Þjóðviljinn - 17.06.1960, Blaðsíða 10
50) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 17. júní 1960
I
i
t
f
í
[
f
í
I
(
!
I
r
DAGSKRÁ
hátíðahaldanna 17. júní 1960
I. SKRUÖGÖNGUK
Kl. 13.15
Skrúðgöngur að Austurvelli hefjast frá
þrem stöðum í bænum.
Frá Melaskólanum verður gengið um Furu-
mel, Hringbraut, Skothúsveg, Tjarnargötu
og Kirkjustræti. Lúðrasveit Reykjavíkur
og lúðrasveit barnaskóla ReykjaV'íkur leika.
Stjórnandi: Herbert Hribersehek.
Frá Skólavörðutorgi verður gengið um
Njarðargötu, Laufásveg, Skothúsveg, Frí-
kirkjuveg, Lækjargötu og Skólabrú. Lúðra-
sveitin Svanur og lúðrasveit barnaskóla
Reykjavíkur leika. Stjórnandi: Karl O.
Runólfsson.
Frá Hlemmi verður gengið um Laugaveg,
Bankastræti, Austurstræti og Pósthús-
stræti Lúðrasveit verkalýðsins leikur.
Stjórnandi: Jón G. Ásgeirsson.
n. HÁTÍÐAHÖLDIN VIÐ AUSTURVÖLL:
Kl. 13.55
'Hátíðin sett af formanni Þjóðhátíðarnefnd-
ar, Eiríki Ásgeirssyni. Gengið í kirkju.
Kl. 14.00
Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prédikun:
Séra Jón Auðuns, dómprófastur. — Ein-
söngur: Einar Kristjánsson, óperusöngvari.
Organleikari: Dr. Páll Isólfsson, tónskáld.
Dómkórinn syngur. Þessir sálmar verða
sungnir: 664 Upp þúsund ára þjóð .......
671 Beyg kné þín, fólk vors föðurlands ..,
16 Þitt lof, ó Drottinn vor ....
Kl. 14.30
Forseti Hæstaréttar, dr. jur. Þórður Eyj-
ólfsson leggur blómsveig frá íslenzku þjóð-
inni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. All-
ir viðstaddir syngja þjóðsönginn með und-
irleik iúðrasveitanna. Stjórnandi: Karl O.
Runólfsson.
Kl. 14.40
Forsætisráðherra, Ólafur Thors, flytur ræðu
af svölum Alþingishússins. „Island ögrum
skorið" sungið og leikið. Stjórnandi: Her-
bert Hribersehek.
Kl. 14.55
Ávarp fjallkonunnar af svölum Alþingis-
hússins. „Yfir voru ættarlandi" sungið og
leikið.
Kl. 15.00
Lagt af stað frá Alþingishúsinu suður á
íþróttavöll. Staðnæmst við leiði Jóns Sig-
urðssonar.
Forseti bæjarstjórnar leggur blómsveig frá
Reykvíkingum. Karlakórinn Fóstbræður
syngur: ,vSjá roðann á hnjúkunum háu“.
Stjórnandi: Carl Billich.
III. Á ÍÞRÓTTAVELLINUM VIÐ
SUÐURGÖTU:
Kl. 15.30
Ávarp: Gísli Halldórsson, formaður l.B.R.
Skrúðganga íþróttamanna og skáta. — Úr-
valaflokkur karla úr Glímufélaginu Ármanni
sýnir fimleika. Stjómandi: Vigfús Guð-
brandsson. — TJrvalsflokkur úr K.R. sýnir
fimleika. Stjórnandi (Benedikt Jakobsson.
— Sýningar og bændaglíma. Stjórnandi:
Kjartan Bergmann. — Keppni í frjálsum
íþróttum: 110 m grindahlaup — 100 m
ihlaup — 40C: m hlaup — 1500 m hlaup —
kúluvarp — kringlukast — stangarstökk —
þrístökk — 1000 m boð-hlaup. Keppt verður
um bikar þann, sem forseti Islands gaf 17.
júní 1954. -— Keppni og sýningar fara fram
samtimis. — Leikstjóri: Jens Guðbjörnsson.
Kynnir: Bragi Friðriksson.
IV. BARNASKEMMTUN Á ARNARHÓLI
:Stjórnandi: Baldur Pálmason, fulltrúi.
Kl. 16.00
Séra Ölafur Skúlason æskulýðsfulltrúi þjóð-
kirkjunnar ávarpar börnin. — Lúðrasveit
drengja leikur undir stjórn Karls O. Run-
ólfssonar. — Atriði úr þrem leikritum:
„Skugga-Sveini1 ‘, „Undraglerjunum“ og
„Kardimommubænum". Leikstjóri: Klem-
ens Jónsson. Leikendur: Jón Aðils, Klem-
ens Jónsson, Bessi Bjarnason, Helgi Skúla-
son, Baldvin Halldórsson og Ævar R. Kvar-
an. Carl Billieh leikur undir söngnum. —
Harmonikuhljómsveit barna leikur undir
stjórn Karls JónatanSSOn^jppj|g^j^jpj
V. KVÖLDVAKA Á ARNARHÓLI:
Kl. 20.00
Lúðrasveit Reykjavíkur. Stjórnandi: Her-
ibert Hribersehek.
Kl. 20.20
Kvöldvakan sett: Ólafur Jónsson, ritari
Þjóðhátíðarnefndar. -— Lúðrasveit leikur:
„'Hvað er svo glatt“.
Kl. 20.25
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri flytur ræðu.
— Lúðrasveit Reykjavíkur leikur Reykja-
víkurmars eftir Karl O. Runólfsson. Höf-
undurinn stjórnar.
Kl. 20.40
Karlakórinn Fóstbræður syngur. Stjórnandi:
Carl Billich. Einsöngvari Kristinn Halls-
son.
K1..20.55
Leikrit: Ástir og Stórmál, eftir Guðmund
Sigurðsson. Leikendur: Guðbjörg Þorbjam-
ardóttir, Róbert Arnfinnsson, Rúrik Har-
aldsson.
Kl. 21.20
Einsöngur: Guðmundur Guðjónsson, óperu-
söngvari. Undirleikari: Skúli Halldórsson,
tónskáld.
Kl. 21.35
Prófessor Richard Beck, forseti Þjóðræknis-
félags Islendinga í Vesturheimi flj'tur
kveðju frá Vestur-lslendingum.
Kl. 21.40
Leikaiarnir Bessi Bjarnason og Gunnar
Eyjólfsson skemmta.
Kvöldvökunni lýkur um kl. 22.00.
VI. DANS TIL KL. 2 EFTIR MIÐNÆTTI:
Kynnir: Ævar R. Kvaran, leikari.
Að kvöldvökunni lokinni verður dansað á
eftirtöidum stöðum: á Lækjartorgi: Hljóm-
sveit Svavars Gests. Einsöngvaii: Sigurdór
Sigurdórsson. I Aðalstræti: Hljómsveit
Kristjáns Kristjánssonar. Einsöngvarar:
Ellý Vilhjálms og Óðinn Valdimarsson. —
Á Lækjargötu: Hljómsveit Áma ísleifsson-
ar. Einsöngvarar: Hulda Emilsdóttir og Sig-
ríður Guðmundsdóttir.
Hljómsveit Björns R. Einarssonar leikur til
skiptis á öllum dansstöðunum.
Kl. 02.00
Dagskrárlok. Hátíðahöldunum slitið frá
Lækjartorgi.
Fröken Júlía
Framhald af 7. síðu.
hnittilegum og skemmtilegum
svipmyndum af Kristínu elda-
busku, kærustu Jeans, hún er
roskin, siðavönd og sérgóð, og
dansinn í senn þrunginn alvöru
og safaríkri kímni. Hinn fimi
og grannvaxni Svíi Gunnar
Rundin er unnusti Júliu og
gerir hann ærið kátbroslegan í
útliti og hreyfingum ■— er það
nokkur furða þótt Júlíu geðjist
lítt að slíkum manni? Niels
Kehlet ber af sveitfólkinu í
skoplegu gervi Andrésar vinnu-
manns, heljarstökk hans vekja
hreina furðu; maðurinn er
þéttfullur og ærið valtur á fót-
um, en hnitmiðað jafnvægi hins
unga dansara bregst aldrei.
Eske Holm sómir sér vel sem
greifinn faðir Júlíu. og með
hlutverk Klöru fer Stella Hólm
Ólafsdóttir. en aðrar ungar
stúlkur íslenzkar mynda hinn
í'ámenna dansílokk og tekst
vonum betur, njóta sín vel und-
ir myndugri handleiðslu Birgit
Cullberg. Tónlist Ture Rang-
ström er varla tilkomumikið
verk í sjálfu sér, en fellur vel
að efni leikdansins; hljóm-
sveitinni stjórnaði Hans Ant-
olitsch. Sérkennilegar sviðs-
myndir og búningar eiga Sven
Erixson að upphafsmanni, hinn
viðkunna sænska málara, en
tjöldin málaði Lárus Ingólfsson.
En hvað líður leikdansinum
íslenzka? Við höfum fátt heyrt
um starf dansskólans í Þjóð-
leikhúsinu hin síðustu ár, en
vonum að þar sé ekki sofið á
verðinum. Langt er í land og
við ótal örðugleika að etja unz
hæfur dansflokkur getur orð-
ið til á landi hér og innlendur
leikdans. en mest um það vert
að gei'ast ekki upp. missa ekki
sjónar á markinu. Leikhússins
biður þrotlaust starf í þágu
íslenzkra lista, við þvi blasir
önn hins virka dags. Á. Hj.
íþróttir
Framhald af 9. síðu.
innar. mjög góður í miðvarðar-
stöðunni. í framlinunni, sem var
betri hluti liðsins. var Guðjón
langbeztur; bezti leikur Guðjóns
í ár, og .e.t.v. besti leikur ísl. út-
herja, sem við höfum fengið að
sjá í sumar. Grétar var einnig
liflegur og vann ötullega i öllum
upphlaupum og sama má segja
um Guðmund Óskarsson. sem
hefur sýnt góða framför í sum-
ar. Baldur átti einnig góðan leik,
þó ekki nálægt sínu bezta. Björg-
vin var góður í fyrri hálfleik,
meðan hann hafði hörkuna en í
síðari hálfleik va.r hann heldur
slakur.
KR liðið virtist þetta kvöld
algerlega falla saman við þá
mótspyrnu, sem Fram sýndi.
Langbeztan leik sýndi Þórólfur.
og var raunar sá eini sem eitt-
hvað kvað að. Ellert gerði einnig
margt vel. Vöm KR, en í hana
vantaði H.reiðar, sem mun yera
erlendis, var mjög léleg, bæði
opin og laus i sér, enda kvað
mun meira að sóknarlotum Fram
fyrir bragðið. Heimir varði þó
oft vel. Furðulítið bar á lands-
liðsuppistöðunni úr KR í þess-
um leik, ef í'rá er talinn Þórólf-
ur. Garðar, Örn og Gunnar sá-
ust varla.
Dómari í leiknum var Þorlák-
ur Þórðarson, Víking.
— bip —
Skólabyggingar
Framhald af 12. síðu.
„Það er hvorki viðunandi eða
sæmandi fyrir stærsta bæjarfé-
Iagið og liöfuðborg landsins að
láta skólamál sin vera í þeim ó-
lestri vegna húsnæðisleysis sem
þau eru nú í. Bæjarstjórnin
verður að gera sér ljóst að löng
vanræksla kallar nú á mark-
vissa áætlun. sem verður að
framkvæma undanbragðalaust og
verja til hennar því fé sem nauð-
synlegt er. Verkefnið iná ekki
vaxa bæjarstjórninni í augum
og áframhaldandi vanræksla
þess eykur vandann stórlega og
gerir hann lítt viðráðanlegan.
Þess vegna þarf nú bæjarstjórn-
in að brjóta í blað í þessum
málum ....“
Gísli Halldórsson bæjarfull-
trúi íhaldsins var fenginn til
að verja vanrækslusyndir meiri-
hlutans í þessu máli, en öll bar
ræða hans með sér að íhaldinu
er ljóst að mál þetta stendur
skammarlega illa fyrir það.
Gísli gaf þær atliyglisverðu
upplýsingar í ræðu sinni að bæj-
arstjórnarmeirihlutinn ætlar að
vera til ársins 1972 að byggja þá
skóla sem reisa á samkvæmt á-
ætluninni frá 1957!
Bar Gísli í lok ræðu sinnar
fram frávisunartillögu Sjálf-
stæðisflokksmanna við tillögu
Guðmundar. Var sú tillaga sam-
þykkt að umræðum loknum með
10 atkvæðum íhaldsins gegn 3.
Jónas Haralz
Framh. af 12. síðu
efnahagsmál í tirna og ótíma,
þótzt hafa lauSn á hverjum
vanda og talið viðreisnarkerfið
mikla listasmíð. Honum hefur
aðeins láðst að gæta þess að það
Iifir fólk í landinu sem verður
að reyna að lifa af almennu
verkamannakaupi eða lægri
tekjum. Og þegar honum er
bent á það vandamál kann hann
engin ráð til þess að leysa það.
Hið mikla og flókna viðreisnar-
kerfi hans hrynur til grunna um
leið og á það er lagður mæli-
kvarði daglegs lífs.
Þögn Jónasar Haralz er
dýrmæt viðurkenning fyrir
verkalýðshreyfinguna. í henni
felst skilyrðislaus játning á
því að fjölskylda geti ekki
Iifað á verkamannskaupi. Með
þögn sinni tekur sjálfur við-
reisnarpostulinn Jónas Haralz
á öflugasta hátt undir kröf-
urnar um verulegar kaup-
hækkanir.
D A M A S K —
Sængurveraefni
Lakaléreft
Flauel
Léreft
Hvít og mislit
ULLAR-VATTTEPPI
Skólavörðustíg 21.
Pantið fermingarmyndirnar
timanlega.
Laugavegi 2. Sími 11-980.
Heimasími 34-890;