Þjóðviljinn - 19.03.1960, Blaðsíða 9
H — ÓSKASTUNDIN
Laugard. 19. marz 1960
SKRlTLU-
SAMKEPf NIN
Framhald af 1. siðu
pabbi ykkar fuglafræð-
ingur?
4. — Einu sinni þegar
hlustunarskilyrðin voru
sem verst hér fyrir aust-
an var verið að kynna
lagið ,.ó Jesú bróðir
bezti“. Þriggja ára snáði,
sem var -að hlusta sagði
við mömmu sína: „Jesú
fór á hesti, hvaða lag
er það mamma?“
—000—
ROKK ROKK OG
SPINN SPINN
Stúlkan: Heyrðu pabbi,
viltu gefa mér inn á bíó?
Pabbinn: Hvaða mynd er
það?
Stúlkan: Það er rokk-
mynd.
Pabbinn: Já svoleiðis, þú
hefðir átt að sjá þegar
hún 'amma þín var að
spinna á rokkinn sinn í
gamla daga.
Aðalgunnur Gígja Snæ-
dal, 12 ára.
Byggðavegi 147, Akur-
eyri.
Þessar skrýtlur eru
frumsamdar.
1 00. bréfið
Framhald af 2. síðu
myndum af tveimur litl-
um fiskum, af því hún
sendi mynd af „land-
helgisstríðinu". Svo von-
um við að hún noti eitt-
hvað af þeim til að skrifa
okkur. Dulnefnið hennar
er fallegt.
Tveir Indíánar
,Einu sinni sátu tveir
Indíánar á, vegg, lítill
Indíáni og stór Indíáni.
Litli Indíáninn var soiiur
stóra Indíánans. en stóri
(Indíáninn var ekki faðir
litla Indíánans. Hvernig
getur það hafa verið?
Skýring á þessu fyrir-
bæri kemur í næsta blaði,
þangað til skulið þið
glíma við gátuna.
IIVER VILL SKRIFA
Þessar stúlkur óska
eftir bréfaskiftum;
Við stráka á aldrinum
15—16 ára, Maggý Hall-
dórsdóttir, Fjalli, Skaga-
firði.
Við stúlkur 7—9 ára,
Vigdís Hansdóttir, (8
ára) Hjalla, Kjós, Kjós-
arsýslu.
Við stúlkur 11—12 ára,
Ilelga Hannesdóttir,
Hjalla, Kjósarhreppi,
BRÚNN OG BLAKKUR
EFTIR A.LAPTEV.
1. — Konvdu sæll, hvað heitir þú?
2. — Eigum við að koma í feluleik? (Framh.
Ritstjóri Vilbory Dagbjartsdóttir - Útgefandi Þjóðviljinn
— 6. árg. — 10. tbln
Skrítlusamkeppriin
±5jorn: raooi
Ferðamaður: Má ég fara U
í gegn?
Björn: Já.
Ferðamaður: Kostar það
nokkuð?
Björn: Já.
Ferðamaður: Hvað?
Björn: Að láta það aftur.
Skrítlan er frá Hólm-
fríði Ófeigsdóttur, 9 ára.
Reykjaborg, Skagafirði.
Þetta samtal fór fram við
hliðið heima hjá henni.
--000—
SKOTASÖGUR
Skoti nokkur, sem hafði
fengið blóðeitrun i stóru-
tána, var i vafa um
hvort hann ætti að láta
taka hana af, vegna þess
hve það væri kostnaðar-
samt. En það varð úr að
táin var tekin, því Skot-
inn hélt að þá þyrfti
hann minna skónúmer.
Tveir Englendingar og
Skoti voru á fe'rð
fjallaskarði. Englend-
ingarnir höfðu þrisvar
skipt um skó, vegna þess
hve skórnir eyddust í
grjótinu. Skotinn gekk á
sokkaleistunum
Skozkur . skóladrengur
fékk ávítur fyrir það hjá
kennara sínum, að hann
skrifaði stíl á kápuna ut-
anurn stíiabókina.
Marbendill 13 ára bjó
sjálfur til þessar Skota-
sögur.
—000—
Skrýtlur frá Ritu, 13
ára:
1. — Kalla litla hafði
óvart verið gefin súr
mjólk. Hann bragðaði á
henni og sagði eftir
nokkra stund: „Mamma,
ég held að þessi belja
hafi ekki kunnað upp-
skriftina".
2. — Frúin: Þessi steik er
alveg óæt. Notaðir þú
enga skynsemd, þegar þú
bjóst hana til?
Vinnukonan: Það stóð
ekkert um það í upp-
skriftinni.
3. — Kennarinn við þrjá
1 bræður, sem voru að
| koma í skólann í fyrsta
sinn: Hvað heitið þið
strákar?
Strákarnir: Svanur, Hrafn
og Örn.
Kennarinn: Hum, er hann
Framhald á 4. síðu
• •••••••
• VIÐ SKÓLANN •
• Halldóra Helgadótt- •
• ir 10 ára, Rauðumýri •
• 15 Akureyri, sendi •
• okkur þessa skemmti- •
• legu mynd. Hún -•
• skrifar gott bréf með •
• og óskar eftir því að •
• við byrjum aftur á •
• framhaldssögum Við •
• eru að undirbúa að •
• birta myndasögu í •
.$>• blaðinu. •
Laugardagur 19. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN
(9
TUC
zTCi
lf
r.id
rti!
$
■du
&
Rifsfjóri: Frímann Helgason
Þrír kvennaieikir á morgun
I kvöld fara fram 3 leikir í
þriðja flokki karla og 2 í öðr-
um flokki. Eins og frammistaða
þriðjuflokkanna yfirleitt hefur
verið undanfarið verður ekki að
efa að leikirnir verða skemmti-
legir. Sama er að segja um
annan fl. og leikur Þróttar og
iBK ætti að geta orðið mjög
skemmtilegur. Því að bæði lið-
in hafa eýnt góða leiki I mót-
!nu og er erfitt að spá um úr-
slit.
Lei'kirnir í kvöld eru sem
sagt þessir:
3. fl. K.B.b. Víkingur—KR
3. fl. K.A.a. IBK—Þróttur
3. fl. K.A.a. Ármann—ÍR
2. fl. K.A.a. Þróttur—ÍBK
2. fl. K.A.a KR-4R
getur sá leikur orðið tvísýnn.
Að vísu verður Katrín Gústafs-
dóttir sennilega með Þrótti 1
þessum Ieik og hefur það mik-
ið að segja fyrir liðið. Það
breytir þó engu um það að
hafnfirzku stúlkurnar geta orð-
ið Þrótti erfiðar, og má i hví
sambandi benda á. frammistöðu
þeirra við Val um fyrri helgi,
en þær höfðu forustuna mestan
hluta leiksins, sem þar til i lok
hans, og munaði litlu í leikslok.
Varla er við þv'í að búast
að hinar ungu Vfkingsstúlkur
geti ógnað Ármannsstúlkun-
um sem 'hafa að undanfömu
náð betri leikjum en fyrr í vet-
ur.
má gera ráð fyrir að KR vinni
bæði stigin, en svo getur farið
að leikurinn verði skemmtileg-
ur.
Tveir leikir í þriðja flokki
karla fara fram á undan
kvennaleikjunum, en það eru
Víkingur—KR og Valur—Ár-
mann (B-sveitir).
Skíðamót íslands verður héð
á Siglufirði um póskana
Hið árlega Skíðameistaramót
Islands fer að þessu sinni fram
á Siglufirði, hefst miðvikudag-
inn 13. apríl og lýkur 18. apríl.
Siglfirðingar sjá um mótið
og hafa þeir þegar unnið mik-
ið að undirbúningi þessa mann-
marga og stóra móts.
Þegar hefur verið gengið frá
dagskrá mótsins og fer hún hér
á eftir:
Miðvikudag 13. apríl kl. 13.15:
Mótsetning.
15 km ganga 20 ára og eldri.
15 km ganga 17—19 ára
10 km ganga 15—16 ára
Flokkssvig.
Fimmtudag 14. apríl:
Stórsvig kvenna
Stórsvig karla
Stökk í norr tvíkeppni.
: ~ i
Laugardag 16. apríl:
Brun kvenna
Brun karla
Boðganga 4x10 km
Sunnudag 17. apríl:
30 km ganga
Stökk meistarakeppni,- stökk
17—19 ára og stökk 15—16 ára
Mánudag 18. apríl:
Svig kvemia
Svig karla
Verðlaunaafhending (kl. 21)'
Hverjír skera mörkin í fyrstu deild?
Aftur á móti má gera ráð
fyrir að leikur KR og Fram
geti orðið jafnari, og takist
Annað kvöld má gera ráð Framstúlkunum upp geta þær
fyrir að kvennaleikirnir verði
skemmtilegir. Fyrsti leikurinn
er á milli Þróttar og FH. Eins
og liðin iéku um síðustu helgi
staðið í KR-stúlkunum, sem
ekki hafa náð eins góðum
leikjum uppá síðkastið og þær
gerðu fyrri hluta vetrar. Þó
Þó hér sé að sjálfsögðu við-
urkennt að allir í hverju ein-
stöku liði vinni að því að skora
mörkin, og verjast því að fá
mörk, þá er það næstum í
hverju liði „sérgrein“ tiltölu-
lega fárra manna að skora
flest mörkin sem skoruð eru.
Verður hér birtur listi yfir
þá þrjá menn ! hverju liði sem
hafa skorað flest mörkin í 1.
deildarkeppni handknattleiks-
mótsins eins og 'bezt verður
vitað um það atriði.
APturelding; 4 leikir:
Halldór Lárusson 22 mörk,
Reynir 17 mörk og Tómas Lár-
usson 15 mörk.
Armann; 5 leikir:
Sigurður Þorsteinsson 23
mörk, Gunnar Jónsson 15,
Ingvar Sigurbjörnsson 12.
F.H.; 3 leikir:
Ragnar Jónsson 36 mörk,
Birgir Björnsson 20 og Pétur
Antonsson 19.
I.R.; 3 leikir:
Gunnlaugur Hjálmarsson 28
mörk, Pétur Sigurðsson 18 og
Hermann Samúelsson 15.
K.R., 3 leikir:
Karl Jóhannsson 26 mörk,
Reynir Ölafsson 14 og Heins
Steimann 13 mörk.
Valur; 4 Ieikir:
. Bergur Guðnason 14 mörk,
Geir Hjartarson 13 og Jóhann
Gíslason 11 mörk (í tveim
leikjum).
Ragnar Jónsson er lang-
markahæstur með 36 mörk, og
næstur kemur Gunnlaugur
Hjálmarsson með 28 mörk og
þriðji í röðinni er Karl Jó-
hannsson með 26, og allir hafa
þeir leikið 3 leiki hver.