Þjóðviljinn - 18.11.1958, Síða 10

Þjóðviljinn - 18.11.1958, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 18. nóvember 1958 N< bók: Höfundur Njálu tJt eru komnar í stórri og veglegri bók hinar gagn- merku ritgerðir Barða Guðmundssonar um Njálu og höfund hennar. Hafa sumar þeirra verið prent- aðar áður á við og dreif í blöðum og tímaritum, en aðrar birtast hér í fyrsta sinn. Skúli Þórðarson magister og Stefán Pétursson þjóð- skjalavörður hafa búið bókina til prentunar. Ritar Stefán fróðlegan inngang um ikenningar Barða. DBók þessi mun vafalaust vekja mikla athygli og umræður. Var Njála skrifuð í Arnarbæli í Ölfusi? Var Þorvarður Þórarinsson höfundur hennar? Er söguhetjunum fengið gervi samtímafólks Þorvarðs og við þær tengd atvik, sem gerðust á Sturlungaöld? Þannig munu menn spyrja, þegar bók Barða um þetta efni ber á góma, og um þetta munu menn deila. Verð kr. 135,00 ób., 185,00 í rexínbandi og 220,00 i skinnbanili, Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs fá 20% afslátt frá útsöluverði. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og þjóðvinafélagsins Sendisvelnn Olíkur vantar sendisvein nú þegar. Vinnutími frá kl. 7.30 — 12 f.h. ÞJÓÐVILJINN Skólavörðustúg 19 — Sími 17500. Bótagreiðslur má hækka, hækki kaup Stjórnarfrumvarp um breytingar á atvinnu- leysistryggingalögunum lagt fram Stiórnarfrumvarp var lagt fram á Alþingi í gær um breytingar á lögunum um atvinnuleysistryg'g'ingar. Er frumvarpiö um framkvæmdaatriði og flutt í samráði viö stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs. Athyglisverðasta atriðið er heimild til hækkunar bótagreiðslna til sam- ræmis við kauphækkanir. Var frumvarpið á dagskrá efri deildar í gær, en um- ræðunni var frestað þar til í dag. Frumvarpið er þannig: 1. gr. 5. gr. orðist svo: Atvinnurekandi skal greiða iðgjald til atvinnuleysistrygg- ingasjóðs. að upphæð kr. 4,88 miðað við vinnuviku, unna í þjónustu hans. Nú verður breyt ing á grunnkaupi Dagsbrúnar- verkamanns í almennrj dag- vinnu og breytist þá iðgjaldið um næstu áramót í samræmi við það. Við ákvörðun iðgjalds- ins skal miðað við meðaltals- grunnkaup Dagsbrúnarverka- manns Í! almennri dagvinnu á síðastliðnu ári. Iðgjald þetta skal greiða með vísitöluálagi, samkvæmt meðalvísitölu þeirri, sem umrætt kaup hefur verið greitt eftir árið á undan. Sé um tímavinnu að ræða, teljast 48 stundir í viku, en brot úr viku telst heil vika. 2. gr. Við 1. mgr. 18. gr. bætist: Nú breytist grunnkaup Dags- brúnarverkamanns í almennri dagvinnu og er þá ráðherra heimilt að fengnum tillögum stjómar atvinnuleysistrygginga sjóðs, að breyta upphæðum bóta samkvæmt lögum þessum í samræmi við það. 3. gr. Frestur sá til endurskoðunar á lögunum, sem settur er í 22. gr. framlengist um tvö ár. Þessar athugasemndir fylgja frumvarpinu: Frumvarpið hefur verið sam- ið í samráði við stjórn atvinnu- leysistryggingasjóðs, en meðal annars eiga þar sæti fulltrúar verkalýð^samtakanna og at- vinnurekenda. Sjóðsstjórnin hefur tjáð sig samþykka því, að frumvarp þetta verði að lögum. Um 1. gr. í 5. gr. laga nr. 29 7. apríl 1956, um atvinnuleysistrygg- ingar, segir m.a. svo: „Verði breyting á grunnlcaupi Dags- brúnarverkamanns í almennri dagvinnu, breytist iðgjaldið í samræmi við það.“ Á þessu ári hefur umrætt grunnkaup hækk- að tvisvar sinnum eða 1. júní sl. og síðast í september. Við álagningu iðgjalda á næsta ári verður þá að liggja fyrir upp- gjöf á launagreiðslum atvinnu- rekenda í þrennu lagi, fyrir tlmabilið 1. janúar til 31. maí 1, júní til síðast ’í september og síðast í september til 31. des- ember. Slík aðgreining er nærri því óframkvæmanleg fyr- ir atvinnurekendur og skatta- yfirvöld, svo að nauðsynlegt er að breyta ákvæðum greinar- innar. í greininni segir, að ið- gjald skuli greitt með vísitölu- álagi, samkvæmt meðalvísitölu þeirri, sem umrætt kaup hef- ur verið greitt eftir árið á undan. I samræmi við þetta er hér lagt til, að við ákvörðun iðgjaldsins, skuli miðað við meðaltalsgrunnkaup Dagsbrún- arverkamanns í almennri dag- vinnu á síðastliðnu ári. Dæmi til skýringar: Grunnkaup Dagsbrúnarverkamanns kr. 10.00 fyrir hvern 'klukkutíma á tímabilinu 1. janúar til 31. maí, kr. 10.50 á tímabilinu 1. júní til 30. sept. og kr. 12.00 á tímabilinu 1. október til 31. desember. Meðaltalsgrunnkaup verður þá: (kr. 10.00X5 j-.,kr. 10.50 Framhald af 1. síðu. kemur einnig glöggt fram í þessari sömu forustugrein Morgunblaðsins, en þar segir svo á öðrum stað: „íslendingar finna og skilja hvað hér er í veði og allir aðr- ir en þeir sem eru liörðustu Moskvukommúnistar, eins og það er orðað, hugsa um þetta mál út frá íslenzku og vest- rænu sjónarmiði“. Þetta lífshagsmunamál ís- lendinga, þetta örlagamál sem ræður úrslitum um alla fram- tíð þjóðarinnar, má þannig ekki meta frá íslenzku sjónarmiði, heldur „íslenzku og vestrænu", þ.e. íslenzku og brezku. Engin „vestræn þjóð“ hefur sem kunnugt er lýst yfir stuðningi við ákvarðanir íslendinga, held- ur eru þær harðvítugustu and- stæðingar okkar. Samt segir Morgunblaðið, málgagn Ólafs Thors, að það séu sjónarmið þeirra sem eigi að móta af- drif málsins. íUvarlegur óvina- fagnaður Tillaga Ólafs Thors, eins og hún er skýrð í málgagni hans, er svo alvarleg svik við hags- muni íslendinga að hún jaðrar við landráð. Á þeim tíma þegar átökin eru að komast á úr- slitastig og Bretar eru auð- sjáanlega mjög uggandi um sinn hag fyrir vetrarhörkurn- ar, leggur sjálfur formaður Sjálfstæðisflokksins til að tekn- ir verði upp samningar nm „landhelgismörkin sjálf“ „sjálfa landhelgis)ínuna“. Hann gerir þetta á eama tíma og umræð- ur um landhelgismálin eru að hefjast í laganefnd allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna, og þarf ekki að lýsa því hversu mjög slík framkoma veikir að- stöðu fulltrúa okkar þar og styrkir málflutning andstæð- inga okkar. Og ekki þarf að Iýsa því hver áhrif þessi fram- X4 + kr. 12.00X3) : 12 eða. kr. 10.67. Greinin þarfnast ekki nán- ari skýringa. Um 2. gr. Eðlilegt virðist, að hlutfall bóta og vinnulauna þurfi ekki að raskast. þó að breyting verði á vinnulaunum, sbr. og 53. gr. laga nr. 33 29. maí 1958 um Útflutningssjóð o.fl. Bætur eru ákveðnar i reglu- gerðum úthlutunarnefnda og þarf því breytinga á öllum þessum reglugerðum, ef sam- ræma skal bætur breytingum á vinnulaunum nema sérstakt lagaákvæði komi til. Hér er því lagt tij, að ráðherra fái heimild að l^ngnum tillögum stjórnar atvinnuleysistrygg- ingasjóðs til þess að breyta bótum í samræmi við breyting- ar á grunnkaupi Dagsbrúnar- verkamanns í almennri dag- vinnu. Um 3. gr. Eigi þykir fengin ‘ ‘' næg reynsla enn af lögunum um at- vinnulej'sistryggingar til þess, að henpilegt sé, að hefja nú gagngerða endurskoðun á þeim. Það er því lagt til að frestur til endurskoðunarinnar verði lengdur um tvö ár, eða til árs- ins 1960. koma muni hafa á sjóhernað Breta hér við land: þeir líta á undanhaldstillög- ur Ólafs Thors scm beinan árangur af ofbeldisverkum sínum og mimu að sjálf- sögðu álykta sem svo að með sama áframhaldi og auknum fantaskap muni þeir ná enn betri árangri. Ekkert er hættulegra lífi íslenzkra sjómanna en sú skoðun Breta að hægt sé að beygja Islendinga með ofbeldi. Því er það lífsnauðsyn að ís- lenzka þjóðin kveði þegar ! stað niður uppgjafarhugmynd- ir Ólafs Thors og isýni Bretum í verki að það verður ekki hvikað frá 12 mílna mörkun- um, um landhelgina verður aldrei samið. Við Breta eigum við það eitt vantalað að kæra þá á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og sækja þá til þyngstu ábyrgðar fyrir óhæfu- verk sín. Kvikmynd af nýrri rækjupillu- vél \ Isafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Bergsteinn Bergsteinsson fiskimatsstjóri sýndi hér kvik- mynd í vikunni af því hvem- ig nýja rækjupilluvélin vinnur, en hann fór til Noregs fyrir aðra rækjuverksmiðjuna hér á ísafirði til að kynna sér þetta mál. Á eftir sýningu myndarinnar urðu nokkrar umræður um málið og komu fram mjög skift ar skoðanir á því hvort hag- stætt mymdi að nota slíka vél hér, einkum með tilliti til þess hvað rækjumagnið er lítið. Rækjuveiðar eru nú stundað- ar hér af fullum krafti. Morgunblaðið játar i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.