Þjóðviljinn - 08.11.1958, Blaðsíða 1
INNI í BUAÐINU:
Stofnun skipulagssjóðs í
kaupstöðuxn —
7. síða.
Vondir menn í Kreml og . ..
G. síða.
íslenzlt tunga —
4. síða.
Brezkir togarar við Aust-
urland í vetur.
nnnar
Krústjoff: Við þorfum ekki stríð til að byggja
kommúnískt þjóðfélag, — heldur frið
Víða um heim var í gær haldið hátíðlegt 41 árs af-
mæli októberbyltingarinnar rússnesku.
Krústjoff forsætisráðherra hélt ræðu við móttöku
heiðursgesta 1 Kreml í gær. Meðal gesta var opinber
sendinefnd Pólverja undir forustu Gomulka, foringja
pólska Verkamannaflokksins. Krústjoff lagði áherzlu á
það í ræðu sinni að utanríkisstefna Sovétrikjanna væri
grundvölluð á friðsamlegri sambúð ríkja með ólík þjóð-
félagskerfi.
Það er stefna Sovétríkjann að menn í mikilli fjöldaskrúðgöngu
vinna að því að koma á vin-
samlegri samvinnu meðal fólks,
hvar 'sem það býr í heiminum,
sagði forsætisráðherrann. Við
þurfum ekki á striði að halda di
að byggja upp kommúnískt þjóð-
félag, — við þurfum frið. Þess
vegna munp Sovétríkin kapp-
kosta að bæta sambúðina við öll
ríki og vinna að þvi af festu,
að tryggja friðinn í heiminum.
Hátíðahöldin hófust í Moskva
í gærmorgun eins og venja er
til. Gengu verkamenn og iþrótta-
á Rauða torginu og einnig var
þar hersýning, en hún var miklu
minni í sniðum en undanfarið og
stóð aðeins í 15 mínútur að sögn
fréttamanna.
Maljnovskí, landvarnaráðherra
Sovétrikjanna flutti ræðu á
Rauða torginu. Hann sagði að
þjóðir Sovétríkjanna myndu
tryggja varnir sínar og á efna-
hagssviðinu rriyndu þær innan
skamms komast’fram úr hinum
háþróuðu vestrænu þjóðum i
framleiðslu á hvern íbúa. Hann
ökkviiiðsíiis
Eldur kviknaði í kjallara gamla Landakots-
spítalans snemma í gærmorgun
Með skjótum viðbrögðum or snarræði tókst slökkviliðsmönu-
um að forfta stórbruna liér í Reykjavík í gærmorgim, er eldur
kom upp í kjallara ganila Uandakotsspítalans, Jiar scm nær 100
sjúklingar ern nú rúrrdiggjandi.
Slökkviliðið i Reykjavík fékk
tilkynningu um brunann kl.
7.52 í gærmorgun. Þar eð búast
mátti við að mikii hætta væri
á ferðum, var allt liðið kvatt
út og öllum dælubílum þess
stefnt að Landakoti. Þegar
þangað korn var nokkur eldur
í íbúðarhcíbergi í kjallara
gamla spítalahússins, sem er
stórt timburhús eins og kunn-
ugt er. Slökkviliðsmennimir
rufu þegar gat á glugga her-
bergisins og sprautuðu vatni á
eldinn, einnig fóm þeir með
vatnsslöngur niður í kjallara-
ganginn, en þangað hafði eldur
inn læst sig i pappa- og striga-
klæðningu neðan á loftinu.
Giftufjamlegt slökkvistarf.
Slökkvistarfið tókst mjög
giftusamlega og urðu skemmd-
Framhald á 11. siðu
Irak semur við
Iíína um verzlun
Stjórn Iraks hefur í undir-
búningi viðskiptasamninga við
mörg ríki sem eiga að miða að
því að auka iðnvæðingu í land-
inu. Á næstunni mun þannig
gerður samningur við Kína um
mikil viðskipti, og annar við
Ungverjaland. írak hefur þeg-
ar gert viðskiptasamninga við
Framhald á 5. síðu.
sagði að Sovétríkin myndu halda
áfram baráttunni fyrir friðí í
heiminum en lagði áherzlu á að
herafli Sovétríkjanna væri vel
búinn og fær um að sigra árás-
araðila.
Rkkerí tenglskot
í gær
f gær ætluðu Bandarikjamenn
að gera tilraun sína til að skjóta
eldflaug til tunglsins. Skömmu
áður en skjóta átti eldflauginni
frá Cap Kanaveral, var því frest-
að vegna „tæknilegra örðug-
leika“, að því er sagt var.
Segjast ameríkanar munu
reyna tunglskotið aftur í dag.
Kosningar til Lögþings
Færeyia eru háðar í dag
Þjóðveldisflokkurinn talinn sigurstrang-
legur vegna einarðrar framgöngu
í landhelgismálinu
t\
Kosningar til Lögþings Fær-
eyinga fara fram í dag, og
voru síðustu framboðsfundirnir
haldnir í fyrrakvöld.
Alþýðusambaiids
þing heíst 25. þ-nt
Stjórn Alþýðusambands fs-
lands hefur nú ákveðið að Al-
þýðusambandsþingið, sem er
hið 26. í röðinni, verði sett 25.
nóvember n.k.
Þingið verður haldið i KR-
skálanum vlð Kaplaskjólsveg,
en með hverju ári fjölgar félög-
um í sambandinu og einnig fé-
lagsmannatólu einstakra sam-
bandsfélaga og þar með full-
trúatölunni. Þarfnast þing sam-
bandsins þvi ærins húsrýmis.
20 mönnimi bjarg-
að af ísjaka
20 bandariskum vísindamönn-
um, sem hafa verið einangraðir
á ísjaka í Norðu-íshafinu síðan
á sunnudag, var bjargað í gær
með notkun flugvélar.
ísjaki sá, sem rannsóknarstöð-
in var á, brotnaði í tvennt í
miklum stormi og rak mennina
burt með öðru brotinu.
Á þessum norðlægu slóðum er
nærri samfellt myrkur allan sól-
arhringinn um þetta leyti árs,
og urðu mennirnir á jakanum
að tendra blys til þess að leið-
beina björgunarliðinu. Flugvél
flutti þá til Thule í Norðvestur-
Grænlandi.
rún Á, SiMonar kosin heiðurs
Guðrún Á. Símonar ópeni-
söngkona er nú á söngferða-
lagi um Bandaríkin og Kanada.
Síðastl. miðvikudagskvöld hélt
Þjóðræknisfélagið og félagið
Kanada-ísland fjölsótta söng-
skemmtun í Winnipeg, þar sem
Guðrún söng við frábærar und-
irtektir áheyrenda. Borgarstjóri
Winnipegborgar ávarpaði söng-
konuna að hljómleikunum lokn-
um og afhenti henni heiðurs-
skjal þess efnis, að hún hefði
verið kjörin heiðursborgari
Winnipegborgar.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
1
Aðalmálið í kosningabarátt-
unni að þessu sinni er fiskveiði-
lögsagan og fiskveiðiréttindi
Færeyinga við Grænland..
Liklegt þykir að kjörsókn
verði mjög mikil og meiri en
undanfarið. Fréttamenn íKanp-
mannahöfn telja að Þjóðveldis-
flokkurinn sé mjög líklegur til
að auka fylgi sitt í þessum.
kosningum, enda hefur hann
verið einarðastur allra stjóm-
málaflokka í Færeyjum i fisk-
veiðilögsögumálinu. Sambands-
flokkurinn er einnig talinn
hafa möguleika á fylgisaukn-
ingu.
Morð og útgöngu-
bann á Kýpur 3
Enn einn óbreyttur borgari hef-
ur verið myrtur á Kýpur, og
hafa þá alls 10 brezkir borgar-
ar verið myrtir á eynni, síðan
Bretar tóku að framkvæma á-
áætlun sina um skiptingu eyjar-
innar hinn 1. október s.l.
Maður sá, sem myrtur var í
gær var skotinn, þegar hann var
að stíga upp i bifreið fyrir utan
bankann í Nikösíu, þar sem hann
vinnur.
Herflokkar umkringdu þegar í
stað svæðið í kringum morðstað-
inn og handtóku fjölda af ung-
um grískumælandi Kýpurbúum.
Bankamaðurinn er fjórði Bret-
inn sem myrtur er á Kýpur á
þrem dögum.
Framhald á 12. síðu.
Sovétríkin mót-
mæla ábnrði
vesturvelda
Fréttastofan United Press
skýroi frá því í gær, að
Sovétstjórnin hefði neitað þeim
áburði vestui-veldanna, að Sov-
étríkin hefðu sprengt tvær
kjamasprengjur síðan Genfar-
fundur kjamorkuveldanna nm
bann við kjarnavopnum hófst.
Um leið minnir Sovétstjómin
vesturveldin á það, að hún
hafi fullan rétt á að gera jafn-
margar tilraunir með kjama-
Framhald á 5. síðu.
SKILADAGUR
Gerið strax skil
fyrir selda miða í Happdrætti Þjóðviljans
Afgreiðsla happdrættisins er á
Skólavörðustíg 19 —■ Sími 17500
r
i.