Þjóðviljinn - 05.01.1960, Síða 1
VILIINN
Þriðjudagur 5. janúar 1960 — 25. árgangur — 2. 'iölublað
Trcgur afli togara
á hcimaraiðiim
Aíli togaranna á heimamiðura
heí'ur verið mjög tregur að und-
anförnu. Allmargir togarar hafa
verið að veiðum út af Vestfjörð-
um en fengið sáralítinn aila.
Góður afli báta í fyrstu
róðru
arvertíðar
Vetrarvertíð er nú hafin í Vestmannaeyjum, nokkr-
um verstöðvum við Faxaflóa og Ólafsvík, en annars-
staðar búast bátarnir sem óðast til veiða.
Eins og skýrt var frá hér
í blaðinu á sunnudaginn, fóru
tveir bátar frá Vestmanna-
eyjum, Huginn VE 65| og Stíg-
andi VE 77', 'í fyrsta róður á
laugardaginn. Hafa bátarnir
Verðtir einhliða
afvopnun í Sov-
étríkjunum?
Krústjoff sagði við há-
tíðahötd á nýársdag, að
ef ekki næðist árangur í
fyrirhuguðum viðræðum
austurs og vesturs um af-
vopnun, myndu Sovétrík-
in að líkindum leggja nið-
ur heri sína og treysta
eingöngu á eldflaugar í
varnarskyni.
Mikill fjöldi ráðamanna
frá ýmsum löndum hlýddi
á ræðu Krústjoffs. Hann
minntist á tillögur þær er
hann flutti á þingi Sam-
einuðu þjóðanna s.l.
haust. ,,Ef þær tiilögur
ná fram að ganga, erum
við reiðubúnir að leggja
niður heri vora, og her-
mennirnir munu líka
fagna slíkri ákvörðun“,
mælti Krústjoff, „en ef
talsmenn kalda stríðsins
draga okkur inn í völund-
arhús orðavíga, þrætu-
mála og málalenginga, —
eigum við þá að ganga
þar inn? -— Væri það
ekki frekar vert umhugs-
unar, hvort við ættum
ekki að hætta slíku orða-
skaki, leggja niður heri
okkar með einhliða á-
kvörðun, og treysta ein-
göngu á eldflaugar til að
verja land okkar “
róið síðan og fékk Stígandi 15
lestir í fyrradag, en 4 'í gær.
Afli Höfrungs í gær var einnig
um 4 lestir.
Á annað liundrað Eyjabátar
Er Þjóðviijinn hafði sam-
band við fróitaritara sinn
í Vestmannaeyjum í gær-
kvöld, kvað hann það enn
á huldu hversu aðkomubát-
arnir yrðu þar margir í
vetur, en Eyjabátarnir
myndu sennilega verða á
annað liundrað talsins.
Á vetrarvertíðinni í fyrra
réru rúmlega 100 línubátar
frá Vestmannaeyjum.
Ölafsvíkurbá'lar með 7 til 11 y2
lest í róðri
Frá Ólafsvík reru fjórir
fyrstu bátarnir með línu á
laugardag og í gær voru sex
á sjó. en gert er ráð fyrir
að alls muni róa þaðan 12—
14 línubátar í vetur.
Afli Ólafsvíkurbátanna hefur
Framhaid á lt síöu
Stáliðnaðardellunni
í USA lauk I gær
Einni lengstu kjaradeilu, sem sögur íara aí
lauk með sigri verkamanna
í gær náðust samningar milli
fulltrúa deiluaðila í stáliðnaðar-
deilunni í Bandaríkjunum. Er
þar með lokið einni Iengstu
kjaradeilu, sem háð hefur verið.
Stóð deilan í hartnær 8 inánuði,
en nær þrjá mánuði af þeim
tíma voru verkamenn neyddir
til að vinna með þvingunarlög-
um.
f gærmorgun lauk 24 stunda
fundi fulltrúa deiluaðila og
verkamálaráðherrans. Var þá
fullyrt að báðir aðilar hefðu fail-
ist á málamiðlunartillögu, sem
ráðherrann eignaði Nixon vara-
forseta. Macdonald formaður
Sambands stáiiðnaðarverka-
manna og fleiri verkaiýðsforingj-
ar hafa fagnað úrslitum deilunn-
ar, en iðnrekendur eru frekar
argir. Kaup verkamanna var
hækkað um 10%.
Vitað er að Nixon hefur átt
fund með stáliðjuhöldum undan-
farið, en hann hefur greiðan að-
því að gangast fyrir lausn deil-
unnar hafi Nixon leikið góðan
leik til að koma sér í mjúkinn
hjá kjósendum við forsetakosn-
ingarnar sem fara í hönd.
Þegar verkfallið hófst s.I.
sumar kröfðust verkamenn
kauphækkunar, þar sem verð-
lag hafði hækkað nær helmingi
meira en kaup þeirra frá stríðs-
Framhald á 10. síðu
Eins og skýrt var frá í fréttum blaðsinsi á sunnudag,
varð umferðarslys síðdegis á Iaugardaginn á gatnamót-
uin Bergstaðastrætis og Bjar.garstígs. Varð slysið með
þeim ha'iti, að tveir drengir koinu niður Bjargarstíginn
á skíðasleða (stígurinn er sleðagata), en þeir gátu ekki
stöðvað sig á gatnamótunuin og runnu út á Bergstaða-
stræ'iið og fyrir fólksbifreið, sem! bar að í því bili. —
Myndin var tekin af sleðanum og bílnuin eftir slysið
og er ekkj eingöngu birt hér sem fréttamynd, heldur
einnig til að minna lesendur á að gæta þarf fyllstu var-
úðar nú j hálkunni meðan sleðafæri er á gc'tunum —
eins og reyndar alltaf endranær.
Gyðingaofsóknir magnast í
Vestur-Evrópu og í i S A
11 stormsveitarforigjar Hitlers eru nú
lögreglustjórar i Vestur-Þýzkalandi
Skattreikninoar kyrrsettu
Dani á Islandi um jólin
Danska blaðið BT sakar íslenzku skattstjórnina um
aö hafa spillt jólagleöi margra Dana sem starfað hafa
á íslandi.
Gyðingahatriö sem blossaöi upp í Vestur-Þýzkalandi
gang að þeím, þar sem þeir um jólaleytið heldur áfram að breiðast út. Gyðingaoi-
styðja fiestir Repubhkanafiokk-1 sóknunum fylgir endurvakning slagorða nazismans og
inn. Fréttamenn benda á að með er allstaðar uggur í fólki vegna þessara óhugnanlegu
atburða. Gyðingar 1 Vestur-Þýzkalandi telja sig eiga
undir högg aö sækja með vandræði sín, þar sem fyrr-
verandi stormsveitárforingjar Hitlers ráða víða lögum
og lofum í lögreglu og dómstólum þar í landi.
Blaðið segir að hér sé um að
ræða fólk sem aurað hafi sam-
an til að komast til Danmerk-
Ur og halda jólin í heimahúsum.
R.étt íyrir hátíðar hafi margir
Danir á íslandi verið krafðir
um ógreidda skatta. Hjá ýmsum
reyndist skuldin svo há að þeir
áttu ekki afgangs fyrir farinu
heim.
Einkum vinnumenn
BT hefur átt tal við Ege sendi-
ráðsritara Dana hér i Reykja-
vík, sem segir að þetta hafi oft
komið fyrir. Einkum sé það al-
gengt að Danir sem séu vinnu-
menn hjá íslenzkum bændum
fái óvænta skattreikninga,
vegna þess að atvinnurekendur
Framhald á 10. síðu.
í fyrrinótt voru gyðingahatar-
ar enn mikið á ferli í Vestur-
Þýzkalandi. Voru hakakrössar
og. skammir um gyðinga málað
á samkomuhús gyðinga og minn-
ismerki um fórnarlömb stríðs-
ins viðsvegar um landið. í Vest-
ur-Berlín voru hakakrossar og’
orðin ..Burt með gyðinga" mál-
aðir á þvottahús og' allmargar
Byggingar þar í grennd. Lög-
reglunni tókst að rekja sióð fas-
istans og var hann handtekinn.
Er hann foringi æskulýðshóps
fasistaflokksins nýja, sem kall-
ar sig Þýzka Ríkisflokkinn.
í fyrrinótt og í gær voru
nazistaupphrópanir og níð um
gyðinga máiaðar víða í borgum
Bretlands og einnig á írlandi.
Sams konar fregnir berazt frá
Ástraiíu, Bandaríkjunum og Nor-
egi. Fimm þekktir gyðingar í
Amsterdam haía fengið hótunar-
bréf.
Óheilindi vesturþýzku
stjórnarinnar
Þjóðviljanum barst í gær yf-
irlýsing' frá vesturþýzku stjórn-
inni þar sem hún tjáir sig mjög
Framhald á 9. síðu
Fjögur innbrot
um helgina
Um helgina voru framin
fjögur innbrot hér í bæmun,
en ekki er vitað fyrir víst,
hvort nokkru hefur vcrið stol-
ið í þeim. Brotizt var inn í
Ofnasmiðjuna við Háteigsveg.
Var farið þar inn um glugga
og sprengd upp hurð að skrif-1
stofunni og fleiri skemmdum
valdið. Þá var brotizt inn í
vörugeymslu Eimskipafélagsins
við Borgartún. Var farið þar
inn um þakglugga. Einnig var
brotizt þarna inn í kaffistofu
verkamanna, sem er í öðru
húsi. Loks var brotizt inn í
vörugeymslu Verzlunarsam-
bandsins við Borgartún.