Þjóðviljinn - 05.01.1960, Síða 5

Þjóðviljinn - 05.01.1960, Síða 5
Þnðjudagur 5. janúar 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Allar horfur á aS 7 ára áœtlunin verSi i meginatriBum framkvœmd á 5-6 árum Á árinu 1959 voru framleiddar í Sovétríkjunum 62 milljónir lesta af mjólk, eöa 5 milljónum lesta meira en í Bandaríkjunum. Smjörframleiðslan á árinu nam 4 kíló- um á hvern íbúa, og' var því meiri en framleiðslan á mann í Bandaríkjunum sem nam 3,7 kílóum. Frá þessu var skýrt á fundi miðstjórnar Kommúnistaflokks Sovétríkjanna sem haldinn var í Moskvu um jólin. Meginvið- fangsefni fundarins var land- búnaðarframleiðslan og aukning hennar. Á árinu voru 196 milljónir hektara í rækt. eða nærri því 40 milljónum liektara meira en árið 1953. Kjótframleiðslan jókst árið 1959 um 32 prósent, mjólk- urframleiðtslan um 15 prósent og eggjaframleiðslan um 25 prósent. Mikil aukning varð einnig á iðnaðarframleiðslunni, og meira en ráð hafði verið fyrir gert í áætluninni. Heildarframleiðslan jókst um 11.5 af hundraði, en í áætluninni hafði aðeins verið gert ráð fyrir 7,7% aukningu. Markinu náð fyrir tímann í ályktun sem miðstjórnin samþykkti er sagt að það eigi að vera hægt að ijúka sjö ára áætiuninni á skemmri tíma en sjö árum. 1959 var fyrsta ár hennar. Þannig eru allar horfur á að það mark sem kjötfram- leiðsiunni var sett síðasta ár á- aetlunarinnar, 1965, 16 milljónir lesta, muni nást þegar árið 1963. Það þýðir að framleiðslan hafi þá tvöfaldazt frá árinu 1958, síðasta árinu fvrir sjö ára áætl- unina, en þá nam hún 7,9 mill- jónum lesta. Finam ár í stað sjö Á miðstjórnarfundinum var gerð grein fyrir þróun landbún- aðarins í hinum ýmsu lýðveldum Sovétríkjanna. í rússneska lýð- veldinu er gert ráð fyrir að ná kjötframleiðslumarkinu á 5 árum í stað sjö, mjólkurfram- leiðslumarkinu á 5—6 árum, og taka svo mikið land í rækt að hægt verði að auka kornfram- leiðsluna 'um 8—9,5 milljónir lesta. Aukning mjólkurfram- leiðslunnar nemur 70% miðað við 1958. í Úkraínu er einnig ráðgert að ljúka sjö ára áætluninni á fimm árum, enda þótt árferði væri þar slæmt á síðasta ári. Þar hafa maísakrar stækkað úr 2 milljónum hektara árið 1953 í 7,7 milljónir hektara á síðasta ári. Einn ræðumanna á fundinum, Políanskí, forseti rússneska lýð- veldisins, lagði á fundinum til að ráðstafanir yrðu gerðar til að breyta meginskipulagi sovézks landbúnaðar. Samkvæmt tillög- unum ættu einstök samyrkjubú að mynda með sér samtök, leggja saman fjármuni sína og framleiðslu, þannig að þeim yrði betur kleift að koma upp verk- smiðjum sem vinna ■ úr fram- leiðslunni, eða skólum, sjúkra- húsum og elliheimilum. Jafn- framt ætti að taka upp sam- ræmt launakerfi þannig að öll laun yrðu greidd í reiðufé, en ekki reiknuð í ^dagsverkum". eins og nú, en „dagsverkin“ eru mjög misjafnt ákvörðuð í hinum ýmsu landshlutum. Mikil aukning stálframleiðslu í Sovétríkjunum og V-Evrópu Tassfréttastofan sJiýrði fyrir áramótin frá því að stálfram- leiðslan í Sovétríkjunum hefði árið 1959 komizt upp í 60 millj. lesta, en það er milljón lestum meira en ráð var fyrir gert í áætluninni. Stálframleiðslan var 54.9 milljónir lesta 1958, en sam- kvæmt áætluninni er ráðgert að hún verði komin upp í 86—• 91 milljón lestir árið 1965. Reynsla fyrsta ársins, 1959 sýnir að áætlunin muni stand- ast og vel það. Kolaframleiðslan hefur einn- ig aukízt árið 1959, en sam kvæmt áætluninni á hún að aukast mun hægar en fram- leiðslan í öðrum greinum. Meg- ináherzla verður lögð á að auka framleiðslu annarra orku- gjafa, rafmagns og olíu. Kola- framleiðslan 1959 varð 1958 4 milljón lestum meiri en 1958. Stálframleiðslan hefur einnig orðið meiri en nokkru sinni fyrr í löndum kola og stál- samsteypu Vestur-Evrópu. Hún varð 1959 63 milljónir lesta, eða 5 milljón lestum meiri en minnkaði 1958. Hins vegar kolaframleiðslan verulega í þessum löndum Myndin er af sovézka ísbrjótnum Lenín, fyrsta kjarnorku- knúna hafskipi heims, og er hún tekin þegar liann fór í rcynsluför sína. Frönsk blöð skýra frá því að franska herstjórnin í Alsír hafi komið á fót námskeiðum fyrir hermenn sína „í mannúölegum pyntingum.“ Frá þessu var skýrt í kaþ- ólska vikublaðinu Temoignage Chretien, en það hefur oft orðið til að ljósta upp um hryðju- verk franska hersins í Alsír. Það birti skömmu fyrir jól eftirfarandi umraæli fransks varaliðsforingja, sem gegndi her- þjónustu í Alsír frá því sumarið 1958 fram á síðasta sumar og var m. a. í þjálfun í Jeanné d’Arc-herbúðunum við Philippe- ville: „Ég hef í fórum mínum minn- isblöð sem ég skrifaði á nám- skeiði L. . . höfuðsmanns í síð- ari hluta ágústmánaðar 1958. Við erum hér fjórir flokkar. L. . . höfuðsmaður taldi upp fimm atriði, sem ég hef skrifað hér nákvæmlega hjá mér, fcæði spurningar og svör. 1. Pynting- arnar verða að vera þokkalcg- ar. 2. Það má ekki framkvæma þær í návist unglinga. 3. Sad- istar mega ekki vera viðstaddir. 4. Liðsforingi eða annar með fullri ábyrgð verður að stjórna þeim. 5. í»ær verða framar öllu að vera „mannúðlegar“, þ. e. það verður að hætta þeir.i um leið og maðurinn hefur leyst frá skjóðunni, og engin vcrks- unimerki mega sjást. Samkvæmt þessu — að þeirri niðurstöðu komst hann — má beita vatni og rafmagni (við pyntingarnar'h Það var þetta sem ég skrifaði hjá mér eftir honum.“ Borgarablaðið Le Monde í París hefur bætt nokkrum upp- lýsingum við þessi ummæli liðs- foringjans: „Samkvæmt upplýsingum sem Framhald á 11. síðu. iimiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiimmiiiiiiiiHiiiiiiiuiiimiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimim'iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimimiiiiimiiiiiíiigimi Sift af hverju Audrey Hep- burn varð fyr-11 ir valinu. sem |Lj bezta kvik- myndaleik- kona ársins 3959 að dómi ' bandarískra gagnrýnenda. Það var fyrirí leik hennar í | „Nunnunni“. James Ste- AvArev Xepbur* svart var kjörinn bezti leikarinn fyr- ir leik sinn í „Anatomy of Muder“. — Bezta erlenda kvikmyndin var ,,Að leiks- lokum“ eftir Ingmar Berg- man, Victor Sjöström var bezti erlendi 'p/' leikarinn og v;,Jli! Simone Sign- oret bezta er- Sekou Touré, forsætisráð- herra Gíneu, er kominn heim úr ferðalagi víða um lönd, hann var m.a. í Banda- ríkjunum og Sovétríkjunum, hlaðinn gjöfum. Verðmæti gjafanna sem honum á- skotnuðust á ferðalaginu er talið um 100 milljónir króna. Meðal þeirra eru tvær kvikmyndastofur með öllum útbúnaði útvarps- sendistöð og radarstöð. = Simone Signoret lenda leikkon- an. Sekou Touré Dómur er fallinn í einu mesta sjóðþurrðarmáli í Austurríki að undanförnu. Josef Wimmer, fyrrverandi aðalbókari við erkibiskups- stólinn í Vínarborg, var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að hafa stungið í eigin vasa 17,5 milljónum schill- inga úr sjóðum stiftisins. Síðasti cftirlifandi hermað- urinn úr bandaríska þræla- stríðinu, Walter Williams, dó nýlega 117 ára gamall. Hann barðist með her suð- urríkjanna. Lee Andrews, nítján ára gamall bandarískur stúdent, sem fyrir ári myrti alla nánustu ættingja sína til að komast einn yfir ættararf- inn, hefur verið dæmdur til dauða. Hæsta bygging veraldar mun bráðlega rísa af grunni í Moskvu. Þetta verður 510 metra hár sjónvarpsturn, gerður fyrir litsjónvarp. Neðst í turninum verða húsakynni sjónvarpsstöðvar. Turninn verður tekinn í notkun eftir tvö ár. Josephine Baker Josephine Baker hefur nú sótt um það hjá frönskum stjórnarvöldum að hún fái að taka enn eitt fósturbarn, það eliefta í röðinni. Þetta er nýfætt sveinbarn sem fannst eitt og yfirgefið í París skömmu fyrir jólin. Hin fósturbörnin tíu sem eru af ýmsum kynþáttum og þjóðum búa í veglegri höll sem Josephine á í bæn- um Lós Milandes í Suður- Frakklandi. Fyrir fjórum mánuðum ; lenti 24 ára gömul ítölsk ; stúlka Marisa Ambrcsio, í ; hörkurifrildi við móðursyst- ’ ur sína og móðurbróður. ; Því lyktaði með því að hún : fyrirfór sér með því að skrúfa frá gasinu í eidhús- i inu. Þetta fékk svo á frænda hennar og frænku að þau frömdu sjálfsmorð á sama hátt nokkruin tím- um seinna, og var þá 66 ára gömul móðir Marisu e:n eftir af fjö'skyldunni. En á sunnudaginn þriðja í jólum gat hún ekki umborið ein- veruna lengur og opnaði því líka fyrir gasið. Nýtt skordýraeitur, perklor- divynil, hefur verið fram- leitt í Sovétríkjunum og er það að sögn Moskvublaðsins Isvestía „uppfinning sem heimurinn hefur beðið eftir í aldaraðir“. Blaðið segir að í héruðum þar sem eitrinu hefur verið úðað á gróður hafi biaðlýs ekki þrifizt í tvö ár. Aðfluttar blaðlýs lifðu ekki nema skamma stund ári eftir að eitrinu hafði verið úðað. iTllllllllllllllllllUllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHHIIHIIIIHIiUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIHHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIil

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.