Þjóðviljinn - 24.10.1959, Blaðsíða 7
• •••
Laugardagur 24. október 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Ávarp frá forustumönnum verUalýö&félagu í Reykjavík:
Gerum Eðvarð
Reykvískir launþegar!
VIÐ ALÞINGISKOSNINGARNAR þann 25. þ. m. veljið þið reyk-
vískir launþegar, sem kosningarrétt hafið, umbjóðendur til að gæta hags-
muna ykkar á Alþingi Islendinga, til næsm fjögurra ára.
Það gemr engum dulizt, sem eitthvað fylgist með því, sem er áð
gerast í íslenzkum þjóðmálum, að sterk öfl vinna að því, að efnahags-
vandamálin svokölluðu verði á næsmnni leyst á kostnað launafólks í enn
ríkara mæli en gert var með kauplækkunarlögunum eftir s.l. áramót,
en þær aðgerðir sögðu forusmmenn „stærstu stjórnmálasamtaka lands-
ins" aðeins vera fyrsta skrefið sem stíga þyrfti á þeirri braut. Aðrir, sem
minni stærð eru í íslenzkum stjórnmálum, voru á yfirborðinu látnir
hafa forusm um að „fyrsta skrefið" var stigið, og hæla þeir nú sjálfum
sér óspart fyrir þann mikla kjark, sem þeir hafi með þessu sýnt, en
jafnframt er svo reynt að blekkja launþega með því að ekkert hafi
verið af þeim tekið með þessum ráðstöfunum.
Kauplækkunin eftir áramótin síðustu ætti að vera alvarleg áminning
til allra launþega að sameinast nú við þessar kosningar, um að velja
sér þá fulltrúa eina til sem á Alþingi, sem þeir geta fyllilega treyst,
þegar fjallað verður þar um þau mál, er snerta lífsafkomu alls launafólks.
Miðað við það atkvæðamagn, sem flokkarnir fengu í Reykjavík við
alþingiskosningarnar í sumar, munar aðeins tæpum 500 atkvæðum að
þriðji maður G-listans verði kjörinn þingmaður Reykvíkinga. Það sæti
skipar Eðvarð Sigurðsson, ritari Dagsbrúnar, sem um áratugi hefur verið
einn helzti forusmmaður fyrir hagsmunabaráttu launþeganna hér í bæ,
og hefur hann með starfi sínu fyrir samtök þeirra unnið sér óskorað
traust sem hæfileika- og mannkostamaður.
Allt útlit er fyrir, að í komandi kosningum verði áhöld um, hvor
verði kjörinn þingmaður Reykvíkinga, Eðvarð eða Birgir Kjaran, r.em
skipar 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.
Það ætti ekki að vera erfitt fyrir launþega að gera það upp við : ig
hvor yrði betri eða heilli málsvari þeirra á Alþingi Islendinga, Eðvarð
Sigurðsson, einn hæfasti forustumaður íslenzkra verkalýðssamtaka, eða
Birgir Kjaran, heildsali.
^'/cutuu /Jp-
<fi' i
O'tYlCW
v-tA
£?***>!
a
•
ISLENZK ALÞYBA! GERUM KJÖRSEÐILINN
AÐ VOPNI f HAGSMUNABARÁTTUNNI!