Þjóðviljinn - 07.11.1959, Síða 5
Laugardagur 7. nóvember 1959 — JÞJÓÐVILJINN — (5
Lögbrjótar eru íhaldssamari
og meiuitaðri en meðaltdlið
NiSursíaBa af ran.
á 3000 Dönum
Danskir karlmenn sem komast í kast við lögin eru^
íhaldssamari í stjórnmálaskoðunum og áhugasamari um
menningarmál en meðaltaliö í þeirra þjóðfélagsstétt.
Þetta eru tvær óvæntar nið-
urstöður af mörgum sem tvedr
danskir félagsfræðingar hafa
komizt að við rannsókn á 3000
körlum. Úrtakið var valið þann-
ig að það myndar hlutfallslega
réttan þverskurð af dönsku
karlþjóðinni.
Félagsfræðingarnir Preben
Wolf, sem er fulltrúi í stjórn
dönsku fangelsanna, og Erik
Högh háskólakennari unnu úr
rannsóknarefni sem safnað
hafði verið til að kanna lífs-
venjur og skoðanir mismunandi
þjóðfélagsstétta í Danmörku.
Fimmti hver lögbrjótur
Það kom á daginn að næst-
um fimmti hver karlmaður, 19
af hundraði, hafði komizt á
sakaskrá af einhverjum ástæð-
um. Mest er auðvitað um minni-
Ljén tilefni
Húseigandi í Kaupmanna-
höfn hefur krafizt þess fyrir
húsaleigudómstóli að sér verði
heimilað að segja leigjanda
sínum upp húsnæði. Hann tel-
ur að leigjandinn hafi brotið
ákvæði leigusamningsins með
því að hafa ljónshvolp í híbýl-
um sínum.
Leigjandinn -er ljósmyndari
og kveðst hafa fengið sér
hvolpinn vegna starfs, síns.
Honum og börnum hans féll
svo vel við þetta húsdýr, að
þau tóku hvolpinn að sér og
ólu hann upp þangað til hann
var orðinn 85 kíló á þyngd.
Þá var hann afhentur idýra-
garðinum.
innik æfir
sig a
Svíum
1 síðara hluta októbermán-
aðar s.l. þreytti heimsmeistar-
inn í skák, (Botvinnik, klukku-
fjöltefli við 8 skákmenn frá
Stokkhólmi, allt kunna skák-
meistara. Þeirri viðureign lykt-
aði þannig, að Botvinnik vann
6 skákir, gerði 1 jafntefli og
tapaði einni. Sá, ,sem vann
heimsmeistarann, heitir G.
Backlund og lék Botvinnik af
sér í þeirri skák í betri stöðu.
Bengt Hörberg náði hins vegar
jafntefli og sagði IBotvinnik,
að það hefði verið verðskuldað.
Þeir, sem töpuðu voru Ake
Olsson, M. Joffe, S. Hamrin,
A. Werle, A. Bureháll og S.
Hagberg.
Hafsteinn Austmann
Framhald á 5. síðu.
dag með þessu nýja fyrirkomu-
lagi, og verða þar til eýnis og
sölu myndir eftir Hafstein
Austmann, listmálara. Er þar
eingöngu um að ræða vatns-
litamyndir, sem málaðar eru á
þessu ári.
Verzlunin er opin á venju-
legum tíma frá kl. 9—6.
háttar brot á umferðarlögum,
en yfir átta af hundraði hafa
verið ákærðir fyrir brot á al-
mennum hegningarlögum.
Lögbrot eru langalgengust í
Kaupmannahöfn, þar hafa 26%
lent í kasti við lögin. í smá-
bæjum og sveitum eru það ekki
nema 12%.
I Kaupmannahöfn er helm-
ingur yfirsjónanna brot á
hegningarlögum. Þegar tillit er
tekið til þess hve mikill hluti
af afbrotum kemst aldrei upp,
bendir rannsóknin til áð lög-
brot séu fastur þáttur í lífi
verulegs hluta stórborgarbúa.
Algengast meðal efnaða
fólksins
Brot á ýmsum lagaákvæðum
utan almennra hegningarlaga
reynast mun algengari meðal
hærri tekjuflokkanna en þeirra
sem lakast eru settir í þjóðfé-
laginu. Þetta á til dæmis við um
tolllög, verðlagsreglur og um-
ferðarlög. Ástæðan er auðvitað,
að til þess að hafa ástæðu til
að brjóta þessi lagaákvæði
þurfa menn svo' að segja að
hafa ákveðnar lágmarkstekjur.
Þeir sem aldrei fara í utan-
landsferðir freistast ekki til að
smygla, og þeim sem ekki á bíl
hættir ekki til að aka undir á-
hrifum ófengis.
Skera sig úr
Mesta furðu vekur, að lög-
brjótamir virðast að sumu leyti
skera sig úr umhverfi sínu á
jókvæðan hátt. Wolf og Högh
telja sig hafa komizt að raun
um að þeir séu að meðaltali
framtakssamari og gæddir
meira andlegu fjöri en jafningj-
ar þeirra í þjóðfélaginu sem
ekki hafa lent á sakaskrá.
Til dæmis reyndist áhugi á
góðum bókmenntum, leiklist, sí-
gildri tónlist og málaralist al-
gengari meðal ófaglærðTa
verkamanna sem brotið höfðu
lögin en hjá þessari þjóðíélags-
stétt tekinni sem heild.
Margkvæntir
Lögbrjótarnir eru að jafnaði
óánægðir og óraunsæir og hafa
meiri tilhneigingu en aðrir til
að treysta á heppni frekar en
ástundun og gáfur. Óstöðuglynd-
ið birtist meðal annars í því að
meðal þeirra eru hjónaskilnað-
ir helmingi algengari en meðal-
talið innan sömu þjóðfélags-
stéttar.
Ófaglærðir verkamenn í Dan-
mörku upp til hópa telja sig
að 62 hundraðshlutum fylgja-
sósíaldemókrötum að málum, en
meðal lögbrjóta í þeirra hópi
er sú tala aðeins 39%. Lög-
brjótarnir hafa miklu meiri til-
hneigingu til að fylgja borgara-
flokkunum, einkum íhalds-
flokknum, en aðrir ófaglærðir
verkamenn.
Rannsóknum félagsfræðinganna
er enn ekki lokið, en af þessari
síðustu niðurstöðu telja þeir sig
geta dregið þá ályktun, að lög-
brjótarnir séu í lausum tengsl-
um við umhverfi sitt. Að því
hníga önnur rök,- svo sem að al-
gengar er að þeir vilji flytja af
landi brott en fólk flest, þeir
ganga betur klæddir og tala
vandaðra mál en meðaltal .þjóð-
félagslegra jafningja þeirra.
Bönnuðu lækn
um að bjarga
lífi barns síns
Sex ára telpa, Linda Jean
Yorinko, dó um daginn í
sjúkrahúsi í Atlantie City í
Bandaríkjunum, vegna þess
að foreldrar hennar vildu
ekki leyfa að henni væri gef-
ið blóð. Telpan varð fyrir
miklum blóðmissi við upp-
skurð, en foreldrarnir bönn-
uðu læknunum af trúar-
ástæðum að bjarga lifi henn-
ar með blóðgiöf.
Foreldamir eru í trúfélag-
inu Vottar Jahve, en ein af
trúarsetningum þess er að
blóðgjöf sé syndsamleg og
stríði gegn boði Biblíunnar.
Dóttir þeirra varð fyrir bil
og hlaut mikinn áverka.
Áfvopnun er
Lange, utanríkisráðherra
Noregs, og pólski utanríkisráð-
herrann Rapacki hafa lokið
viðræðum í Varsjá. I tilkynn-
ingu um viðræðurnar segir, að
báðir séu sammála um að
brýnasta viðfangsefnið í al-
þjóðamálum nú sé framkvæmd
almennrar og algerrar afvopn-
unar samfara traustu eftirliti.
Öll ríki, einnig hin smærri,
eigi að leggja sitt af mörkum
til að koma afvopnunarmálinu
í höfn
Ætla að reytia að hindra
atómspreiigingar
Sahara
Þessir tveir Englendingar,
Michael Randle og Francis
Hoyland, eru lagðlr af stað
til Afríku, þar sem þeir ætla
ásamt þrem mönnum öðrum að
hætta lífi sínu ef þörf gerist
til þess að reyna að koma í
veg fyrir kjarnorkusprenging-
arnar sem franska stjórnin
liefur ákveðið að láta gera í
Sahara.
Með þeim í ferðinni eru séra
Michael Scott, sem frægur er
orðinn fyrir baráttu sína gegn
kynþáttamisrétti í Suður-Af-
ríku, og tvær konur. Þau eru
öll í brezkum samtökum sem
r
Okunxft Alpaþjóð sem
halðl eiglð ritmál
Undanfaxax kelta notuðu staíróí af
austxænum uppruna
Gripir með áður óþekktu letri hafa fundizt við forn-
minjagröft við Klagenfurt í Austurríki.
vinna gegn kjarnorkuvigbún-
aði með beinum aðgerðum.
Fimmmenningarnir ætla fyrst
að halda til E1 Ilammoundia,
staðarins þar eem frönsku
kjarnorkusprengingarnar eru
undirbúnar, og reyna að telja
vísindamennina sem þar eru á
að neita að vinna frekar að
þessu verki. Takist það ekki
ætla þau að fara út í eyði-
mörkina og halda sig svo
nærri eprengingarstaðnum að
Frakkar geti ekki sprengt
sprengjurnar nema með því að
stofna lífi þeirra í voða.
Fulltrúar 20 ríkja í Afríku
og Asíu hafa lagt fram tillögu
á þingi SÞ, þar sem skorað
er á frönsku stjórnina að
hætta við kjarnorkusprenging-
arnar, vegna þess að þær muni
stofna fólki í Afríku í voða
og torvelda samninga um
stöðvun tilrauna með kjarn-
orkuvopn.
Austurrískir fornminjafræð-
ingar sem þarna starfa telja að
þeir séu gerðir af þjóð sem
bjó í Alpafjöllum á eftir etr-
úskum en á undan keltum,
meira en fimm öldum fyrir upp-
haf okkar íímatals.
Frá liægri til vinstri
Letur þetta hefur átt að lesa
frá hægri til vinstri, og sver
það sig að því leyti í ættina til
ýmissa austurlenzkra stafrófa,
en er frábrugðið stafrófum
Grikkja og Rómverja, sem lesin
eru frá vinstri til hægri.
Ekki verSur séð að þetta let-
ur sé að neinu leyti skyltgrísku
né latnesbu stafrófunum.
Líkast rúnum
Þetta nýfundna letur líkist
einna helzt hinu forna rúnaletri
germanskra þjóða, en talið er
útilokað að um nokkurn skyld-
leika geti verið að ræða þar á
mi'lli. Rúnimar komu ekki til
sögunnar fyrr en löngu eftir að
þjóðin sem notaði þetta letur
var liðin undir lok.
Hingað til hefur verið álitið
að þj óðílokkarnir norðan Aipa-
fjalla hafi ekkert ritmál átt
fyrr en Rómaríki .breiddi veldi
sitt norður fyrir fjöllin, en
þessi fornminjafundur gefur
annað til kynna. Hann er því
talinn gagnmerkur.
Á löflum og kerum
Áletranirnar hafa íundizt bæði
á leirtöflum og leirkerum. Þess-
ir gripir og aðrir bera með sér,
að þjóðin sem þarna bjó stóð
á háu menningarstigi. Grafnar
hafa verið upp rústir mjög
vandaðra baðhúsa, þar hefur
meðal annars verið miðstoðvar-
hitun.
Helzt gizka austurrísku forn-
minjafræðingarnir á að þeir
hafi komið niður á höfuðborg-
ina í ríki því sem Rómverjar
nefndu Noricum. Keltar lögðu
ríki þetta undir sig, og árið 15
f. Kr. komst það undir yfirráð
Rómverja.
a
Aratuga gömul ættadeila hafði
í för með sér þrjú mannvíg á
Sikiley í síðustu viku. Þar
liggur blóðhefnd í Iandi, og yf-
irvöldin fá ekkert að gert.
Tveir bræður, Vincenzo og
Antonio Pecorado annar 19 ára
og hinn 10, féllu, þegar þrír
menn úr óvinafjölskvldunni
Lorello ruddust að óvörum inn
á heimili þeirra. Þriðji Pecora-
dorinn lézt síðar af sárum.
Lorellarnir höíðu klæðzt lög-
reglubúningum, svo að þeim
sem fyrir árásinni urðu féllust
hendur í fyrstu. Flest lieimilis-
fólkið flúði út um dyr og
glugga, en þeir sem féllu náðu
vopnum sínum og reyndu að
snúast til varnar.
Fjölskyldurnar hafa vegió
menn hvor af annarri síðan
1901. Enginn veit með vissu hve
margir hafa fallið í ættavíguni
þessum.