Þjóðviljinn - 19.03.1960, Qupperneq 10
i) — ÓSKASTUNDIN
KROSSSAUMSMYNSTUR
14 bréf í skriftarsamkeppnina
Ingibjörg Norðdal 11
ára gömul, skrifar okk-
ur mjög gott bréf. Hún
sendir fáein krosssaums-
mynstur, sem hún hefur
teiknað sjálf. Mynztrin
eru reglulega skemmti-
leg og slæmt að við
skulum ekki getað lit-
SKRÍTLA
Mamma við pabba: Þú
átt að fara með hann Jóa
litla í dýragarðinn í dag.
Pabbi: Ertu frá þér, ég
fer ekki fet, ef þeir vilja
fá hann geta þeir sótt
hann sjálfir.
prentað þau. Þessi mynd
af kóngi er ein af mynd-
unum frá henni', seinna
birtum við eflaust hinar,
þegar rúm er í blaðinu.
Okkur þætti gaman að
fá mynzturteikningar frá
fleirum.
frá Ritu 13 ára
100. bréfið var
Eskifirði 8. marz.
Kæra Óskastund!
Ég ætla að senda þér
fáeinar skrítlur í sam-
keppnina. Ég sendi þér
líka í skriftarsamkeppn-
ina og fáeinar myndir.
Mér finnst gaman að
framhaldssögunum og
mér datt í húg hvort ekki
væri hægt að taka kafla
úr íslenzkum skáldsögum
t. d. Fjallkirkjunni. Svo
ætla ég að senda þér
fyrripart. ef þú vilt láta
botna hann. Hann er
svona:
Óskastundin ýmislegt
ágætlega birtir,
Ég nota dulnefnið Rita.
Hvernig finnst þér þáð?
Blessuð.
P.s. — Ég safna tíeyring-
um og á 363 stykki með
10 ártölum. Svo safna ég
líka myndunum „Láki og
lífið“ úr Þjóðviljanum og
lími þær inn í stílabók.
Rita.
Þetta var bréfið frá
henni Ritu. Hún var svo
heppin að skrifa hundr-
aðasta bréfið. Við erum
búin að velja handa henni
falleg bréfsefni með
Framhald á 4. síðu
Guðriður Ágústsdóttir.
14 ára, Kleppjárnsstöð-
um, Tunguhreppi. Gígja
Garðarsdóttir, 15 ára.
Hríshuli, Reykhólahreppi.
Elín Þorsteinsdóttir Snæ-
dal, 13 ára, Skjöldólfs-
stöðum, Jökuldal. Guð-
mundur Tegeder, 10 ára,
Brekkustíg 35. Vest-
mannaeyjum. Sigurborg
Hilmarsdóttir, 13 ára,
Eskifirði. Gunnar Þór
Guðmundsson, 12 ára.
Hlíðarbergi, Mýrum. A,-
Sk. Theódóra Ingvarsdótt-
ir, 12 ára, Arnarholti,
Biskupstungum. Hólm-
fríður Ófeigsdóttir. 9 ára.
Reykjaborg, Skagafirði.
Páll Guðmundsson, 9 ára,
Hlíðarbergi, Mýrum. Sig-
ríður Karlsdóttir. 13 ára.
Hvallátrum, Patreksfirði.
Halldóra Helgadóttir, 9
ára, Hvallátrum, Patreks-
firði. Bergur Jón Þórðar-
son. 8 ára, Skagaströnd.
Björk Sigurjónsdóttir. 10
ára, Hvammi, Vopna-
SKRÍTLUR
Raggi: Þetta er skrítinn
hundur, sem þú ert með.
Maggi: Það er lög-
regluhundur.
Raggi: Mér sýnist hann
tæplega geta verið það.
Maggi: Jú, hann er í
ieynilögreglunni.
—000—
Kona: Er móðir þín
heima, drengur minn?
Strákurinn: Heldurðu
að ég væri að sópa stétt-
ina, ef hún væri ekki
heima?
FANGINN
Tunguhreppi.
ára. Kleppjárnsstöðum,
firði. Víðir'Ágústsson, 12
Maður sat í fangelsi.
Hann fékk heimsókn, og
þegar gesturinn var far-
inn frá honum, spurði
f angavörðurinn: „Hvaða
maður var þetta, sem var
að heimsækja þig?“
Fanginn svaraði með
þessari gátu: _,.Bræður
eða systur á ég ekki, en
faðir mannsins er sonur
föður mín§“.
Hvernig var gesturinn
skyldur fanganum?
Svar í næsta blaði.
SKRÍTLA
Jói: Hvernig fékkst þú
þessa hræðileg'u kúlu á
höfuðið?
Maggi: Ég meiddi mig
á tómötum.
Jói; Á tómötum?
Maggi: Já, þeir voru
í dós.
'ÓSKASTUNDIN — 5(3
Dömulegar
ömmur
Við báðum ykkur að
teikna mynd af ömmu
gömlu í stað þess að
teikna alltaf ungar tízku-
dömur. Eins og áður
þurftum við ekki að bíða
lengi eftir svari frá ykk-
ur. Tvær stúlkur, sem
ekki vilja láta nafns síns
getið, sendu okkur strax
ömmumyndir. Teiknar-
arnir kalla sig S K. og
K.S.
10) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 19. marz 1960 --
Ofriður kringum ölgerðinu
Framhald af 7. síðu.
segja, að þar ber mest á
krökkum og stálpuðum strák-
. um, sem gera gys að þeim
manni, sem þar selur sína
vöru, og er það oft ljótur
leikur.
Sömu strákar, og margir
fleiri, eiga svo erindi, allt
fram til miðnættis, í sjoppuna,
og koma þá oft í hópum á
skellinöðrum og öðrum skrölt-
tólum, æpandi og öskrandi,
hver sem betur getur, svo
að mest likist því, að ótal
blikkdósir og glymskrattar
séu þar saman í kór.
Það getur ært óstöðuga að
hlusta á slíkar hljómkviður,
og eins -hitt, að horfa á það
alla daga, að allar reglur,
' sem finnanlegar eru í lög-
reglusamþykktinni, séu þver-
brotnar og að engu hafðar,
bæði nótt og dag, allt í skjóli
1 þess, að yfirvöldin virðast
! sofa.
* Nú er fyrirtæki, sem hefur
verið til húsa hér við Grett-
ísgötu, sem mikil eldhætta
hefur stafað af, auk annars,
flutt í burtu, enda ekki van-
þörf á, þar sem um er að
ræða íbúðarhverfi, þéttskip-
að timburhúsum. Og vel sé
þeim mönnum, sem þannig
þekkja sinn vitjunartíma.
Það er því ekki nema eðli-
leg krafa okkar allra, sem
búum í þessum bæjarhluta, að
við losnum líka við þá plágu,
sem starfsemi ölgerðarinnar
er á þessum stað.
Ölgerðin Egill Skallagríms-
son þarf að fara héðan, og
það sem fyrst, bæði hennar
sjálfrar vegna, sakir illra
starfsskilyrða, og okkar, sem
af hennar völdum eru frið-
lausir bæði nótt og dag.
Það verður nóg eftir samt
af skellinöðrum og skrölttól-
um, sjoppum og saurblöðum.
„Að vefja í barmi vondan
snák,
veldur sjaldan happi.
Illt hafa menn af illum strák,
eins og Þráinn Hrappi."
Þráinn.
Flokksþingið
Framhald af 1. síðu
að móta rétta stefnu og fram-
fylgja henni. í síðustu þingkosn-
ingum auðnaðist Alþýðubanda-
laginu að auka fylgi sitt. Fólkið
er að! vakna
I lok ræðu sinnar minntist
Einar flokksmanna og stuðnings-
manna, sem látizt hafa síðan s:ð-
-asta þing var haldið. Þingheim-
ur vottaði minningu þeirra virð-
ingu með því að rísa úr sætum.
Setningarfundinum lauk með
skipun kjörbréfanefndar og
nefndanefndar. í kjörbréíanefnd
hlutu sæti Eggert Þorbjarnarson,
Halldór Bachmann, Ingi R.
Helgason, Karl Guðjónsson, Ste-
fán O. Magnússon, Stefán Þor-
leifsson og Þóroddur Guðmunds-
son.
Nefndanefnd var skipuð þeim
Brynjólfi Bjarnasyni, Eðvarð
Sigurðssyni. Einari Olgeirssyni.
Eyjólfi Árnasyni, Geir Gunnars-
syni. Lúðvík Jósepssyni og' Sig-
urjóni Einarssyni.
Að nefndaskipunum loknum
var fundi frestað til kl. 8,30.
f upphafi kvöldfundar las for-
maður flokksins skeyti frá Mál-
fundafélagi jafnaðarmanna þar
sem það þakkar Sósíalistaflokkh-
um gott samstarf innan Alþýðu-
bandalagsins og óskar þinginu
heillaríks' starfs i þágu lands og
þjóðar.
Síðan flutti Ingi R. Helgason
framsögu fyrir kjörbréfanefnd
og voru öll kjörbréf samþykkt
einróma. Þá var samþykkt dag-
skrá þingsins og starfsmenn og
nefndir kosnar. Þóroddur Guð-
mundsson var kjörinn forseti, 1.
varaforseti Eðvarð Sigurðsson og
2 varaforseti Steinþór Guð-
mundsson.
Ritarar voru kjörnir Björgvin
Salómonson, Halldór Bachman.
Haukur Hafstað og Þorsteinn
Jónatansson. Eftirtaldar nefndir
voru kjörnar: Stjórnmálanefnd,
verkalýðsmálanefnd, sjávarút-
vegsnefnd, landbúnaðarneínd,
iðnaðarnefnd, uppstillingarnefnd
og -allsherjarnefnd. Að því búnu
ílutti formaður flokksins Einar
Olgeirsson skýrslu miðstjórnar
um stefnu og starf flokksins,
samfyikingu alþýðunnar og
næsta verkefni.
Tvískiptur heimur
nefnist 7. erindið í erinda-
flokki um boðskap Opinber-
unarbókarinnar.
Júlíus GuðmundsSon, skóla-
stjóri, flytur þetta erindi í
Aðventkirkjunni sunnudag-
inn 20. marz klukkan 5 sd.
Blandaður kór og einsöngur.
Allir velkomnir.
Vegna mikillar aðsóknar verður 8. kvöldskemmtun okkar í Austurbæjarbíói laugardag kL 7
i; •..... ‘ •
. ..... - .
Æðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói írá kl. 2 í dag.
Karlakórinn Fóstbræður