Þjóðviljinn - 01.12.1959, Side 7
Jón Krabbe
Jcn Krabbe: Frá Hafnar-
síjórn til lýðveldis. —
Minningar frá löngum
embættisferli. —Almenna
bókafélagið.
Það má furðu gegna, hve
snauðar íslenzkar bókmenntir
eru að sjálfsævisögum og end-
urminningum. manna. Einkum
gætir bessa um endurminning-
ar stjórnmálamanna. f næstu
grannlöndum okkar þykir það
nærri borgaraleg skylda að
stjórnmálámenn haldi d'agbæk-
ur og semji .endurminningar svo
að sagrifræðingar hafi úr fleiru
að moða en þurrum skýrslum,
en á íslandi er varla til póli-
tísk sjálfsævisaga. Stjórnmála-
menn okkar virðast hafa litla
þörf á að túlka sjálfa sig og
samtíð sína og móta þannig það
mat, sem seinni tímar leggja
á þá. Það horfir því til gam-
ans og fróðleiks, að Almenna
þókaíélagið hefur um stund
'hætt við að kynna okkur rússn-
■eskar bókmenntir og snúið sér
að bví, sem nærtækara er, end-
urminningum Jóns Krabbe, Frá
Hafnarstjórn íil lýðveldis.
Jón Krabbe er í karllegg
'kominn af gamalli danskri að-
als- og embættismannaætt, en
íslendingur í móðurkyn, dóttur-
:sonur Jóns Guðmundssonar rit-
stjóra Þjóðólfs. Afi hans og Jón
Sigurðsson forseti héldu svein-
inum undir skírn og hann er
heitinn í höfuð beggja. Jón
Krabbe er kominn hátt á ní-
ræðisaldur og í kyrrð ellinnar
hefuf hann skráð endurminn-
:ingar sínar frá meira en hálfr-
ar aldar embættisferli, en eng-
:in eþimörk eru á þessari bók,
ungur maður gæti fyrir há sök
hafa tkrifað hana, en hún ber
aðalsmerki broska og íhygli,
sem unnizt hefur á langri og
arinaríkri ævi. Þó . skiptir hitt
rnestu máli, að endurminningar
þessar eru ákaflega merkilegt
JieimiMarrit um eitthvert af-
drlfaríkasta tímabil sögu okkar
og bregður upp ljósi á margt,
sem ekki var áður vitað. Per-
sónulegar endurminningar um
sögu sjálfstæðisbaráttu okkar
á 20. öld eru fáar færðar á
bók — ég minnist ekki í svip-
inn annarra en sjálfsævisögu-
þátta Ara Arnaids sýslumanns
— og því er sérstakur fengur
að þessu riti úr penna manns.
sem liíði jhfn fast með þessari
sögu og Jón Krabbe.
Jón Krabbe mun sjálfur ekki.
telja sig stjórnmálamann í þess.
orðs venjulegri merkingu. en
langleið ævi sinnár hefur hann
starfað undir handarjaðri
stjórnmálamanna og átt þess:
kost að fylgjast með ferli ís-
lenzkra stjórnmála innan að frá.
í ráðuneytisstofum skrifstofu-
veldisins, oft ekki annað en
þjónn, sem framkvæmir á-
kvarðanir hærri húsbænda og
vann verk sitt ,,án þess að
mögla. en ekki ávallt án þe.ss
að undrast“. eins og hann kemst
sjálfur að orði. Því að hinn
ungi lögfræðingur er valdi sér
lífsstöðu sem undirtylla í ís-
lenzku stjórnardeildinni órið
1899 var ekki meiningalaus
skriftarþræll, heldur vakandi
maður, sem hafði mjög ákveðn-
ar skoðanir á málefnum þess
lands, sem hann var tengdur í
móðurætt, og honum tókst oft-
ar en einu sinni að koma þess-
um skoðunum á framfæri í
hinu metorðabundna myrkviði
skrifstofuveldisins.
Jón Krabbe gekk í þjónustu
íslands á dögum landshöfðingja,
varð forstjóri íslenzku stjórnar-
skrifstofunnar í Kaupmanna-
höfn undir heimastjórn. trúnað-
armaður fslands í danska utan-
ríkisráðuneytinu e'ftir sam-
bandslagasáttmálann 1918 og
gegndi samtímis aðstoðarmanns-
stöðu í íslenzka sendiráðinu í
Kaupmannahööfn og var for-
stöðumaður þess á dögum
heimsstyrjaldar og hernáms og
sótti loks um lausn frá störfum
árið 1953. Minningarnar skip-
ast eðlilega niður eftir þátta-
skiptunum í sögu íslands á
þessum árurn, breytingunum
sem verða á afstöðu landsins til
umheimsins. En í þessari skipt-
ingu efnisins þykir mér kafl-
inn um heimastjórnartímabilið
verða um of útundan hvað rúm-
ið snertir, sá kafli hefði mátt
verða lengri og ýtarlegri, ekki
sízt vegna þess, að Jón Krabbe
á í fórum sínum merkilegt
heimildasafn, sem ekki er ann-
ars staðar að finna um þetta
tímabil: bréf frá íslenzkum
embættismönnum og stjórn-
málamönnum. Ég get 'í þessu
sambandi ekki stillt mi? um að
stinga því að utanríkisráðuneyt-
inu, hvort ekki væri ráð að fara
þess á leit við Jón Krabbe, að
hann eftirláti Þjóðskjajasafninu
hið íslenzka bréfasaín sitt svo
að síðari fræðimönnum hérlend-
um gefist kostur á að kanna
þessar merkilegu heimildir að
pólitískri sögu íslands á 20.
öld. Vera má að kaflinn um
heimastjórnartímabilið hafi orð-
ið styttri vegna þess, að Jón
Krabbe skrifar endurminningar
sínar ekki sízt fvrir Dani
siálfa. Mér virðist af allri gerð
bókarinnar, að hann hafi ætlað
sér að fræða hina dönsku landa
sína um pólitískan málstað ís-
lands og evða þeim misskiln-
ingi, fáfræði og grillum, sem
enn ríkja í huga okkar fvrrver-
andi herra- og sambandsþióðar.
Jón Krabbe hóf snemma þessa
fræðslustarfsemi meðal máls-
metandi landa sinna. Þegar
Danir höfðu skipnð menn í
samninganefndina 1918 varpaði
Jón Krabbe af sér klafa emb-
ættisins og ræddi bæði við
Zahle forsætisráðherra, I. C.
Christensen og Haee verzlunar-
málaráðherra og lagði fast að
þeim að fallast algerlega á
kröfur íslenzku þjóðarinnar og
Kristján X
jafnvel „láta þeim meira í té
en þeir fara fram á“. Krabbe
sendi Jóni Magnússyni ráðherra
greinargerð um þesar viðræður
og er hún prentuð í bók hans
á bls. 54—59. Þessi greinargerð
er eitt fegursta dæmi um póli-
tíska skarpskyggni hans og .víð-
sýni og ég tel engan vafa á að
hún hefur átt mikinn bátt í að
marka afstöðu hihna dönsku
samningamanna er þeir ræddu
við íslendinga 1918.
En bað féll einnig í hlut
Jóns Krabbe að túlka og' verja
málstað íslands á stærra og
erfiðara vettvangi, er sambands-
slitin urðu 1944 og ísland var
gert lýðveldi. Hann var þá for-
stöðumaður íslenzka sendiráðs-
ins í Kaupmanahöfn og varð
að lægja öldur afvegaleidds al-
menningsálits í Danmörku í af-
stöðunni til sambandsslitanna
og lýðveldisstofnunarinnar.
Greinargerð sú, er Krabbe sendi
blöðunum 13. marz 1944, en
ekki var birt vegna býzkrar rit-
skoðunar, er meistaralega sam-
in vörn hins íslenzka málstaðar.
En þessi málstaður var og er
énn affluttur í Danmörku, jafn-
vel í vísindaritum eins og í
hinni miklu sögu danska ríkis-
þingsins, bar sem einn kafli er
helgaður viðskiptum Danmerk-
ur og fslands, og sýnir Krahba
fram á þetta í minningum sín-
um.
Svo sem kunnu?t er tóku
Danir mjög upp þykkjuna fyr-
ir konung sinn, er fslendingar
gerðust svo djarfir að stofna
með sér lýðveldi. Þeim fannst
það og finnst það enn lúalegt,
að Kristján X. skyldi sviotur
konungdómi í öðru ríkja sinna
á þeirri stundu, er hann var
sjálfur hálfgerður fangi í her-
numndu landi. Fram að síðari
heimsstyrjöld hafði konungur
ekki verið ýkja vinsæll með
þjóð sinni. En á hernámsárun-
um varð hann einingartákn
þjóðarinnar og veg'ur hans óx
um allan helming. Það þarf
ekki lítið hugrekki til að gagn-
rýna þennan ást.sæla konung í
Danmörku. En Jón Krabbe hef-
ur þetta husrekki til að bera.
Hann berst ekki mikið á í orð-
um, en gagnrýnin er bittin og
veigamikil. og gefur konungi
þennan vitni.sbnrð: ,.En skiln-
ingur hans á íslandi og áhugi
hans á b.ag íslendinga var
hvorttveagia af miög skornum
skanimti. n« hua°rhlý.ia hans
beindist emhliða að Danmörku“.
(bls. 120). Og enn segir hann:
„Það lá ekki aðeins i augum
Framhald á 10. síðu