Þjóðviljinn - 25.11.1959, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.11.1959, Blaðsíða 5
— Miðvikudagur 25. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5 1001. fallhlífarstökkið • “ er verkfræðin,gur að menntun. 1 tómstundum sínum stekkur hún í fallhlíf og er svo sólgin { þá íþrótt að einsdæmi er. Skopiniva liefur alls stokkið 1000 fallhlfifarstökk, og er það lieimsmet kvenna. Hún hefur fengið tíu gullverðlaunapeninga fyrir stökk sín. Hér er Skopiniva að búa sig undir að stökkva úr 1500 metra hæð. Það stökk tókst vel eins og hin 1000 stökkin. Tunglflaug skotið frá Bandaríkjum á morgun? Þær fréttir berast frá Banda- ríkjunum að ætlunin sé að skjóta eldflaug umhverfis tunglið til að taka myndir af bakhlið Jjess og eigi að vera búið að koma myndunum til jarðar þegar Eisenhower for- seti leggur upp í liina miklu reisu sína um lönd í Evrópu, Afríku og Asíu innan skamms. Sem kunnugt er sendu Sov- étríkin fyrstu eldflaug sína til tunglsins, þá sem hitti það, um sama leyti og Krústjoff for- sætisráðherra lagði upp í ferð sína til Bandaríkjanna í haust. Sagt er að Eisenhower vilji ekki standa honum að baki að þessu leyti. í síðasta mánuði var ætlunin að Baniiarikjamenn skytu á loft tunglflaug frá Canaveral- höfða, en hún sprakk á skot- pallinum af ókunnum orsökum. Önnur eldflaug sömu gerðar, 30 metra löng Atlaseldflaug sem hefur meðferðis 150 kílóa þunga geimstöð, þá þyngstu sem Bandaríkjamenn hafa enn smíðað, stendur nú á skotpalli á Canaveralhöfða og talið er að hún verði tilbúin til fararinnar á morgun, ef ekkert óhapp kemur fyrir. New York Post segir að bandaríska geimfararáðið (Nat ional Aeronautic and Space Administration) hafi skýrt geimfaranefnd fulltrúadeildar Bandarílcjaþings frá þessu, en ekki hefur frásögn blaðsins verið staðfest enn. Reynist hún rétt mun ætlun- in að Eisenhower hafi með sér á ferðalaginu myndir þær af bakhlið tunglsins sem teknar Framh á 11 síðu Sendimaður Francos fær kaldar kveðjur í V estur-Þýakalandi Þegar spánski utanríkisráö'herrann, Castiella, var i heimsckn í Vestur-Þýzkalandf fyrir nokkrum dögum, fékk hann óblíðar viðtökur í Bonn af hálfu stúdenta úr hópi sósíaldemókrata. Adenauer og ráðuneyti hans eru einhverjir dyggustu stuðn- ingsmenn Francos, sem hefur mikinn hug á að gera hinn fasistíska Spán að meðlimaríki í NATO, og fleiri samtökum vesturve'i ianna. Þegar Castiella hélt til ráð- hússins í Bonn til þess að rita nafn sitt i hina gullnu gesta- kröfuganga stúdenta úr hópi samtaka sésíaldemókratískra stúdenta og veittu ráðherran- um kaldar kveðjur. M.a. hróp- uðu þeir ókvæðisorð til Franc- os og mótmæltu aðild Spánar að Atlanzhafsbandalaginu. Stúdentarnir báru lýðveldis- fána Spánar, sem er rauður. gulur og fjólublár, það er fáni bók borgarstjórnarinnar, kom spánska lýðveldisins, sem Franco einræðisherra og aðrir fasistar brutu niður. Á kröfuspjöldunum sem sfúdentar báru stóð m.a.: „Niður með Franco“, „Enga fasista i Atlanzhafsbandalagið“ og „Trúfrelsi á Spáni“. 1 yfirlýsingu stúdentasam- bands krata segir um þessa at- burði: Stjórnarvöld Vestur- Þýzkalands reka af -óhugnan- lega mik’um áhuga áróður fyr- ir þvi að Spánn verði tekinn í NATO. Þetta er í hróplegu ó- samræmi við yfirlýsta stefnu samtakanna, sem segir að tak- mark NATO sé að verja frelsi og lýðræði. Með þessari ráð- stöfun myndi málstaður okkar í hugsjónabaráttuunni við kommúnista fá hræsnisblæ". FIDELA FÍDELA garnið er framleitt úr beztu tegund ullar og eina útlenda garnið á markaðnum, sem hægt er að prjóna á vél. FÍDELA garnið er þekkt um land allt og fæst í öllum betri verzlunum og kaupfélögum landsins. Framleiðendur; Centrotex, Dept. 6707, Prag. Umboðsmaður: Jón Heiðberg, Laufásvegi 2A, Rvik. JÓNAS ÓLAFSSON, Vonarstræti 8. Símar 17-294 og 13-585. HAPPÐRÆTTI ÞJÓÐ VI LJ AN S býður yður sem 1. vinning Volkswagen-bifreið, auk 17 annarra vinninga, að verðmæti írá 100Ö.ÖÖ—~5©0@-ÖÖ hvern og eftir eigin vali. 10 Kr. miðinn Reynið heppni yðar KaupiS miða í happ<£rœtti Þióðviliems

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.