Þjóðviljinn - 06.12.1958, Síða 9
47 — Óskastundin
Laugardagur G. des. 1958 — 4. árg. — 40. tb!.
HEILABROT
Hvaða karlmannsnafn
getið þið lesið út úr
þessu: as as ,as..
SAMKEPPN-
INNI LOKIÐ
Samkeppninni um bezta
dagbókarkaflann er nú
lokið. Þrjár stúlkur
sendu í keppnina og höf-
um við birt alla kaflana
og þið væntanjega lesið
þá. Við vildum ekki þeg-
ar til kom gera upp á
milli þeirra,, þeir voru
allir góðir og við höfum
sent öllum stúlkunum
hina eftirsóttu bók. Nú
eru Það vinsamleg til-
mæli okkar að þessar
pennafæru stúlkur skrifi
okkur um bókina. Hvern-
ig þeim líkar hún og
hvort þær telja sig hafa
gagn af henni.
POSTHÓLFIÐ
Eg óska áð komast í.
bréfasambancl við þilteða
stúlku á aldrinum 10 til
12 ára.
Kiistborg Björgvins-
dóttir, Krossgerði um
Djúpavog.
Eg óska að komast í
bréfaskipti við pilt eða
Itáðníng á gátu.
Barnið gengur á fjórum
fótum
en fullorðinn á tveim,
ellin bætir staf til stuðn-
ings
og staulast heim.
stúlku á aldrinum 10 til
12 ára.
Hansína Ingólfsdóttir,
Krossgerði um
Djúpavog.
Kæra Óskastund.
Eg þakka þér fyrir all-
ar ánægjustundirnar. Mér
fannst mjög gaman að
Páskanorninni og Dans-
leiknum eftir Selmu Lag-
erlöf.
Mig langar til að biðja
þig að birta fyrir mig
textann Nú liggur vel á
mér og Lóa litla á Brú.
Loks ætla ég að senda
þér skrítlur.
Vertu blessuð og sæl,
Kidda Kettlingur.
KLIPP
KLIPP
Reynið að klippa
svona myndir. Þið
getið raðað mörgum
saman og gert lióp-
myndir af fuglum.
Það væri falleg
skreyting í vinnu-
bók í náttúrufræði
með kaflanum um
farfugla. Sendið
okkur klippmyndjr,
sem þið liafið gert.
nitstjóri: Vilborg Dagbjartsdóttir - Otgefandi: Þjóóviljinn
Sveinn Sveinsson:
að var komið alveg
fram að jólum, og litli
jólasveinninn hafði stein-
gleyrnt öllu sem hann
átti að gera. Hann hafði
steingleymt því að hann
átti að fara með jóla-
gjafip til barnanna, og
hann hafði alveg gleymt
að hafa jólafötin sín í
lagi; hann hafði bara al-
veg gleymt að vakna allt
þetta ár, frá því að hann
kom heim eftir jólin í
fyrra.
Hann geispaði ógur-
lega, teygði sig allan og
staulaðist fram úr rúm-
inu, Þetta var Ijóta á-
standið. Honum gekk þó
vel að finna fötin sín,
því að jólasveinár eru á-
kaflega reglusamir með
,að brjóta fötin sín sam-
an og leggja þau á vísan
stað þegar þeir hátta.
Hann flýtti sér í sokk-
ana, í buxurnar og skóna,
en húfuna sína fann hann
hvergi hvernig sem hann
leitaði. Allt í einu mundi
hann hvernig á því stóð,
Krakltarnir í Austurstræti
liöfðu náð í hana í fyrra
þegar hann var að fara
heim ,til sín.
Jæja, hann átti aðra
húfu, það gerði ekkert
til. Hann setti upp hvíta
snjóvettlinga, tók stóran
poka og snærisspotta og
hljóp út. Úti -var mikið
og gott jólasveina-
veður, tunglsljós,
frost og snjór.
Jú, jú. Þama
voru skíðin hans
og skíðastafimir
síðan hann kom
heim í fyrra, al-
veg eins og hann
. hafði gengið frá
þeim við kofa-
dyrnar s í n a r .
Verst hvað hann
var orðinn voðalega
svangur. Eina,. von hans
var að geta krækt sér í
bjúga einhversstaðar á
bæ sem hann kæmi að.
Verst hvað þau voru víða
orðin vond, þetta voru
engin bjúgu sem nú voru
búin til í Kjötbúðinni
Borg eða Sláturfélagi
Suðurlands. En gömlu,
Framhald á 2. síðu.
Laugardagur 6. deannber 1958 — ÞJÓÐVILjrNN
(9
LANDSLIÐ — BLAÐLIÐ
S.l. þriðjudagskvöld efndi
H.S.Í. iil keppni í kvenna- og
karlaflokki milli úrvalsliða, er
landsliðsnefnd sambandsins
hafði valið og liðs er íþrótta-
fréttarítarar dagblaðanna sáu
um val á. Mjög mikill áhugi
virtist vera fyrir þessum leikj-
um, fullt hús áhorfenda, a.m.k.
650—700 manns.
Kvennaflokkur:
„Landsíið“ — Blaðalið
17:10 (9:6) (8:4)
Leikur þessi var fremur góð-
ur og án efa sá jafnasti, sem
háður hefur verið hingað til
og má þakka það skynsamlegri
aðferð við val liðanna. í byrjun
leiksins sýndi „landsliðið" dá-
góðan leik, en hinsvegar virt-
ist blaðaliðið ekki ná saman
sem ekyldi. Þetta lagaðist þó
von bráðar. Var fyrri hluti
halfleiksins nokkuð jafn, en úr
því fór að síga á ógæfuhliðina
fyrir blaðaliðinu. Náði „lands-
liðið“ 4—5 fnarka forskoti
(nokkur þessara marka voru
fremur ,,ódýr“) skömmu eftir
miðjan hálfleikinn, en blaðaliðið
var þó ekki alveg á því að
gefa hlut sinn. Tókst þeim að
minnka markamuninn nokkuð
þannig að leikstaðan í leikhléi
var 9:6. „Landsliðinu" í vil.
Síðari hálfleikur var mjög
svipaður þeim fyrri, jafn fram-
an af, ’en síðan tókst lands-
liðinu að auka nokkuð forskot
sitt og loks hlaðaliðinu að
minnka muninn lítilsháttar.
Framan af leiknum var leik-
ur beggja fremur góður, en er
líða tók á leikinn varð leikað-
ferð beggja mjög óraunhæf,
sem ef til vill má rekja til
skorts á úth'aldi. Ekki verður
annað sagt, en grip beggja hafi
verið fremur léleg og send-
ingar ekki eins vandaðar og
krefjast verður af jafn leik-
vönum keppendum. Mörk
landsliðsins ekoruðu: Gerða 7,
Helga 5, Sigríður L. 4, Perla 1.
Mörk blaðaliðsins skoruðu:
Ólína 4, Liselotte 3, Inga
Magnúsd. 2 og Inga Hauksd.
1. Dómari var Daniel Benja-
mínsson. Einkennanidi var og
um leik þennan, hversu erfið-
lega gekk að skora úr víta-
köstum. Alls vðru framkvæmd
8 vítaköst í leiknum, en aðeins
3 þeirra höfnuðu í netinu,
Itarlaflokkur:
„Laiulslið“ — Blaðalið
31:13 (14:9) (17:9)
„Landsliðið“ byrjaði mjög
vel, var húið að ekora 4 mörk,
áður en blaðaliðið hafði áttað
sig. Var það Karl Jóhannsson,
sem skoraði þessi 4 fyrstu mörk
leiksins, öll svo til á sama
etað, og er því ekki f jarri lagi
að álíta að einhver veila hafi
verið í hægri væng varnarinn-
ar hjá blaðaliðinu. Eftir þetta
var leikurinn nokkuð jafn,
„landsliðið" hélt sínu forskoti
3—5 mörkum og var leikstað-
an, er /blásið var til leikhlés
14:9 „landsliðinu" í vil. Síðari
hálfleik náði ,,landsliðið“ al-
gerlega undirtökunum í leikn-
um, juku þeir brátt forskot sitt
upp í 7—8 mörk og undir leiks-
lokin enn upp í 10—11 mörk.
Leiknum lauk svo með algjör-
um sigri „landsliðsins" ' 81:18
og mun það vera einn mesti
sigur „landsliðs11 í leikjum
sem þessum. Leikur þessi sýndi
að beztu leikmenn vorir hafa
enn ekki nægilegt þol í 2x30
mínútna leik, enda er heldur
ekki við því að búast, þar sem
leikirnir í vetur fram að þessu
hafa eingöngu verið stuttir þ.e.
—• 2x10 mín. og 2x15 mín. I
„landsliðinu“ bar Gunnlaugur
af, sýndi jafnframt, að hann
er vel liðtækur „línumaður"
Einar var mjög traustur, bæði
í sókn og vörn. Karl. Jóhannss.
virðist einnig vera í allgóðri
æfingu, en honum hættir til að
skjóta of mikið í vonlausum
tækifærum. Guðjón i markinu
Framhald á 10. síðu.
Handknattleiksmótið:
LokaþáBurinn uen helgina
Um þessa helgi fara fram
síðustu leikir Reykjavíkurmóts-
ins að þessu sinni. Er þar um
að ræða hreina úrslitaleiki og
aðra leiki sem þó ekki hafa á-
hrif á úrslit í flokkunum.
1 þriðja flokki B. eru Vík-
ingar lang sigurstranglegastir
og almennt talið að þeir eigi
bezta liðið í þeim flokki. Mun
þeim nægja jafntefli til sigurs.
1 þriðja flokki A er það
Þróttur sem leikur til úrslita.
Þó er sá möguleiki til að Vals-
menn komist í úrslit, en til
þess þurfa þeir að sigra KR
með 9 marka mun, sem senni-
lega gengur erfiðlega. Kæra
j kom fram á leikinn Fram —
ÍR og þegar þetta er skrifað
var ekki búið að dæma í því
máli, en á morgun á úrslita-
leikurinn að fara fram.
í kvöld fer lika fram úrslita-
leikurinn í meistaraflokki
kvenna og eigast þar við Ár-
mann og KR. Verður það án
efa jafn og skemmtilegur leik-
ur, en kunnugir telja allerfitt að
spá um úrslit og vafalaust
þurfa Ármannsstúlkurnar að
spjara sig og leika ákveðnara
en þær gerðu á móti Þrótti.
KR-stúlkurnar munu líka leggja
sig fram til að vinna. Sem sagt
mjög tvísýnn leikur.
Þá verða í kvöld hrein úrslií
í öðrum flokki karla milli Ár-
manns og Þróttar, og verðsr
það jafn leikur og tvísýnn.
Bæði liðin eiga góða leikmenn
og kröftuga, og sjálfsagt ekki
oft verið svo góð tvö lið í öðr-
um flokki í úrslitum. Bæði lið-
in hafa jafntefli úr keppninni
áður, og jafna stigatölu.
Tveir aðrir leikir í öðrum
flokki eru líka i kvöld en þeít
hafa ekki áhif á úrslit móts-
ins, en það eru Víkingur — KR
og Fram — 1.R, hvortveggjs,
jafnir og tvísýnir leikir.
KK verður ekki unx þokað
Fram gerði þann rugling í
reikninginn að vinna IR í meist-
araflokki, svo að þeir korna
með 2 stigum færra til úr-
slitakeppninnar, og eins ag
styrkur KR hefur verið í móti
þessu er það naumast fræðileg-
ur möguleiki fyrir IR að vinna
með það mörgum mörkum að
dugi. Hitt er víst, að ÍR-ingar
munu gera sitt hezta til þess
að gera KR-ingunum erfitt fyr-
ir, og helzt vinna. ÍR-ingar
hafa í síðustu leikjunum sótt
sig, og ef þeim tekst að
Framhald á 10. síðu.