Þjóðviljinn - 02.10.1959, Page 11

Þjóðviljinn - 02.10.1959, Page 11
 Föstudagur 2. október 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (11 VICKI BATJM: II. hana fyrir blaðamönnum, ljósmyndurum og umboðsmönn- um. Aðeins nánustu vinir fengju að sjá hana og þeir myndu segja hrifnir, alltof hrifnir, að það væri alls ekki hægt >að sjá örin. Pokey fyndi handa henni nýja hárgreiðslu, sém hyldi örið á vinstra gagnauga — það var lengi að gróa — og hún segði að kvöldkjóll vneð löngum ermum en mjög fleginn í bakið og að framan, væri langtum glæsilegri og eggjandi gn allar þessar beru axlir. Bara bíða eitt ár og þá ertu alveg búinn að ná þér, já eftir hálft ár, þrjá mánuði. Marylynn leit í speg- ilinn og kjarkur hennar óx. Pokey myndi ekki sleppa af henni hendinni þennan langa biðtíma. Hún léti hana fara í söngtíma, þjálfa sig í framsögn, æfa ný lög, læra spænska söngva. Smátt og smátt hóf Sid auglýsingaher- ferðina sem átti að undirbúa endurkomu hennar. Pokey var alltof skynsöm til að álíta að áheyrendur kærðu sig um að hlusta á söngstjörnu sem gengið hefði í gegnum vítiseld. Áheyrendur vildu fá óskaddaða Marylynn, jafn glaða og hressilega og hún var áður. Fyrst áttu minning- arnar um eldsvoðann að dofna og hverfa loks alveg úr klausunum sem Sid smeygði inn í blöðin. Marylynn hresstist dag frá degi með ómetanlegri hjálp Pokey. Loks fannst henni hún vera búin að ná sér og hún ljómaði aftur af hreysti og heilbrigði. — Þú getur reitt þig á að litla salamandran okkar fær fljótlegá nýjan hala, sagði Luke. En einmitt þegar hún var gagntekin öryg,gi og reiðubúin til að hefja inngöngu sína og mæta áheyrendum sínum sigrihrósandi, komu sorglegir afturkippir. Lítill drengur í Central |Park klifraði upp í kjöltu hennar, snerti kinnina á hénni og spurði með hárri, skærri röddu: — Hvað er þetta skrýtna þarna á þér? Gamall leigubílstjóri sagði áhygjufullur: — Hefur frúin orðið fyrir slysi? Pereira ungi — sem fyrir einu ári hafði reynt að fremja sjálfsmorð hennar vegria — skrifaði ástríðuþrungin bréf, kæmi í flugvél frá Ríó til að bjóða henni hönd sína og hjarta, en ná- fölnaði þegar hann sæi framan í hana og hypjaði sig hurtu eftir klukkutíma skrykkjótt samtal án þess að bera fram bónorð. Meðan Marylynn lá hreyfingarlaus í sjúkrahúsinu og þokaði sér með erfiðismunum upp úr dimmu djúpi með- vitundarleysisins, barðist hún samtímis við þessa liðnu erfiðleika, unz hún stóð loks á litla nýtízkulega sviðinu í Glerturninum. Pokey hafði undirbúið endurkomu hennar með mikilli umhyggju og alúð. Glerturninn var staður sem hafði „niveau“, eins og Marylynn komst að orði þegar franski gállinn var á henni. Salurinn var hvorki of lítill né of stór og gestirnir voru vandlátir San Francisco búar. Og ef illá færi — Pokey hafði þó barið inn í Marylynn að það gæti ekki farið illa — þá þyrfti fólk á Broadway og East Fifties ekki endilega að komast að því. En ef það færi eins vel og Pokey bjóst við, þá var Sid Carp reiðu- búinn að blása svo hraustlega auglýsingalúðurinn að múrar Jeríkóborgar hryndu. Vikurnar fjórar í Glérturn- inum áttu aðeins að vera undanfari ráðningarinnar í Star Rood. Luke hafði skrifað handa henni ný lög og haldið henni vikum saman í sælli vímu eftirvæntingar og starfs, og Pokey, elsku hugrakka og trausta Pokey, hafði hvað eftir annað sagt að hún syngi betur og væri fallegri en nokkru sinni fyrr. Nýtt umhverfi, ný efnisskrá, ný hárgreiðsla, nýr og dásamlegur kjóll og hugrekki. Eng- inn taugaóstyrkur, engir móðursýkishnerrar, magapína eða þurrar kverkar. Eftir hið langa aðgerðarleysi gat liún varla beðið eftir þeirri stund er hún stæði frammi fyrir áheyrendum sínum. Hún togaði í tjóðurbandið sem þau höfðu hana í og hún var hamingjusöm eins og kona, sem ætlar á fund við elskhuga sinn, sem hún hefur ekki séð langalengi. Glerturninn var efst uppi í skýjakljúf og gerður úr eintómu gleri, málmi og glampandi ljósum. Á uppleiðinni fór Marylynn að hugsa um, hvernig þessi litla lyfta ætti að rúma allt þetta fólk ef eitthvert slys kæmi fyrir, og hún fékk sting í hjartað, en hann hvarf þegar hún setti Emily fyrir framan spegilinn í glæsilega búnings- herberginu. Blóm, skeyti, sægur af dýrum gjöfum, sem hún hafði vanizt á velgengnisárunum. Pokey sem hélt kampavínskokkteil að vörum hennar. stjanaði við hana og spýtti þrisvar um öxl til að allt færi að óskum. Og Luke „kom henni á sporið“ eins og hann kallaði það. Það var mjög mikilvæg athöfn, sem var fólgin í því, að hann ýtti henni inn í dimmt skot og kyssti hana þar til allar taugar hennar voru þanöar. Ef til vill var það þetta ástríðuþrungna faðmlag sem gerði það að verkum að hún kom inn á sviðið sveiouð einhverjum eggjandi ástarljóma, sem stafaði frá henni aftur á f jarlægasta borð- ið í salnum. Glerturninn státaði af því að vera frábrugðinn öllum öðrum stöðum, en bakvið tjöldin var allt með sama svip. er í Tjarnargötu 20. — Opin alla virka daga frá klukkan 9 árdegis til 10 síðdegis. — Símar 17511 og 16587. Skrifstofan gefur UPPLÝSINGAR UM KJÖR- SKRÁ hvar sem er á landinu. ATHUGIÐ í TÍMA HVORT ÞIÐ ERUÐ Á KJÖRSKRÁ. Utankiörfundarathvæðagreiðsla er hafin. — Kosið er í húsi Rannsóknar- stofnunar sjávarútvegsins, Skúlagötu 4, fjórðu hæð (Fiskifélagshúsinu nýja) alla virka daga kl. 10—12 árdegis, 2—6 og 8—10 síðdegis; á sunnudögum kl. 2—6 síðdegis. Gefið sem fyrst upplýsingar um fólk, sem kann að verða fjarverandi á kjördegi, þannig að hægt verði að hafa samband við það, sími 15004. Ellið kosningasfóðiim Tekið á móti peningum og afhent söfnunargögn. Hafið samband við kosningaskrifstofuna. Alþýðubanðalacsið. HEIHUISÞATTUrIS! ísréftir í barna afmœli Ekkert er eins vinsælt í af- mælisveizlum barnanna og ís-1 ; inn. Hægt er að framleiða is á marga mismunandi vegu og ný-; stárlegir réttir eiga alltaf vin- sældum að fagna. Banana-sp.it: Banani klofinn eftir endilöngu og vanilluís settur í milli. Skreytt með kirsu berjum eða kokkteilberjum. Skip á liafinu: Hálfar perur fylltur með vanilluís, lítill fáni eða hvítt segl sett í toppinn og skúturnar settar á „haf“ úr litaðri perusaft, sem hleypt er með matarlími. (Það þarf sjö! blöð af matarlími í hálfan lítra \ af safa). Látlaus frúarkjóll Á tízkusýningu sem nýlega var haldin í Prag, var mikið sýnt af svonefruium frúarkjól-1 um. Þeir voru velflestir í ljós- um pastellitum og áttu það sameiginlegt að vera látlausir í sniðinu og þœgilegir að vera í. ' 'i' ? Iþrótlir Framh. af 9. síðu leikina, og er það heldur að fara aftan að siðunum í íþróttum. Handknattleiksráð Reykjavíkur mun afsaka sig með því að þetta séu allt afmælismót sem ekki sé hægt að neita um en aðilar sæki fast að halda þau. Fyrsta afmælismótið er í til- efni af 30 óra afmæli Fimleika- félags Hafnarfjarðar og fer það fram eins og fyrr segir föstu- daginn 9 og sunnudaginn 11. október. Helgina þar á eftir eða 16. og 18. október verður svo afmæiis- mót KR í tilefni af 60 ára afmæli þess á sl. vetri og að lokum fer fram afmæhsmót Þróttar helgma bar á eftir, en Þróttur á í ár 10 ára afmæli. Ekki er íþróttasíðunni kunnugt um fyrirkomulag móta þesara. Reykjavíkurmótið hefst 28. október Og það verður ekki mikið hlé, því í vikunni á eftir eða 28. október á Reykjavíkurmótið að byrja. Fr það mót fyrir alla -flokka í karla. og kvennaflokkum. (A og B sveitir). Er þetta að venju mjög fjölmennt mót og mun æt.lunin að ljuka því fyrir 10. desember. Eiga þátttökutilkynningar að vera komnar til HKRR fyrir 15. októþer. Mun ráðið hafa tekið þá ákvörðun að taka aðeins þær tilkynningar til greina sem þátt- tökugjaldið, 35 kr., fylgir. . Handknattleiksþingið um hetgina Um bessa helgi fer fram þing Handknattleikssambands ís- lands, og mun þar rætt ýmislegt sem varðar hándknattleikinn á komandi mánuðum. Má vænta þess að þingið taki afstöðu til fyrirkomulags landsmóta og eins um utanfarir og heimsóknir í vetur. Svnrliii” bjú- skapar- irulaður A níunda hundrað ógiftar konur af Ekpeye-ættbálkn- um í N'geríu fóru á dögun- um í kröfugöngu til að mót- mæla ólöglegum aðförum á hjúskaparmarkaðinum. I Stúlkurnar hé’du fylktu 1 liði til sýsluskrifstofunnar í Ahoeda og kærðu fyrir sýslumanni að foreldrar þeirra krefðust oft yf'r 80 sterplingspunda í brúðar- i gjald af biðlum, enda þótt yfirvöldin hafi sett hámarks- verð á brúði 30 pund. Þetta hefur orðið til þess að ýmsir e:gulegustu karlmenn ætt- bálksins hafa ekki getað gengið í hjónaband, vegna þess að þeim hefur ekki tek- izt að nurla sér saman fyrir kvenmanni. Sýslumaður bað stúlkurnar að stilla skap sitt. meðan hann væri að rann- t saka málið.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.