Þjóðviljinn - 17.06.1960, Síða 12
Verkfall á humar-
veiðum í Hafnarfirði
þlÓÐVILIINN
Föstudagur 17. júní 1960 — 25. árgangur — 136. tölublað
Bótavið^erð
á malbikinu
Vor- og suniarmánuðina
má oft sjá vinnuflokka að
störfum við gatnaviðgerðir
liér í Reykjavík, enda veit-
ir ekki af að tekið sé til
hendinni eftir veturinn, j*eg-
ar akbrautirnar, ekki hvað
sízt þaer malbikuðu, eru
sem verst útleiknar. „Bóta-
aðferð“ er oftast nær við-
höfð, þegar gert er við mal-
bikuðu göturnar — o,g
þykja ýmsum þau vinnu-
brögð kyndug á stundum.
Ákveðnir blettir akbrautar-
innar, allt frá Iófastórum
blettum upp í stóra, ó-
reglulega fleti, eru af-
markaðir með krjtarstrikum,
yfirborðið burstað, asfalti
sprautað á flötinn og gróf-
um sandi stráð yfir. Þá er
viðgerðinni lokið í bili a.
m.k., því að endingin er ekki
alltaf haldgóð. — Myndirn-
ar voru teknar hér í bænum
einn góðviðrisdaginn. Til
vinstri sést hvernig blett-
irnir, sem gera á við eru af-
markaðir með krítarstrik-
um; til liægri: asfaltinu
hellt á bikið. (Ljósm. Þjóðv.
A.K.).
í gær kom til vinnustöðvun-
ar á humarveiðuin hjá Sjó-
mannafélagi Itafnarfjarðar. —
Snéri Þjóðviljinn sér af því til-
efni til formanns félagsins, Ein-
ars Jónssonar, og spurði liann,
hvað sjómönnum og útgerðar-
mönnum bæri á milli.
Það hafa engir sérsamning-
ar verið á humarveiðunum,
sagði Einar. Fyrir alllöngu fór
félagið fram á viðræður við út-
gerðarmenn, úr þeim hefur enn
ekkert orðið. Þeir hafa all-taf
borið því við, að þeir hefðu ekki
tíma. Félagið sá sig því til-
nejdt að boða stöðvun í dag.
Hefur það nú orðið að sam-
komulagi við útgerðarmenn, að
viðræður um samninga hefjist
fyrir hádegi á laugardag.
Einar sagði, að kröfui: þær,
sem hafnfirzkir sjómenn færu
fram á á humarveiðunum væru
í aðalatriðum þær að fá 40%
til skipta og sömu tryggingu
eins og á öðrum veiðum, enn-.
fremur helgafrí. Þá eru sjó-
menn mjög óánægðir með það,
að undanfarið hafa vélar verið
notaðar til þess að þvo hum-
arinn. Hafa verið mikil brögð
að því, að skeljarnar brotnuðu
í vélunum og humarinn af
þeim sökum lent í 2. flokki.
Fara sjómennirnir einnig fram
á úrbætur á þessu.
Búizt er við, að yfir 10 bát-
ar frá Hafnarfirði muni stunda
humarveiðar.
2 DAGAR
<i 11111111111111111111111; m 11111111111111111 ■ 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 f 111111111111 n
Stórátaks er þörí í
skólabyggingum
Það virðist öllum ljóst nema bæjarfulltrúum ihaldsins
KEFLA-
VlKURGANGAN
Á fundi bæjarstjórnar
Reykjavíkur í gær bar Guð-
mundur Vigfússon, bæjar-
fulltrúi Alþýöubandalags-
ins, fram tillögu sem fól í
jsér áætlun um myndarlegt
álak í skólabyggingamálum
bæjarins á næstu 5—6 ár-
um. Tillögu þessa felldu
bæjarfulltrúar íhaldsmeiri-
hlutans, enda þótt ófremd-
arástand hafi ríkt í skóla-
málum bæjarins á undan-
förnum árum og meiri-
hlutafulltrúana hafi skort
skilning á lausn vandans
og dugnað til framkvæmda.
Tillaga Guðmundar var svo-
hljóðandi:
„Bæjarstjórn samþykkir að
fela fræðsluráði og fræðslustjóra
að semja áætlun og tilliigur um
framkvæmdir í skólabygginga-
niálum á næstu 5—6 árum.
Skulu tillögurnar við það miðað-
ar að að þeim tíma liðnum verði:
1. Einsett í skólastofur gagn-
fræðastigs,
2. hvergí meir en tvísett í
skólastofur barnafræðslu-
stigs,
3. skólastarfsemin Iosuð úr
leiguhúsnæði,
4. sómasamlega séð fyrir
námsgreinum, sem þarfnast
sérstaks húsnæðis í skól-
unum, svo sem matreiðslu,
handavinnu og öðru verk-
námi, söng, tónmennt, eðl-
isfræði, efnafræði, landa-
fræði, náttúrufræði, leik-
fimi, svo og nauðsynlegri
læknisþjónustu og ljósastof-
um.
5. aðstöðu til félags- og tóm-
stundastarfs nemenda og
vinnuskilyrðum kennara
komið í viðunandi horf.
Bæjarstjórnin telur rétt að
höfð sé við áætlun þessa og
tillögugerð hliðsjón af greinar-
gerð og tillögum skólamálanefnd-
ar frá 2. febr. 1957, og leggur
áherzlu á að framangreindar á-
ætlanir og tillögur geti legið
fyrir liið fyrsta“.
Vanræksla kallar á mark-
vissa áætlun
Guðmundur. Vigfússon fylgdi
tillögunni úr hlaði með sköru-
legri ræðu, sem væntanlega verð-
ur rakin nánar hér í blaðinu
síðar. Lauk hann framsöguræð-
unni með því að segja m.a.:
Framhald á 10. síðu
í dag, 17. júní, minnumst við þess að sjálfstæðis-
barátta íslendinga er ævarandi. Hernámsandstæðing-
ar. heitum því í dag að 19. júní 1960 skuli marka
þáttaskil í því lífsstríði íslenzkrar þjóðar, sem hcr
er háð gegn svívirðu erlendra herstöðva. Hvetjið
'félaga ykkar til þátttöku í Keflavíkurgöngunni hvern
eftir sinni getu.
Skrifstofa íramkvæmdanefndar er í Mjóstræti 3
annarri hæð, simi 2 - 36 - 47. Þeir sem ætla að vera
með um morguninn láti skrá sig strax. Farið verður
af stað með bílum suðurel'tir kl. 6 árdegis. Á laugar-
dag verða allir að liafa samband við skrifstofuna í
Mjóstræti eða hringja í síma 1 -23-20 til að fá upplýsingar
um á hvaða stað í bænum þeir skuli mæta morguninn eftir.
Þið sem ekki getið gengið alla leið getið líka lagt mál-
inu lið. Leggið til bíla á sunnudaginn og látið skrá þá strax.
Auðveidið með fjárframlögum framkvæmd göngunnar. Komið
til móts við Keflavíkurgönguna, þegar hún nálgast Reykja-
vík síðdegis á sunnudaginn, og sýnið samstöðu ykkar með,
því að fylgja langgöngufólki niður í Lækjargötu.
Kann engln ráð til þess að verkamanns-
Ijölskylda geti lifað af kaupi sínu
Jóns Haralz viÓurkennir oð viSreisn hans
standisf ekki reynslu daglegs lifs
15. júní leið til kvölds
án þess að Þijóöviljanum
bærist nokkur greinargerð
frá Jónasi Haralz um það
hvernig verkamannafjöl-
skylda ætti að fara aö því
að lifa af kaupi sínu. Þrátt
fyrir hálfs mánaðar um-
hugsunarfrest hefur hinn
sprenglærði og hugkvæmi
sérfræðingur ekki komiö
auga á neinar leiðir til þess.
Þjóðviljinn lagði spurningar
sínar fyrir .Jónas Haralzs 29.
maí og bað hann að svara eftir-
töldum atriðum;
„Hvernig á verkafólk að
fara að því að lifa eftir við-
reisnina?
Hvernig á fjölskylda Dags-
brúnarverkamanns — af
sömu stærð og vísitöluf jiil-
skyldan — að lifa af kr. 4.131;
á mánuði miðað við verðlag
í dag?
Hvernig eru búreikningar
slíkrar fjölskyldu hugsaðir í
einstökum atriðum?"
Hét Þjóðviljinn Jónasi rúmi í
blaðinu fyrir svör sín.
Spurningar þessar voru ítrek-
aðar hér í blaðinu 9. júní, og
þá var Jónasi gefinn frestur til
15. júní til að senda svör sín.
Jafníramt var, honum bent á
einfalda aðferð til þess að íást
við vandann. Visitölufjölskylda
sú sem sérfræðingárnir reikna
með var talin hai'a 70—80 þús-
und króna útgjöld á ári miðað
við verðlag 1. maí — en árs-
kaup Dagsbrúnarverkamanns er
aðeins 50.000 kr. Jónasi vaK
bent á að hann þyrfti aðcins að
tiltaka hvaða liði liægt væri að
skcra niður í útgjöldum visitiilu-
fjölskyldunnar til þess að kom-
ast af með 50.000 kr. árstekj-
ur.
En allt kom fyrir ekki. 15.
júní leið til miðnættis án þess.
að nokkurt svar bærist frá Jón-
asi Haralz.
Dýrmæt viðurkenning.
Eins og landsrriönnum er kunn-
ugt stafar þögn Jónasar -ekki af
því að hann sé hléclrægur mað-
ur. Þvert á móti héfur hann
otað fram vísdómi sínum ura
Framhald á 10. síðu.