Þjóðviljinn - 07.08.1960, Blaðsíða 5
Surmudag'ur 7. ágúst 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Kappleikurinn sem hér um
ræðir var á milli knattspynu-
liðs Rauða hersins og Dynamo
og áhorfendur á vellinum voru
yfir 100 þúsund. Leiknum var
bæði sjónvarpað og útvarpað
lýsingu á honum þar sem hann
var liður í Sovétmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu.
Leikurinn þótti mjög harka-
legur alit frá byrjun. í seinni
en mörg sSys
S1. mánudag var frídagur
bankafólks í Bretlandi, og var
þessi langa fríhelgi notuð til
þess að gera tilraun með há-
marksökuhraða þar í landi. Á-
kveðið var að frá föstudegi til
mánudags, að báðum dögum
meðtöldum, skyldi hámarkshraði
vera 50 mílur (80 km.) á klst.
Þrátt fyrir slæmt veður fóru
150.000 manns í ferðalög frá
London til þess að eyða frídög-
unum úti á landi. Slys munu þó
sízt hafa verið minni um þessa
helgi þrátt fyrir hinn takmark-
aða ökuhraða. Á föstudag og
laugardag létu 53 menn lífið í
umferðarslysum, en ekki er enn
vitað hversu margir fórust á
sunnudag og mánudag. Um
sömu helgi I fyrra fórust 78
manns í umferðaslysum í Bret-
landi.
hálfleik urðu •afar harðar deilur
um mark sem l.'ð Rauða hersins
skoraði og nokkrum mínútum
síðar sáu æstir sjónvarpsáhorf-
endur mannfjöldann á vellinum
streyma út á völlinn og um-
kringja dómarann. Sjónvarps-
sendingunni var þá hætt.
Það sem mun hafa gerzt er
þetta: Leikmaður sém þegar
hafði margsinnis sparkað í fót-
leggi andstæðinganna og gert
sig sekan um alls kyns rudda-
mennsku aðra í leiknum gekk
í lið með nokkrum þeirra sem
streymdu inn á völlinn og ógn7
aði dómaranum með krepptum
hnefum. Nokkrir pörupiltar
meðal áhorfenda réðust þá strax
á dómarann og þjörmuðu svo
að honum að það þurfti að bera
hann út af vellinum á sjúkra-
börum. Lögreglan komst ekki að
fyrr en um seinann. Nokkrir
voru handteknir.
Sovézka knattspyrnusamband-
ið fjallaði um hneykslið - s.l,
mánudag. Leikurinn var dæmd-
ur ógildur og hinn þekkti leik-
maður Rauða hersins, Krylov.
dæmdur frá leik í itvö ár fyrir
að hafa æst til árásarinnar á
dómarann og fyrir ruddalega
framkomu á velli. Tveir menn
aðrir í sama liði fengu alvariega
áminningu.
Þeir sem réðust á dómarann
verða ákærðir fyrir rétti.
Fer vesturþýzki fiskiflotmu
áhe-fendur réðust á dómarann
Aóalumræðuefjii íþróttaimnenda í Moskvu þessa dag-
ana er stórkostlegt fótboltahneyksli sem átti sér stað fyrir
nokkrum dögum þegar ltappleikur á Leninleikvellinum í
Moskvu endaði með handalögmálum og áhorfendur réðust
á dómarann.
Þessi einkennilega vél er í verksmiðju í bæn mn Susice í Tékkóslóvakíu og það eru eld-
spýtur sem verið er að framleiða. Eldspýtna verksmiðjan er orðin 120 ára og framleiðir
árlega 500 milljón eldspýtur. í þær fara um 17 þúsund rúmmetrar af viði. Kannski
eru eldspýtumar sem við notum daglega framleiddar í þessari verksmiðju, en eins og
kunnugt er fáum við allar okkar eldspýtur frá Tékkóslóvakíu.
Orsokir ofdrykkjunnar lang-
oftast sálfrœðilegs eðíis
segja sérfræðingar á alþjóðlegri ráðstefnu
í Stokkhólmi um vandamál ofdrykkjunnar
Þetta er 26. alþj óðaráSstefnan sem haldin er um vanda-
mál ofdrykkjunnar og eru þáttfakendur nú yfir 500
talsins frá 40 löndum. Þeir eru læknar, félagsfræðingar,
fulltrúar ýmissa bindindisfélaga og margir helztu sér-
fræðingar heimsins í þessum málum.
Miklar umræður urðu um
hvaða ástæður væru helztar til
til þess að menn gerðust of- j
drykkjumenn. Nefndar voru j
margar ástæður, flestar sál-
fræðilegs eðlis, m. a þessar: j
að þeir hefðu sem börn ekki
notið nægrar ástúðar og því:
fyllzt sjúklegu hatri til um-
hverfisins: að þeim tækist j
ekki að verða fullorðnir og fá á- j
byrgðartilfinningu; að þeir gætu j
ekki gleýmt öryggi fyrstu barns-
áranna og flýðu raunveruleik-
ann með því að grípa til flösk-
unnar; að þeir hefðu ekki nægi-
lega sterka sjálfstilfinningu og
væru óöruggir í kynferðismál-
um; að eiginkonan réði öllu í
hjónabandinu.
Antabus og fleiri lyf
Skýrt var frá ýmsum tilraun-
um til að hjálpa ofdrykkju-
mönnum. Danski læknirinn Dr.
Oluf Martensen-Larsen sem
fyrstur kom fram með antabus,
sagði frá reynslu sinni af því
lvf: í 12 ár. Hann hé!t því fram
að antabus væri mjög áhrifa-
ríkt. hefði engar aukaverkanir
og væri algerlega skaðlaust. Það
yrði þó að fara að með varúð
og látá sjúklinginn auk þess
taka inn antihistamin, salttöflur,
B-6 vítamín, svefnlyfið Allonal
og fleiri lyf.
Með þessum lyflækningum
sagði Martensen-Larsen að sjúk-
lingurinn yrði mjög vel undir-
búinn undir hina sálrænu með-
ferð, en um það bar öllum sér-
fræðingunum á ráðstefnunni
saman, að sálræn meðferð of-
drykkjumannsins væri langþýð-
ingarmesta atriðið í lækningunni
ef góður árangur ætti að nást.
Ekki voru allir safnmála um
að antabus væri hættul^ust lyf
T. d. sagði Dr. Kulisiewics frá
Varsjá að lyfið hefði um 20
mismunandi aukaverkanir og
orsakaði m. a. kynferðislegan
vanmátt. Einnig skýrði hann frá
því að fimm menn sem fengið
hefðu lyfið í Póllandi, hefðu
dáið.
Sænskur prófessor, Leonard
Goldberg sagði frá nýju lyfi
sem verið væri að gera tilraunir
með í Svíþjóð. Það nefnist
Temposil og fær ofdrykkju-
manninn til að hætta drykkj-
unni eftir fyrsta sopann og
bjargar honum þannig frá að
lenda á löngum túr.
Lyfið er mjög fljótvirkt, virk-
ar á hálftíma og hefur reynzt
mjög árangursríkt í einstökum
tilfellum. Það er nú í athugun
hve lengi það virkar, hvort eigi
að gefa það inn seint eða
snemma o. s. frv,
burt af norðurslóðum?
Sérfræðingar í matvæla- og
landbúnaðarráðuneyti Vestur-
Þýzkalands eru nú að rannsaka
hvort það muni borga sig' fyrir
Dr. Olof Forsander frá Hels-
ingfors sagði að hægt væri að
ráða. bót á öllum þeim sjúkdóm-
um sem ofdrykkjan veldur með
venjulegum lyfjum. Það væru
einkum efnaskiptasjúkdómar
sem þjáðu ofdrykkjumanninn.
Lyfin sem sjúklingurinn ætti að
taka væru B-G og B-1 vitamín,
hormónalyf og insúlín.
yke hefði átt að tala um
San Francisco
„í San Francisco höfum við
hærri hlutfallstölu ofdrykkju-
manna og sjálfsmorða en þið
hafið í Stokkhólmi og mér þyk-
ir leitt að Eisenhower skyldi
tala um ykkur frekar en okkur,
þegar hann drap á þessi vanda-
mál fyrir skömmu,“ sagði sál-
fræðingurinn J. M. Stubblebine
frá San Francisco á ráðstefn-
unni. Hann deildi hart á lækna
og almenning sem væru með
siðaumvandanir við ofdrykkju-
menn og benti á að læknismeð-
ferð drykkjamanna hefði oft
engin áhrif vegna þess að lækn-
ar og starfslið sjúkrahúsanna
legðu alla áherzlu á hinar lík-
amlegu þarfir sjúklingsins en
hirtu minna um tilfinningar
hans og þörf fyrir ástúð.
Margir starfsbræður dr.
Stubblebines tóku undir þetta og
sögðu að oft væri ofdrykkju-
manninum sjálfum kennt um
Framhuid á lö. síðu,
vesturþýzka fiskiflotann að
draga úr fiskveiðum í norðlæg-
um höfum og í Norðursjónum,
og fiska þess í stað í hitabeltis-
höfunum.
Það er m. a. rannsakað, hvaða
horfur séu á því að þýzkir tog-
arar geti stundað túnfiskveiðar
úti fyrir ströndum Mið-Ameríku
og Vestur-Afríku.
Einnig er athugað, hvort þýzk
fiskiskip muni geta veitt sardín-
ur og svipaðar tegundir við
Kyrrahafsströnd Ameríku. Sér-
fræðingarnir telja mjög litlar
líkur á því að hægt sé að láta
þýzk skip veiða á svæðum ná-
lægt Suðurskautslandinu.
Þúsundir vilja seijasi í
Yináiiuháskólann
Rúmlega 16 þúsund stúdentar
frá Asíu, Afríku og Suður-
Ameríku hafa sótt um skólavist
í hinum nýja háskóla fyrir er-
lenda stúdenta sem stofnaður
liefur verið í Moskvu og sagt
var frá í ÞJÓÐVILJANUM fyrir
nokkru. Þessi nýi skóli ber
nafnið Vináttuháskólinn.
Sérstök nefnd tók umsóknirn-
ar til athugunar 1. ágúst og á
að ákveða hverjir skuli koma
til Moskvu til að taka inntöku-
próf í skólann.
Háskólaráðið hefur nú ákveð-
ið námsefni á undirbúningsnám-
skeiðum fyrir skólann. Þar eiga
stúdentarnir að læra rússnesku.
stærðfræði, eðlisfræði, sögu og
fleiri fög eftir því hvaða mennt-
un þeir hafa þegar og í hvaða
deild þeir ætla að setjast.