Þjóðviljinn - 03.04.1959, Síða 1

Þjóðviljinn - 03.04.1959, Síða 1
Hernaðarbandalag vesturveld- Reykjavíkurbær Itrekar beíðnl um 2ja mlllj. kr. lán til verkamannahúss Hefur fengiS hálfa mill]on er ihaldið hefur ekki hirf um oð sœkja! anna minnist 10 ára afmælis Miklar hersýningar og ræðuhöld Atlanzhafsbandalagið, hernaðarbandalag Bandaríkj- anna og fylgiríkja þeirra, á 10 ára afmæli um þessar mundir. í tilefni þess var haldinn hátíðafundur banda- lagsins í Washington og miklar hersýningar voru í Nap- olí. 1 gær upplýsti Gunnar Thoroddsen borgarstjóri að Reykjavíkurbæ stæðu til boða hálfrar millj. kr. lán til verkamannahúss, til 5 ára, flutti hann tillögu um að ítreka beiöni til atvinnuleysistryggingarsjóðs um 2ja mlííj. kr. lán til 15 ára og var hún einróma samþykkt. Mál þetta hefur áður komið til umræðu í bæjarstjórn. Á fundi í febrúar þegar Guð- mundur J. Guðmundsson ræddi nauðsyn þess að hraða byggingu verkamannahússins svaraði borgarstjóri því til að engir peningar væru til og umbeðið lán hjá atvininuleysistrygging- arsjóði hefði ekkí ^engizt. Guð- mundur J. fræddi borgarstjór- ann á því iað stjórn s.ióðsins hef'ðí í desetnber samþykkt að veita, bænum hálfrar millj. kr. Iárt. • Af umræðum þessum þá var ijóst að íhaldið hafði ekki liaff mein áliuga fyrir byggingu verka- nsannahúss en svo, að það! haf'ði ekki sinnu á að sækja þessa peninga! í gær rifjaði borgarstjóri upp að lánbeiðnin hefði verjð skrifuð 2. september, og þá beð- ið Um 2 milljónir kr., sjóðs- stjómin hefði sambykkt 3. des. að veita hálfa milljón, — en sér (borgarstjóra) hefði verið ókunnugt um Það, þar sem sjóðstjómin hefði ekki til- kynnt sér það. Lánið hefði líka verið veitt með því skilyrði að ríkið ábyrgðist það, en 4. marz befði sjóðssfjómin svo fallizt á. að veita lánið á á- ■byrgð bæ.iariris eins, með 7,5% vöxium til 5 ára. Atvinnuleysistryggingasjóð- urinii ®un nú vera um 90 mjllj. kr. og kvað borgárstjóri Rvík- urbæ hafa greitt um 14 millj. kr. til sjóðsins og atvinnurek- endur í bænum álíka upphæð. Borgarstjóri lagði til að í- treka beiðni bæjarins til sjóðs- ins um tveggja millj. kr. lán — til 15 ára. Nokkur orðaskipti spunnust milli Guðmundar J. og borgar- stjóra út af þessu, minnti Guð- mundur J. borgarstjóra á að hann hefði í vetur véfengt að nokkurt lán hefði verið veitt og afsakað með því seinagang á framkvæmdum. Borgarstjóri svaraði Guðmundi með útúr- snúningum, og var helzt ó borgarstjóra að heyra að Guð- mundur J. ætti að sjá um að Tryggingarstofnun rikisins til- kynnti lánveitingar! Guðmund- ur sýndi fram á hverjar blekk- ingar þetta værj. en. einmitt þetta væri táknrænt dæmi um málflutning borgarstjóra, fyrst neitaði hann að hafa fengið lán sem veitt hefði verið fyrfr: tveim mánuðum og þegar að sannleikurinn yrði öllum opin- ber reyndi hann að afsaka sinn eigin slóðaskap með útúrsnún- ingum og að koma sökinni af sér á allt aðra aðila, og væri slíkt óskemmtilegur „mórall“ valdamanna. Kvað Guðmundur það vera venju Ti-yggingarstofnunarinn- ar að tilkynna ekki lánbeiðend- um um veitingar — en bæjar- stjórn Reykjavikur1 liefði verið ejnj lánbeiðandinn sem ekki hafði þá mannrænu að spyrj- ast fyrir um hvort lánjð hefði verið veitt! Guðmundur kvaðst samþykkur því að ítreka beiðnina um 2ja millj. kr. lán. TiUaga fccjrgaríitjóra um það var síðan samþykkt með sam- hljóða atkvæðum. Eisenhower Bandaríkjaforseti flutti ræðu á hátíðafundinum og sagði að NATO-ríkin myndu halda áfram að reyna að ná hagstæðu samkomulagi um á- greiningsmálin við Sovétríkin, t.d. á fundi æðstu manna, ef vesturveldunum þætti ástæða til að slíkur fundur yrði hald- inn. 1 Napolí, aðalherstöðvum Atlanzhafsbandalagsins í Suð- ur-Evrópu, voru haldnar fyrir- ferðarmiklar hersýningar í til- efni afmælisins. Tóku þátt í þeim hersveitir frá Bandaríkj- unum, Bretlandi, Frakklandi, 1- talíu og Tyrklandi. Mikill fjöldi þrýstiloftsflugvéla sveimaði yf- ir borginni og urmull af her- skipum sigldi ekrautsiglingu á flóanum fyrir utan. Fundur utan ríkisráðherra Atlanzhafsbanjdalagsrikjanna hófst í Washington í gær, og stendur hann í tvo daga. Mun þar verða rætt um skýrslu frá fundi utanríkisráðherra vestur- veldanna þriggja og Vestur- Framhald á 5. síðu Afmennur borgarafundur Æsknlýðsfylkingin í Keykjavík, Sósíalistafélag Reykjavíkur og Félag rót- taikra stódenta cfna til ahnenns borgarafundar n. k. suumidag, 5. apríl í tilefni þess að 10 ár eru liðin síðan Island vtar fjötrað Atlanzlvafsbanda- laginu. Dalai Lama komirni til Indlands Hann var fluttur nauðuguj frá Lhasa, að sögn kínversku fréttastofunnar Kínverska frétbastofan skýrði frá því í gasr, að Dalai Lama sé kominn til Indlands og hafi hann fariö yfir landamærin til Indlands á mánudaginn var. ’Fréttastofan segir, að full-í trúar indversku stjórínarinnar hafi verið til staðar þegar Dalai Lama kom yfir landa- mærin í fylkinu Assan og boð- ið hann velkominn. Indverska stjórnin hefur ekki staðfest þesisa frétt og ekki mótmælt henni heldur, en Reuters-fréttastofan skýrði frá því í gærkvöldi að hún hefði fengið staðfestingu á fréttinni umkomu Dalai Lama til Ind- lands. Hermenn úr hinum herskáa Khamba-ættflokki höfðu Dalai Lama með sér nauðugan á brott frá Lhasa, að sögn fréttastof- unnar. Nheru, forsætisráðherra Ind- lands sagði í ræðu í þinginu í gær, að sú fullyrðing Kínverja væri rétt, að landamærabærinn Kalinpon væri hið mesta njósn- arabæli. Þar ægði saman njósn- urum frá Asíu og Evrópu, bagði andkommúnistum og kommún- istum. Þar væri hinsvegar ekki rétt að þar væri miðstöð upp- reisnarinnar í Tibet. Friðrik Ólafsson Friðrik floginn á laflmot í Moskvu Fríðrik Ólafsson fór í niorgim áleiðis til Sovétríkjanna í boði skáksamtaka þar til að keppa á móti er liefst í Moskva- á mánu- daginn og á að ljúka 21. þ.m. Á- samt Friðrik fór Arinþjöm Guð- mundsson. Þátttakendur í móti þessu verða 12 og eru 6 frá Sovétríkj- unum, þeir smisloff, Bronstein, Spasskí, Lútikoff, Vasokoff og Simagin, Larsen frá Danmörku, Portish frá Ungverjalandi, Filip frá Tékkóslóvakíu, Friðrik frá fslandi og loks Búlgari sem enn er ekki vitað hver verður. Föstudagur 3. apríl 1959 — 24. árgangur — 74. tölublað. Spiiakvöld Spilakvöld Sósíalistafé- lags Reykjavíkur verðnr n. k. siumudagskvöld í T.jam- argötu 20 og hefst kl. 8.30. Félagsvist. Kvikmynd. Veitingar. SÓL OG SUMAR var hér á páskadag og bæjarbúar notnðu sér það óspart. Var margt manna í Hljómskálagarðimim, en þpr var þó nobkur kaldi að vanda. Sunnan við steinhæðina í garðinum var logn og Mti en grasvöllurinn blautur. — En bömin dóu ekki ráðalaus og þótti ekki síður ævintýralegt nppi í liæðinni. 1 ylkir farínn I flskileit vii Grænland Togarinn Fylkir fór í gær til að leita aö þorskmiðum við Austur-Grænland. Skipstjórinn, Sæmundur Auðuns- son og Jakob Magnússon fiskifræðingur em leiöang- ursstjórar. Togarinn fer þessa för á veg- um fiskileitar- og veiðitilrauna- nefndar. Komið hefur í ljós að þorskur hrygnir við Austur- Grænland og er tilgangur far- arinnar að reyna að ganga úr skugga um live mikið þorsk- magn er á þessum slóðum og hvort þama muni vera um þorskmið að ræða er geti komið að gagni íframtíðinni. Sæmundur Auðunsson skip- stjóri og dr. Jakob Magnússon hafa áður farið í fiskileit og þá með ágætum árangri, en þá voru þeir að leita að karfa, en nú er fyrst og fremst verið að hugsa um þorskinn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.