnátta er áskilin.
Eyðublöð undir umsóknir um
styrki þessa fást í menntamála-
ráðuneytinu, Stjórnarráðshús-
inu við Lækjartorg. Umsóknir
í þríriti skulu hafa borizt ráðu-
neytinu fyrir 20. nóvember
næstkoriaandi.
(Frá menntamála-
íáðuneytinu).
Yetraráœtíun Fltigfélcgs
íslands gengin ó gildi
Vetraráætlun Flugfélags íslands í innanlands- og milli-
landaflugi gekk í gildi 1. okt. og fækkaöi ferö’um frá
því sem var í sumar.
Innanlandsflug:
Til Akureyrar og Vestmanna-
eyja verður flogið alla daga,
en auk þess em tvær ferðir til
Akureyrar þriðjudaga og föstu-
daga.
Til Egilsstaða eru áætlaðar
ferðir þriðjudaga, fimmtudagá
og laugardaga. I þriðjudags-
ferðinni er komið við á Akur-
eyri í báðum leiðum.
Til ísafjarðar eru ferðir alla
dagta nema sunnudaga og
þriðjudaga og til Blönduóss og
Sauðárkróks eru ferðir á
þriðjudögum og laugardögum.
Siglufjarðarferðir eru á
mánudögum, en ferðir til
Kirkjubæjarklausturs og Fag-
urhólsmýrar á föstudögum.
Til Hornafjarðhr eru ferðir á
mánudögum og föstudögum.
Ferðir til Húsavíkur eru á
miðvikudögum og til Kópa-
skers á fimmtdögum.
Ferðir til Patreksfjarðar og
Bíldudals eru á fimmtudögum
og til Þingeyrar og Flateyrar
á þriðjudögum.
Til Hólmavikur og Þórshafn-
ar er flogið á föstudögum.
Framhald á 9. síðin*^