Þjóðviljinn - 21.12.1958, Síða 1
TAKIí) EFTIR: —
Milli jóla og nýárs verður
félagsvist á vegum Sósíal-
istafélagsins í Tjarnargötu
20, sú fyrsta á vetrinum. —
Nánar auglýst síðar. —
Sósíalistafélag
Reykjavíkur.
----------------------------------------
Jólaeggin öll seld
herndansliðinu!
Húsmæður í Reykjavík hafa rekið sig á þá furðu að
egg virðast skynilega með öllu horfin úr matvöruverzl-
unum bæjarins.
Orsökin til þessarar furðu er sögð vera sú að fram-
takssamir fjáraflamenn hafi gerzt umbjóðendur eggja-
framleiðenda og selt jólaegg Reykvikinga til — her-
námsliðsins í Keflavík!
Þótt reykvískar húsmæður geti vafalítið unnt þeim
bandarísku gleðilegra eggjajóla er hætt viö að þær muni
þessa • ,.þjónustu“ eggjaframleiðenda og umboðsmanna
þeirra nokkuð lengi.
v______________________________________,»
Bretar halda áfram skotárásum
og dauðadómum á Kýpur
Grísk stúlka á Kýpur særöist hættulega í gær, þegar
brezkir hermenn hófu skothríS á vopnlausan almenning
í þorpi einu á eynni.
Sciinþykkt útvegsmanna á Suðurnesjutn:
Alþingismenn bregðast skyldu sinni
et jbe/V fara I jólafri án jbess að hafa fryggf aS
háfaflotinn stöðvisf ekki um nœsfu áramót
Þjóðviljinn skýrði frá því í gær að ráðherrar Fram-
sóknar og Alþýðuflokksins hefðu synjað sjávarútvegs-
málaráðherra, um umboö til að semja, ásamt með full-
trúum annarra flokka, um starfsgrundvöll fyrir sjávar-
útveginn á næsta ári, en útvegsmenn höföu eindregið
farið fram á það.
Fundur útvegsmanna á Suðurnesjum hefur nú gert
þá kröfu að alþingismenn fari ekki heim fyrr en þeir
hafi gert ráðstafanir til aö tryggja rekstur bátaflotans.
Eftirfarandi barst Þjóðviljan-
um frá L.I.Ú. í gær:
Eins og fiá var skýrt í blaðinu
í gær, höfðu nokkur útvegs-
mannafélög þá beint þeim til-
mælum til forseta sameinaðs
Alþingis, að hann beitti sér fyrir
því, að Alþingi tæki sér ekki
jólaleyfi, meðan ósamið væri um
starfsgrundvöll sjávarútvegsins á
næstu vetrarvertíð.
í fyrrakvöld héldu útvegsmenn
í Keflavík, Garði, Sandgerði,
Grindavík og Vogum með sér
sameiginlegan fund til að fjalla
um þetta mál og önnur aðsteðj-
andi vandamál sjávarútvegsins.
Gerð var einróma ályktun um að
senda forsetum sameinaðs AI-
þingis og beggja þingdeilda svo-
hljóðandi símskeyti:
„Ahnennur fundur útvegs-
manna á Suðurnesjum, haldinn
föstudaginn 19. des. 1958, skorar
á yður, herra forseti, að beita
yður fyrir því, að alþingismenn
fari ekki í jólaleyfi án þess að
gengið verði frá samningum um
starfsgrundvöll sjávarútvegsins
fyrir komandi ár, svo að ekki
komi til stöðvunar, þegar vertíð
á að hefjast þann 1. janúar. Tel-
ur fundurinn óhjákvæmilegt að
ef alþingismönnum verður gefið
jólaleyfi, þá verði áður skipuð
af Alþingi nefnd með fullu um-
boði til þess að ganga frá samn-
ingum um viðunandi starfs-
grundvöll sjávarútvegsins, svo
að vertíð geti liafizt á éðlilegum
tíma hinn 1. janúar. Fundurinn
bendir á, að þar sem það er AI-
þingi, sem samþykkt hefur visi-
tölukerfið, gengi galdeyrisins, og
gjaldeyrisskilaskyldnna og stór-
kostlegar fjárveitingar til fram-
kvæmda, scm ekki er tímabært
að framkvæma vegna skorts á
vinnuafli, en sem keppa um
vinnuaflið við útflutningsfram-
leiðsluna ásamt fjölmörgn öðru,
þá telur futidurinn að alþingis-
menn bregðist skyldu sinni, ef
þeir fara í jólaleyfi án þess að
tryggja eðlilega starfrækslu út-
flutningsframleiðslunnar eða
daufheyrast við að skipa nefnd
með fullu umboði til þess að
ganga frá samningum fyrir 1.
janúar svo að vertíð geti hafizt.
Ennfremur bendir 'fundurinn á,
að verulegur hluti bátaflotans
verður ekki gerður út á komandi
vertíð, nema nú þegar verði
gerðar ráðstafanir til þess að fá
erlenda sjómenn á bátaflotann.“
Á fundinum var mikið rætt
um hinn ískyggilega og yfirvof-
andi skort á sjómönnum og lýstu
fundarmenn áhyggjum sínum
yfir því mikla vandamáli. Talin
er hætta á, að % fiskiskipaflot-
ans liggi í höfn í vetur, ef ekki
fæst lausn á þessu nú þegar.
Einnig urðu miklar umræður
um þann vanda sem fyrir hönd-
um lægi í sambandi við samn-
ingsuppsagnir sjómanna og sem
ekki væri auðið að fjalla um,
meðan ósamið væri um starfs-
grundvöllinn á næsta ári.
Fundurinn kaus sameiginlega
nefnd, sem ræddi í gær við þing-
mann kjördæmisins, Ólaf Thors,
Framhald á 16. síðu.
Kleemola þreyttur
við stjórnar-
myndun
Bændaflokksmaðurinn Kleem-
ola, forseti finnska ríkisþings-
ins, tjáði Kekkonen forseta í gær
að tillaga sín væri sú, að frek-
ari tilraunum til stjórnarmynd-
unar yrði frestað fram yfir jól.
Síðasta hálfa mánuðinn hefur
Kleemola verið að reyna að
mynda þingræðisstjórn.
Kvaðst Kleemola vera orðinn
langþreyttur á tilraunum til
stjórnarmyndunar og sama væri
að segja um þingmenn. Væri því
ráðlegt að leyfa þingmönnum að
hvilast yfir jólin.
Stúlkan, sem er 18 ára gömul,
var flutt á sjúkrahús til upp-
skurðar, en hún var særð sættu-
legum skotsárum af brezku her-
mönnunum.
Brezka útvarpið segir að kom-
ið hafi til átaka, þegar brezkur
herflokkur þudti inn í þorp
grískumælandi manna og skip-
aði íbúunum að fjarlægja böl-
bænir í garð hinna brezku her-
setumanna, sem letraðar voru á
húsveggi þar í þorpinu. Ætluðu
Bi'etar að smala saman hópi
unglinga til að 'þurrka áletran-
irnar burt en unglingarnir
streittust á móti og urðu nokkrir
pústrar og hrindingar með
mönnum. Konur komu á vett-
vang og köstuðu leir í Bretana.
Hjnir brezku hermenn brugðust
þannig við að þeir hófu þegar
skothríð á konurnar með þeim
afleiðingum, sem að ofan grein-
ir.
Fleiri dauðadómar
Þrír grískir Kýpurbúar hafa
verið dæmdir til dauða af brezk-
um dómstóli í Nikosia og var
þeim gefið að sök að hafa átt
vopn og skotfæri. Þótti hinni
brezku réttvísi hæfilegt að
dæma unglingana tii dauða fyrir
þessa sök. Dóminum hefur ver-
ið áfrýjað til Foots, landstjóra
Breta á eynni.
Fyrir fjórum dögum ætluðu
Bretar að taka tvo griska ungl-
ingar á Kýpur af lífi en aftöku
þeirra var frestað á síðustu
stundu, og hefur dóminum ver-
ið breytt í ævilangt fangelsi.
Tveir brezkir hermenn voru
vegnir á austurhluta Kýpur í
gærmorgun. Gerðist það með
þeim nætti að sprengju var
varpað að bifreið, sem þeir óku
i, og sprakk hún í loft upp.
Þriðji maðurinn i bifreiðinni
slasaðist.
Herskipin ein eftir!
til að votta að Bretai vilja þiófar heita
þó þeir geti ekki stolið!
Brezku togararnir eru nú allir sloppnir úr herkvíimi
og liorfnir úr Iandhelgi. Brezk herskip kalda liinsvegar
vakt yfir „verndarsvæðiuium", — til að auglýsa franuni
fyrir alheimi að Bretar vilja þó sam^arlega þjófar lieita,
þótt þá í augnablikinu skorti getu til þess.
Tilkynning Landhelgisgæzlunnar var svohljóðandi í
gær:
1 da,g úar enginn togari að ólöglegum veiðum liér við
Iand.
Brezk herskip lialda sig ií nánd við verndarsvæðin,
sem baiði eru úti af Austurlandi, en í gær var enginn
togari þar að veiðum.
AUs munu vera nær 30 brezkir togarar að veiðum hér
við land, og veiða þessir nú allir djúpt úti al' Austfjörð-
um.
fíeynir að mynda ílokks~
stjórn Alþýðuílokksins
Ernil Jónsson hélt í gær
áfram tilraunum sínum til
stjórnarmyndunar og' átti við-
ræður við fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins, Framsóknarfl. og
Sjáifstæðisflokksins. 1
Ríkistjórn sú sem Emil Jóns-
son leitast við að mynda er
FLOKKSSTJÓRN ALÞÝÐU
FLOKKSINS, þ. e. ríkisstjóru
sem Alþýðuflokkurinn éinn
beri ábyrgð á. Það yrði sem sé
minnihlutastjórn og þyrfti til
lífs sér stuðning annarra
flokka, og það er sá stuðningur
sem Emil Jónsson og fiokks-
bræður hans eru nú að sækjast
eftir.
Eins og menn liafa tekið eftir
í fréttatilkynningum forseta-
skrifstofunnar fól forseti Emil
Jónssyni aðeins að mynda
stjórn, en Ólafi Thors var hins
vegar falið að mynda meiri-
hlutastjórn. Hugmyndin uni
flokksstjórn Alþýðuflokksins
mún þá einnig runnin frá for-
seta; talið er að hann hafi gef-
ið Emil Jónssyni frest til mánu-
dags til tilrauna sinna.
2
dagar
eftir
Gerlð skil
Opið irá klukkan 1 til 5 í dag
Drœfti
EKKI
frestað
I