Þjóðviljinn - 21.06.1959, Side 9

Þjóðviljinn - 21.06.1959, Side 9
Sunnudagur 21. júní 1959 ÞJÓÐVILJINN (9 Síðari dagur 17. júní motsins Síðari hluti 17. júní móts- ins fór fram á fimmtudaginn og voru veðurskilyrði betri en fyrri daginn, þótt nokkuð væri kalt í veðri. Árangur í sumum greinum var sæmilegur. Þó vantaði til keppninnar ýmsa af beztu mönnum okkar, eins og og Hilmar og Jón Pétursson, lögreglumennina, sem ekki fengu frí, Björgvin Hólm sem var lasinn og svo Vilhjálm Einarsson sem ekki er á land- inu. Ungir menn eru að koma fram og má þar nefna Ingvar Þorvaldsson, sem stökk nær 14 m í þrístökki og Jón Ólafs- son sem stökk fyrri daginn l. 80, með ,,sax-stíl“ í hástökki, og er að kalla nýliði. Það var líka gaman að sjá einn af þeim ,,eldri“ koma aftur, ef svo mætti segja, en það var Hörður Haraldsson sem tók þátt í 400 m hlaupinu og sigr- aði, og það meira að segja okkar ágæta Þóri Þorsteinsson í einvígi, því að þeir tóku að- eins tveir þátt í því hlaupi. Hörður hefur oft undanfarin ár verið veill í fæti, en nú virðist hann hafa náð sér og átti ágætt hlaup. Það sama endur- tók sig í 1000 m boðhlaupinu þar sem hann hljóp 400 m. Ingvar Hallsteinsson vann spjótkastið og kastaði rúma 57' m, er ekki ósennilegt að hann fari yfir 60 m í sumar. Næst- ur honum kom Keflvíkingur voru á ferðinni, en þeir Krist- leifur, Kristján og Svavar fylgdust að þar til einn hringur var eftir, þá tók Svavar sprett- inn og hélt honum í mark. Úrslit í einstökum greinum urðu þessi: 200 m hlaup Valbjörn Þorláksson ÍR 22,9 Guðjón Guðmundsson KR 23.1 Grétar Þorsteinsson Á 23,6 400 m lilaup Höi'ður Haraldsson Á 50,2 Þórir Þorsteinsson Á 50,6 1500 m hlaup Svavar Markússon KR 3.57.4 Kristleifur Guðbj'ornsson KR 4.01.0 Kristján Jóhannsson IR 4.04.5 400 m grind Sigurður Björnsson KR 58.4 Hjörleifur Bergsteinsson Á 60.0 Þorkell St. Ellertsson Á 60.8 Þrístökk Ingvar Þorvaldseon KR 13.98 Helgi Björnsson iR 13.46 Þorvaldur Jónsson KR 13.30 Spjótkast Ingvar Hallsteinsson FH 57.01 Halldór Halldórsson ÍBK 56.84 Valbjörn Þorláksson ÍR 54.27 Sleggjukast Þórður B. Sigurðsson KR 49.36 Friðrik Guðmundsson KR 47.48 Birgir Guðjónsson ÍR 37.23 1000 m boðlilaup Sveit Ármanns 2.02.6 Sveit KR 2.05.2 Sveit ÍR 2.12.1 Lið Aftureldingar: Aftari röð: Skúli Skúlason, Skúli Skarp- héðinsson, Halldór Lárusson, Anton Sigurðsson, Friðrik Pét- urson, Halldór Sigurðsson. Fremri röð; Tómas Lárusson fyrir- liði, Daníel Benjamínsson, Niels Hauksson, Ósl'ar Sigurbergsson og Sigurður Skarphéðinsson. Nýr knattspyrnuvöllur vígður í Mosfellssveit Þess er skammt að minnast, að Ungmennafélagið Áftureld- ing í Moefellssveit minntist með miklum myndarbrag 50 ára afmælis síns í hinu glæsi- lega félagsheimili eínu að Hlé- garði. I kjölfar þess, og sem þáttur í afmælishaldinu, kom svo vígsla íþróttavallar sem um nokkurt skeið hefur verið í byggingu. Þessi merkisatburður fór svo fram 12. þ.m., með leik milli knattspyrnuliðs frá Áftureldingu og Breiðabliks úr Kópavogi. Áður en sjálfur vígsluleikur- inn hófst afhenti fyrirliði ' Breiðablike, Ármann J. Lárus- Svavar Markússon Hann vann bezta afrek 17. júní mótsins með því að hlaupa 1500 metra á 3.57.4 mín. Ann- að kvöld keppir hann við fé- laga sinn Kristleif Guðbjörns- son, Svíann Kálleyágh, og Dan- ann Thögersen í 3000 metra hlaupi KR-mótsins. sem vírðist vera efniviður og munaði aðeins 17 sm á þeim. Heitir hann Halldór Halldóre- son, og fyrri daginn varpaði hann kúlu nokkuð á 14. metra. Tími Svavars Markússonar í 1500 m hlaupinu mun vera bezti árangur mótsins og því líkur til að liann hljóti for- setabikarinn. Skýrslur munu þó ekki hafa borizt utan af landi um beztu afrek þar. Þessi ár- angur Svavars var þá nær 10 sek. lakari en met hans er. Fyrri hluti hlaups þessa var alltof hægt hlaupinn miðað við svo góða hlaupara sem þar ivermyrSOOOmet™ R-móKnu annað kvöld? 1 móti þessu taka þátt allir beztu íþróttamenn landsins að Vilhjálmi Einarssyni unídan- skildum sem dvelur erlendis. Að sjálfsögðu beinist athyglin mest að greinum þeim sem gest- irnir taka þátt í og þar reynir mest á þá Kristleif í hlaup- unum, og Svavar sem tekur þátt í 3000 m, sem er þó ekki hans grein. Þórð í sleggjukastinu, en hann hefur einu sinni sigrað Cederquist í sleggjukasti. Jón Pétursson fær líka að taka á sínu bezta, en hann hefur náð góðum árangri inni í ár. Greinarnar sem keppt verður í annað kvöld eru: 100 m, 400 m, 3000 m, 110 m grindarhlaup, 1500 m hlaup unglinga, langstökk, hástökk, kringlukast og sleggjukast. Þriðjudagur: 200 m, 800 m, 5000 m, 400 m grind, 1000 m boðhlaup, 400 m hlaup drengja, kúluvarp, stangarstökk, þrístökk, eleggju- kast. Eins og frá var sagt í gær keppa tveir Svíar og tveir Dan- ir á frjálsíþróttamóti KR ann- að kvöld og á þriðjudagskvöld. Til viðbótar má geta beztu árangra þeirra sem fyrir liggja: Bertil Kállevágh hlaup- ari: á 3 km. 8.09.8 og 14.15.0. Bezti árangur hans i sumar er 8.19.8 og 14.22.0. Hinn Sví- inn er hástökkvari Stig Ander- son að nafni og á bezta ár- angur 2.05 en bezt í ár er 2 m sléttir. Danski metliafinn í sleggju- kasti Poul Cederquist hefur kastað lengst í sumar 52.50 en met hans er 56.72. Um bezta árangur Thögersen var ekki vitað en hann er sem kunnugt er einn snjallasti hlaupári Norðurlanda, og það var í samhlaupi við hann þeg- ar Kristleifur setti Islandsmetið á 3000 í fyrra og munaði litlu, og er því spennandi að vita hvernig til tekst nú á „heima- velli“. Þess má ennfremur geta að mót þetta er nokkurs konar úrtökumót fyrir keppnina: landið — Reykjavík eftir háif- an mánuð. son, fyrirliða Aftureldingar fagran blómvönd. Mótið fer fram á Melavell- inum. Leikurinn hófst með því að Sigurjón Ásbjörnsson, 4 ára snáði, sonarsonur Sigurjóns Péturssonar glímukappa, ,,opn- aði“ leikinn með því að spyrna upphafsspyrnunni, og fór vel á því, bæði vegna þess að þessi ídagur, 12. júní, var árum sam- an haldinn hátíðlegur með í- þrótta- og leiksýningum af Sig- urjóni á Álafossi, og svo er Sigurjón litli sonur Ásbjarnar Sigurjónssonar sem hefur ver- ið í íþróttavallarnefnd frá byrj- un ásamt þeim Guðjóni Hjart- arsyni formanni félagsins og Gunnari Sigurðssyni sem hefur verið formaður íþróttavallar- nefndar. Án nokkrar hlutdrægni er óhætt að segja það að þessir þrír menn hafa hrint þessari framkvæmd þann áfanga sem nú var vígður, með elju dugn- aðar og ósérhlífni í sjálfboða- vinnu og hafa nú hlotið laun erfiðis síns með vígslu vallar- ins. Leiknum lauk með því að ,,afmæ1isbarnið“ vann með 6 mörkum gegn 1. Virðist sem þessi árangur verði hvetjandi fyrir liðsmenn er til þátttök- unnar kemur í annarri deild- inni. Áhorfendur voru margir, veður var sæmilegt, og ’dómari var Hannes Sigurðsson. Aðalræðuna við þetta tæki- færi flutti formaður vallar- nefndar, Gunnar G. Sigurðsson. Völlur þessi er malarvöllur, 105x65 m að stærð Við hliðina á aðalvellinum er handknatt- leiksvöllur á grasbala. Aðstaða til frjálsíþrótta. verður þarna einnig mjög góð. Er þetta hluti af mikilli áætlun um Vallabygg- ingar i Varmárlandi, og sem verða á íþróttamiðstöð sveitar- innar. Er með honum stigið etórt spor, sem opnar æsku sveitarinnar möguleika til enn meiri átaka og samstilltra af- reka. Þegar er byrjað á gras- velli og unnið þar að þurrkun og framræstingu, hlaupabraut- ir eiga að koma þama og fl. Búið er að reisa búningsklefa við völlinn. Eftir leikinn var efnt til samsætis i félagsheimilinu fyrir félaga og gesti, og flutti þar ávarpsorð formaður félagsins Guðjón Hjartarson, og stjórn- aði hann hófinu. Við það tæki- færi voru félaginu færðar margar árnaðaróskir í tilefni af þessum merka áfanga í sögu' þess. Þeir sem fluttu kveðjur voru m.a. Guðjón Einarsson fyrir hönd ÍSÍ, Páll Ólafsson formaður UMS-Kjalarnes, Þor- steinn Einarsson íþróttafulltrúi ríkisins, Einar Björnsson frá Val, Jón M. Guðmundsson frá Reykjum, sem hefur um langan tíma verið helzti forustumaðnr héraðsins um knattspyrnumál, Ólafur Ó. Þórðarson hrepn- stjóri og Ólafur Jóhannsson frá Svínhóli. Það var upplýst að þegar eru komnar í völlinn um 400 þús. krónur, og er þar með talin sjálfboðavinna sem er mikil. Hafa margir lagt þar hönd á plóginn, bæði menn sem hafa aðeins sínar vinnandi tvær hendur og eins hinir sem hafa stærri tæki og efni sem til þurfti, og hefur þéssi sam- hjálp gert verkið ef til vill mögulegt og gert forustumenn- ina bjartsýnni og framsækhari að ná markinu. Er Aftureldingu hér með árn- að heilla með áfangann sem náðst hefur, og því er spáð að ekki líði á löngu áður en fleiri góð tíðindi berist frá þeim og að þar eigi eftir að koma fram knattspyrnuflokkur er skemmti- legt verður að fá með í sam- starfið. Til J liggur leiftm Trúlof un arhringir, Stein- hringir, Hálsmen, 14 og 18 kt gull. Verzlunin G N 0 Ð Hörpusilki, Spred, Slipp- málning, fernisolía, terpen- tína, þynnir, glær pólitúr, gólfdúkalím, trélím, alum- iníum bronz, vélalakk ,reið- hjólalakk, penslar og kúst- ar. Ver/.lunin hefur málara- meistara, sem lagar liti i'yr. ir fólk og leiðbeinir því um litaýal, ef þess er óskað. Verzlunin GN0Ð Gnoðavagi 78, —• Sími 35 - 382.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.