Þjóðviljinn - 07.11.1959, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 07.11.1959, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 7. nóvember 1959 Minjasafn Framh. af 3. síðu Blaðamál Ég minntist á það í síðasta þætti að ég mundi nú á næst- unni taka til meðferðar ýmis lýti á málfari dagblaðanna, einkum í Reykjavík, en þau sé ég helzt, svo sem vænta má. Síðastliðið vor sendi Gísli Sveinsson fyrrum sendiherra mér alllangan lista um bögu- mæli og fleira slæmt í ræðu og riti hjá mönnum sem ann- ars ættu að vanda málfar sitt öðrum fremur. Síðar verður hér notað tækifærið til að rekja sum þessara atriða. Ég skrifa hérna sögnina að rekja. Það minnir mig á að fyrir nokkrum dögum (lík- lega eftir kosningar) var þessari sögn ruglað saman við sögnina „að reka“ í Tím- anum. Ég hélt ég hefði skrif- að hjá mér hvar og hvenær þetta var, en finn það ekki nú, svo að ég get ekki bent á staðinn, en orðalagið var á þá leið að eitthvað ,,rak“ rætur sínar til einhvers, í stað þess að í þessu sam- bandi á að vera sögnin að rekja, og því átti að segja „rakti“ rætur sínar til þess eða hins. Annars hef ég síðustu vik- urnar fundið flest bögumæli í Alþýðublaðinu, en ekki eru hin blöðin saklaus heldur. 23. okt. segir Alþýðublaðið á 6. b!s.: „Herra Gaston grunar ábyggilega ekki, að ég sé í slagorði með þér“. Þetta er einn þeirra þátta sem ung- lingar lesa hvað mest — og læra málið af. En hér er ruglað saman tveim orðum, slagorði ritað í stað slagtogi Að vera í slagtogi með ein- hverjum merkir að vera í fé- lagi við hann, hafa mikið saman við hann að sælda eða eitthvað því líkt. Hins vegar er slagorð notað í heldur lé- legu máli um það sem annars er venjulega nefnt kjörorð eða ef til vill heldur vígorð (það orð sem menn berjast undir). Stundum verða bögumæli hin undarlegustu og gefa allt aðra hugmynd en ritarinn ætlast til. Til dæmis er í Morgunblaðinu í fyrradag (1. dálki 6. b!s.) talað um „á- ritað umslag af þekktum manni“. Minna má nú gagn gera en umslag sé notað ut- an um þekkta menn, en það er beinlínis sagt með þessu orðalagi. Hér hefði mátt seg.ia „umslag áritað af þekktum manni“; hitt er sams konar orðalag og á aug- lýsingunni frægu: „Rúmstæði ' er til sölu hjá stúlku sem má taka sundur“. Af sama tagi er einnig orðalag Al- þýðublaðsins 23. okt. s.l., 5. bls., þar sem segir: „bifreið- imar óku með ofsahraða um ’ borgina og var varpað hand- ‘ sprengjum og skotið úr þeim“. Að sjálfsögðu er hér 1 átt við að handsprengjum var varpað úr þessum bifreið- • um og einnig var skotið úr bifreiðunum. Hins vegar er orðalagið svo klaufalegt að ef skilja ætti það eins og beinast liggur við, hefur ver- ið skotið úr handsprengjun- um. En fleirum en blaðamönn- um verður það á að vanda lítt eða ekki málfar sitt. Ekki heyrði ég betur en í kvöld- tilkynningum útvarpsins 30. október væri talað um „geymsluskála Rafveita rík- isins“ á Keflavíkurflugvelli. Þessi tilkynning var lesin oft- ar en einu sinni, svo að ekki var um mislestur þular að ræða, heldur hefur eignarfall orðsins verið haft svona, í stað hins rétta „Rafveitna ríkisins". I kennslubókum er sú regla almenn að eignar- fall fleirtölu veikra kven- kynsnafnorða endi á -na (tungna, sagna, þúfna, o.s.frv.). Undantekn. eru talin orð sem enda á -ja, nema þau endi á -ja og hafi hvorki k né g í stofni. Þessi regla er engan veginn fullnægjandi og ekki með öllu rétt, enda er oft tilviljun háð hvaða orð eru látin hafa -na í eignar- falli fleirtölu og hver ekki. Það virðist nokkuð fara eftir hljóðasamböndum í orðinu og eftir landshlutum. Sum orð hafa þessa endingu alltaf, önnur aldrei. Meðal þeirra sem ég tel að ætíð hljóti að hafa hana eru þau sem hafa eitt t í stofni, eins og veita, gáta, púta, og er eignarfall ft. af þeim eftir því veitna, gátna, pútna. Hins vegar get ég ekki hugsað mér ef. ft. varna (af vara) og veit þó ekki ástæðuna. Eðlilegast er að telja það ritvillu þegar Alþýðublaðið segir svo á 5. bls. 7. okt. s.l.: „Þingmaður nokkur hugðist ætla að bera fram vantrausttillögu á stjórnina". Sjálfsagt hefur þetta staðið í handriti, blaðamaðurinn hef- ur fyrst hugsað sér orðasam- bandið „hugðist bera fram“ og gleymt að strika út ,,hugðist“. — Annars eru prentvillur eða ritvillur al- veg sérstakur kafli og geta verið býsna hlálegur á stund- um. í 40 ára afmælisblaðinu birti Alþýðublaðið nokkrar slíkar af betra taginu, en það efni látum við annars kyrrt liggja að sinni. Engin þeirra málvillna sem hér hafa verið taldar, hefðu komið fyrir ef ritaramir hefðu gaumgæft orðafar sitt og rithátt, heldur hefðu gagnrýnir menn tekið eftir þessum veilum hjá sjálfum sér. Raunar er það svo að menn sjá sízt af öllu villur sem þessar hjá sjálfum sér, hvort sem um er að ræða orðafarsvillur eða stafsetn- ingarvillur. Það er eins og hugurinn vilji alltaf leita i sama farið og áður og telji það ávallt rétt sem hann hef- ur látið frá sér fara, auk þees sem menn lesa venju- Framhald á 11. síðu. Jochumssonar, en þar sem forstöðumönnum Matthíasar- safns á Akureyri leikur hugur' á að eignast sófann, hefur komið til mála að skipta á honum og Reykjavíkurmunum, sem kunna að hafa borizt til Akureyrar, Eins og sakir standa er sófinn í „stofu“ í safninu þar sem borðstofuborð og stólar eru úr „norska hús- inu“ við Vesturgötu, gjöf frá Bech-systkinum, skrifborð úr búi Björns Jónssonar ritstjóra, teppi á gólfj úr sjóbúð, ofið af föngum úr tukthúsinu gamla o.s.frv. Vegna ótíðar var Árbæjar- safni lokað venju fyrr og mun- ir þess fluttir burt til geymslu í vetur. Margir þeirra hafa verið settir upp í safndeildinni í Skúlatúni, svo að húsrými þar er orðið i minnsta Tagi, að sögn. Lárusar Sigurbjörnsson- ar, einkum þar sem það má !ieita nær daglegur viðburður hð ReykVíkingar færi safninu feinhverja þá hluti, sem þeir telja betur varðveitta þar en *annarsstaðar Róbert og Rögnvaldur Framhald af 12. síðu flutt verk, sem aldrei hafa verið flutt hér á tónleikum áður: Sin- fónía í C-dúr eftir Bizet og slav- neskir dansar eftir Dvorák. Bizet, höfundur óperunnar „Carmen", samdi þessa einu sin- fóníu og var þá aðeins 17 ára gamall. Hún er ful af æsku- 4>okka, Ieynir ekki áhrifum frá fyrirrennurum tónskáldsins, bæði Vínarmeisturunum og frönskum höfundum, en er þó um sumt frumleg, og ýmislegt er þar, sem bendir til hins fullþroska Bizet. Dvorák samdi tvo flokka af slavneskum dönsum, op. 46 og op. 72. Fyrri flokkurinn var með- al þeirra verka tónskáldsins, sem fyrst unnu honum vinsældir víða um lönd. Dansarnir fjórir, sem fluttir verða á þessum tónleik- um, eru úr síðari flokknum, og eru þeir eigi síður fagrir og á- heyrilegir. Allir eru dansarnir í þióðlegum og alþýðlegum stíl, hljóðfallið frísklegt og hljóm- sveitarbúningurinn litríkur og glæsilegur. Sigurður Guðmundsson auglýsir: Sökum mikillar aðsóknar byrja ég kl. 9 f.h. og kenni allan daginn. En athygli skal vakin á því, að ein'katímar eru jafnf fyrir einn sem fleiri. Kenni nýju og gömlu dansana. Fljót kennsluaðferð Var erlendis í sumar að kynna mér það nýjasta á þessu sviði. Sími 1-58-92. Sigurður Guðmundsson, Laugaveg 11 (efsta hæð — tvo stiga upp — svo til ihægri). Y erzlunarmanna- félag Reykjavíkur heldur almennan félagsfund mánudaginn 9. nóv. kl. 8,30 í Vonarstræti 4. Fundarefni: Kjaramálin, — Stjórnin. Atvinna t Oss vantar lagtækan mann til að annast viðhald, endurnýjun og eftirlit á farþegarýnii flu.g\réla félags* ins. Væntanlegir umsækjendur sendi skriflegar um- sóknir er greini aldur og fyrri störf, fyrir 15. nóv. næst komandi. Pils mikið úrval. Verð írá kr. 285.— Hattabúð Reykjavíkur, Laugavegi 10. Ný sending hattar einnig Melusine hattar Hattabúð Reykjavíkur, Laugavegi 10. Mír 7. NÓVEMBERFAGNAÐUR í Lidó, mánudaginn 9. nóvember 1959 kl. 20.30 i tilefni af 42ja ára afmæli októberbyltingarinnar. Ræða: Kristinn E. Andrésson Frá íerð um Sovétríkin: Thor Vilhjálmsson rithöíundur. Einleikur á píanó: Rögnvaldur Sigurjónsson, Einsöngur: Kristinn Hallsson óperusöngvari, DANS. Kynnir: Jón Múli Árnason. Aðgön.gumiðar j bókabúðum Máls og menningar og KRON, i MlR-salnum Þingholtsstræti 27 og við innganginn. i Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna. Auglýsið í Þjóðviljamun;

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.