Þjóðviljinn - 07.08.1960, Side 9
Suhnudagur 7. ágúst 1960 ■— ÞJÓÐVILJINN —* (9
Ritstjóri: Frímann Helgason
Handknattleiksmóti Islands úti lauk
með þrem skemmtilegum leikjum
Handknattleiksmóti íslands úti
lauk á föstudagskvöld með þrem
skemmtilegum leikjum. Veður
var mjög gott og áhorfendur voru
allmargir, sem skemmtu sér
mjög vel. í karlaflokki var það
hreinn úrslitaleikur mili KR og
FH, og eins milli KR og Ár-
manns í kvennaflokki því þær
höfðu unnið hvor sinn riðil.
í öðrum flokki kvenna stóðu
leikar þannig að ef Ármann
hefði unnið' voru Víkingar og
Kgflvíkingar jafnar, en ef Vík-
ingar hefðu unnið voru þær
sigurvegarar.
Víkingar og Ármann skildu
jöfn 2:2,
Jafn og skemmtilegur leikur,
þar sem aðeins tvö mörk voru
skoruð. Víkingar skoruðu eitt
mark í fyrri hálfleik og lauk
hálfleiknum þannig. í siðari
hálfleik voru Ármeinningarnir
ágengari og tókst fljótt að jafna,
og taka forustu. Að vísu var
það heppnismark því knötturinn
lenti í varnarmanni og breytti
stefnu og hrökk í markið.
Nokkru fyrir leikslok tókst
Betty Ingadóttur að jafna fyrir
Útisuncfjdug
í Peking
Þessi mynd er frá Peking og
sýnir nýja litisundfaug sem
nýlega var tekin í notkun.
Um 2000 maims geta synt í
eimi í lauginni, án þess að
um þrpngsli sé aö ræða.
Víking, en þrátt fyrir góðar til-
raunir af beggja hálfu tókst
hvorugu liðinu að ná sigri, og
voru þetta nokkuð sanngjörn
úrslit. Jafntefli þetta gerði það
að verkum að þrjú liðin urðu
jöfn að stigum. eða Fram, Vík-
ingur og Keflavík, en Fram
hafði bezta markatölu og varð
því sigurvegari í mótinu.
Þetta mun vera fjórða mótið
sem Víkingsstúlkurnar í 2. flokki
kvenna eru í úrslitum og má
segja að þær hafi ekki heppnina
með sér. Ármann varð í fjórða
sæti. Dómari var Karl Jóhanns-
son og dæmdi mjög vel.
íslandsmeistarar Fram, og þeir
fyrstu í útihandknattleik kvenna
eru: Viktoría Kristjánsdóttir,
Ingibjörg Jakobsdóttir, Jóhanna
Sigsteinsdóttir, Unnur Færseth,
Hanna Sigurðardóttir, Jóhanna
Þórðardóttir, Auður Böðvars-
dóttir og Guðrún Valgeirsdóttir.
Framlengja varð' í kvennaflokki
í meistaraflokki kvenna var
leikurinn milli Ármanns og KR
mjög skemmtil'egur og alltví-
sýnn næstum allan tímann. KR-
stúlkurnar léku betur að þessif
sinni, reyndu meira að opna
vörn Ármenninga, með samleik
og stöðuskiptingum. Ármenning-
arnir voru mun órólegri og gáfu
sér ekki tíma til að athuga sinn
gang og skutu því um of í ó-
tíma. Það var þó Sigríður Lúth-
ersdóttir sem skoraði fyrst, með
föstu skoti, en Gerða Jóns jafn-
aði. Ármann tekur enn forust-
una með skoti frá Jónu en það
stóð ekki lengi því María fyrir-
liði KR jafnar, og áður en hálf-
leikurinn er á enda höfðu Gerða
og Perla skorað s.itt markið
hvor, Perla mjög vel af linu.
4:2 var staðan í hálfleik. Sigríð-
ur Lúthersdóttir skorar þriðja
mark Ármanns þrátt fyrir það
að Gerða sjái svo um að hún
komist sem minnst í leikinn og
tekst það vel. Inga Magnúsdótt-
ir eykur fyrir KR í 5:3, en
Hrafnhildur bætir fjórða mark-
inu við fyrir Ármann með nokk-
uð óvæntu skoti. María skorar
enn fyrir KR, og litlu síðar fá
Ármannsstúlkurnar vítakast og
var Sigríður Lúthersdóttir ekki
í vanda að skora úr því. Inga
virtist vera vel upp lögð og
skorar 7 mark KR 7:5 og nú er
langt liðið á ieikinn, virðist
þetta vera nokkuð öruggt fyrir
KR, en Ármannsstúlkurnar eru
ekki á því að gefa sig, og á
þeim mínútum sem eftir eru
jafna þær 7:7, var það Ása
Jörgens sem skoraði tvisvar í
röð.
í fyrri hálfleik framlengingar-
innar var ékkert mark skorað,
en þegar langt var liðið á síðari
hálfleik skorar Inga úrslita-
markið fyrir KR, og þriðja
mark sitt í leiknum. Eftir gangi
leiksins og leik liðanna var
þetta sanngjarn sigur fyrir KR
og mun þó mörgum hafa komið
það nokkuð á óvart, en þær
voru greinilega í betri æfingu.
Fara þær nú til Danmerkur i
haust sem íslandsmeistarar úti,
en að því vinna þær núna, og
má greinilega sjá það á þeim.
Dómari var Daníel Benjamíns-
son.
Íslandsmeistarar KR:
Erla ísaksen, María Guð-
mundsdóttir, Inga Magnúsdóttir,
Hrönn Pétursdóttir, Perla Guð-
mundsdóttir, Bára GuðmyndS-
dóttir, Þorbjörg Valdimarsdótt-
ir, Erla Friðriksdóttir, Erna
Finnbjörnsdóttir og Gerða Jóns-
dóttir.
FH lék sér að KR
og vann 25:10
í meistaraflokki karla má
segja að FH hafi leikið sér að
KR, og hafa aldrei sýnt aðra
eins yfirburði og í þessum leik.
Til að byrja með virtist sem
KR-ingar vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið því nokkuð eftir
miðjan fyrri hálfleik stóðu leik-
ar 9:1 fyrir FH og hafði Ragnar
skorað 8 þeii-ra! Meiddist hann
þá nokkuð og varð að yfirgefa
völlinn urn skeið. Hraði Hafn-
firðinganna var gífurlegur og
var greinilegt að á þessum stóra
velli nutu þeir sín mikið betur
en inni í hinum litla sal á Há-
logalandi.
í hálfleik stóðu leikar 11:4
fyrir FH. Og í byrjun síðari
hálfleiks tóku þeir sprett og
skoruðu 6 mörk á meðan KR
skoraði 1, 17:5. Um skeið í siðaiV
hálfleik náðu KR-ingar sér svo-
lítið. á strik og stóðu leikar þá
um skeið 20:9, en í lokaspretti
FH-inga skoruðu þeir 5 mörk
en KR aðeins 1 og lokatalan
varð 25:10, og með Ragnari heil-
um allan tímann hefði marka-
talan orðð mun meiri fyrir FH,
en hann virtist. alveg sérstaklega .
vcl fyí-ir kallaður.
Annars er allt liðjð. sem FH
teflir fram sterkt og jafnt og
allir geta skotið ef með þarf.
KR vantaði Hörð Felixson cg
hefur það vissulega haft sitt að
segja og Guðjón var heldur ekki
í markinu, en hinn ungi rriark-
maður, Sigurður Óskarsson,
varði samt oft vel. Það sýn r
nokkuð yfirburði FH að þeir
skoruðu 156 mörk en' fengu að-
eins 40 í öllu mótinu.
Þeir sem skoruðu mörkin í
leiknum voru:
Fyrir FH: Ragnar Jónsson 0,
Birgir Björnsson, Pétur Antons-
son, Kristján og Örn 3 mörk
hver, Einar, Bergþór og Ólafur
Thorlasíus 1 hver.
Fyrir KR: Reynir 5, Heins 3,
Pétur og Stefán 1 hvor.
Dómari var Hannes Sigurðs-
son og hefði mátt dæma fleiri
vítaköst fyrir ígrip á línu, en.
var annars mjög ákveðinn í
dómum sínum.
Á eftir afhenti formaður HSÍ
Ásbjörn Sigurjónsson, sigurveg-
urunum verðlaun og nældi
verðlaunapeninga í barm sigur-
vegaranna i meistaraflokki.
Þakkaði hann Ármanni fyrir
framkvæmd mótsins, og starfs-
mönnum þess.
Iþróttamót í Borgarfirðl
íþróttamót UMS Borgarfjarð-
ar 1960 fór fram að Faxaborg
dagana 23. og 24. júlí sl. Veður
var óhagstætt til keppni fyrri
daginn, en skárra þann seinni.
Magnús Jakobsson varð stiga-
hæsturi í keppninni, hlaut 17
stig og vann til eignar styttu
þá, er keppt heíur veriðum und-
anfarin ár.
Aðalheiðuj; Helgadóttir varð
stigahæst kona, hlaut 8 stig, og
vann í fyrsta sinn bikar sem
Þórarinn Magnússon gaf nú, og
vinnst hann til eignar hljóti
sama kona hann þrisvar. Sveinn
Jóhannesson vann bezta afrek
mótsins, í kúluvarpi, og hlaut
í fyrsta sinn bikar þann er Þór-
arinn gaf í fyrra. Úr.slit mótsins
urðu þessi:
<s---------------------------------
100 m hlaup:
Magnús Jakobsson R 12,1 sek.
400 m hlaup;
Magnús Jakobsson R 59.7 sek.
3000 ni hlaup:
Haukur Engilbersson í 9:43.4
Hástökk:
Þorbergur Þórðarson R 1,60
Langstökk:
Mag'nús Jakobsson R 5,92
Þrístökk:
Eyjólfur Engilbertsson R 11.97
Kúluvarp:
Sveinn Jóhannesson St. 12,63
Kringlukast:
Jón Eyjólfsson H 36,99
Spjótkast:
Þorbergur Þórðarson R 41,97
Gestur á mótjnu:
Gunnar Gunnarsson, Akran. 44.50-
80 m hlaup kvenna:
Björk Ingimundardóttir D 11.8
1500 m hlaup:
Haukur Engilbertss. í 4:33,6 miii-
4x100 m boðlilaup:
A-sveit Reykdæla 51.4
Hástökk kvenna:
Sigríður Karlsdóttir Sk. 1,21
Langstökk kvenna:
Jónína Hlíðar St. 4,50 (héraðsmjj
Stangarstakk:
Magnús Jakobsson R 3,15
Kúluvarp kvenna;
Aðalheiður Helgadóttir R 8.03
Gestur á mótinu:
Sigríður Kolbeins Akran. 8,5!
Kringlukast kvenna:
Aðalheiður Helgadóttir 3 21,42
Gestir á mótinu:
Fríða Júl’usdóttir Akran. 23.52
Kristín Tómasd., Akran. 22.52
Sólrún Ingvadóttir Akran. 2129-
Úrslit í stigum
Umf. Reykdæla 78 stig
Uml'. Skallagrímur 26 stig
Umf. Staíholtstungna 26 stig
Umf. Haukur 18 stig
Umf. íslendingur 8 stig
Umf. Dagrenning 6 stig
Umf. Vísir 3 stig
Umf. Þrestir i stig.