Þjóðviljinn - 05.07.1959, Blaðsíða 4
4)
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 5, júlí 1959
tf
BÆJARPÖSTURÍNN í
Kosningaloíorð — Eitt dæmi um
verðhækkun.
PÓSTURINN var að fá sér raf-
magnsþvottapott frá Rafha um
daginn, og eins og þið vitið',
þá eru þeir það stórir og þung-
ir að maður getur ekki borið
þá með sér, a.m.k. ekki sunnan
úr Hafnaríirði og til Reykja-
víkur. Fórum við því fram á,
að potturinn væri fluttur heim
til okkar, en það var ekki
hægt. Sagði sá sem talað var
við, að þeir flyttu ekki heim
, til fólks, nema búið væri að
borga inn á'hlutinn. En þegar
. við pöntuðum pottinn, var ekk-
ert nefnt, að það þyrfti að
borga inn á þá.
Þetta finnst mér vera óliðleg-
heit, sem koma sér illa fyrir
fólk, því að það er bæði tals-
vert dýrt og tafsamt fyrir
menn, sem eru í vinnu, að fá
sér bíl til Hafnarfjarðar til að
sækja einn þvottapott'.
★----
. KOSNINGALOFORÐ eru al-
ræmd og alkunn, og margir
munu þeir, sem lítið mark taka
á slíkum loforðum. Eitt kosn-
ingaloforð Jóns Skaftasonar í
Kópavogi var á þá leið, að ein-
um kjósenda var lofað því, að
gatan sem hann býr við, skuli
lækkuð um einn og hálfan
meter á smákafla, upp af húsi
kjósandans, ef hann kysi Jón
Skaftason! En þótt Jón sé nú
fyrrverandi kommúnisti og þar
af leiðandi bezti drengur í
verunni, þá hef ég enga trú á
að hann stándi við þetta lof-
orð.
★-----
JdEÐAL ANNARRA vara sem
hækkað hafa í verði er þvotta-
efnið Þvol, má ég segja að
Hafa ekkert til að
berjast um
Frol Kosloff, varaforsætisráð-
iierra Sovétríkjanna, sem í
fyrradag lagði upp í tíu daga
ferðalag um Bandaríkin, sagði
áður en hann fór frá Washing-
ton að Bandaríkin og Sovét-
ríkin ættu bæði svo miklar auð-
lindir að þau hefðu ekkert að
bítast um.
Borgarstjórinn í Detroit, sem
er ein þeirra borga sem Kosloff
ætlar að heimsækja, hefur neit-
að þeim tilmælum bandaríska
utanríkisráðuneytisins að hann
taki á móti gesti þess með
þeirri viðhöfn sem venjulega sé
höfð þegar um jafntigna menn
er að ræða.
Comet-flugvélar
seljast ekki
Svo lítil eftirspum er eftir
Cometþotunni, sem brezkur
flugvélaiðnaður hefur helzt tal-
ið eér til ágætis, að sagt hefur
verið upp 500 verkamönnum í
de Havillandverksmiðjunum er
framleiða hana. Forstjórar fyr-
irtækisins segja að flest flug-
félög heims séu nú í slíkum
fjárkiöggum að þau geti ekki
lagt í kaup á nýjum flugvél-
lim.
flaskan hafi hækkað talsvert á
aðra krónu. En þvottaefni er
sennilega ekki með í vísitöl-
unni, svo að það gerir ekkert
til, þótt það hækki dálítið í
verði.
Sendiherra irasil-
íu ksmur hingað
í dag _
Francisco d’Alamo Lousada
nýskipaður sendiherra Bras-
ilíu hér, kemur hingað til
lands í dag ásamt konu sinni.
Erindi hans fyrst og fremst
er að afhenda forseta Islands
embættisskilríki sín og mun
sú athöfn fara fram að Bessa-
stöðum einhvern næstu daga.
Francisco d’Alamo Lousada
er fæddur í Sao Paulo 16.
ágúst 1902. Hann stundaði
nám við tækniháskólann í
Sao Paulo og lauk þaðan
prófi sem jarðfræðingur. Um
skeið var hann ofursti í her
Brasilíu.
Hann hefur setið í land-
fræðiráði Brasilíu og enn-
fremur átt sæti í sagnfræði-
ráði Petropolisborgar. Einka-
ritari Eurico Caspar Dutra
Brasilíuforseta varð hann ár-
ið 1946.
Francisco d’Alamo Lousada
hefur um langt skeið verið
fulltrúi lands síns erlendis
og haft aðsetur í mörgum
löndum. í London sat hann
frá 1926—1927, fór þaðan til
Brússel og var þar tvö ár.
Árin 1936—’37 var hann í
Buenos Aires og síðan í Bern
frá 1937—1939. Til Assunci-
on fór hann 1939 og var hálft
annað ár. í Santiago dvaldi
hann fyrir land sitt 1942—
1943 og í La Paz árið 1944.
Hann var fulltrúi lands síns
í Bern árin 1951—1954 og sið-
an í Guatamala frá 1954 til
1955.
ísland og Brasilía hafa^
lengi átt verzlunarviðskipti
saman og þau viðskipti hafa
farið vaxandi á síðustu ár-
um. Viðskipti okkar við
Brasilíu hafa verið mjög hag-
stæð, þar sem Brasilíumenn
kaupa af okkur saltfisk, en
við fáum í staðinn kaffi,
timbur og sykur.
Hinn nýi sendiherra Bras-
ilíu, sem nú afhendir skil-
ríki sín og kynnist Islandi
í fyrsta sinn af eigin raun,
mun hafa aðsetur sitt í Osló.
13 dagar
eru þar til farið verður á
æskulýðsmótið í Vínarborg.
— Skrifstofa undirbúnmgs-
nefndarinnar er að Bröttu-
götu 3A (upp af Aðal-
strætj), opin kl. 10—12 og
2—7, sími 1-55-80.
Nokkur pláss laus, eí
sótt er um strax.
ÍTALSKA PEYSUSSYRTAN
SM3RT - KESTON
Jónas Jónasson þulur segir:
Smart Keston peysan er mjög þægileg og falleg
Menn ættu að ganga í Smart Keston peysunni og
spara konunni skyrtuþvott.
HEILDSÖUBIRGÐIR:
UMBOÐS' & HEILDVERZLUN
HVEBFISGÓTU 50 SÍMI 1 0485
ifl