Þjóðviljinn - 05.01.1960, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 5. janúar 1960
Bæjarpósturinn
Framhald af 4. síðu.
það snjallræði að ganga til
samvinnu við strákana og
hjálpa þeim til þess að koma
upp áramótabrennum v'íðsveg-
ar um bæinn, hefur ástandið
á gamlárskvöld sífelt farið
batnandi. Strákarnir hafa nú
annað við að vera en standa
fyrir ólátum í miðbænum,
þeir eru dreifðir út um allan
bæ við brennurnar sínar, sem
þeir hafa sjálfir komið upp
með dugnaði og atorkusemi.
Þannig hefur mikið vandamál
verið levst á einfaldan hátt og
báðum aðilum, strákunum og
lögreglunni til mikillar ánægju
og sóma.
• Þar sem afl röksemda
brýfur
Einn leiðindaatburður gerð-
ist samt á nýársnótt: Haf-
meyjan, listaverkið eftir Nínu
Sæmundsson, sem sett var
nið'ur 'í suðurenda Tjarnarinn-
ar í sumar, var sprengd I
loft upp og gereyðilögð. Eins
og allir munu minnast urðu
á sínum t'íma allmiklar deil-
ur um þetta listaVerk og stað-
setningu þess. Mörgum þótti
listaverkið lítið augnayndi og
enginn fegurðaraukj að því
þarna í Tjarnarendanum, og
sannast sagna hef ég fáa
heyrt harma örlög Hafmeyj-
arinnar. Hitt munu nær allir
sammála um að fordæma þá
aðferð, sem hér er viðhöfð,
að láta sprengiefni taka við
og tala fyrir einhverjum mál-
stað, þar sem afl röksemda
og skynsemi þrýtur. Það er
nú einu sinni svo„ að list-
smekkur manna er ákaflega
ólíkur. Það sem einum þykir
fagurt og hefur mikið yndi af
að horfa á, finnst öðrum frá-
bærlega ljótt og afskræmilegt.
Þess vegna yrði víst örðugt
að finna það listaverk, er all-
ir væru sammála um að setja
upn á einhverjum opinberum
stað hér í bænum. Og til
hvers myndi það leiða, ef all-
ir, sem væru andstæðir ein-
hverju listaverki, sem sett er
upn opinberlega, beittu sömu
aðferðum í rökleiðslu og þeir,
sem stóðu fyrir þvi, að
sprengja Hafmeyna í loft unp
á nýársnótt? Þau yrðu þá
víst ekki mörg hstaverkin, er
eftir stæðu í bænum um næsta
nýár.
• Þurfa að fá úfrás
Eg held, að lögreglan í
Reykjavík æt.ti að beita sömu
aðferð við þá, sem eru svo
andlega óþroskaðir, að þeir
geta ekki á sér setið að
sprengja í Jvft upp á nýárs-
nótt þau listaverk, sem þeim
falla ekki í geð, og hún not-
aði við strákana, er hvolfdu
bílum í miðbænum og
sprengdu kínverja framan í
friðsamt fólk. Það ætti að
leyfa þessum mönnum að
koma upp eftirlíkingum af
þeim styttum, sem eru þeim
mestur þyrnir í augum, og síð-
an fengju þeir að sprengja
eftirlíkingarnar 'í ioft upp á
nýársnótt undir lögreglueftir-
liti. Það ætti að veitatilfinn-
ingum þeirra nokkra útrás og
verða sálartetrinu til svölun-
ar eitthvað fram eftir árinu.
Verkfallið
Framhald af l. síðu.
lokum. Iðjuhöldarnir neituðu í
fyrstu harðlega öllum kröfum
verkamanna. Meðan á venkfall-
inu stóð lagðist stálframleiðsla í
Bandaríkjunum niður um 4
mánuði og hafði verkfallið á-
hrif á fjölda annarra atvinnu-
greina. Verkamenn sýndu mikla
samheldni og úthald í verkfall-
inu og hafa nú náð verðskulduð-
um árangri. í október fengu
iðjuhöldarnir Eisenhower for-
seta til að beita Taft-Hartley-
þvingunarlögunum gegn verka-
mönnum, og neyða þá til að
vinna í 80 daga. Sá frestur rann
út 26. þ.m. og voru verkamenn
reiðubúnir að hefja verkfallið
aftur. Nú hefur hins vegar
verið komið til rnóts við kröfur
þeirra að verulegu leyti. Frétta-
mönnum ber saman um það að
I verkfallsmenn hafi unnið góð-
an sigur á stáliðjuhöldunum.
Skatlar og jólafrí
Framh. af 1. síðu
haíi ekki haldið eftir svo miklu
af kaupi þeirra að hrökkv.i fyrir
opinberum gjöldum.
Ege sendiráðsritari notar
tækifærið til að brýna fyrir
Dönum sem koma til íslands að
afla sér heimildar til að yfir-
færa fé til Danmerkur. Ella
eigi þeir á hættu að sitja uppi
með fúlgur af íslenzkum krón-
um, sem þeir komist ekki með
út úr landinu. Þetta sé sérstak-
lega bagalegt fyrir þá mörgu
Dani, sem komi til íslands til
að vinna sér inn fé svo þeir geti
losnað úr skuldum í Danmörku.
Góður afli
Framh. af 1. síðu
verið mjög góður, 7—ll1/2
lest í róðri. Mestan afla hefur
Stapafell fengið 11 y2 lest 'í
róðri.
Akranesbátar búast til veiða
í gærkvöld munu fyrstu bát-
arnir af Akranesi hafa róið,
en annars eru útgerðarmenn
þar sem óðast að búa báta
sína til línuveiða á vertíðinni.
Nokkrir bátar munu enn
vera gerðir út á reknet frá
Akranesi.
Títilegiibátar frá Reykjavík
Héðan frá Reykjavík eru
farnir til veiða tveir útilegu-
bátar, Björn Jónsson og Haf-
þór, og fleiri munu fara næstu
daga. Landróðrabátar frá
Reykjavík, sem gerðir voru út
á línu fram að jólum, halda
þeim veiðum áfram.
Heimilisdag-
békin
íæst í næstu
bókabúð.
Útgefandi.
úegir snjólausir
Framhald af 3. síðu.
bænum og í nágrenni hans.
Hellisheiði er greiðfær að
öðru leyti en því, að allmikil
hálka er á veginum. Vegir aust-
ur í sveitum eru einnig snjó-
lausir að kalla en hálir. Þing-
vallaleiðin er þungfær ennþá
vegna snjóa á Mosfellsheiði.
Keflavíkurleiðin og Hvalfjarðar-
leiðin eru einnig greiðfærar, en
hálka mikil þar sem víðast ann-
ars staðar.
M.s. Bronnlng
Alexandríne
tvær næstu ferðir
Frá Kaupmannaliöfn 19. jan.
og 2. febrúar. — Frá Reykja-
vík 26. jan. og 10. febrúar. —
Skipið kemur við í Færeyjum í
báðum leiðum.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen.
By.ggingarfélag alþýðu í Reykjavík,
IBOÐ TIL SÖLU
Tveggja herbergja íbúð í 2. byggingarflokki til sölu.
Umsóknum sé skilað í skrifstofu félagsins, Bræðra-
borgarstíg 47 — fyrir kl. 12 á hádegi — þriðju-
daginn 12. þ.m.
STJÖRNIN
Happdrætti
Háskóla
íslands
>■©
S-
O)
fl
fl
*-©
S
Endurnýjun til 1. ílokks er haíin.
55,000 hlutamiðar — 13,750 vinningar —
fjórði hver miði hlýtur vinning að meðaltali
Á árinu greiðum við í vinninga: 18,480,000
krónur, eða 70% af veltunni, sem er hærra
vinningshlutfall en nokkurt annað happdrætti
greiðir hérlendis.
Viðhótarmiðarnir seljast mjög ört, svo þeir,
sem höfðu hugsað sér að kaupa raðir, ættu
að tryggja sér miða í tíma.
Umboðsmenn í Reykjavík:
Arndís Þorvaldsdóttir, Vesturgötu 10, s'ími 19030.
Elís Jónsson, Kirkjuteig 5, sími 34970.
Frímann Frímannsson, Hafnarhúsinu, sími 13557.
Guðrún Ólafsdóttir, Bankastræti 11, sími 13359.
Helgi Sivertsen, Vesturvelri, símj 13582.
Jón St. Arnórsson, Bankastræti 11, sími 13359.
Verzlunin Mánafoss, Dalbraut 1.
Þórey Bjarnadóttir, Laugaveg 66, sími 17884.
Umboðsmenn í Kópavo.gi:
Ólafur Jóhannsson, Vallargerði 13, sími 17832.
Verzlunin Miðstöð, Digranesvegi 2, sími 10480.
Umboðsmenn í Hafnarfirði:
Valdimar Long, Strandgötu 39, sími 50288.
Verzlun Þorvaldar Bjarnasonar, Strandg. 41, sími 50310.
Brúarland:
Kaupfélag Kjalarnesþings.
Vinsamlegast endurnýið sem fyrst til að forðast bið-
raðir seinustu dagana.
Stuðlið að eigin velmegun. —
Aðstoðið við að byggja yfir æðstu menntastofnun þjóðarinnar.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS